Morgunblaðið - 17.12.2003, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 B 7
bílar
höndum í bílakaupum. Nýjar tegund-
ir fjármögnunar auka oftast eftir-
spurn í stuttan tíma í kjölfar mikilla
kynninga, hins vegar teljum við að
það sem bætt hefur verið við á þessu
ári auki fyrst og fremst val fólks en
hafi ekki haft mikil áhrif á selt magn á
heildina litið. Það má hins vegar
spyrja sig hvort þetta hafi leitt til
kaupa á dýrari bílum en ella, en jepp-
ar og jepplingar hafa aukið mjög hlut
sinn á síðustu árum enda hefur fram-
boð af slíkum bílum aukist verulega.
4. Meginafstaða okkar er sú að
skattkerfið eigi ekki að gera upp á
milli þessara tveggja orkugjafa og því
erum við fylgjandi hugmyndafræð-
inni á bak við olíufrumvarpið. Hins
vegar eigum við enn eftir að sjá
hvernig á að útfæra það og teljum við
þar nokkrar hættur sem ber að varast
sem of langt er að rekja hér. Við vilj-
um þó taka fram varðandi umhverf-
issjónarmið að fremstu tæknimenn
heims greinir mjög á um hvor orku-
gjafinn sé í raun umhverfisvænni.
Margir telja að ekki verði unnt að yf-
irstíga þær tæknilegu og kostnaðar-
legu hindranir sem liggja fyrir, ef dís-
ilvélar eiga að uppfylla mengunar-
staðla sem setja á í kringum 2010.
Evrópskir bílaframleiðendur sækja
nú mjög á um að slakað verið á þess-
um mengunarkröfum enda hafa þeir
margir fjárfest mjög mikið í dísil-
tækninni. Nú þegar eru komnir bílar/
tækni á markað sem getur uppfyllt öll
mengunarskilyrði næstu ára en það
eru ,,Hybrid“-bílar eins og Toyota
Prius. Miðað við þá óvissu um hvor
orkugjafinn sé í raun umhverfisvænni
teljum við rétt að skattleggja báða
orkugjafna jafnmikið og helst eitt-
hvað lægra en gert er í dag.
5. Við eigum von á frekari aukn-
ingu bílasölu næstu ár. Við teljum að
„eðlileg“ bílasala sé á bilinu 13 til 20
þúsund bílar á ári. Vonandi sjáum við
minni sveiflur en verið hafa undanfar-
in ár en við gerum ráð fyrir 10–20%
aukningu á næsta ári.
6. Eftir mikla aukingu frá miðjum
síðasta áratug hefur salan í þessu
flokki staðið nokkuð í stað síðustu
þrjú árin. Við teljum hluta af þeirri
aukningu sem varð í þessum flokki
vera vegna aukins framboðs af svona
bílum. Það er yfirleitt mjög gott að
ganga um þessa bíla og fólk leitar oft
eftir meira plássi. Það er ákveðið ör-
yggi að vera á fjórhjóladrifnum bíl
enda hefur á móti þessu orðið veruleg
minnkun í sölu á fjórhjóladrifnum
fólksbílum. Við gerum ekki ráð fyrir
mikilli hlutfallslegri breytingu á sölu í
þessum flokki.
7. Við höfum ekki tölur fyrir allan
markaðinn en hlutfall breytinga hjá
okkur hefur lítið minnkað. Hins vegar
hefur eðli þeirra breyst þannig að
minna er um stærri breytingar sem
sennilega má rekja til snjóleysis uppi
á hálendinu undanfarin ár.
Hannes Strange,
markaðsstjóri hjá Bílheimum
1. Það sem hefur einkennt mark-
aðinn á þessu ári er að mikil áhersla
hefur verið lögð á einkaleigu/rekstr-
arleigu. Auglýsingar hafa mikið geng-
ið út á það að auglýsa mánaðar-
greiðslu á tilteknum bíl í einka-
og/eða rekstrarleigu.
2.Við teljum að mestu leyti megi
rekja þessa aukningu á þessu ári til
endurnýjunarþarfar. Sala síðastu
tveggja ára var afar léleg og meðal-
aldur bíla hár. Einkaleiga/rekstrar-
leiga hefur að vissu leyti hjálpað til
við þessa aukningu.
3. Samdráttur hér hjá okkur 2001
og 2002 var miklu meiri en í ná-
grannalöndunum og þörfin fyrir end-
urnýjun er miklu meiri hér hjá okkur.
Efnahagslífið er líka í sókn eftir lægð
á þessum árum.
4. Við teljum að þetta væri rétta
skrefið að afnema sérstaka skattlagn-
inu á dísilbíla og láta verð á olíu vera
sambærilegt við bensín. Bílar með
dísilvélum eyða minna eldsneyti og
menga minna. Þróun í gerð dísilvéla
hefur verið gríðarlega mikil síðustu
árin og hávaði, sem einu sinni ein-
kenndi þessa bíla, heyrir sögunni til.
5. Við teljum að þróunin verði svip-
uð og markaðurinn haldi áfram að
taka við sér og reikna má með 15%
aukningu. Endurnýjunarþörfin er til
staðar. Bílar eru að koma betur búnir
hvað varða öryggisþáttinn. Eins og
sagt var áður hjálpar þetta nýja form
einkaleigu verulega upp á að auð-
velda fólki að komast á nýjan, örugg-
ari og betri bíl.
6. Sala á jeppum, jepplingum og
öðrum fjórhjóladrifsbílum er nú um
40% af sölunni og við búumst við því
að salan verði svipuð á næsta ári.
7. Við teljum að þeir sem áður
keyptu breyttan bíl finni ekki eins
mikla þörf þegar þeir endurnýja að fá
sér breyttan bíl að fenginni reynslu.
Óbreyttur jeppi virðist uppfylla kröf-
ur markaðarins.
Benedikt Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna
1. Bílasala hefur verið tiltölulega
róleg. 40% aukning á árinu er ekki
mikið þegar litið er til lítillar sölu á
árinu í fyrra. Það eiga að seljast á
bilinu 10–11 þúsund bílar á ári á Ís-
landi. Salan á þessu ári er því á nokk-
uð eðlilegu róli.
2. Kaupleiga og rekstrarleiga hef-
ur að einhverju leyti ýtt undir söluna
þar sem hún er núna komin til ein-
staklinga en mér hefur fundist að það
sé verið að plata einstaklinga í leiðinni
því margir leigja bíla í rekstrarleigu í
erlendri mynt. Það eru mjög fáir Ís-
lendingar sem fá útborgað í erlendri
mynt. Við gerðum þetta sjálfir árið
1998 og gerðum samninga upp á
18.000 á mánuði en fólkið var síðan
farið að greiða 25.000 kr. á mánuði og
var óánægt. Við hættum því að leigja
bílana í erlendri mynt sem hefur þýtt
það að við höfum verið 10–15% dýrari
en aðrir en á móti vita viðskiptavin-
irnir að hverju þeir ganga. Viðskipta-
vinir sem skrifa undir samning um
25.000 kr. á mánuði eru ekki sáttir við
að hann hækki í 32.000 kr. á mánuði.
3. Aukningin er ekki eins mikil og
prósentutalan gefur til kynna. Salan á
þessu ári er eins og í miðlungsári. 9–
11 þúsund bílar er eðlileg sala á ári
miðað við þá háu skatta sem eru á Ís-
landi. Auðvitað ættu að seljast fleiri
bílar en menn láta þá duga lengur
vegna þessarar miklu skattheimtu.
4. Mengun frá dísilvélum er litlu
minni en frá bensínvélum og dísil-
reykurinn jafnvel hættulegri. Dísil-
vélin eyðir auðvitað minna eldsneyti
en bensínvélar. Við höfum ýtt út
litlum fólksbílum með dísilvélum en
það er ekki allt sem sýnist í þessum
efnum.
5. Ég gæti trúað því að allt að 10%
aukning yrði í sölu á næsta ári sem
þýðir kannski nálægt 11.000 bílar á
árinu sem yrði þá bara eðlileg end-
urnýjun.
6. Ég held að jeppasalan eigi jafn-
vel eftir að aukast. Menn sitja hærra í
slíkum bílum, þeir eru öruggari og
það er meira pláss í þeim. Íslenskar
aðstæður bjóða líka upp á það að fólk
sé á jeppling eða jeppa. Salan væri
meiri ef skattheimtan væri ekki svona
ósanngjörn. Þessir bílar fara flestir í
45% vörugjaldsflokk í stað 30%.
7. Það hefur selst meira af minni
jeppum og síðan hafa aðstæður síð-
ustu tvo vetur verið með þeim hætti
að menn hafa komist jafnlangt á jepp-
lingi og stórum jeppa. Engu að síður
er mikill áhugi á jeppabreytingum.
Einnig er mikið til af góðum tveggja
til þriggja ára gömlum breyttum bíl-
um á bílasölunum. Sumir af nýju
jeppunum henta heldur ekki jafnvel
til breytinga og eldri bílar.
r 40% aukningu á þessu ári og þar með meðalsölu á ársgrundvelli. Rekstrarleiga hefur
þess að skyggnast inn í framtíðina.
gu á næsta ári
Morgunblaðið/Jim Smart
Stefán Tómasson, framkvæmdastjóri Kia-umboðsins.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Emil Grímsson, forstjóri Toyota-umboðsins.
UM þessar mundir er verið að skrifa
tvær bækur um mótorhjól á Íslandi.
Annars vegar er um að ræða 20
ára afmælisrit Bifhjólasamtaka Lýð-
veldisins, Snigla, sem kemur út á
næsta ári. Áætlað er að sú bók verði
tæplega 200 síður í A4-broti og
prentuð í lit og því öll hin glæsileg-
asta. Samið hefur verið við fyrirtæk-
ið Hönnun og umbrot ehf. að annast
útgáfu og sölu þessarar bókar. Í bók-
inni verður fjallað um 20 ára sögu
samtakanna og eru gamlir félagar,
sem eiga til góðar sögur og myndir,
hvattir til að hafa samband við rit-
stjórnina á netfanginu sniglar@de-
sign.is.
100 ára afmælið
Árið 2005 eru 100 ár síðan fyrsta
mótorhjólið kom til landsins og af því
tilefni mun um jólin 2004 koma út
saga mótorhjólsins fram að stofnun
Sniglanna árið 1984. Fyrsti mótor-
hjólamaður landsins var Þorkell Þ.
Clementz vélfræðingur sem einnig
var fyrsti bílstjóri Thomsen-bílsins.
Hann kom með fyrsta hjólið 20. júní
1905 og sótti reyndar um einkaleyfi á
vörumerkinu ELG fyrir það, en ekki
er vitað til að sú tegund hafi nokkurn
tímann verið við lýði. Hjólið var í
samkeppni við bílinn og þótti fljótt í
ferðum miðað við hann. Að sögn
Njáls Gunnlaugssonar, höfundar
bókarinnar, er lítið annað vitað um
þennan grip og engar myndir til af
hjólinu svo vitað sé. „Þorkell var mik-
ill frumkvöðull og því væri gaman að
vita meira um hann ef einhver skyldi
lúra á upplýsingum um hann. Í bók-
inni verður einnig fjallað um aðra
frumkvöðla, en mótorhjólin urðu oft
fyrst til að komast ákveðnar leiðir
um landið. Meðal annars mun fyrsta
vélknúna farartækið til að fara yfir
Kjöl hafa verið mótorhjól. Ekki verð-
ur skrifað um mótorhjólasögu land-
ans án þess að fjalla um Lögregluna í
Reykjavík, sem í rúm 60 ár hefur not-
að Harley Davidson-hjól í þjónustu
sinni. Einnig verður til dæmis fjallað
um skellinöðruklúbbinn Eldingu sem
Æskulýðsráð Reykjavíkur stóð fyrir,
en margir þjóðþekktir einstaklingar
voru þar virkir félagsmenn um tíma,“
sagði Njáll.
Sem hluta af þessu verkefni Njáls
hefur hann sett saman lista með upp-
lýsingum um gamla eigendur og teg-
undir mótorhjóla á Íslandi og er nú
svo komið að yfir 800 fornhjól eru á
þessum lista. Vill Njáll hvetja alla
sem eru með gömul mótorhjól eða
upplýsingar um þau að hafa samband
í síma 898-3223 eða skrifa honum
tölvupóst á netfangið okukennsla-
@simnet.is og nálgast jafnvel upp-
lýsingar um gömlu hjólin sín og bæta
í gagnagrunninn.
„Myndir og sögur í bókina eru líka
vel þegnar því enn má bæta í eyð-
urnar í sögunni,“ sagði Njáll að lok-
um.
Herramenn á ferðalagi. Myndin er að öllum líkindum frá fjórða áratugnum.
Mynd frá fundi skellinöðruklúbbsins Eldingar í gamla Golfskálanum í Litlu-
Öskjuhlíðinni.
Tvær bækur um
mótorhjól
480 8000
SELFOSSI
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000
Lexus RX 300 Sport
árg. 2002, ekinn 15 þús.
Sjálfsk., leður, 17" álfelgur
o.fl. Verð 4.300 þús.
Landrover Freelander 1,8
Millennium
árg. 1999, ekinn 80 þús.
5 gíra, leður, topplúga o.fl.
Verð 1.660 þús.
Toyota Rav 4 2,0
árg. 1995, ekinn 130 þús.,
sjálfsk., upphækkaður,
dráttarkúla.
Verð 750 þús.
Subaru Impresa S/D 2,0
4WD árg. 2000, ekinn 83
þús., 5 gíra. Áhv. 970 þús.,
afb. 22 þús.
Verð 1.160 þús.
Toyota Avensis S/D 1,8
Terra árg. 2000, ekinn 81
þús., sjálfsk., vindsk.,
dráttarkúla.
Verð 1.290 þús.
Toyota Rav 4 VVTI 2,0
4WD árg. 2000, ekinn 39
þús. 5 gíra. Topp eintak.
Verð 1.850 þús.