Vísir - 02.03.1981, Page 6
6
Mánudagur 2. mars 1981
HásKóli íslands:
52 gengu
glaöir
á braut
Brautskráning kandidata fór
fram við athöfn i hátiðasal
Háskóla fslands á laugardag. Að
þessu sinni brautskráðust 52, sem
skiptust svo: Embættispróf i lög-
fræði 2, B.A. próf i heimspeki-
deild 14, próf i islensku fyrir
erlenda stúdenta 1, lokapróf i
byggingaverkfræði 1, lokapróf i
vélaverkfræði 2, lokapróf i raf-
magnsverkfræði 1, B.S. próf i
raungreinum 10, kandidatspróf i
viðskiptafræðum 9, aðstoöar-
lyfjafræðingspróf 1, B.A. próf i
félggsvisindadeild 10. — Myndina
tók ljósmyndari Visis, Friðþjófur
Helgason, við athöfnina, þar sem
einn kandidata tekur við prófskir-
teini sinu úr hendi rektors,
Guðmundar Magnússonar.
— KÞ.
„Viijum
ákveða sjáli
okkar kjör”
- BSRB-menn
mótmæla 7%
visitðluskerðingunnl
„Við viljum ekki búa við
herstjórn innan okkar sam-
taka, heldur ákveða sjálf
okkar kjör,” sagði Pétur Pét-
ursson i samtali við Visi i gær,
en þessa dagana fer fram
undirskriftarsöfnun á vegum
félaga i BSRB, þar sem þeir
mótmæla 7% visitölu-
skerðingu rikisstjórnarinnar.
Pétur sagöi, aö innan
vébanda BSRB væru um 15
þúsund félagar og ætlun
þeirra væri að fá undirskrift
sjö prósent félaga eöa 1050
félagsmanna, þar sem það
væri táknrænt og ætti að höföa
til sjö prósent skerðingar-
innar.
Þá sagði hann einnig, að
þessari undirskriftarsöfnun
hefði verið tekið fádæma vel
og þegar væru komin 600 nöfn
á listann, en söfnunin hefur
staðið i þrjá daga. Ætlunin er
að ljúka söfnuninni i dag og af-
henda stjórn BSRB listann
siðdegis. —KÞ.
Söfnun vegna
fatlaðra
6.-8. mars
Kvenfélagasamband
Gullbringu- og Kjósarsýslu
hefur ákveðið að leggja lið
þeirri söfnun, sem Bandalag
kvenna mun beita sér fyrir á
ári fatlaðra og þegar hefur
verið kynnt i fjölmiðlum.
Þetta var samþykkt á
stjórnar- og formannafundi
sambandsins 14. febrúar
siðast liðinn.
t kvenfélagasambandinu
eru 12 kvenfélög og munu þau
beita sér fyrir söfnun i sinu
byggðarlagi meðal annars
með merkjasölu 6.-8. mars
næstkomandi. — AS.
.............y/sm
: Sjópröfln vegna Heimaeyjar í Eyjum:
! Menn ekki sammála
I um orðaskipti í talstðð
! - Skipherra varðskipsins gefur skýrslu í dag
Skipstjóri ölduljónsins VE,
I Þórður Rafn Sigurðsson, telur
g að skilaboð, sem bárust til
I Heimaeyjar VE, hafi fólgið i sér
. bann við þvi að skipiö leitaði
. aðstoðar varðskips. Allir aðrir,
! sem komið hafa fyrir rétt i
málinu, hafa hinsvegar borið
þvi við, að aðstoð varðskips hafi
aldrei verið bönnuð. Þar á
“ meðal er skipstjórinn á togar-
anum Sindra VE, skipstjóri
Heimaeyjar, stýrimaður skips-
ins og útgerðarstjóri þess. Þetta
kom fram i sjóprófunum á
föstudaginn.
í dag munu fulltrúar Land-
helgisgæslunnar gefa skýrslu
sina fyrir rétti i Vestmannaeyj-
um.
I Eyjum er það almennt talið
af sjómönnum, að forðast beri
að þiggja aðstoð varðskips, sé
þess kostur, þar sem slikt sé
mundýrara en að þiggja aðstoð
Eyjabáta. Hér kemur helst til,
að Eyjamenn hafa jafnan samið
um sin mál óháð reglum um
björgunarlaun, þegar mál sem
þessi hafa komið upp. Þannig
hafa reglur um björgunarlaun
vikið fyrir samkomulagi
sjómanna, byggðu á skilningi á
þvi, hversu fáranlegt það er, að
menn þurfi að óttast háa bak-
reikninga, þegar um björgun
mannslifa og verðmæta sé að
ræða. Þvi hafa menn veriö
hvattir til þess að leita ekki
aðstoðar varðskips nema i
neyðartilfellum, þótt slikt hafi
að sjálfsögðu aldrei verið
bannað.
— AS.
Forseti tslands, Vigdis Finnbogadóttir.við komuna til islands i gær. — (Vlsismynd: G.V.A.)
Forsetaheimsókn til Danmerkur lokið:
„Eg er djúpt snorlin"
Vigdis Finnbogadóttir, forseti
tslands, kom til landsins siðdegis
i gær úr opinberri heimsókn til
Danmerkur.
A leiðinni yfir hafið sendi for-
setinn þakkarskeyti til konungs-
hjónanna og dönsku þjóðarinnar,
fyrir frábærar móttökur og segir
þar meöal annars.
,,Eg er djúpt snortin af þeim
skilningi, sem þér hafið sýnt, ekki
aðeins mér heldur og þjóð minni i
norðri.
Ég vona að heimsóknin hafi
orðið til þess að styrkja vináttu-
bönd þjóðanna enn frekar.”
Að lokum óskaði Vigdis
konungsfjölskyldunni og dönsku
þjóðinni alls hins besta.
„ÞURFUM EKKI AÐ KVARTA
VFIR UNUIRTEKTUNUM"
- sagði iramkvæmdastlóri B&L um bílasýnlngu nelgarinnar
„Hingað hefur komið fjöldi
fólks og undirtektir hafa verið
mun betrien á fyrri bilasýningum
okkar, þótt við hefðum ekki þurft
að kvarta þá”, sagði Jón V.
Guðjónsson, framkvæmdastjóri
hjá Bifreiðum og landbúnaðar-
vélum, er Visir innti hann eftir
gangi bilasýningar, sem fyr-
irtækið hélt nú um helgina.
Bilasýningar á höfuðborgar-
svæðinu teljast nú til skemmti-
legri afþreyingarefna og ekki
skemmir það, þegar menn sjá sér
mögulegt að eignast þá bila, sem
til sýnis eru.
Fyrirtækið sýndi allar gerðir af
Ladabifreiðum, svo og sendibila
og UAZ blæjujeppa. Boðið var
upp á kaffisopa og áttu afgreiðslu-
menn fullt i fangi meö að veita
slikt til hinna fjölmörgu
sýningargesta.
Nýi Lada bilíirm LADA SAFÍR,
er búinn mun sparneytnari véi og
kostar tæpar 60.000 krónur, að
sögn Jóns V. Guðjónssonar, en irtækinu kosta 45 þúsund krónur.
ódýrustu Ladabilarnir hjá fyr- — AS.
Frá bilasýningu Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. sem haldin var um
helgina. Menn litu I hvert skúmaskot hinnar nýju Lada-safir og virtist
iika vel, þvi að fjöldi bila seldist á sýningunni. (Visismynd: Friðþjóf-
ur).
Landbúnaðarvörur
hækka í miðri
verðstöðvun:
Smjdrið
og mjólkin
hækka
mest
R i kiss t j órnin hefur
samþykkt verðhækkanir á
landbúnaðarvörum sem nema
5.4 til 9.5 prósentum. Þessar
hækkanir stafa af launahækk-
unum og hækkun á kjarnfóðri,
en vinnslu og dreifingarkostn-
aður er óbreyttur, að sögn
Agnars Guðnasonar hjá
Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins.
Hækkun sjálfs verðlags-
grundvallarins nemur 8.82
prósentum, en á haustgrund-
velli 23.8 prósentum. Helstu
hækkanir eru þær, að 1 litri af
mjólk hækkar úr 4.25 krónur i
4.65, kvartlitri af rjóma
kostaði 7.50,en nú 7.95, 1 litri af
undanrennu 3.70, en fer upp i
3.90, 1 kg af smjöri var á
46.60, en kostar nú 51.05, 1 kg
af 45% osti kostaði 48.25, en fer
upp i 50.85, kg af dilkakjöti i 1.
verðflokki hækkar úr 28.55 i
31.05, heil læri hækka úr 37.20
kilóið i 39.70, frampartar heilir
og hálfir kostuðu 25.80 kilóiö,
en kosta nú 28.30 kilóið af
kótilettum hækkar úr 40.25 i
42.75 krónur.
Niðurgreiðslur úr rikissjóði
verða óbreyttar, hvað varðar
mjólkina, það er að segja kr.
1.60 á litra, en á kvartlitra á
rjóma hækka þær úr 4.12 i 4.34
og á kilóinu af dilkakjöti úr
9.19 i 9.42 krónur. — KÞ.
Akureyrl:
Hestar og
bílar f
árekstrum
Harkalegur árekstur varð á
Akureyri um helgina. Það var á
tólfta timanum á laugardags-
morgun, að tveim bilum lenti
saman á gatnamótum Þingvalla-
strætis og Byggðavegar. öku-
maður annars bilsins var fluttur á
sjúkrahús, en reyndist þó ekki
mikið slasaður, en bilarnir báðir
munu nokkuð illa farnjr.
Þá var ekið á hest i Kræklinga-
hlið, sem er rétt utan við bæinn.
Fólksbifreið lenti á hesti með
þeim afleiðingum að bifreiðin
valt og hesturinn drapst. öku-
maður bifreiðarinnar og þrir
farþegar voru fluttir á sjúkrahús,
allir með minni háttar meiösl.
Bifreiðin mun nánast ónýt eftir.
— KÞ.