Vísir - 19.02.1981, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 19. febrúar 1981.
VÍSIR
9
váiidámáíbiindpááísiándí
Vandamál biindra á íslandi eru mikil og margvísleg
eins og þau eru allsstaðar annarsstaðar í heiminum.
Blinda er mjög alvarleg fötlun, og getur oft verið lífs-
hættuleg, ef ekki er gætt ítrustu varfærni af hálfu
þess sem blindur er og þeirra sem hann umgengst.
Samkvæmt nýjustu athugunum munu 2 af hverjum
1000 íslendingum vera blindir, eða það mikið sjón-
skertir að þeir teljast blindir, lögblindir.
Lögblinda telst sjón, sem nemur 6/60 eða minna,
þ.e.a.s. 10% sjón. Þetta er talið mjög eðlilegt hlutfall
og er i dag hagstæðara en það var fyrir 30 árum.
Blindir á Islandi skiptast þannig eftir aldri: 6,2%
eru á aldrinum 0—14 ára, 21,5% á aldrinum 15—64 ára
og loks eru 72,3% 65 ára eða eldri. Blindum má einnig
skipta i 2 hópa, þá sem fæðast blindir eða verða það á
unga aldri og þá sem blindir verða síðar á ævinni og
sést á framanskráðu að siðari hópurinn er mun stærri.
Vandamál þessara tveggja hópa eru nokkuð mis-
munandi. Of lítið er vitað um þann hóp Islendinga,
sem er rétt ofan við þau mörk að teljast lögblindir,
enda hættir þeim sem þannig er ástatt um að dylja
sjóngalla sina, sem hefur í för með sér mikla frelsis-
skerðingu fyrir þann sem á við hana að búa, mun
meiri frelsisskerðingu en menn gera sér almennt
Ijóst.
Þjálfun og kennsla
Þjálfun og kennsla er það sem
helst getur ráðið bót á þessu.
Þjálfun og kennsla blindra ung-
barna hefur ekki verið fyrir
hendi fyrr en allra siðustu ár.
Kennsla og þjálfun foreldra og
fjölskyldna blindra ungbarna er
ákaflega mikilsverð, og þarf að
aukast og alla aðstöðu til hennar
þarf að bæta.
Á skólaskyldualdri tekur
Blindraskólinn við, en hann er
deild við Laugarnesskólann.
Eftir skyldunám er ekki um
neitt skipulagt nám fyrir blinda
að ræða hér á landi, og skortur
er á námsgögnum.
Um þjálfun og kennslu fyrir
þá sem blindir verða siðar á æv-
inni er heldur ekki að ræða hér á
landi.
Menntun, kennsla og þjálfun,
húsnæðis- og atvinnumál,
félagsmál, samneyti sin á milli
og við sjáandi samfélags-
borgara, þetta allt eru
vandamál blindra á Islandi.
Styrktarfélagar
Sum þeirra hafa tekið veru-
legum framförum á undanförn-
um árum, önnur eiga ennþá
langt í land. Til þess að vinna að
framgangi þessara hagsmuna-
mála stofnuðu blindir og
sjónskertir Blindrafélagið 19.
ágúst 1939. Þeim til stuðnings
gerðust vinir þeirra og velunn-
arar styrktarfélagar.
Aðalstöðvar Blindrafélagsins,
samtaka blindra og sjónskertra
á Islandi, eru i húsi félagsins við
Hamrahlið 17 hér i borg. Þar er
skrifstofa félagsins og happ-
drætti þess, aðsetur blindraráö-
gjafa og hjálpartækjaaf-
greiðsla, hljóðbókagerð og safn
bóka á blindraletri. Burstagerö
Blindrafélagsins og leirmuna-
gerð er þar einnig til húsa. Ein-
staklingar reka þar körfugerð,
bólstrun, gufubað og nuddstof-
ur. 26 sjálfstæðar ibúöir fyrir
fjölskyldur og einstaklinga eru i
húsinu. Að Hamrahlið 17 er höf-
uðvigi blindra og sjónskertra á
íslandi.
Atvinnumöguleikar
Mikið hefur áunnist, en betur
má ef duga skal.
Bæta þarf stórlega aðstöðu
blindra i kennslu- og endur-
hæfingarmálum. Auka þarf fjöl-
breytni i atvinnutækifærum
þeirra, og bæta aðstöðu þeirra á
vinnustað. Auka þarf skilning
atvinnurekenda og samstarfs-
manna á þvi að blindir geti ver-
ið og séu fullgildir vinnukraftur
i islensku atvinnulifi. Þegar
blindum sjálfum og almenningi
verður þetta ljóst, mun sú inni-
lokun og einangrun minnka sem
blinda veldur. Ganga þarf
þannig frá vinnustöðum þar
sem blindir vinna, að þeim stafi
sem minnst hætta frá umhverfi
sinu og kenna þarf og leiðbeina
vinnufélögum þeirra svo að þeir
fyrir hugsunarleysi eða
vanþekkingu valdi ekki slysum
á hinum blinda vinnufélaga
sinum.
Auka þarf samskipti blindra
og sjáandi i félagsmálum.
Takist að ná árangri i fyrr-
nefndu, munu vandamál blindra
á Islandi stórlega minnka -til
heilla fyrir land og þjóð. Þá mun
blinda verða eins litil fötlun og
hún getur nokkurn tima oröið.
Lífshættuleg fötlun
Bætum stöðu blindra i
þjóðfélaginu. Við getum aldrei
útilokað blindu, og enginn veit i
hvaða fjölskyldu hún drepur
næst á dyr.
Blinda er vissulega erfið
fötlun, en ekki óbærileg ef rétt
er á málum haldið.
Blinda er lifshættuleg fötlun.
Blindir eru á seinni árum sifellt
meira á ferli i umferðinni og
sifellt á fleiri og dreifðari vinnu-
stöðum.
Umferliskennsla fyrir þá sem
blindir verða á fullorðinsaldri er
ekki fyrir hendi hér á landi. Hér
þarf að koma á umferliskennslu
fyrir blinda. Einnig þarf að
kenna sjáandi, bæði ökumönn-
um og öðrum vegfarendum aö
þekkja hvita stafinn, sem er
tákn blindra og þeirra aðal-
hjálpartæki i umferðinni. Allir
þurfa að læra að virða og þekkja
hvita stafinn.
Oll vandamál blindra verða
best og eölilegast leyst á þann
hátt, að lausn þeirra sé i hönd-
um hinna blindu sjálfra eða aö
minnsta kosti i fullu samráði og
samstarfi við þá.
Halldór S. Rafnar.
neðanmóls
■■■■■■■■
Halldór S. Rafnar, for-
maður Blindrafélagsins,
samtaka blindra og sjón-
skertra skrifar um
vandamál þeirra sem
fatlaðir eru vegna sjón-
blindu. Halldór greinir
frá athugunum um f jölda
blindra og aðstöðu þess
fólks í þjóðfélaginu.
Hann hvetur til aukins
skilnings á högum þess.
AUKIN HERNADARUMSVIF
Aukin hernaðarumsvif.
Það fer ekki á milli mála að
auknum þrýstingi er nú beitt 1
þvi efni að auka umsvif og
framkvæmdir vegna dvalar
herliðsins i Keflavik. Um langt
árabil hafa verið all miklar
framkvæmdir á Vellinum sem
m.a. má sjá i útþenslu ibúðar-
hverfa þar. Aðalverktakar hafa
setiö þar einir að jötu og ekki
farið hátt um hvað semdist milli
þeirra og hersins. Þetta hafa
hins vegar ekki þótt hernaðar-
lega mikilvægar framkvæmdir
og þvi ekki verið mikið i
umræðu.
Þaö sem fyrirhugað er nú er
aftur á móti miklu stærra i snið-
um og miðarfyrst og fremst að
þvi aö auka hernaðarumsvif. og
festa herstöðina enn frekar i
neti Bandaríkjamanna.
Sótt á um auknar
framkvæmdir.
Um nokkum tima stóðu deilur
um það með hverjum hætti
skyldi byggja nýja flugstöð og
þó einkum að fjármagna það
fyrirtæki. Það er mikil niður-
læging i þvi fyrir islendinga að
millil andaflug þeirra skuli
þurfa að fara i gegnum herstöð-
ina. Því er þarfa verk að upp
komi flugstöð sem óháð sé hern-
aðarbröltinu á Vellinum.
Deilurnar um þessa flugstöð
hafa legiö niðri um stund og má
vera að búiösé að semja um það
mál bak viö tjöldin.
En þá er það flutningurinn á
oliugeymunum. Ljóst er aö fria
þarf IbUa Njarðvikur við þeirri
mengunarhættu sem af gömlu
geymunum stafar. Um þaö trúi
ég aö ekki séu skiptar skoðanir.
Hitt gegnir aftur á móti furðu
þegar nota á þá ástæðu til þess
að margfalda geymslurými
hersins fyrir oliu. Þetta er mjög
dæmigert fyrir þá sem sifellt
vilja færa sig upp a skaptið.
Það er reynt að nota það sem
höfðar til almenningsþarfa ti)
að yfirtaka meira og meira.
Spurningin er ekki sú hvort
Helguvik sé heppilegasti
staðurinn til frambúðar fyrii
oliugeyma, heldur hitt hvort hér
sé verið að auka hernaðarum-
svif og auka enn mikilvægi
þessarar herstöðvar fyrir aðra
en íslendinga. öllum er þaö
ljóst aö herstöðin hefur aldrei
haft þvi hlutverki að gegna aö
verja tsland þó hún sé tæki i
hemaðaráætlun NATO til að
verjast hugsanlegum árásum
eða verða fyrri til. Herstöðin i
Keflavik er skotmark öðru
fremur.
Sprengjuhelt skýli og
ný herstöð.
Það kemur greinilegafram nú
við uppljóstranir um væntan-
legar framkvæmdir við að
byggja sprengjuheld skýli að
búist er við árás á staðinn. Það
er lika greinilegt að meira máli
skiptir að byggja yfir sprengju-
vélarnar, sem eru I viöbragös-
stöðu I þeim tilgangi aö drepa
og drepa, heldur en aö byggja
sprengjuheld skýli yfir Islend-
inganna sem i nábýli hersins
búa. Fátt sýnir held ég betur
hvað þaö skiptir litlu máli fyrir
hernaöarstórveldi þó þó fórnað
sé tvö þrjú hundruö manns ef
þetta blessaöa fólk hefur lent i
þerri óhamingju að lenda undir
handarjarðri þessara girugu
drápsmanna. Dæmin um Viet-
nam og Afganistan sýna þetta I
skýru ljósi.
Varla er hægt að ljúka svona
grein um þetta mál að ekki sé
minnt á þann boðskap sem á
þrykk hefur út gengið að koma
upp nýrri birgðastöð fyrir her-
liðið. Hér er átt við þá hugmynd
sem sett hefur veriö fram um
slika aðstöðu i nágrenni Sauðár-
króks. Sauðárkrókur hefur nú
verið valinn sem liklegastur
staður fyrir alþjóölegan vara-
flugvöll. Þar gætu herþotur þvi
væntanlega athafnað sig.
Kári Arnórsson fjallar
um umsvif og fram-
kvæmdir á Keflavíkur-
flugvelli í tilefni af
umræöu um byggingu
flugskýla. Kári varar
einnig viö hugmyndum
um varaflugvöll á
Sauðárkróki og hvetur
Islendinga til að standa
vel á verði gegn hvers-
konar ásælni hernaðaryf-
irvalda og „hernaðar-
sjúkra" íslendinga.
Flugvöllurinn gæti þvi oröiö
varastöð fyrir Keflavikurvöll og
yrði þvi' skotmark númer tvö.
Trúlega þyrfti einherja her-
menn til að gæta birgöanna viö
Sauöárkrók ef þessi hugmynd
yröi ofan á og þannig kominn
visir að nýrri herstöð.
Islendingum er mikil nauðsyn
aö standa vel á verði gegn hvers
konar ásælni hernaðaryfir-
valda og hernaðarsjúkra Is-
lendinga. Það er ekki aöeins
megunin frá oliugeymum hers-
ins sem nauðsyn er að losna við
heldur öll sú mengun sem
hernaðarumsvif valda.
Kári Arnórsson
Herstöðin á Miönesheiði.