Vísir


Vísir - 22.10.1980, Qupperneq 5

Vísir - 22.10.1980, Qupperneq 5
Mi&vikudagur 22. október 1980. VÍSIR BJOOAST TIL SATTASAMN- INQA MILLI IRANS OG l'RAKS Habib Chatti, sáttasemjari mú- hammeðsrikja, segist vongóður um svar senn frá leiðtogum írans um tillögu hans varðandi það, að múhammeðstrúarrikin semji um endalyktir striðsins milli lrans og lraks. En i Beirút lýstu PLO, samtök Palestinuaraba, þvi yfir að þau hefðu haft milligöngu um, að sendiherrar lrans og íraks hjá aðalstöðvum Sameinuðu þjóð- anna i New York hefðu hist i gær og á þeim fundi orðið ásáttir um, aðnefnd skipuð fulltrúum óháðra rikja hlutaðist til um deilu þeirra. lran hefur hinsvegar itrekað lýst þvi yfir, að vopnahlé komi ekki til greina fyrr en siðasti iraski dátinn er i burtu af iranskri grund. Siðast i gær fékk sendi- nefnd frá Júgóslaviu, sem gegnt hefur forystuhlutverki i samtök- um óháðu rikjanna, þau svör hjá Rajai, forsætisráðherra frans, að málið snerist ekki um að stöðva striðið, heldur að írak kallaði herlið sitt heim. transka útvarpið heldur þvi fram, að Iransher haldi árásar- liðinu enn i skefjum við borgirnar Khorramshahr og Abadan. Þess- ar sömu fréttir hermdu að 317 Irakar hefðu verið felldir i gær og eyðilagðir 39 skriðdrekar fyrir trökum. A meðan tekur þingið i tran fyr- ir gislamálið i dag til umræðu, en nefnd sem skipuð var til að gera tillögur um skilyrði fyrir lausn gislanna mun ekki enn hafa skilað verki sinu. . .... ,.................................................... ............................................................ . -'V, ’■ C-sí- Við hveitiuppskeru i Bandarlkjunum, sem gert hafa viðamikinn sölusamning við Klna til næstu fjögurra ára. — A meðan hefur kornupp-skera Sovétmanna ekki náð settu marki. AFURDIRNAR NÁDU EKKI SETTU MARKI 5 ARA AÆTLUNINNI I Þing Sovétrikjanna kemur saman til fundar i dag til þess að fjalla um efnahagsáætlanir næsta árs i ljósi vonbrigða af siðustu kornuppskeru og minni fram- leiðslu iðnaðarins en ráð hafði verið gert fyrir. „Gerlr gíslamállð að pólitískum fólbolta. 99 - segip Carter um ásakanlr Reagans Carter forseti sakaði i gær Ronald Reagan um að gera sér „pólitiskan fótbolta” úr gislamál- inu. Reagan hafði fyrr um daginn kennt Carter um „auðmýkingu og svivirðu” fangavistar 52 Banda- rikjamanna i tran, sem verið hafa fangar frá þvi 4. nóvember i fyrra. Þetta er i fyrsta sinn, sem Kfna kauplr frá USA Kina og Bandarikin undirrit- uðu i dag viðamikinn kornsölu- samning, sem embættismenn i Washington segja, að færi banda- riskum kornbændum fjóra mill- jarða dollara á 4 ára-gildistima samningsins. Gerir samkomulagið ráð fyrir árlegri sölu á sex til niu milljón- um smálesta af bandarisku hveiti og mais til Kina á næstu fjórum árum. Er þetta stærsta kornsala sem Bandarikjastjórn hefur samið um, og var samningurinn undir- ritaður i Peking. Einnig gerir samningurinn ráð fyrir að Kinverjar fái að kaupa allt að niu milljónir smálesta af korni á einu ári en þó að undan- gengnum frekari samningum um það umframmagn. Kinverjar kaupa annars korn frá Kanada, Ástraliu, Argentinu og Frakklandi. gislamáliö er dregið inn i kosn- ingabaráttuna, og þá tveim vik- um fyrir kjördag. Höföu þá að- stoðarmenn beggja orðið ásáttir um sjónvarpseinvigi þeirra Cart- er og Reagans (án þátttöku Andersons) viku fyrir kosningar (i Cleveland næsta þriðjudag). Carter, sem var á kosninga- ferðalagi i Flórida, sagði, að Reagan hefði rofið óskrifað sam- komulag frambjóðendanna um að halda gislamálinu utan við kosn- ingaþrefið. — „örlög gislanna eru of mikilvæg til þess að gera sér pólitiskan fótbolta úr þeim,” sagði Carter. Þó hafði forsetinn fyrr i gærdag lýst þvi yfir á kosningafundi, að hann mundi losa um iranskar eignir, frystar i Bandarikjunum, og taka fleiri sáttaskref, ef gisl- unum yrði sleppt. Leonid Brezhnev forseti flutti ræðu i miðstjórn kommúnista- flokksins i gær og gaf þar til kynna, að voruppskera korns hefði verið töluvert minni en þær 235milljónir smálesta, sem stefnt hafði verið að. Brezhnev kvartaði einnig und- an þvi, að efnaiðnaður, samgöng- ur og matvæladreifing hefðu ekki náð settu marki. Fyrir tveim vikum var þvi spáð af landbúnaðaryfirvöldum, að heildarkornuppskeran yrði ekki nema 190 milljónir smálesta sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslif Sovétrikjanna. Kappræða Carters og Reagan p. 28. október Carter Bandarikjaforseti og Ronald Reagan, mótframbjóö- andi repúblikana, munu koma saman til kappræðu i sjónvarpi i Cleveland i Ohio þ. 28. október. John Anderson, sem býður sig fram utan flokka, tekurekki þátt i kappræðunni. Samkomulag náðist milli kosn- ingastjóra frambjóðendanna og kvennasamtakanna, sem kosta sjónvarpsútsendingarnar, eftir nær tveggja daga samningavið- ræður. — Útsendingin verður einnar og hálfrar stundar löng. t upphafi hafði verið ætlunin, að kappræðurnar yrðu þrjár og fór sú fyrsta fram i Baltimore i sið- asta mánuði, en þá mætti Carter ekki á hólminn. Kosningarráð- gjafar hans voru andvigir þvi, að John Anderson fengi að taka þátt i kappræðunni i fyrsta sinn, sem þeir öttu kappi saman i sjónvarp- ínu, Carter og Reagan. En kvennasamtökin, sem standa að útsendingunum, höfðu lýst þvi yf- ir, að Anderson yrði með, ef kannanir leiddu i ljós, að hann nyti 15% fylgis eða meir. Siöan hefur fylgi Andersons dalað i skoðanakönnunum. Stöövuöu sklpíð Verkfallsmenn hjá breska skipafélaginu Cunard kyrrsettu á dögúnum flaggskip félagsins „Drottning Elisabet 2.” kæmist f áætlunarsiglingu sina fra Sout- hampton á Englanditil New York i Bandarfkjunum á réttum tlma. Hinir 800 starfsmenn skipsins sem eru 1 baráttu við útgerð skipsins neituðu að ganga að störfum sinum og tafðist skipið við þaö um sólarhring. Þessar aö- gerðir bitnuðu mjög á hinum 1500 farþegum sem áttu far meö skip- inu til New York, en þeir voru langflestir bandariskir skemmti- ferðamenn á heimleið. sjónvarpstækja en Ibdar landsins nálgast það óðum aö vera einn milljarður. En nú stendur til að bæta veru- lega úr þessu og er áætlað aö flytja inn eða framlciöa I Kina á næsta ári geysilegt magn sjón- varpstækja. MálverkaMófar Mikiil málverkaþjófnaöur var framinn f listasafni f Stokkhólmi á dögunum, er þjofar brutust þar inn og stálu um 100 málverkum. Hér var um að ræöa 99 málverk eftir marga þekkta listamenn viösvegar að úr heiminum og einnig tvær vatnslitamyndir. Alls eru listaverkin sem stoiið var metin á 525 þúsund dollara aö sögn lögreglunnar i Stokkhólmi. Þjófarnir munu hafa komist aö listaverkunum með þvi að brjóta sérleiðupp úrkjallara listasafns- ins þar sem þeir höfðu komist inn. Ræninglaheimsökn Fjórir vopnaðir ræningjar drápu bankavörö i dag og komust undan með 320.000 dollara I reiðu- fé frá stærsta spilavfti f Monaco. Lögreglan sagöi, að rániö hefði verið framið þegar fjórir veröir voru að flytja peninga frá spila- vitinu til bankans, Ræningjarnir skutu átta skotum, drápu einn vörð og særöu annan alvarlega áöur en þeir komust undan. Peningarnir voru aöallega f kin- verskum gjaldeyri. Ræningjarnir komust undan til Hong Kong. Lögreglan þar mun hafa sam- ráð viö iögregluna i Monaco um að kófesta þjófana. Hlarta grætt í ungan svfa Sautján ára gamall Svii, Matti Myllyniemi aö nafni hélt nýlega til Kaliforniu i Bandarikjunum og á Standford spitala þar I rlkinu var grætt i hann nýtt hjarta. Talsmaöur spitalans sagðieftir aðgerðina að hún hefði tekist vel og aö Myllyniemi sem þá var á gjörgæslu væri við góða heilsu. Þaö var sænska rikisstjórnin sem stóð straum af kostnaði híns unga Svia við aðgerðina.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.