Vísir - 22.10.1980, Side 13
vísm
HROLLUR
Börn/ þetta er hann j Harold frændi ) * Halló/ Harold frændi.
O^VNKÉkÍA. BT rf^
Sleppiö öllu blaöri!
Þiö börn hafiö þaö alltof gott i dag!
Eq skal láta ykkur vita þaí aá þegar ég var krakki
áttum viö ekki einu sinni skó..
Ég vann 24 klukkustundir á dag og
fékk yfirleitt ekkert aö boröa nema
— nema steina — og maöur geröi sig
ánægöan meö þaö! Og vitiö þiö
afhverju P Af því aö ég
TEITUR
ó, maginn á mér... Oh.
EE.. á .. mér HÖur
hræöilega! Ég er aö
_________ devia!
Engin skot fyrr en viö komum út.
Ég^skal fara meö )
þig á sjúkrastofuna...
í Fljótur Fatti.
Hleypum hinum út.
V Viö veröum aö
V, flýtaokkurl-^
© Buus
Þetta tókst!
Enginn vandi!
Á hverju eigum
viö aö byrja,
Louie? i
CðWMC SOOM
Ná Teiti!
Fljótir!
Fljótir!
Fljótír.
coNro.
AGGI
Vá, skólinn okkar hefur
ekkert sparaö viö þetta atriöi
svo þaö geti tekist eins og
-----,ý—| til var ætlast! —11
Sjáöu! Allt er eins raunverulegt eins
og þaö getur veriö.
Aö undan skildum
utanborös mótor.
l \
IfSÓCBZ }'|
Miðvikudagur 22. október 1980. Miövikudagur 22. október 1980.
Fiugleiðaumræður á Aibingi:
Leggst flugiö
niður áöur en
aöstoöin fæst?
Af orðum Ragnars Arnalds fjármálaráðherra á Alþingi við umræður um
Flugleiðamálið.má draga þá áiyktun, að ekki veröi gengið endanlega frá að-
stoð rikisins við Flugleiðir á næstunni. Sagði ráðherrann, að heildarupphæð
ábyrgðar og nánari skilmálar rikisstjórnarinnar yröu ekki ákveðnir fyrr en
fram hefði farið itarleg rannsókn á hvaða veð félagið hefði og fleiri atriðum.
Hins vegar er ljóst að Flugleiöir þurfa á einhverri fyrirgreiöslu aö halda nú
þegar ef reksturinn á ekki að stöðvast.
Skýrsla samgönguráðherra um
Flugleiðir var tekin til umræðu i
Sameinuðu þingi 1 gærdag, en Al-
þýðuflokkurinn hafði óskað eftir að
slik skýrsla yrði gerð og lögð fram á
Alþingi. Umræöu um skýrsluna var
hins vegar frestað um klukkan 19,
þegar farið var að hitna i kolunum
Steingrimur Hermannsson sam-
gönguráðherra fylgdi skýrslunni úr
hlaði. Hann taldi að sú aðstoð sem i
boöi væri frá rikisstjórnum tslands
og Luxemborgar ætti nokkurn veg-
inn að nægja til að greiöa áætlað tap
Flugleiða á Norður-Atlantshafsleið-
inni i eitt ár. Hins vegar væri ljóst að
afkoma félagsins I júli og ágúst væri
mun lakari en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Sér sýndist hins vegar eins
langt gengið i aðstoð við félagið eins
og hann treysti sér til. Rikisstjórnin
stæði við öll sin loforð og raunar vel
það.
Ráðherrann sagði að vandi N-
Atlantshafsflugs Flugleiða væru
smámunir samanborið við vanda fé-
lagsins I heild sem ekki breyttist þótt
fluginu vestur yrði hætt. Vart nægði
12 milljón dollara ábyrgð fyrst ekki
hefði tekist að selja tvær Boeing 727-
100 þotur. Flugleiðir væru stórskuld-
ug öðrum flugfélögum og kynni að
koma til stöðvunar, þar sem oliu
þyrfti nú að staðgreiða. Einhver aö-
stoð þyrfti að koma fyrir mánaðamót
og myndu viðskiptabankar félagsins
reyna að bjarga málum.ef likur væru
á að Alþingi samþykkti aðstoðina.
Staðan er jafnvel verri en fram hefur
komið, sagöi Steingrimur Her-
mannsson.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
notaði rétt sinn sem ráðherra til að
tala strax, þótt hann væri áttundi
maöur á mælendaskrá.
Hann kvaö rlkisstjórnina hafa gert
hreint fyrir sinum dyrum en eftir
væri að svara ýmsum spurningum.
Hver heildarupphæö rikisábyrgöa
yrði og hvaöa aöra skilmála rikis-
stjórnin myndi setja fyrir aðstoð við
Flugleiðir kæmi ekki i ljós fyrr en að
lokinni itarlegri rannsókn. Tveir
menn væru aö meta eignir félagsins
og aðrir tveir komnir frá Los Ange-
les til að meta flugvélar Flugleiða.
Þvi mati lyki væntanlega um næstu
mánaðamót.
Þá skammaðist Ragnar út i skrif
Morgunblaðsins um afstöðu Alþýðu-
bandalagsins til Flugleiða og sagði
þau skrif stórhættuleg. En ef Flug-
leiðir ætluðu aö gera kröfur um frek-
ari aðstoð kvaðst ráðherrann segja
hingað og ekki lengra.
Benedikt Gröndal formaður Al-
þýöuflokksins.talaði næstur og sagöi
meöal annars, að ekki færi milli
mála aö Alþýöubandalagiö heföi
annarlega stefnu i þessu máli. Þeir
vildu draga og draga lausn þess til að
koma Flugleiöum á kné. Það mætti
ekki fella niður þetta flug. ef nokkur
kostur væri að halda þvi áfram.
Benedikt átaldi þann seinagang
sem hefði veriö af hálfu rikisins i
þessu máli. Það væri búið að veltast I
sjö mánuði og enn væri engin lausn
komin. Uppákoma Alþýðubanda-
lagsmanna væri með eindæmum.svo
ekki væri minnst á hneykslið varð-
andi annan eftirlitsmanninn.
Þá sagði Benedikt.að ekki kæmi til
greina að Alþýðuflokkurinn sam-
þykkti frumvarpiö um málefni Flug-
leiða, ef rikisstjórnin ætti siöan að
setja skilmála eftir eigin höföi.
Friðrik Sophusson tók til máls og
rifjaði meðalannars upp ýmis um-
mæli ölafs Ragnars Grimssonar
sem bentu eindregiö til þess aö hann
vildi þjóðnýta Flugleiðir. Friðrik
deildi harkalega á meðferð rikis-
stjórnarinnar á þessu máii og e'kki
sist væru það Alþýðubandalagsmenn
sem tefðu máliö og nauðsynlegar á-
kvarðanir.
„Likja má afstöðu Alþýðubanda-
lagsins gagnvart Flugleiðum við
bónda, sem beðinn er um að lána hey
i nauðum og hann bregst við meö þvi
aö setja þau skilyrði, að skepnunum
sem éta áttu heyið, veröi slátrað”,
sagði Friðrik.
Þá drap hann á greinargerð eftir-
listmanna Flugleiða og vitnaði i bréf
sem Rúnar B. Jóhannsson. rikis-
endurskoðandi, sem yfirfór gögn
endurskoðenda Flugleiða, sendi
eftirlitsmönnunum, en þar segir:
„Eftirlitsmennirnir ættu ekki, að
áliti RBJ, að leggja eitthvert ofur-
kapp á að toga það endurmat niöur,
sem stjórnendur fyrirtækisins reyna
að hifa upp. Hversu mikiö, sem reynt
verður að toga endurmatið niður,
veröur ekki hægt að ná „verðmæti”
Flugleiða h/f pr. 30.06.80 niður fyrir
núlliö”.
Nú tók Vilmundur Gylfason til
máls og gustaöi af honum. Hann
taldi aö þingnefnd hefði átt að fá þaö
verkefni að svara spurningum þeim
er Ólafur Ragnar Grimsson bar
fram haustið 1978.er hann, Ólafur,
vildi rannsókn á Flugleiðum. Þá
heföu upplýsingar legið fyrir fyrr.
Hann minnti á loforð Steingrims á
fundi i Luxemborg i mars á þessu ári
og sagði fyrirhugaða aöstoö rikisins
ganga mun skemmra. Siðan hélt Vil-
mundur áfram gagnrýni á Steingrim
i þessu máli og minnti á lánaloforö
hans til tiltekinna starfshópa innan
Flugleiða. Taldi hann vafasamt, að
ráðherrann væri trausts verður i
þessu máli yfirhöfuð, og sagði að Al-
þingi yrði að vita hvaða skilyrði
rikisstjórnin ætlaöi að setja Flug-
leiöum fyrir aðstoð.
Steingrimur svaraöi Vilmundi af
hörku og var að færast fjör i leikinn
þegar fundi var frestað. —SG.
Margt manna fylgdist meö umræðunum á Alþingi i gær en þeim verður fram haldið I dag, þegar frumvarp rikisstjórnarinnar veröur tekið
til umræðu. (Visism. Ella).
vtsm
Kynnist
einstakri næmni,
tærleika, fyllingu,
snerpu og krafti
^uppr-?\ magnara
— magnara
sem ekki átti
aö vera hægt aö smíöa
Þegar viö segjum bylting meinum viö
8 GERÐIR