Morgunblaðið - 01.03.2004, Síða 1
2004 MÁNUDAGUR 1. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GENGUR EKKI AÐ GEFA ARSENAL FORGJÖF/B12
Mörgum leikmönnum sigurliðs-ins hefur Jóhannes stýrt upp í
gegnum yngri flokkana, unnið með
þeim sæta sigra og séð þá þroskast.
Á laugardaginn sá hann þá leika eins
og fullorðna og reynda leikmenn og
hann kippti sér lítið upp við sigurinn.
„Viljinn til þess að vinna bikarinn
var alveg takmarkalaus,“ sagði Jó-
hannes í samtali við Morgunblaðið
eftir leikinn. „Ég hef haft það á til-
finningunni alla vikuna, bæði á æf-
ingum og á fundum, að erfiðasti
þröskuldurinn væri sá að bíða eftir
leiknum sjálfum. Undirbúningur
okkar var afar góður og í raun vorum
við reiðubúnir að leika þennan leik á
fimmtudaginn,“ sagði Jóhannes og
var stoltur af lærisveinum sínum.
„Þetta var glansleikur hjá liðinu,
með því betra sem það hefur sýnt í
vetur. Það sem við höfðum lagt upp
fyrir leikinn gekk allt eftir. Okkur
tókst að loka á styrkleika Fram-liðs-
ins og síðan sprengdum við það á tíu
mínútna kafla í síðari hálfleik.
Ég er feikilega stoltur af strákun-
um í liðinu og dáist að kjarki þeirra
og öryggi sem þeir sýndu í leiknum.
Það er að minnsta kosti meira en
þjálfarinn hefur,“ sagði Jóhannes og
var þar með hrifinn á brott af stuðn-
ingsmanni KA-liðsins til að taka þátt
í myndatökum og fögnuðu þar sem
dansað var um gólf Laugardalsvall-
ar.
Feikilega stoltur
af strákunum
„ÞAÐ virðist ekki margt raska ró hins yfirvegaða þjálfara KA-
liðsins, Jóhannesar Bjarnasonar, sem stýrði KA og fagnaði nú sín-
um fyrsta stóra titli sem þjálfari meistaraflokks félagsins eftir að
hafa unnið þá marga sem þjálfari yngri flokka félagsins.
■ Allt um leikinn/B6,B7
„ÞETTA var með hreinum ólík-
indum fyrir mig sem fyrrverandi
þjálfari KA og Fram, auk þess sem
ég er Framari að upplagi. En hjarta
mitt sló með KA í þessum leik,“
sagði Atli Hilmarsson, fyrrverandi
þjálfari og leikmaður KA og Fram
og faðir Arnórs Atlason, leikmanns
KA, eftir að sonur hans og sam-
herjar fögnuðu sigri í bikarkeppn-
inni á laugardaginn. Atli fylgdist
með leiknum úr áhorfendastúkunni
innan um stuðningsmenn KA og tók
innilega þátt í leiknum frá þeim
stað.
„Ég var stressaður fyrir þennan
leik en þegar á hólminn var komið
stóðu KA-menn sig afar vel og úrslit-
in eru alveg frábær.“
Sonur þinn átti stórleik, ekki satt?
„Jú, hann lék stórvel, ég verð að
viðurkenna það þótt hann sé sonur
minn. Hann var tekinn úr umferð
meirihluta leiksins en fór samt á
kostum. Þá var öll umgjörð þessa
leiks til fyrirmyndar. Það eina sem
vantaði að mínu mati var það að
landsliðsþjálfarinn væri meðal
áhorfenda, mér finnst það mjög
slæmt að hann skuli ekki hafa orðið
vitni að þessum leik,“ sagði Atli
Hilmarsson, stoltur faðir og fyrrver-
andi þjálfari og leikmaður KA og
Fram.
Hjarta Atla
sló með KA
Sigurbjörn Árni Arngrímsson,
UMSS, varð tíundi í 3.000 metra
hlaupi á 8.43,21 og Kári Steinn
Karlsson, UMSS, tíu sætum þar fyrir
aftan á 9.17,44 og bætti hann sitt
eigið drengjamet um tæpar tvær
sekúndur.
Sverrir Guðmundsson, ÍR, keppti í
stangarstökki og varð í 13. sæti með
því að stökkva 4,50 metra.
Sunna Gestsdóttir, UMSS, hljóp
200 metrana á 25,01 og komst í úr-
slit en keppti ekki þar. Fríða Rún
Þórðardóttir, ÍR, varð önnur í 3.000
metra hlaupi á 10.14,47 og Rakel
Ingólfsdóttir, FH, sjötta á 11.02,06.
Þórey Edda Elísdóttir keppti um
helgina á móti í Frakklandi og hafn-
aði þar í 3.–4. sæti ásamt Anastasiyu
Ivanovu með 4,35 metra. Tatyana
Polnova sigraði með því að stökkva
4,71 metra og Svetlana Feofanova
varð önnur með 4,46 metra.
BJÖRN Margeirsson úr FH bætti Ís-
landsmetið í 800 metra hlaupi um
helgina þegar hann skeiðaði í mark
á 1.52,03 og varð fyrstur á opna
danska meistaramótinu sem haldið
var í Malmö. Bætti hann eigið met
sem hann setti á sænska meist-
aramótinu í Gautaborg um síðustu
helgi um 9/100 úr sekúndu.
Stefán Már Ágústsson, UMSS,
varð í sjötta sæti í hlaupinu á 1.55,52
og Ólafur Margeirsson úr Breiða-
bliki endaði í 15. sæti á 1.59,71.
Sigurkarl Gústavsson, UMSB,
hljóp 200 metrana á 22,59 sekúndum
og setti Íslandsmet í flokki 19–20
ára og 20–22 ára. Magnús Valgeir
Gíslason, Breiðabliki, setti met í
flokki 17–18 ára þegar hann kom í
mark í 200 metra hlaupinu á 23,30
sekúndum. Metið í öllum þessum
flokkum átti Rafn Árnason og var
það 23,57 sekúndur.
Ljósmynd/Gordons Förlag
Björn Margeirsson fagnar meti sínu í 800 m hlaupi í Malmö.
Enn slær
Björn met
NÍNA Ósk Kristinsdóttir, framherji kvennaliðs
Vals í knattspyrnu, er svo sannarlega á skotskón-
um þessa dagana. Á dögunum gerði hún sér lítið
fyrir og skoraði sjö mörk þegar Valur burstaði
Íslandsmeistara KR, 9:1, á Reykjavíkurmótinu.
Nína, sem er 18 ára gömul, hélt uppteknum
hætti um helgina þegar Valur sigraði ÍBV tvíveg-
is á Reykjavíkurmótinu. Á laugardaginn skoraði
hún tvö mörk í 4:2 sigri Vals og í gær gerði hún
enn betur og skoraði sex mörk. Nína, sem gekk í
raðir Vals frá Reyni Sandgerði í fyrra, hefur því
skorað 15 mörk í þremur síðustu leikjum Valsl-
iðsins og 20 mörk í fimm leikjum Vals á mótinu.
„Ég hef verið sérlega markheppin og vonandi
heldur það bara áfram,“ sagði Nína Ósk við
Morgunblaðið.
Með sigrunum á ÍBV nú um helgina tryggði
Valur sér Reykjavíkurmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu kvenna en þremur leikjum er nú ólokið í
keppninni. Breiðablik og ÍBV eiga eftir að mæt-
ast tvisvar og Valur og KR í seinni leik liðanna.
Með sigri í þeim leik getur KR jafnað Val að stig-
um en það munar 20 mörkum á markatölu lið-
anna þar sem Valur hefur 18 mörk í plús en KR
tvö mörk í mínus. Eru það nákvæmlega mörk
markamaskínunnar Nínu Óskar Kristinsdóttur í
keppninni.
Nína með
tuttugu mörk í
fimm leikjum