Vísir - 02.03.1981, Blaðsíða 16

Vísir - 02.03.1981, Blaðsíða 16
' Mánudagur 2. mars 1981 i« vism Þórhildur Jónsdóttir Akureyri skrifar: Hr. G.H. Tryggvason, Þaö er svona meö hálfum hug að ég sendi svar við siðari skrif- um þinum i Visi 20.2. Astæðan er að mér fannst vægt sagt skrif þin farin aö verða nokk- uð gróf. Ég held að það sé vafa- mál hvort sé til ævarandi minnk- unar og skammar, svo notuð séu þin eigin orð, skrif min undir fullu nafni eða þin undir skammstöf- un. Ég með min 15 ár að baki, vilfrekar vera á sama vitsmuna- stigi og kötturinn og halda minni virðingu, en að vera yfir þá hafin og sjá ekkert nema svart. Ég bauð þér ósköp kurteislega, að minu áliti, að koma á heimili mitt, svo að þú gætir kynnst björtu hliðum kattarins lika, ekki eingöngu þeim svörtu, sem þú virðist alls staðar sjá. Þér var frjálst að neita, en mér hefði ekki fundist gera neitt tíl, þótt þú hefð- ir afþakkað á annan hátt. Ég veit ekki hvert þú sækir hugmyndir þinar um hibýli okkar kattaeig- enda eða á hvers konar heimili þú hefur komið, en svona skrif eru að minu áliti bæði litilmótleg og ósmekkleg. Það ætti aö vera langt fyrir neöan virðingu þina, svo og vitsmuni að skrifa slikt. Þórhildi fannst tilhlýöilegt aðGH.Tryggvason kynntist einnig björtu hliðum kattarins. „Rúmfastur” heldur þvi fram að ekki sé sama hvernig sokkarnir eru, þegar huga skal að dreng eða stúlku. VERIÐ í SOKKUM VIÐ FRAMLEIÐSLUNA „Rúmfastur” skrifar. Umræður hafa farið fram að undanförnu á lesendasiöu Visis um það hvernig „aðgerð” skuli framkvæmd til þess að barn það sem undir er sett verði drengur en ekki stúlka. Margir hafa látið i ljós skoðun sina á þvi máli, og sú siðasta var „Dóra” sem skrifaði i VIsi 26. febrúar. Hún segir að ef barnið eigi að verða drengur skuli kon- an, vera vel hvild fyrir „aðgerð” en karlmaðurinn útkeyrður og GOÐ ÞJONUSTA 5051-5516 skrifar: Mig langar til að lýsa ánægju minni með smáauglýsingaþjón- ustu Vísis. Ég auglýsti á dögun- um eftir heimilishjálp, og bjóst raunar ekki viö sérstökum undir- tektum. Bæði er það, að fólk virð- ist ekki ganga um atvinnulaust þessa dagana og eins og að ég er með fremur erfitt heimili. En það þarf ekki að orðlengja það, að ég fékk heilmargar upp- hringingar vegna auglýsingar- Meira af gaman- mynflum Sigurður Fannar, Gras- haga 2, Selfossi skrifar: Mig langar að beina þeirri spurningu til sjónvarpsins hvort ekki sé hægt að sýna meira af gamanmyndum, eins og til dæmis Harold Lloyd, Gög og Gokke eða Chaplin, svar óskast. innar og varð þvi ekki i neinum vandræðum meö aö fá góða að- stoð. Þvi segi ég bara: Takk fyrir góða þjónustu. Ég á vist áreiðan- lega eftir að notfæra mér hana aftur, ef ég þarf á þvi að halda. EG HELD MEÐ G.H.T. Robbi hringdi: Ég styð G.H. Tryggvason ein- dregið i skrifum hans um katt^- hald, þann óþverra. Ég vil ein- dregið heyra einhver rök katta- vina fyrir þvi aö pina þessi kvik- indi á heimilum fólks, langt utan við það umhverfi sem þessi dýr eiga aö vera i náttúru sinni sam- kvæmt. Ég styð G.H.T. vegna þess að hann talar mál sem fólk skilur, ekki eitthvert súkkulaðimál eða svokallað „Lundarreykjadals- kjaftæði”. taugaður, en öfugt ef „framleiða” skuli stúlku. Þessu er ég ekki samrúála. Min aðferð sem ekki hefur brugðist er i stuttu máli þessi: Þegar „framleiðsla” á dreng skulu báðir „starfsmenn vera af slappaðir og vel fyrirkallaðir fyr- ir átökin, starfsmaður karlkyns skal vera I sokk á hægra fæti, konan i sokk á vinstra fæti. Ef stúlku er óskað á þetta að vera „omvent”. Sokkarnir mega ekki vera skit- ugir og verða helst að vera I sterkum litum. Þetta er „fram- leiðsluaðferð” sem ég get mælt með. Ef tilvill hljómar þetta hjá- kátlega fyrir þá, sem vilja grinast með svona hluti, en eftir þessu hef ég farið og min fjölskylda. Þetta er ekki hundrað prósent öruggt, en ég ábyrgist 70%. Stöðugt hefur verið unnið aö byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða I Kópavogi. Hvert er hægt að senda fé til Hjúkrunarheimtlis I Kópavoglnum? Margir lesendur Visis hafa haftsamband við blaö- ið, til þess að afla sér upplýsinga, um það hvert senda megi fé, er fólk hyggst leggja fram til stuðn- ings hjúkrunarheimilinu I Kópa- vogi, en eins og kunnugt er hafa frjáls samtök Kópavogsbúa stað- iðað byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða. HjUkrunarheimilið hefur giró- reikning SPB 9000 I SPARISJÓÐI KÓPAVOGS, og hægt er aö senda féð á ofangreint heimilisfang Ur hvaða bankastofnun eða pósthúsi sem er. Þá er hægt að senda fé til skrif- stofu hjUkrunarheimilisins að Hamraborg 1 Kópavogi, sem opin er alla virka daga milli klukkan 14—18. Siminn þar er 45550. Sé þess óskað geta starfsmenn skrif- stofunnar sótt heim til fólks.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.