Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 B 5  PÉTUR Hafliði Marteinsson og félagar hans í sænska liðinu Hammarby báru sigur úr býtum á fjögurra liða knattspyrnumóti sem haldið var í Örebro í Svíþjóð um helgina. Hammarby lagði Örebro, 2:1, í úrslitaleiknum og lék Pétur allan leikinn á miðju Hammarby.  PÉTUR skoraði eitt þriggja marka Hammarby sem sigraði Gautaborg í undanúrslitunum, 3:0. Pétur skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu en hann þótti besti mað- ur liðsins. Hjálmar Jónsson var í byrjunarliði Gautaborgar en fékk ekki að leika allan tímann þar sem honum var vísað af velli á 78. mín- útu leiksins.  ÓLAFUR Örn Bjarnason lék báða leiki norska liðsins Brann á mótinu. Brann tapaði fyrir Örebro, 2:0, en hafði betur gegn Gauta- borg, 4:2, í leik um þriðja sætið. Hjálmar Jónsson var ekki í liði Gautaborgar.  JÓHANN B. Guðmundsson var í byrjunarliði Örgryte sem tapaði fyrir brasilíska liðinu Atlético Min- eiro, 2:0, í æfingaleik í Brasilíu í gær. Atli Sveinn Þórarinsson kom inn á sem varamaður en Tryggvi Guðmundsson var ekki í leik- mannahópi sænska liðsins.  ARNAR Þór Viðarsson og Rúnar Kristinsson léku báðir allan leikinn fyrir Lokeren sem steinlá fyrir Westerlo, 7:3, í belgísku 1. deild- inni. Marel Baldvinsson lék ekki með Lokeren.  INDRIÐI Sigurðsson lék ekki með Genk sem sigraði, Lierse, 2:0. Genk er í fjórða sæti deildarinnar.  ZINIDINE Zidane skoraði tví- vegis og þeir Ronaldo og Luis Figo sitt markið hver þegar Real Madrid bar sigurorð af Celta Vigo, 4:2, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Madridarliðið náði með sigr- inum átta stiga forskoti á toppi deildarinnar þar sem Valencia beið læri hlut fyrir Espanyol, 2:1.  BARCELONA vann góðan útisig- ur á Deportivo La Coruna, 3:2, og er smátt og smátt að ná takti í leik sinn. Börsungar komust í 3:0 með tveimur mörkum frá Brasilíumann- inum Ronaldinho og Saviola skor- aði eitt. Heimamenn hleyptu spennu í leikinn í síðari hálfleik. Walter Pandiani skoraði tvívegis en nær komust þeir ekki.  EINAR Karl Hjartarson, há- stökkvari úr ÍR, sigraði í hástökki á frjálsíþróttamóti sem haldið var innanhúss í Idaho í Bandaríkjunum um helgina, stökk 2,21 metra sem er sjö sentímetrum lægra en Ís- landsmet hans innanhúss.  MASSIMO Ambrosini tryggði AC Milan sigurinn á Lazio með eina marki leiksins á 75. mínútu. FÓLK WERDER Bremen siglir hægt og bítandi í átt að þýska meistaratitl- inum í knattspyrnu en þegar tólf umferðum er ólokið hafa Brim- arbúar sjö stiga forskot á Bayern München. Bremen vann góðan sigur gegn Dortmund, 2:0, og hefur nú leikið 13 leiki í röð án taps. Valerien Ismael og Brasilíumaðurinn Ailton skoruðu mörk Bremen í síðari hálfleik. Þetta var 20. mark Ail- tons í 22 leikjum og aðeins goð- sögnin Gerd Müller státar af betri árangri hvað markaskorun varðar á þessum tíma keppnistímabilsins. Bayern sigraði Wolfsburg á heima- velli, 2:0, með mörkum frá Roy McKaay og Bastian Schwein- steiger. „Við bíðum eftir því að Werder Bremen hlekkist á. Stuttgart missti flugið og við vonum bara að hið sama hendi Bremen,“ sagði Michael Ballack, leikmaður Bæj- ara, eftir leikinn. Oliver Kahn, markvörður Bayern, fékk hlýjar móttökur hjá stuðningsmönnum liðsins sem höfðu útbúið stóran borða með áletrun sem á stóð: „Ol- lie, við höfum gleymt leiknum við Real Madrid“. Kahn átti góðan leik og bjargaði í þrígang meistaralega eins og honum einum er lagið. Stuttgart varð að láta sér lynda markalaust jafntefli gegn Schalke og hefur aðeins unnið einn af síð- ustu tólf leikjum sínum og sem fyrr gengur liðinu afleitlega að finna netmöskvana. „Við erum óöruggir þessa dag- ana og okkur tekst ekki að finna það form sem við vorum komnir í,“ sagði Felix Magath, þjálfari yngsta liðs deildarinnar, Stuttgart. Það var fyrrum leikmaður Leeds,Harry Kewell, sem kom Rauða hernum yfir með glæsilegu marki eft- ir rúmar tuttugu mínútur. Norðmað- urinn Erik Bakke jafnaði skömmu síðar og var þetta fyrsta mark hans í eina fjórtán mánuði. Mark Viduka kom heimamönnum síðan yfir á 34. mínútu en Milan Baros jafnaði fyrir gestina skömmu fyrir hálfleik og þar við sat. Hvorugu liðinu tókst að skora í síðari hálfleik eftir fjörugan fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var einnig ágæt skemmtun og bæði lið freistuðu þess að setja mörk, áttu meðal annars skot í stangir mótherjanna.  Portsmouth tók á móti Newcastle á sunnudaginn og lauk þeirri viður- eign með 1:1 jafntefli. Craig Bellamy kom gestunum yfir á 34. mínútu og þar við sat alveg þar til rétt í blálokin að Lua-Lua jafnaði, en hann lék með Newcastle áður en hann gekk til liðs við Portsmouth.  Tomas Radzinski og Thomas Gravesen tryggðu Everton mikilvæg þrjú stig í fallbaráttunni í 2:0 sigri gegn Aston Villa á Goodison Park. Mörkin komu á síðasta stundarfjórð- ungi leiksins. „Þetta voru kærkomin stig en við erum langt í frá sloppnir út úr fallbaráttunni,“ sagði David Mo- yes, knattspyrnustjóri Everton.  Markverðirnir Paul Jones hjá Wolves og Ian Walker hjá Leicester voru í aðalhlutverkum þegar liðin gerðu markalaust jafntefli í sannköll- uðum fallbaráttuslag á Walker Stadi- um. Stigið dugði Úlfunum til að kom- ast úr fallsæti. „Þetta var ekki fallegur leikur sem ég hef séð en stig- ið var dýrmætt og við það er ég sátt- ur,“ sagði Dave Jones, stjóri Úlfanna.  Graeme Souness, stjóri Black- burn, var æfur eftir leikinn en hann taldi dómara leiksins hafa rænt sína menn vítaspyrnu þegar Blackburn og Southampton skildu jöfn, 1:1. Kevin Phillips kom Southampton yfir í leiknum en Andy Cole jafnaði fyrir heimamenn. „Við fáum ekki dæmdar vítaspyrnur bara vegna þess að við erum ekkert stórlið. Við höfum ekki fengið eitt einasta víti á allri leiktíð- inni,“ sagði Souness. Liverpool náði ekki fjórða sætinu LIVERPOOL tókst ekki að kom- ast í fjórða sæti ensku deild- arinnar, en það sæti er það síð- asta sem gefur rétt til að keppa í Evrópukeppninni. Liverpool heimsótti Leeds í gær og hefði með sigri komist í fjórða sætið. Liðin skildu hins vegar jöfn, 2:2, og Liverpool sem fyrr í sjötta sæti. Leedsarar eru enn í neðsta sæti deildarinnar. Reuters Leikmenn Liverpoool fagna marki Harry Kewell – Sami Hyypia, Michael Owen, Kewell, Milan Baros og Danny Murphy. Liverpoool gerði jafntefli við Leeds á Elland Road, 2:2. DAVID Beckham, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, við- urkennir í fyrsta sinn að hann sakni Manchester United en Beckham gekk í raðir spænska stórliðsins Real Madrid síðastliðið sumar eftir tíu ára dvöl hjá Manchester. Hol- lenski markahrókurinn Ruud Van Nistelrooy lét hafa eftir sér á dög- unum að hann saknaði mjög Beck- hams enda naut Hollendingurinn sérlega góðs af þjónustu Beckhams sem lagði upp ófá mörkin fyrir Nist- elrooy. „Ég hef heyrt um þessi ummæli frá Nistelrooy og mér þótti vænt um að heyra þau,“ sagði Beckham í við- tali við enska blaðið Daily Mail. „Ég sakna fólksins í Manchester og sömuleiðis Ruud og fleiri leik- manna í liði Manchester United,“ segir Beckham. Spurður hvort rétt hefði verið hjá Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóra Manchester United, að láta hann fara frá Old Trafford sagði Beckham: „Þú verður að spyrja hann um það en ég sakna Manchest- er United, leikmannanna, vina og stuðningsmannanna sem voru mér svo kærir.“ Beckham segir í viðtali við frétta- vef BBC að gæðin í spænsku 1. deild- inni séu meiri en í ensku úrvalsdeild- inni. „Til þessa þá finnst mér spænska deildin sterkari. Enska úr- valsdeildin er geysierfið deild en ég held samt að sú spænska hafi örlítið forskot. Hver einasti leikur er mjög strembinn.“ David Beckham saknar Manchester United Bremen heldur sínu striki MIDDLESBROUGH varð í gær enskur deildabikarmeistari í knatt- spyrnu þegar liði lagði Bolton 2:1 í úrslitaleik í Cardiff. Þetta var fyrsti stóri bikarinn sem félagið vinnur til síðan það var stofnað árið 1875. Það var því rík ástæða fyrir leikmenn og stuðningsmenn að fagna, enda hafði liði tapað þremur úrslitaleikjum, í bikarnum 1997 og sama ár og árið á eftir í deildabikarnum. Það má því segja að orðatiltækið allt er þá þrennt er eigi vel við í þessu tilviki þar sem Boro hafði tapað tveimur úrslitaleikjum í deildabikarnum. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur, bæði lið fengu fjöl- mörg marktækifæri. Byrjunin var ekki leiðinleg fyrir stuðningsmenn Boro því liðið var komið í 2:0 eftir aðeins sjö mínútna leik. Fyrst skor- aði Joseph-Desire Job eftir aðeins tvær mínútur og síðan Boudewijn Zenden úr vítaspyrnu á sjöundu mínútu. Vítið var dæmt þegar Emer- son Thome felldi Job í vítateignum. Vítaspyrna Zenden var þó ekki glæsileg. Kappinn datt um leið og hann spyrnti knettinum í mitt mark- ið og sýna sjónvarpsupptökur að hann snerti knöttinn tvívegis þegar hann spyrnti. Kevin Davis minnkaði muninn fyr- ir Bolton með þokkalegu skoti utan úr teignum hægra megin, en Mark Schwarzer, markvörður Boro, missti boltann í netið. Hann bætti þó fyrir þessi mistök margsinnis það sem eftir var leiks og átti stórleik í markinu. Sögulegur bikarsigur hjá Middlesbrough Reuters Southgate, fyrirliði Middl- esbrough, með bikarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.