Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 15

Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 22. október 1980, 15 VISIR ,,Þetta er bylting 99 — segir Villi rakari um nýja hártoppa, sem eru komnir á markaröinn Keith S. Forshaw setur toppinn á Trendman Charlie og Villi rakari fylgist meö. (Visismyndir: Ella) „Það má segja að þetta sé hár- toppabylting en til skamms tima gátu aðeins kvikmyndastjörnur og aörir auðkýfingar leyft sér þennan munað en nú er þetta orð- ið almenningseign”, — sagöi Villi rakari, er við litum inn á stofuna hjá honum á mánudaginn. Hjá honum á stofunni var Keith S. Forshaw, framkvæmdastjóri breska fyrirtækisins Trendman sem framleiðir hártoppana sem hér um ræðir, og var hann hér til að kynna þessa nýjung „Þetta er Trendman Charlie og þetta er i fyrsta skipti sem hann kemur til tslands”, — sagöi For- shaw, og sneri sér að likani af mannshöfði með skalla. Siðan var hártoppurinn settur á Charlie, sem virtist yngjast við það um a.m.k. tuttugu ár. — „Nýjungarn- ar eru fólgnar i botninum sem er úr hárfinu neti sem sést ekki þeg- ar horft er ofan i höfuðið”, — sagöi Forshaw ennfremur. „Það er einnig nýjung, að viö festum Hægt er að þvo hártoppinn og höfuðiö um leiö. toppinum meö þvl, aö vangahárin eru dregin I gegnum botninn á toppnum þannig að hann situr alveg fastur, sama á hverju dyn- ur. Hin stormasama islenska veðrátta er ef til vill besti próf- steinninn á þaö hvernig þessi festing reynist. Annars höfum viö reynt þetta á kvikmyndastjörnum meö góðum árangri og meöal annarra sem hafa verið viöskiptavinir okkar eru Burt Reynolds, Sean Connery og John Wayne en þeir hafa geng- ið i gegnum ýmsar sviptingar svo sem slagsmál og sundspretti án þess að toppurinn haggaðist. Það er annað, sem einnig má benda á, að um leið og þú þværö toppinn þá gerir netið það að verkum, að þú þværö höfuðið um leiö þannig að kostirnir eru ótvi- ræðir,” — sagöi Keith S. Forshaw sem nú býður þessa þjónustu fyr- ir Islenska karlmenn sem eiga við vaxandi hárlos að striða. Burt Reynolds var sá fyrsti sem reyndi þessa gerð af hártoppum með góðum árangri. „Hún á afmælifdag’ mælisbarninu. - náttfatahópurinn tekur lagið til heiðurs af- Hér er veriö að skera afmælistertuna og móðir Bergljótar, Sigríður Eyþórsdóttir, framkvæmir þá athöfn, en hún var að sjálfsögðu einn- ig I náttfötum. (Visismyndir: Ella) Sérkennileg afmælisveisla: tirnir mættu á náttfötunum! „Eg var að máta náttföt ein- hverntima I sumar þegar mér datt allt i einu 1 hug, að láta atla koma I náttfötum i afmæliö mitt”, — sagði Bergljót Arnalds á Asvallagötunni en hún hélt upp á tólf ára afmælið sitt á föstudagskvöldiö I náttfötunum. En Bergljót var ekki ein i náttfötum þetta kvöld þvi allir boðsgestir komu i náttfötunum sinum og reyndar var það skil- yröi fyrir inngöngu i veisluna. Þar voru nitján boðsgestir, fiestir bekkjarfélagar Bergfjót- ar úr tólf ára bekk i Melaskóla. Bergljót sagöi að þetta fyrir- komulag á afmælinu hefði heppnast vel og meðal annars fóru krakkarnir út f náttfötun- um og hlupu niöur Asvallagöt- una, vegfarendum til mikillar undrunar. Meöfylgjandi myndir tók Ella, ljósmyndari Visis I náttfaraafmælinu á föstudags- kvöldið. Magaverkur Liza Minelli, hin 34 ara gamla superstjarna fékk magakveisu hér á dögunum og gat ómögu- lega skiliö af hverju verkurinn stafaði. Þeg ar farið var að athuga malið, kom i Ijós, aö leikkonan var með barni. Faðirinn mun vera hinn þritugi sambýlismaður hennar, Marc Gero en þau hafa aður gert tilraun til að eignast barn sem endaði með fósturláti. Þegar það gerðist, varð Liza svo yfirkomin af sorg, að hún kastaði sér ut i vodkadrykkju. Hún er nu komin yfir þá erfið- leika, og reynir aftur sem verðandi móðir... Sannanir Þúsundir hringdu daglega Þaö varð uppi fótur og fit hér á dögunum er þaö kvisaðist út, að Randy Jackson yngsti meðlimur The Jacksons, hefði lent i bilslysi og að sögn forráöamanna sjúkra- hússins, sem hann var lagöur inná, bárust um 5000 simtöl á dag þar sem spurt var um liðan hinn- ar ungu rokkstjörnu. Aödáendur þeirra bræðra linntu ekki látun- um fyrr en Randy haföi efnt til blaöamannafundar á sjúkrabeöi sinu þar sem hann tilkynnti aö heilsan væri að komast i lag og er meðfylgjandi mynd tekin viö þaö tækifæri. Annars er það nýjasta af bræðrunum að frétta aö Michael Jackson náði þeim góða árangri að selja plötu sina Off the Wall i sex milljónum eintaka og núna fyrir nokkrum dögum kom út plata bræðranna sem ber heitið Triumph. Hefur hún hlotiö góðar viðtökur erlendis og er taliö aö hún muni fylgja fast á eftir sóló- plötu Michaels hvað vinsældir snertir. Plata þessi er komin I verslanir hér heima. Randy efndi til blaðamannafund- ar til að róa aðdáendur sina sem hringdu þúsundum saman á sjúkrahúsið til að spyrja um liðan hans. Ljóshærða fegurðar- dísin Zsa Zsa Gabor hef- ur nú verið í umferð i nokkra áratugi og vekur jafnan athygli. Sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um að hún hafi nýlega látið lyfta á sér andlitinu og hefur þetta valdið mikilli reiði hjá henni og vinum hennar. Zsa Zsa hefur nú látið þau boð út ganga, að hver sá sem geti sannað að hún hafi fengið sér andlitslyftingu fái greidda eina milljón dollara i reiðufé...

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.