Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 6
HANDKNATTLEIKUR 6 B MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ „FYRIR leikinn sögðum við allir sem einn að okkur langaði alveg örugglega meira í bikarmeistaratitilinn en Fram,“ sagði Arnór Atlason, helsta tromp KA- liðsins og markakóngur þess í úrslitaleiknum. „Margir í liðinu hafa unnið allt sem hægt er að vinna frá sjötta flokki og það eina sem vantaði í safnið var bikarmeist- aratitill í meistaraflokki. Sú staðreynd hvatti okkur áfram í leiknum. Margir höfðu á orði fyrir leikinn að leikmenn Fram hefðu meiri reynslu. Ég er ekki sammála því, held að flestir í KA-liðinu hafi tekið þátt í fleiri úrslitaleikjum í gegnum tíðina. Sú reynsla skilaði sér að þessu sinni. Það er mikill sigurvilji í KA-liðinu og það er alveg ljóst að við ætlum ekki að láta staðar numið núna held- ur standa einnig uppi sem sigurvegarar á Íslands- mótinu,“ sagði Arnór sem heldur utan til Þýskalands í sumar þar sem hann hefur gert samning við stórlið Magdeburg. Arnór segist vera staðráðinn í að verða Ís- landsmeistari áður en hann heldur til Þýskalands, hann hafi verið í KA-liðinu sem varð Íslandsmeistari fyrir tveimur árum en verið meiddur og ekki getað tekið þátt í úrslitarimmunni það árið. „Ef við leikum eitthvað í líkingu við það sem við gerðum í seinni hálfleik nú þá á ekkert lið möguleika gegn okkur, það er alveg pottþétt. Ef við leikum okkar leik þá erum við bestir.“ Arnór sagði að KA-liðið hefði vísað öllum vangavelt- um um reynsluleysi, slaka vörn og markvörslu til föðurhúsanna. „Við getum vel spilað góða vörn, þá var markvarslan framúrskarandi. Þannig fengum við mörg hraðaupphlaup sem eru meðal okkar sterkustu hliða.“ Þið voruð undir það búnir að þú væri tekinn úr um- ferð? „Við vorum vel undir það búnir, höfðum æft okkur fyrir að ég yrði tekinn úr umferð. Þannig að það atriði ásamt ýmsu öðru gekk eins vel og við vonuðumst til. Það er bara svo yndislega gaman að vinna að ég trúi ekki öðru en alla langi til að enda keppnistímabilið á svipuðum nótum, það er með sigri á Íslandsmótinu,“ sagði Arnór Atlason, leikmaður KA. Bikarmeistaratitillinn í meistaraflokki sá eini sem vantaði hjá okkur „ÞAÐ skein í gegn frá fyrstu mínútu að við vorum hungraðri í sigur en Fram- arar,“ sagði Jónatan Magnússon, fyrirliði KA, eftir að hann hafði tekið við bikarn- um úr höndum Steinþórs Skúlasonar, for- stjóra SS, sem er styrktaraðili bikar- keppni HSÍ. „Við léku heimsklassa vörn og mark- varslan var frábær hjá Hafþóri. Við þessu áttu leikmenn Fram ekkert svar. Síðan var sóknin góð hjá okkur að því undan- skildu að við áttum í smávandræðum fyrst eftir að Arnór [Atlason] var tekinn úr umferð undir lok fyrri hálfleik. En við jöfnuðum okkur á því í síðari hálfleik og þá stóð ekki steinn yfir steini hjá Fröm- urum.“ Jónatan segir að sökum þess að Fram- liðið leiki frekar hægan sóknarleik þá henti það þeim illa að þeim sé mætt með framliggjandi ákveðinni vörn. „Þetta virkaði fínt hjá okkur og síðan hjálpaði Ætlum ok hverju andliti, hraði sem Framarar réðu aldrei við. KA-liðið er vel að sigrinum komið og ljóst af þessum leik að það er til alls líklega þegar keppnin um Íslandsmeistaratitilinn hefst af alvöru í apríl. Fram-liðið var í hlutverki músar- innar allan leikinn og í raun virtust leikmenn aldrei hafa trú á því að þeir gætu unnið. Hægur sóknarleikur liðsins gegn framliggjandi og grimmri vörn KA var hugmynda- snauður. Þennan veikleika nýttu leik- menn KA sér til fullnustu og skoruðu rúmlega þriðjung marka sinna úr hraðaupphlaupum og lögðu grunninn að verðskulduðum sigri. Fram hafði einfaldlega ekki að þessu sinni nógu sterka sóknarmenn til þess að standast KA snúning, það er ekki nóg að mæta í úrslitaleik í bik- arkeppninni með sterka vörn og góða markvörslu þegar leikið er gegn jafn spræku liði og KA. Til þess að vinna norðanmenn í þeim ham sem þeir voru í á laugardaginn þarf að hafa jafnsterkari blöndu leikmanna en Fram gat boðið upp á að þessu sinni. Fimm mínútum fyrir leikslok stóðustuðningsmenn KA upp og hófu að syngja sigursöngva. Laugardals- höllinn lýstist upp þegar gulklædd og fjölmenn fylking stuðningsmanna KA hóf að gleðjast yfir fengnum hlut, leikmenn KA höfðu leikið eins þeir sem valdið höfðu frá fyrstu mínútu og aðeins leyft Fröm- urum að komast einu sinni yfir, 2:1. Greinilegt var frá fyrstu mínútu hvort liðanna væri klárt í slaginn, baráttugleðin skein úr hverju andliti leikmanna KA og út úr því mátti lesa að þeir væru komnir til að sjá og sigra, ekkert yrði gefið eftir, bikarinn skyldi fara norður í höfuðstaðinn. Framliggjandi 3/2/1 vörn KA var nokkuð sem sóknarmenn Fram áttu ekkert svar við. Sóknarleikur Fram var hægur og hreinlega á köflum staður, lítið var um innleysingar úr hornum heldur var mest reynt að hnoðast um á miðjunni þar sem vörn KA var var föstust fyrir. Að baki vörninni stóð Hafþór Einarsson markvörður sem hefur sjaldan á ferl- inum átt betri leik. Mörg ótímabær og óyfirveguð skot leikmanna Fram strönduðu á Hafþóri. Vörn Fram stóð sína vakt nokkuð vel, einkum í fyrri hálfleik, 6/0 vörn lengst af, en það var ekki vörnin sem var stóra vandmálið hjá Fram heldur sóknin, og veikleik- ann nýttu KA-menn sér til hins ýtr- asta, skoruðu sjö af tólf mörkum sín- um í fyrri hálfleik upp úr hröðum upphlaupum. Eftir 23 mínútna leik var forysta KA orðin fjögur mörk, 11:7. Þá brugðu Framarar á það ráð að taka Arnór Atlason úr umferð, en hann var helsta vopn KA-manna. Þetta bragð virkaði um tíma og þegar við bættist stórgóð frammistaða Petkeviciusar í marki Fram þá tókst aðeins að minnka muninn fyrir hálf- leik, en þá munaði tveimur mörkum á liðunum, 12:10, KA í vil. Tvö mörk KA úr hröðum upp- hlaupum gáfu tóninn fyrir seinni hálf- leikinn. Frömurum tókst að klóra að- eins í bakkann og minnka muninn í eitt mark en eftir sjö mínútna leik í síðari hálfleik var ljóst hvert stefndi. Forysta KA var orðin fjögur mörk og þegar frá leið seig frekar á ógæfu- hliðina hjá Fram heldur en hitt, engu breytti þótt Jónatan Magnússon væri einnig klippptur út úr sóknarleik KA í viðbót við Arnór. KA-menn höfðu ráð undir rifi hverju og inn á komu óþreyttir menn eins og Sævar Árna- son og Ingólfur Axelsson og sáu um að skora hvert markið á fætur öðru. Munurinn jókst stig af stigi og var- mestur níu mörk. Sóknarleikur Fram var í molum, Hafþór markvörður KA, varði hvert skotið á fætur öðru og þegar við bættist að mörg önnur skot leikmanna biluðu og enduðu í mark- stöngunum var ljóst að bilið yrði ekki brúað. Leikmenn KA léku við hvern sinn fingur og hreinlega léku sér að lánlitlum Frömurum, þar sem fæstir leikmenn liðsins voru klárir í slaginn þegar stóra stundin rann upp. Eins og fyrr segir þá var það greinilegt frá upphafi að leikmenn KA voru tilbúnir til að fórna sér full- komlega í úrslitaleikinn. Allt tal um að liðið vantaði reynslu var látið sem vind um eyru þjóta. Enda sagði Arn- ór Atlason í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn að leikmenn liðsins hefðu mikla reynslu, væru búnir að leika úrslitaleiki um Íslands- og bikar- meistaratitla upp alla yngri flokkana. Allt tal um reynsluleysi væri út í hött enda kom það á daginn. Arnór fór á kostum í leiknum ásamt Hafþóri markverði. Sömu sögu má segja um Andrius Stelmokas, jafnt í vörn sem sókn. Jónatan lék af yfirvegun og eins Einar Logi Friðjónsson, sem þó fór á köflum illa með skot sín. Árni Björn Þórarinsson stóð vel fyrir sínu í horninu og þeir Sævar og Ingólfur voru sterkir þegar þeir voru kallaðir til leiks. Þá munaði mikið um reynslu og dugnað Þorvaldar Þorvaldssonar í vörninni, en hann er hinn eini í liðinu sem var með KA-liðinu þegar það varð síðast bikarmeistari fyrir átta árum. Hraði og leikgleði skein úr HIÐ unga og sterka lið KA vann verðskuldaðan stórsigur á Fram í úrslitaleik bikarkeppni karla á laugardaginn og sýndi það og sann- aði að liðið er fyrir löngu meira en efnilegt. Lokatölur, 31:23, í leik þar sem ljóst var stundarfjórðungi fyrir leikslok að bikarinn færi norður yfir heiðar í fyrsta sinn í átta ár, slíkir voru yfirburðir KA- manna með þá Arnór Atlason og Hafþór Einarsson markvörð fremsta í flokki meðal jafningja. Ef ekki hefði komið til góð frammi- staða Egidijusar Petkeviciusar, í marki Fram, lengst af leiknum þá hefðu leiðir liðanna skilið miklu fyrr – hann hélt lifandi þeirri litlu von sem leikmenn Fram höfðu fram eftir leiknum. Ívar Benediktsson skrifar Arnór Atlason átti mjög góðan leik með KA. Jónatan Magnússon, fyrirlið                              ! "# $#     %  " &'   (           KA-menn voru sterkari á öllum sviðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.