Vísir - 30.10.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 30.10.1980, Blaðsíða 4
4 VÍSIR Fimmtudagur 30. október 1980 erlendar íréttlr Brezhnev trónar einn á hóinum Meðan hinir ýmsu forkólfar sovéska kommúnistaflokksins koma sér fyrir i startholunum fyrir 26. flokksþingið, sem hefst eftir fjóra mánuði, sést hvar einn þeirra hefur tekið sér stöðu langt fyrir framan hina. Hinn 74 ára gamli Leonid Brezhnev hefur aldrei staðið traustari fótum i valdakerfinu en einmitt nú. Einn eltir af hrenningunni 1 þau sextán ár, sem hann hefur stýrt flokknum og um leið ráð- stjórninni, hefur hann komið gömlum vinum og samherjum frá Dnepropetrovsk til æðstu em- bætta innan flokks og rikisstjórn- ar. Auk svo fjölda nýrra, sem hann hefur eignast siðan. Hinir tveir úr stjórnarþrenn- ingunni, sem tók við völdum eftir að Nikita Krúsjeff var vikið frá, nefnilega þeir Nikolaj Podgornij og Aleksei Kosygin, hafa orðið að yfirgefa stjórnpallinn. Eftir stendur þvi einn uppi á hólnum Brezhnev og virðist ekkert þess megnugt að hagga honum úr for- sæti, nema ef væri þá helst Elli kerling og heilsubrestur, sem knúðu einmitt Kosygin úr forsæt- isráðherrastólnum i' siðustu viku. t þann stól er kominn i staðinn enn einn æskuvinur Brezhnevs, hinn 75 ára gamli Nikolaj Tikhon- ov. Honum til aðstoðar trónár svo einnig annar nýr áhrifamaður, sem er hinn tiltölulega ungi Valentin Makejev, aðstoðarfor- sætisráðherra, en hann er einnig i sterkum samböndum við Brezh- nev. Makejev er maður fimmtug- ur að aldri, og eru tengsl hans og Brezhiievs að visu yngri af nál- inni, en Makejev er fyrrum for- maður flokksdeildarinnár i Bau- man-hverfi Moskvu, sem er ein- mitt kjördæmi Brezhnevs. Vegna aldursins þykir það vert að gefa honum auga i framtiðinni, þegar öldungarnir draga sig i hlé. Óvænt brotthvarl Kosygins Það var óvænt að, þegar Kosy- gin varð að vikja svona skömmu fyrir flokksþingið. En það var engum vafa undirorpið, aö hann átti við alvarlegan heilsubrest að striða og átti sér ekki nægilega batavon til þess að taka aftur upp sin fyrri störf. Forystunni hefur að likindum þótt vissara aö setja starfhæfan mann i hið mikiivæga forsætisráðherraembætti timan- lega fyrir flokksþingið. Mönnum brá nokkuð viö það, þegar Brezhnev tilkynnti á fundi æðsta ráðsins, að Kosygin drægi sig i hlé, og virtist sneiða vand- lega hjá þvi að þakka Kosygin unnin störf. Þegar vestrænir fjöl- miðlar veltu vöngum yfir þvi, hverju það sætti, flýttu málgögn sovéska kommúnistaflokksins, deginum siðar, sér að bæta þvi við frásagnir af fundinum, eins og fyrir eftirþanka, að Brezhnev hefði sent Kosygin þakkarkveðj- ur. — Það er enda ekki sérdeilis trúlegt, að pólitisk staða Kosy- gins hafi verið orðin svo veik að þurft hefði að gera hann að sekt- arlambi á væntanlegu flokksþingi fyrir stöðuna i efnahagsmálunum og hversu landbúnaðarfram- leiðslan hefði lengt langt á eftir á- ætlun. Að visu verður ekki útilok- að, að Brezhnev hafi átt einhvern þátt i þvi, að Kosygin vék frá ein- mitt núna. Hitt vegur þó þungt á metunum, að ótrúlega hefði Kosygin núna siðsumars verið til- nefndursem einn aðalræðumaður á 26. flokksþinginu, ef ráðagerðir voru uppi um að vikja honum frá. Ellin sækir að En burthvarf Kosygins úr flokksforystunni undirstrikar hins vegar einn aðalvanda valda- klikunnar I Kreml. Þeir eru allir komnir svo til ára sinna, að litið má út af bera og smávægileg veikindigeta settþá algjörlega úr leik. A það ekki sist við um Brezh- nev sjálfan, sem hefur ekki sið- ustu árin gengið heill til skógar. Ber það upp á sama tima, sem „staðan i alþjóðamálum er orðin afar flókin” svo að tekið sé til láns orðalag Kremlverja sjálfra, þeg- ar þeir tala til alþýðunnar heima fyrir. Sjaldgæfur endlr valdaferlls Það hefur ekki farið leynt, að hagvöxturinn hefur farið minnk- andi eftir þvi sem liður lengra á núgildandi fimm ára áætlun. Sovétrikin eiga áfram úr nægum náttúruauðlindum að spila en það sem vakið hefur gagnrýni — ekki hvað minnst frá Brezhnev sjálf- um — er, hvernig haldið hefur verið á þeim spilum. Og með þvi að Kosygin bar aðalábyrgð á efnahagsmálunum, lá beint við að ætla, að hann yrði sektarlambið, sem dregið yrði til ábyrgðar fyrir stöðuna. En Kosygin á áfram sæti i æðstaráðinu og miðstjórninni, og það þótt hann hafði sjálfur óskað þess, að verða einnig leystur undan þeim skyldustörfum. Haldi hann sæti sinu áfram þar til flokksþingsins, þýðir það, að hann dregur sig i hlé með heiðri og sóma, sem er fátltt um æöstu ráðendur I Sovétrijunum. írezhnev stendur nú einn langfremstur valdamanna Kreml, ftir að Kosygin (i baksýn) hefur dregið sig i hlé Mlkil aftðii ð bjargfugii 1 Noregi Norðmenn hafa orðið þungar ■ áhyggjur af miklum afföllum i I bjargfugli þeirra, lunda, langviu I og álku. — Það er talið, að um I milljón lundapysjur eða ungar I hafi drepist þetta árið af fæðu- j skorti, og aðeins litill hluti álku- j unga og langviuunga hefur kom- j ist upp. f Mestu fuglabjörg Norðmanna | eru i norðurhluta landsins, en I einnig má finna fuglabjörg á j Vesturlandi. Allt frá þvi 1970 ■ hefur verið óeðlilegt ástand i J bjargfuglabyggðum á Raust i J Norður-Noregi. Að undanskildu | árinu 1974, þegar lundarnir komu J ungum sinum upp nokkurn veg- I inn eðlilega, eftir þvi sem best I varð séð. Siðustu árin hins vegar I hafa nær allir ungar lundans 1 drepist. Annars staðar þar norður | frá hafa menn einnig gefið gaum | óeölilega miklum afföllum hjá | „prófastinum”. j Rannsóknir við Runde utan við | Alasund á Vesturlandi sýna, að | um 70% unganna hafa drepist. | Undantekningar eru á örfáum | stöðum I Finnmörk, nyrst i land- 2 inu. Þótt ungadauöinn hafi ekki ver- | ið eins mikill hjá álkunni og lang- ■^viunni, hefur samt gengið mjög alvarlega á þann fuglastofn frá þvi 1970. Núna árið 1980 er ætlað, að stofn álka og langvia sé ekki nema helmingur af þvi, sem hann var 1970. Visindin hafa ekkert óyggjandi á reiðum höndum við spurning- unni um, hvað valdi þessu. Fæðu- skortur er þó örugglega aðalá- stæðan fyrir ungadauðanum. 1 grennd við Raust finnst ekki nema 1-3% smásildarstofnsins, sem þar var áður, og var aðal- fæða sjófugla. Að álkunni steöjar auk þess önn- ur hætta. Það er talið, að meir en 50 þúsund álkur drepist ár hvert með þvi að festa sig i veiðarfæri, drauganet og laxanet. Einnig ber orðið meira á oliumengun I sjón- um en áður, og hefur oliubrákin orðið mörgum sjófuglinum að aldurtila, eins og menn kannast vel viö hér á íslandi. Macmillan var ekki hissa. óllkar ályktanlr Það hefur komið mönnum á ó- vart, hversu her lrans hefur spjarað sig og staðið i innrásarliði iraks. Héldu menn landvarnir irans f molum eftir hreinsanirnar i foringjasveitum hersins í of- stæki æöstaprestsins. Harold Macmillan, fyrrum for- sætisráðherra Bretlands, vill hins vegar teija, að æöstiklerkurinn hafi eínmitt sýnt þvert á móti mikla forsjálni, þegar hann grisj- aði í foringjaliöinu. — „Þvi miöur var ekki svo vei ástatt hjá okkur 1914”, sagöi hann nýlega. Gáfumannaskortur Það var lengstum aðatkeppi- kefli framagjarnra námsmanna I Sovétrikjunum, að komast i máladeild Moskvuháskóla og læra erlend tungumál, stjórn- málafræði og fleira, en með þvi þótti vis vegurinn að háum em- bættum hjá þvi opinbera og i á- hrifastöður. Engar skýrslur liggja fyrir um, hvaö breytt hefur viðhorfunum, en nú er aösóknin dræmari. Kunnugir i Moskvu þykjast þó vita, hvað valdi. Ahuginn er nú allur fyrir þvi aö komast i em- bætti, sem duga til þess að veita aögang að sérverslunum stór- bokkanna, þar sem á boðstólum er varningur, sem alþýöa manna á ekki kost á. En minni áhugi er fyrir valdastööum. Þykir þetta bjóða heim vand- ræðum ráðamanna til þess að fá úr menntakerfinu vel hæfa unga gáfumenn til þess aö gæða valda- kerfiö nýju lifi. óglögg lýslng „Frændi minn er fæddur i Siem Reap i Kabódfu. Hann á heima hjá markaðstorginu I Aranyapra- thet, skammt frá 4ra hæða hóteli. Það vantar á hann annað eyraö. Hann er svinakjötskaupmaöur". Þannig iýsti einn flóttama'ður- inn frá Kambodiu eina ættingja sinum fyrir fióttamannahjálpinni i Thailandi. Landfræðileg stað- setning var að visu ekki ýkja itar- leg, en iýsingin á manninum dugði til þess að frændinn fannst fljótlega. — En dæmið gefur nokkra hugmynd um verkefni flóttamannahjálparinnar. Ertöaprins N-Köreu Fyrsta kommúniska valdaætt- in, þar sem valdastóllinn gengur I erfðir, er nú að vaxa upp i N- Kóreu. Hinn 68 ára gamli Kim II Sung, sem fariö hefur með völd siðan 1948, er nú farinn að ryöja syni sinum braut upp 1 valdastól- inn. Hinn 39 ára gamli Kim Jung var nýlega geröur aö leiðtoga flokksins, sem er næstæðsta em- bætti landsins og gengur forseta- embættinu næst. Um leið fékk „krónprinsinn” sæti I æðstaráði flokksins. Kurtelsir í návlst Kóngaföiks 1 heimsókn sinni til Rómar á dögunum notaði Elisabet Breta- drottning tækifærið og þakkaði RómVerjum sögulegt framlag þeirra til vestrænnar menningar. „Þegar þið lögðuð grundvöliinn að London, skópuð þið þá borg, þar sem ég dvel mestan hiuta árs”, sagði hennar hátign. Annað athyglisvert við þessa heimsókn var móttaka borgar- stjóra Rómar, kommúnfstans Petroselii, sem bauð þennan full- trúa bresku konungsfjölskyld- unnar hjartanlega velkominn. Hann þakkaði henni fyrir hennar störf og sló þvi föstu, að heimsókn hennar mundi styrkja trú ltala á framtiðina. Sést þar vel, aö kurteisiega get- ur fariö á með kommúnistum og kóngafólki. í náðlnnl hjá æðstaprestinum Sadegh Ghotbzadeh er ekki lengur utanrikisráðherra lrans. Hann neitaði að sitja f stjórn Rajai, þegar hinn siðarnefndi tók sæti forsætisráðherra. En áhrif Ghotbzadeh þykja hafa aukist til muna við breyting- una, þvi hann stendur siöan nær Khomeini æðstapresti en nokkru sinni fyrr. Ráöherrann fyrrver- andi hefur byrjaö útgáfu dag- blaðs á persnesku og stendur I nánum tengslum við klerk.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.