Vísir - 19.02.1981, Page 8

Vísir - 19.02.1981, Page 8
vtsm Fimmtudagur 19. febrúar 1981. VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig- fússon, Frlða Ástvaldsdóttir, Gylfi Kristjánsson, lllugi Jökulsson, Jóhanna Sig- þórsdóttir, Kristfn Þorsteinsdóttir, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Sæmundur Guðvinsson, Þórunn Gestsdóttir, Blaðamaður á Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. Utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Safn- vörður: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúli 14, simi 80611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla8, Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Áskriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 4 nýkrónur eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. Togarakaupin til Þórshafnar og Raufarhafnar erueitt samfellt hneyksli. Forsendur, kaupverð, greiðslur rekstur, málatilbúnaður, allt er gjörsamlega í lausu lofti. Og á meðan rifast þingmenn um það hver taki niðrum hvern. Togarakaupin til Þórshafnar og Raufarhafnar taka sífellt á sig nýja og skringilegri mynd. Óþarfierað rifja það upp, að ríkisstjórnin og Framkvæmda- stofnunin samþykktu fyrr á ár- inu að lána 100% til þessara skipakaupa, samkvæmt ósk þingmanna kjördæmisins, á þeirri forsendu að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Þó var vitað að næg atvinna hefur verið í nefndum plássumm að undan- förnu, og útgerð á togara verður með svo miklum hallrekstri, að borin von er til þess að kauptúnin geti undir honum staðið. Þetta var fyrsta vers. Svo kom annað vers. Enginn vildi al- mennilega kannast við að bera á- byrgð á þessari ákvörðun. Ríkis- stjórnin vísaði á Framkvæmda- stofnun, Framkvæmdastofnun vísaði á þingmennina, en þing- menn vísuðu á heimamenn. Bónarbréf þingmannanna lá ekki á lausu, enginn þóttist hafa það undir höndum, og það litla sem spurðist út, var að forsætis- ráðherra hefði borið upp tillög- una um heimild til skipakaup- anna, með vísan til meðmæla Sverris Hermannssonar og Bjarna Einarssonar hjá Byggða- sjóði. Steingrímur Hermannsson viðurkenndi að honum litist illa á kaupin, en hann hefði látið und- an þrýstingi þingmanna. Þetta var annað vers. Svo kom þriðja vers. Nú upp úr áramótunum var upplýst að kaupverð væri ekki lengur 25 milljónir króna heldur 33.6 milljónir. Alla rak í roga- stans og ráðherrar jafnt sem kommissarar afneituðu togaran- um þrisvar meðan almenningur hrópaði tvisvar, hneyksli, hneyksli. Og vitaskuld er það hneyksli að einn togari geti hækkað i verði um 8.4 milljónir króna á nokkrum vikum, án þess að nokkur ábyrg- ur aðili hafi um það hugmynd, hvað þá þeir, sem eiga að borga brúsann. Þetta var þriðja vers og nú upphófst f jórða vers. Stjórn Framkvæmdastofnunar tilkynnti að hún myndi aðeins greiða 20% af upphaflegu verði, eins og fyrri samþykkt hennar hafði hljóðað upp á. Ljóst var því að stóra upphæð vantaði til að endar næðust saman. Sverrír Hermannsson kom nú fram i sjónvarpi og upplýsti þjóðina um, að ýmsir væru með allt niðrum sig og kaupendur og umboðs- menn væru með óhreint mjöl í pokahorninu. Formaður fram- kvæmdastofnunar Eggert Hauk- dal, taldi forsendur brostnar fyrir fyrirgreiðslu Byggðasjóðs og allt virtist benda til þess, að togarakaupin væru úr sögunni. Enginn gat reiknað með því að auralausir Þórshafnar- og Raufarhafnarbúar gætu greitt mismuninn, þótt þeir væru hinir opinberu kaupendur togarans. Satt að segja hefur fæstum dottið i hug að spyrja kaup- endurna álits til eða frá, frekar en þeim komi málið hreint ekki við. Þetta var fjórða vers, en nú kemur fimmta vers. Stjórn Framkvæmdastofnunar tekur ákvörðun um það í fyrra- dag, að greiða 10% af 33.6 milljónum króna, enda gert sam- kvæmt tilmælum ríkisstjórnar- innar segir Sverrir Hermanns- son. Ekki aldeilis segir ríkis- stjórnin. Iðnaðaráðherra kallar það „yfirgengilegt" og nú ætlar Stefán Jónsson alþingismaður að taka niðrum Sverri Hermanns- son. Steingrímur mótmælir að hann hafi f lutt tilmælin, en telur það þó „skömminni skást" að reyna að ná skipinu heim. Þetta var fimmta vers og sjálfsagt er það sjötta á leiðinni ef marka má umræðurnar á alþingi í gær. Nú má vera, að þingmenn telji það vera aðalatriðið, hver leysi niðrum hvern, eða taki ákvarð- anir sínar út frá því, hvað sé „skömminni skást", en í augum almennings, skattborgaranna, er þetta mál eitt samfellt hneyksli. Það er skólabókardæmi um fyrirgreiðslupólitík af argasta tagi. niínnkárborö Tvö mál hafa þróast á þann ■ veg slöustu daga aö þau kunna ■ aö reynast rlkisstjórninni dýr- ■ keypt áöur en lýkur. Þá á ég ■ ekki viö flugskýlamáliö svokall- aöa, sem kann aö reynast ríkis- ■ stjórnarflokkunum þýöingar- mikil undankomuleiö út úr stjórnarsamstarfi, ef önnur mál eru á leiö I strand. Ég á viö fisk- ® verösmáliö og svo kaupin á B togaranum umdeilda til Þórs- ■ hafnar, sem almenningur á höfuöborgarsvæöinu álitur eitt- hvert argasta hneykslismál siö- ari ára. „In memoriam" ný- króna. ■ Nýtt fiskverö hefur veriö ■ ákveöiö eftir mikiö fimbulfamb ■ stjórnarflokkanna og aö þvi er ■ Morgunblaöiö segir gegn vilja forsætisráöherra og meirihluta B rikisstjórnarinnar. Nú er ekki allt heilagur sannleikur sem i mogga stendur og vera kann aö ■ hér skolist málin eitthvaö til. En sé þaö satt aö rneirihluti þing- flokka hafi veriö notáöur til þess aö kúga meirihluta rikis- stjórnar og sjálfan forsætisráö- herra er hér alvarlegt mál á feröinni, sem vafallstiö reynist stjórnarsamstarfinu dýrkeypt áður en lýkur. Veröur ekki hjá þvi komist aö spyrja, hvaö | fleira hangi á spýtunni, þvl varla veröur þvi trúaö á suma stjórnarþingmenn aö þeir hafi léö máls á sliku án þess aö fá eitthvað fyrir sinn snúð. Kannski fleiri Þórshafnarmál séu væntanleg á næstunni? Rikisstjórnin heíur gumað mikiö af þvi að gengi hinnar nýju krónu skuli haldiö stööugu. Að visu hafa nokkrir mánuöir veriötilnefndir til að byrja meö, en almenningur hefur viljaö trúa þvi aö reynt veröi aö halda hinni nýju krónu áfram I horf- inu. Hiö nýja fiskverö gengur af þeim vonum dauöum. Þaö er ekkert annaö en hrein og klár gengisfelling, hvaö sem stjórn- málamenn vilja vera láta. Hins vegar mun vafalitiö veröa reynt aö falsa gengisskráninguna eitt- hvaö fram eftir ári meö alls kyns töfrabrögöum. Það hefur ekki önnur áhrif en þau aö fall hennar veröur þvi meira þegar rétt skráning verður tekin upp aö nýju. Launajöfnunarstefna skipreika. Launajöfnunarstefna rikis- stjórnarinnar hefur einnig beöiö skipbrot. Hún geröi þaö raunar aö nokkru leyti strax I ASI- samningunum, enn frekar i BHM-dómnum og áfram seig á ógæfuhliöina i nýjum BSRB- samningum. Sennilega tekur þó Magnús Bjarnfreðs- son telur að tvö mál geti orðið rikisstjórn- inni dýrkeypt. Þar á hann við fiskverðið og togarakaupin til Þórs- hafnar og Raufarhafn- ar. Og hvar er nú rann- sóknarblaðamennskan spyr Magnús og hefur þá i huga ummæli Sverris Hermanns- sonar, þar sem hann fullyrti að leysa þyrfti niður um kaupendur og umboðsmenn i sam- bandi við togarakaup- in. fyrst steininn úr i sjómanna- samingunum. Ekki hefur að minnsta kosti bólað á þvi aö sjó- menn hafi sýnt lit á neinni launajöfnun. Væntanlega mun veruleg kauphækkun til handa sjómönnum koma þeim mest til góða, sem hæst hafa launin fyrir. Skipstjórar meö tugi þús- unda i laun á mánuöi munu væntanlega fá nokkru fleiri viö- bótarkrónur i launaumslög sin en hásetar á litlum bátum, sem sækja sjóinn I vonskuveöri og afla ekki nema rétt upp i kaup- trygginguna. Hvergi er launa- misréttið jafn hróölegt og innan sjómannastéttarinnar. Ofan á allt saman standa svo láglauna- menn og einstæöir foreldrar i þvi aö borga skatta fyrir há- launamennina til sjós — sem er i raun ekkert annað en beinin styrkur til útgeröarinnar. Hin mikla og ótimabæra hækkun fiskverösins mun enn ýta undir þetta launamisrétti. ódaunn af skipakaupum Togarakaupin til Þórshafnar eru helsta umræöuefnið manna milli, þegar þetta er skrifaö. Sjaldan hefi ég oröiö var viö eins samdóma fordæmingu almenningsálits á hentistefnu- aögeröum islenskra stjórn- málamanna eins og i þessu máli. Fjárhæöin ein, sem variö er til þessara skipakaupa er kapituli út af fyrir sig. Fyrir þá upphæö væri unnt aö skapa varanleg atvinnutækifæri fyrir fjölda fólks og koma mörgum skikkanlegum iönfyrirtækjum á fót. Til dæmis á Þórshöfn. En engu sliku er ansað. Þaö er I samt ekki upphæðin sjálf, sem fólk hneykslast mest á, heldur | málsmeöferöin. Menn fá óút- J fylltan tékka i hendur og | ráöskast meö hann eins og þeim , sýnist i skjóli þess að aðgangs- | haröir fyrirgreiöslumenn á — Alþingi muni knýja kaupin | fram. Þaö hafa þeir gert. Þaö er m ábyggilega eins gott fyrir | Framsóknarflokkinn að þing- ■ kosningar séu ekki á næsta leiti ■ á höfuöborgarsvæöinu og aö ■ kaup þessa togara veröi gleymd ■ og grafin, þegar þær fara fram. ■ Hvar eru nú rannsóknarblaðamenn? Ekki ómerkari maöur en for- g stjóri Framkvæmdastofnunar , og forseti neöri deildar Alþingis lét fastlega aö þvi liggja I sjónvarpsviötali um siöustu helgi aö sitthvaö væri óhreint I m þessum málum. Ég heyröi ekki betur en hann segðist telja þörf ■ á þvi aö leysa niöur um ■ kaupendur og umboösmenn. ■ Hvaö átti maöurinn viö? Hann B er ekki slikur ómerkingur aö orö ■ hans veröi þöguö i hel, nema hin ■ pólitiska samtrygging i öllu sinu ■ veldi komi til. Hvergi i ® lýðræðisrikjum vesturlanda kæmust menn upp með þaö á láta slik orö eins þingforsetanna sem vind um eyru þjóta — nema kannski hér. En ég spyr? Hvar I eru nú rannsóknarblaöamenn? Hvaö átti þingforsetinn við? Hverjir hafa óhreint mjöl i pokahorninu? Verði ekki þetta | mál krufið til mergjar og hann annaöhvort geröur ábyrgur oröa sinna eöa þá aö þeir sem hann ásakaöi látnir gera hreint | fyrir sinum dyrum, hlýtur m maöur aö álita aö gengi islenskrar blaöamennsku sé i ■ stil viö gengi nýkrónunnar á I útmánuöum annó 1981. ■ Magnús Bjarnfreösson. J r

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.