Vísir - 30.10.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. október 1980
VÍSIR
3
Karvel Pálmason hefur unnið sig
upp I gegnum verkalýftshreyfing-
una, en samt.....
Linurnar varðandi yfirstand-
andi forsetakjör hjá Alþýðusam-
bandinueru nii farnar aðskýrast,
og virðist flest benda til þess, að
Ásmundur Stefánsson nái kjöri f
það embætti. Kemur þar tvennt
til: 1 fyrsta lagi er orðið nokkuð
Ijóst, að hann kemur til með að
njóta stuðnings mikils meirihluta
stjórnarsinna á Alþýðusam-
bandsþinginu, og i öðru lagi nýtur
hann mikils persónulegs trausts
innan verkalýðshreyfingarinnar,
sem nær langt út fyrir raöir
flokksbræðra hans.
Stjórnarsinnar i
meirihluta
Erfitt er aö henda nákvæmar
reiður á þvi', hvernig hinir liölega
400 fulUrúar á Alþýðusambands-
þinginu i lok nóvember, koma til
með að skiptast niður á hina
ýmsu stjórnmálaflokka, en það er
ómótmælanleg staðreynd aö
flokksbönd ráða mestu um fram-
vindu mála á þeim þingum.
Séu verkalýðsforingjarnir i
stjórnmálaflokkunum spurðir á-
lits á hlutfallslegri skiptingu,
kemur eftirfarandi i ljós:
Alþýöubandalagsmenn telja, aö
þeirsjálfirgeti eignaö sér 160-170
fulltrúa, Alþýðuflokkurinn hafi
100-110, Framsóknarflokkurinn
40-50 og Sjálfstæöisflokkurinn 90-
100.
Alþýðuflokksmenn telja hins
vegar, aö hámarksfylgi Alþýðu-
bandalagsins sé 150, sjálfir hafi
þeir fylgi 110-120, Framsóknar-
flokkurinn 40-50 og Sjálfstæðis-
flokkurinn 90-100.
Framsóknarmenn telja fylgi
Alþýðubandalagsins vera 150, Al-
þýöuflokksins 80-90, sjálfir hafi
þeir 70-80 og Sjálfstæðisflokkúr-
inn sé meö 90-100.
Sjálfstæðismönnum bar nokk-
urn veginn saman viö alþýðu-
bandalagsmennina, nema hvað
þeir álitu sig fullt eins f jölmenna
og Alþýðuflokkinn.
Þessar tölur eru auövitaö
hreinarágiskanir og hafa verður i
huga, að margir fulltrúar koma á
Alþýöusambandsþing án þess að
vera þjakaðir af hollustu við
nokkurn flokk. Flestir eru þó
sammála um aö sá hópur telji
ekki fleiri en fimmtiu manns.
Innbyrðis skipting
sjálfstæðismanna
ræður miklu
Jafnvel þótt ofangreindar tölur
kunni að gefa grófa mynd af hlut-
fallslegum styrkleika flokkanna á
Alþýöusambandsþinginu, segja
þær ekki nema hálfa söguna um
hugsanlega fylkingaskipan i for-
setakjörinu. Þar ræður innbyröis
skipting sjálfstæðismannanna
mestu, og enginn viðmælandi
blaðsins áræddi aö gera sér hug-
myndir um hana. Flestir voru þd
sammála um að stuðningsmenn
Gunnars Thoroddsen, og þar með
rikisstjórnarinnar, væru nægi-
lega margir til þess að þeir, aö
viðbættum alþýðubandalags-
Forsetakjör á AlpýðusambandsÞingi eflir mánuö:
Fált virðist gela ógn-
að sigrl Asmundar
mönnum og framsóknarmönnum,
gætu tryggt Asmundi meirihluta i
forsetakjörinu. Og þetta er ein-
mitt sú fylkingaskipan, sem
menn telja liklegast að veröi ofan
á þegar upp verður staðiö: ann-
ars vegar alþýöubandalagsmenn,
framsóknarmenn og Gunnars-
armurinn hjá sjálfstæðismönn-
um, og hins vegar alþýðuflokks-
menn að viöbættum Geirsarmin-
um. Að launum fyrir stuðninginn
við Asmund fengi svo Gunnars-
armurinn sinn mann, Björn Þór-
hallsson, kjörinn sem varafor-
seta.
Hlaupast framsóknar-
menn undan merkjum?
Stjórnarandstæðingar, sérstak-
lega kratar, gera sér hins vegar
vonir um að fylkingaskipan verði
með öðrum hætti en ofan greinir.
Þannig telja þeir vel hugsanlegt,
að framsóknarmenn sjái fram á
stjórnarslit innan ekki alltof
langs tima og þvi vilji þeir ekki
kalla yfir sig alþýöubandalags-
mann sem forseta Alþýöusam-
bandsins næstu fjögur árin. Al-
þýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur gætu i hugsanlegu stjórn-
arsamstarfi, og þá með Sjálf-
stæðisflokknum eöa hluta hans,
viljað gripa til aðgerða i efna-
hagsmálum sem ekki nytu stuðn-
ings verkalýðshreyfingarinnar,
og þá væri ekki friövænlegt að
hafa alþýðubandalagsmann i for-
sæti hjá ASl. Alþýðusambands-
forsetar sitja nefnilega út sin
kjörtimabil þótt rlkisstjórnir geri
það ekki. Þetta vona kratar sem
sé að verði til þess, að þeirra
frambjóðandi, sem aö öllum lik-
indum veröur Karvel Pálmason,
hljóti stuðning framsóknar-
manna.
„Samsærismenn á
hverju strái”
Þaö dygði þó skammt ef Karvel
fengi ekki einnig atkvæði að
minnsta kosti helmings sjálf-
stæðismannanna. Þarna kemur
stóra spurningin um innbyrðis
skiptingu þeirra, en undir öllum
kringumstæðum veröur þaö aö
teljast i meira lagi fjarlægur
möguleiki, að Karvel gæti ógnað
Asmundi verulega I forsetakjör-
inu. Þó mættu menn hafa i huga
þessi orð, sem einn verkalýösfor-
inginn lét falla i samtali við
blaðamann I gær: „Maður getur
aldrei verið viss um neitt I þess-
um efnum — þaö er makkaö i öll-
um skúmaskotum og samsæris-
menn á hverju strái”.
Á endanum ræður
pólitikin
En það eru ekki bara hinir póli-
tlsku hópar sem Asmundur
Stefánsson hefur að baki sér, sem
gera hann sigurstranglegastan i
forsetakjörinu, heldur ekki siöur
það persónulega traust sem hann
hefur áunnið sér i starfi fyrir
verkalýöshreyfinguna.
Ýmsir, þar á meðal Karvel
Pálmason, finna Asmundi það til
foráttu, aö hann eigi sér ekki ræt-
ur i verkalýöshreyfingunni,
heldur hafi komiö inn i hana ofan
frá og þvi sé óeðlilegt að hann
veröi forseti heildarsamtakanna.
Þetta viröist þó ekki vera rikjandi
skoöun, eins og eftirfarandi orö
eins af verkalýösforingjum Sjálf-
stæöisflokksins bera með sér:
„Asmundur hefur verið i fylking-
arbrjósti fyrir verkalýðshreyf-
inguna um margra ára skeið og
allir eru sammála um, hvar i
Asmundur Stefánsson er sigur-
stranglegastur I forsetakjörinu
þrátt .fyrir „faglegan uppruna
sinn.
flokki sem þeir standa, að hann
hafiskilaðsinuverkefnimjög vel.
Varöandi það atriði, að hann hafi
ekki komið upp i gegnum hreyf-
inguna, má ekki gleyma þvi, aö
hann hefur varið nær allri starfs-
ævi sinni i hennar þágu og hlotið
miklar vinsældir fyrir. Við skul-
um lika hafa það 1 huga, að
Hannibal Valdimarsson, einn
mikilhæfasti verkalýðsforinginn,
kom inn i verkalýöshreyfinguna
sem kennari, og ekki var hann
verri forseti fyrir þaö”.
Það er þvi nokkuð ljóst, að
„faglegur uppruni” Asmundar
J»rf ekki að verða honum aö falli,
en á endanum veröur þaö samt
pólitikin sem ræður úrslitum.
—P.M.
Frá Alþýðusambandsþingi: á endanum ræður þar pólitfkin mestu.
Guðný Gunnlaugsdóttir, hárgreiðslumeistari mun gefa holl ráð um
hvernig hægt er að öðlast heilbrigt hár með HENNA-aðferðinni.
Hún mun á næstu vikum kynna HENARA — HENNA vörur i ýmsum
lyfja- og snyrtivöruverslunum.
átt þú í
vandræðum
með hári
Er þoð of feitt - þurrt - doutt...
Leitaðu
hjá mei