Vísir - 07.01.1981, Blaðsíða 3

Vísir - 07.01.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. janúar 1981 3 "1 vísm BENSfNAFGREIÐSLUMENN SAMÞYKKTU SAMNINGINN Náðu fram 19.2% hmkkun sem uiidlr frð 1. nóvl ■ Bensinafgreiðslumenn úr Verkamannafélögunum Dags- | brún og Hlif i Hafnarfirði komu I saman til fundar i gær, þar sem nýgeröur kjarasamningur var | kynntur og gengið til atkvæða- . greiðslu um hann. Um 110-120 I félagsmenn sóttu fundinn og var L-_........ samningurinn samþykktur meö nær öllum atkvæöum fundar- manna. Aðeins einn greiddi at- kvæði gegn honum. Verkfalli hefur þvi veriö aflýst. Samkvæmt hinum nýja kjara- samningi er meðaltalshækkun launa 17.6%, en séu önnur metin atriöi reiknuð með, felur samn- ingurinn i sér 19,2% hækkun. Auk þessa eru ákvæði i samn- ingi, sem ekki eru vegin. T.d. skal bensinstöðvum lokað kl. 16 i stað 18. á skirdag, 2. páskadag, sumardaginn fyrsta upp- stigningardag og 2. hvitasunnu- dag. Byrjunarlaun með álagi verða rúmlega 530. þús og laun - eftir 5 ár með álagi rúml. 576. þúsund krónur. Agreiningsatriðið um námskeiðahald fyrir starfs- menn eftir 5 ára starfsaldur náðist ekki fram, en i stað þess fengu þeir sem hafa náö ofan- greindum starfsaldri 1.2% aukahækkun launa. Er það um 50% starfsmanna Samningurinn gildir frá 1. nóvember 1980 til 1. nóvember 1981. Undraiugllnn á Grundarflrðl f miðju Grundarfjarðarþorpi vappaði litill haftyrð- ill um fönnina. Slikt þætti varla nýmæli ef haftyrðillin væri hér fastagestur, en slikir fuglar hafa jafnan vakið undrun landsmanna og hér áður töldu menn fuglinn vera undrafuglinn Halkion, er hann flaug hingað til lands i stórum hópum. Haftyrðillinn er þó kunnari á slóðum við Grimsey og Kolbeinsey en þar verpir hann. Heimkynni fuglsins eru annars við Grænland, og þykir Grænlendingum haftyrðillinn hinn besti matur, súrsa hann i tunnur, og snæða við hentugt tækifæri. Hér sjáum við haftyrðil þeirra Grundfirðinga, þar sem hann vappar um stofugólfið hjá Bæring Cecilssyni, er tók myndina. ÍT\ Wmm Styrkup ur Málfrelsissjóði Stjórn Stúdentaráðs sótti til Málfrelsissjóðs um styrk til að greiða málskostnað og miska- bætur Gests Guömundssonar og Rúnars Armanns Arthúrssonar, fyrrverandi formanns Stúdenta- ráðs og ritstjóra Stúdentablaðs- ins, sem tilkomin eru vegna málaferla aöstandenda undir- skriftasöfnunar Varins lands. Beðið var um styrk að upphæð 630.500 Gkr. Stjórnin kynnti sér fylgiskjöl með umsókninni, vegna dóma Hæstaréttar i málum Gests og Rúnars Armanns, og komst að þeirri niðurstöðu, aö sú aöstoö sem fariö var fram á félli undir þaö hlutverk sem sjóönum er ætlað. Hún samþykkti þvi að ~ veita umbeðinn styrk. „NOKKRIR DAGAR I AR NÝJA MVNTIN NÁI UNDIRT0KUNUM” Gjaldmiðilsbreytingin er þegar farin að sýna sinar broslegu hliðar. Hikandi viðskiptavinir yfir seðlunum sinum og hugsandi afgreiðslufólk setja nú svip sinn á verslanir. Sumir munu jafn vel hafa harðneitað að taka viö gömlu myntinni i verslunum, telja lög brotin á sér og hafa frek- ar skilað vörunni, en gefa sig þótt verslanir séu i engu skyldar til þess að taka aö sér hlutverk banka. Visir leitaði til Magnúsar E. Finnssonar framkvæmdastjóra Kaupmannasamtakanna og spurði hvort hann teldi mikiö um að verslanir treystu sér ekki til þess að greiöa eingöngu til baka i nýrri mynt. Taldi Magnús þaö vera undantekningartilvik og þá aðallega hjá minni verslunum. Hins vegar minnti hann á að i gangi eru tveir gjaldmiðlar, báðir jafn réttháir. Sagði Magnús enn- fremur að þær stærri verslanir sem hafa tekið að sér að skipta gömlum krónum yfir i nýjar fari fljótlega aö hægja á slikri af- greiðslu þegar nýja myntin hefur náð sterkum undirtökum i viö- skiptalifinu. Að sögn Magnúaar eru aðeins nokkrir dagar i þaö. Það er þvi varla ástæða að firtast við þótt verslanir i nýkrónuþurrö fari aö greiða til baka i gömlu myntinni. Versl- unarfólkið gerir sitt til þess aö breytingin gangi snurðulaust fyrir sig, og þar sem geta þess stöðvar, er ekki úr vegi að við- skiptavinirnir reyni aö taka við. — AS. Versiunarmannafélag Islands um bráðablrgðarlögln: Mólmæilr ógild- ingu samninganna Hver ríkisstjórnin af annarri hefur á undan- förnum árum ógilt með lagaboði kjarasamninga, sem verkalýðshreyfingin hefur gert við viðsemjend- ur sína, segir í ályktun fundar trúnaðarmanna- ráðs Verslunnarmannafél- ags islands, þar sem fjall- að var um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar. I ályktuninni, sem samþykkt var samhljóða, er þvi mótmælt harðlega, að stjórnvöld „skuli hafa ógilt nýgerða kjarasamn- inga, með setningu bráðabirgða- laga”, sem skerði kaupgjalds- visitöluna um 7 prósentustig 1. mars n.k. Auk þessa hefðu stjórn- völd samþykkt 10% hækkun á opinberri þjónustu. Segir enn, að siendurtekin ihlutun stjórnvalda i gildandi kjarasamninga sé orðin „hrein ógnun við frjálsan samningsrétt launþega,” sem verkalýðshreyf- ingin geti ekki unað og hljóti að mótmæla harðlega. Loks er átalið, aö engin samráð skuli hafa verið höfð við laun- þegasamtök um aðgerðirnar, þrátt fyrir fögur loforð þar um. — JSS„ Sendum í póstkröfu Laugavegi 37 — Sími12861 Laugavegi 89 — §ígii 10353 œvis

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.