Vísir - 07.01.1981, Page 18

Vísir - 07.01.1981, Page 18
18 Miðvikudagur 7. janúar 1981 VlSIR mannllí Margrét reiddist drottningunni: Kjafta ð i frá kvennamalum Filipusar i bókinni er komið inn á kvennamál Filipusar og nefndar ýmsar sögusagnir án þess að nokkuð sé staðfest. Þar er m.a. frá þvi skýrt, að Margrét prins- essa hafi reiðst ákaflega er drottningin kom i veg fyrir áform hennar um að giftast Peter Townsend á sinum tima og i bræði sinni hafi hún hreytt nokkrum kjaftasögum um Filipus framan i systur sina. „Vissi drottningin kannski, að heittelskaður eiginmaður hennar hafði lent i bilslysi ásamt ó- nefndri konu”? — spurði Margrét og auðvitað vissi Elisabet ekkert. — „Var drottningin kannski sú eina sem ekki vissi hvað fram fór i „Fimmtudagsklúbbnum”, sem Filipus var meðlimur i?” — spurði Margrét aftur og skýrði siðan systur sinni frá „vissum skemmtiatriðum” sem boðið var upp á i lokuðum einkasamkvæm- um klúbbsins. Ýmislegt fleira varðandi kvennamál Filipusar er nefnt i bókinni og eru þær sögur hvorki staðfestar né bornar til baka. Að öðru leyti er honum borin vel sag- an og eru menn sammála um, að útkoma bókarinnar kasti hvorki rýrð á persónu hans né álit konungs- fjölskyldunnar. Advörun Miðill einn 1 Nevv York, Robert Petro, kveðst hafa séð fyrir að John Lennon var i niik- illi hættu viku áður en hann var myrtur. Petro reyndi að ná sambandi við Lennon en vegna anna hins síðarneínda tókst ekki að koma þvi i kring. Petro kveðst þá hafa sent Lennon hréf þar sem hann varar hann við ^ hættunni. en allt kom fvrir JU ekki. n 1 Breskir fjölmiðlar hafa löngum haft mik- inn áhuga á högum konungsfjölskyldunnar þótt flestum beri saman um að hnýsnin hafi keyrt um þverbak sl. sumar og haust. Kvennamál Charles prins hafa mjög verið i sviðsljósinu og i press- unni las breska þjóðin um það, að Anna væri með barni áður en sum- ir meðlimir konungs- fjölskyldunnar vissu það. Hefur ágengni blaðamanna verið slik, að tvisvar með stuttu millibili hafa borist kvartanir úr konungs- garði. En það er ekki einungis pressan sem fræöir breskan al- menning um það sem gerist innan veggja Buckinghamhallar. Bæk- ur eru gefnar út um konungsfjöl- skylduna og nýlega kom út ein slik, sem fjallar að mestu um Filipus drottningarmann. Bókin er eftir Peter nokkurn Lane og hefur sá áður ritað bækur um Charlesprins og drottningarmóð- urina. Hann kvað vera i góðum samböndum við ýmsa úr hirðinni og starfsmenn hallarinnar og að þvi leyti eru f rásagnir hans taldar áreiðanlegar, að þvi marki sem búast má við i bókmenntum af þessu tagi. Afmælisbarnið Fank Sinatra fær sér léttan kúrekasnúning viö konu sina Barböru. GAMLINGJARN- IR GAMNA SÉR — I afmælisveislu Sinatra Elli kerling hefur misjöfn áhrif á menn og sumir bjóða henni birginn eins og hún væri ekki til. Þannig er það með margar kvik- myndastjörnurnar i Hollywood, sem komnar eru af léttasta skeiði, og þeir sem harðastir eru láta sig sjaldan vanta þegar gott samkvæmi er annars vegar. 1 afmælisveislu, sem hin 49 ára gamla Barbara Marx hélt i tilefni 65 ára afmæli eiginmanns sins, Frank Sinatra, nýverið voru eng- in aldurshámörk. Þar skröltu gamalmenni innan um kornungar stúlkurnar, og voru sumir hverjir tindrandi fyrir elli sakir. Og allir voru klæddir samkvæmt nýjustu kúrekatisku. Fyrstur mætti til leiks hinn si- ungi 76 ára gamli Gary Grant i fylgd með Barbarú Harris, 29 ára gamalli enskri vinstúlku sinni. Á eftir honum steppaði Fred Astaire inn isalinn, 81 árs að aldri og hress að vanda ásamt konu sinni Robyn, sem er 36 ára gömul. Siðan skjögruðu þeir inn hver af öðrum og hver öðrum eldri og hressari og voru meðfylgjandi myndir teknar i samkvæminu. Margrét prinsessa lét ýmislegt fjúka i reiði sinni. Elisabet drottning vissi ekkert. Filipus prins: Óstaðfestur orð- rómur. Fred Astaire steppaði léttur að vanda ásamt konu sinni Robyn, 36 ára, i veisluna. Cary Grant 76 ára mætir fyrstur til leiks ásamt vinstúlku sinni, hinni 29 ára gömlu Barböru Harr- Burt Lancaster 67 ára var i hópi hinna yngri sem mættu til veisl- unnar og hér er hann i fylgd með vinstúiku sinni Jackie Bone.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.