Vísir - 02.03.1981, Blaðsíða 10
10
Hriíturinn
21. mars—20. april
Þú átt i erfiðleikum með aö einbeita þér
að því sem þú ert að gera. Þetta veldur
þvi að áætlanir þinar standist ekki.
Nautið
21. april-21. mai
Þú kannt að lenda i deilum við maka þinn
náinn vin. Foröastu allt fjármálabrask.
Vertu heima við i kvöld.
Tviburarnir
22. mai—21. iúni
Það sem þú gerir kann að valda misskiln-
ingi og deilum. Þú þarft á þolinmæðinni
aö halda, farðu ekki i óþarfa ferðalag.
Krabbinn
21. júni—23. júli
*
Góður dagur til náms og þckkingaröflun-
ar. Allt sem við kemur fjármálum þinum
þarfnast athugunar og varfærni. Frestaðu
ferð sem þú átt fyrir höndum.
Ljónið
24. júli—23. ágúst
Þér mun veitast erfitt að gera fólki til
geös i dag. Farðu varlega I umferðinni.
Hafðu taumhald á skapinu.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.
Samvinna mun koma sér vel fyrir þig i
dag. Forðastu deilugjarnt og ósamvinnu-
þýtt fólk.
Vogin
24. sept —23. okt.
Einbeittu þér að einu i einu og þú munt ná
góðum árangri, Farðu varlega I ákvað-
anatökum, þú kannt að hafa fengið rangar
upplýsingar.
Drekinn
24. okt.— 22. nóv.
Þú kannt að lenda i smáútistöðum við
samstarfsmenn þina. Hafðu gát á tungu
þinni. Nákominn ættingi mun veita þér
mikla hjálp.
Bogmaðurinn
23. nóv.—21. des.
Þú færð gott tækifæri til að leiörétta
gamlan misskilning. Fjármálin kunna aö
valda þér nokkrum áhyggjum.
Steingeitin
22. des,—20. jan.
Eldri persóna kann að valda þér erfiöleik-
um i dag. Faröu varlega i sambandi viö
gerð mikilvægra samninga. Treystu eigin
dómgreind.
Vatnsberinn
21.-19. febr
Sjúkdómur nákomins ættingja veldur þér
úhyggjum, en það er ekkert að óttast.
Taktu ráðleggingum annarra sem vilja'
þér vcl.
Fiskarnir
'20. febr,—20. mars
Þú kannt að verða fyrir vonbrigðum með
einhvern fjölskyldumeðlim i dag. Forð-
astu fjárfestingar og eyddu kvöldinu
heima.
VÍSIR
Mánudagur 2. mars 1981
©1980 King Features Syndicate, Inc. World riqhts reserved.