Vísir - 07.01.1981, Page 10
10
VÍSlR
Miðvikudagur 7. janúar 1981
Hrúturinn
21. mars—20. april
Þú færð óvenjulegt gott atvinnutilboð
dag sem þú getur varla hafnað.
N'autið
21. april-21. mai
Taktu þvi rólega i dag og reyndu að fresta
öllum verkefnum til morguns, þar sem þú
ert illa upplagður.
* ‘^l Tviburarnir
22. mai—21. iúni
Góður andi rikir á vinnustað um þessar
mundir og þvi ættir þú að koma miklu i
verk.
Krabbinn
21. júni—23. júli
Leti undangenginna daga kemur illa niðri
á þér i dag, og þú verður að vinna fram á
kvöld.
Ljónið
24. júli—23. ágúst
Bjóddu yfirmanni þinum heim til þin i
kvöldverð og ræddu þar við hann góðar
hugmyndir um breytt starfsskipulag.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.
Börn munu eiga tima þinn allan i dag. Þú
skalt passa þig að vera ekki óþolinmóður.
Vogin
24. sept —23. okt.
Erfiðleikarnir eru til þess að yfirstiga þá
en ekki til að falla fyrir þeim.
Drekinn
24. okt.—22. nóv.
Hugmyndir þinar um að þú sért ómiss-
andi fara að verða þér mikill þröskuldur i
vegi.
Bogmaðurinn
23. nóv.—21. des.
Matgræðgi þinni eru engin takmörk sett
þessa dagana. Farðu i bió i kvöld.
Steingeitin
22. des.—20. ján.
Þú færð óvenjulegt boð um skemmtilegt
ferðalag i dag og þú skalt endilega þiggja
það.
Vatnsberinn
21,—19. febr
Fjarlægðin gerir fjöilin blá og mennina
mikla segir máltækið. Þetta skaltu hafa
hugfast i dag.
Fiskarnir
20. febr.—20. mars
Þú munt eiga góðar stundir með vinum
þinum i kvöld þar sem þið ræðið um
sameig’nlegt áhugamál ykkar.
Ef þú skilar ekki sláttumanni minum,
skek ég húsið.
Hérna er þinn heimski sláttumaöur,
hann er til alls ónýtur.
tí)