Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR 4 B MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ  RONALDO, brasilíski framherj- inn í liði Real Madrid, sagði í blaða- viðtali á Spáni um helgina að hann vildi helst ljúka ferli sínum hjá Madridarliðinu en samningur hans við félagið rennur út árið 2006. Ron- aldo hefur ítrekað verið orðaður við Chelsea en hann segist ákaflega ánægður með dvölina hjá Madrid og vilji vera þar áfram.  FRAKKINN Zinedine Zidane, fé- lagi Ronaldos hjá Real Madrid, íhug- ar að keppa ekki með Frökkum á HM í Þýskalandi árið 2006. „Í augna- blikinu er ég að stíla inn á að ljúka ferli mínum með landsliðinu á Evr- ópumótinu í Portúgal í sumar,“ segir Zidane við franska blaðið Le Paris um helgina. Zidane er samnings- bundinn Real Madrid til ársins 2006.  ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, segir í viðtali við enska fjölmiðla um helgina að hann hafi neitað Real Madrid um að taka við þjálfun liðsins á síðasta sumri eft- ir að ákveðið var að reka Vicente Del Bosque frá störfum. Þegar Wenger hafði gefið forráðamönnum Madrid- arliðsins afsvar leituðu þeir til Carl- osar Queiroz, fyrrum aðstoðarþjálf- ara Manchester United, sem ákvað að taka starfið að sér.  BRASILÍSKI knattspyrnumaður- inn Rivaldo hefur sagt skilið við brasilíska liðið Cruzeiro eftir að fé- lagið rak þjálfarann Vanderley Lux- emburgo. Rivaldo hefur leikið með Cruzeiro undanfarna tvo mánuði eða eftir að hann fékk sig lausan frá Evr- ópumeisturum AC Milan. Hann lék 10 leiki með Cruzeiro og skoraði að- eins tvö mörk í einum og þau í einum og sama leiknum.  TÉKKINN Tomas Rocisky, miðju- maðurinn snjalli hjá Dortmund, varð fyrir því óláni að handarbrotna í leik Dortmund við Werder Bremen í þýsku Bundesligunni á laugardag- inn. Hann verður því frá æfingum og keppni næstu vikurnar og ekki er það til að bæta ástandið hjá Dort- mund en meiðsli hafa leikið liðið grátt á leiktíðinni.  DAVID Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, vill fá Alan Sherarer, framherja Newcastle, inn í landslið- ið á nýjan leik en Sherarer ákvað að segja skilið við enska landsliðið eftir Evrópumótið fyrir fjórum árum. „Hann yrði enska landsliðinu mikill fengur enda frábær leikmaður í alla staði. Hann hefur sýnt og sannað að hann er ennþá framherji í fremstu röð,“ segir Beckham.  SVEN Göran Eriksson, hinn sænski landsliðsþjálfari Englend- inga, neitaði um helgina þrálátum orðrómi um að hann ætlaði að taka við Chelsea í sumar. Sagan segir að hann sé búinn að fá Pavel Nedved til að skipta frá Juventus í Chelsea. FÓLK Arsenal gerði út um leikinn gegnCharlton á fjórum fyrstu mín- útunum. Frakkarnir Robert Pires og Thierry Henry skoruðu tvívegis á þessum kafla, Pires sitt 50. fyrir fé- lagið, og liðsmenn Charlton fengu svo sannarlega óblíðar móttökur hjá grönnum sínum. Arsenal réð lögum og lofum í fyrri hálfleik en leikurinn jafnaðist í þeim síðari. Daninn Claus Jensen minnkaði muninn með marki beint úr aukaspyrnu um miðjan síð- ari hálfleik og undir lokin munaði minnstu að Finnanum Jonatan Joh- anssyni tækist að jafna en skot hans eftir bakfallsspyrnu small í stöng Arsenalmarksins. Liðsmenn Arsen- al fögnuðu 20 sigrinum í úrvalsdeild- inni í vetur og liðið er enn taplaust í 27 leikjum í úrvalsdeildinni á tíma- bilinu og 29 í það heila en Arsenal tapaði ekki síðustu tveimur leikjum sínum á síðustu leiktíð. Ekki búið ennþá „Ég neita því ekki að staða okkar er góð en þetta er samt langt frá því að vera búið. Fyrir sjö leikjum vor- um við þremur stigum á eftir Man- chester United en það eru enn 11 leikir eftir. Það eru snúnir útileikir eftir hjá okkur, eins og við Fulham, Tottenham, Newcastle og Black- burn, og það getur enn ýmislegt gerst,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Rangstöðumörk? „Ég vil ekki hljóma eins og ég sé tapsár en ég set spurningarmerki vð bæði mörk Arsenal í leiknum. Ég er alveg sannfærður um að Pires var ekki réttstæður í fyrsta markinu eft- ir að hafa séð atvikið í sjónvarpi og í því síðara var Henry langt fyrir inn- an okkar vörn þegar boltanum var spyrnt til Vieira,“ sagði Alan Curbishley, stjóri Charlton. Sir Alex Ferguson gerði talsverð- ar breytingar á liði sínu gegn Ful- ham og það kom flestum á óvart að hann setti Tim Howard, Ruud Van Nistelrooy og Ryan Giggs á bekk- inn. Louis Saha kom United yfir á 14. mínútu með góðu marki gegn fyrri félögum sínum en Luis Boa Morte jafnaði á 65. mínútu og þar við sat. Undir lok leiksins átti sér stað mjög umdeilt atvik. Saha féll í teignum eftir viðskipti við Edwin van der Saar, markvörð Fulham, og ekki varð betur séð en United hefði átt að fá dæmda vítaspyrnu. Dómari leiksins sá hins vegar ekkert athuga- vert. Á brattann að sækja „Það sjá allir að það verður veru- lega á brattann að sækja fyrir okkur ef við eigum að verja meistaratitilinn en ég hef alls ekki gefist upp. Við getum enn komist á sigurbraut og það er einmitt það sem við þurfum á að halda. Það hjálpar ekki þegar dómarar sleppa augljósu víti. Saha var greinilega felldur og ég skil ekki hvernig dómarinn gat litið framhjá því. Þeir voru gerðir að atvinnu- mönnum í faginu en ég get ekki séð að það hafi hjálpað til,“ sagði Fergu- son. Chelsea stal sigrinum Mark Eiðs Smára Guðjohnsens átta mínútum fyrir leikslok tryggði Chelsea 1:0 sigur á móti Manchester City. Eiður vippaði knettinum lag- lega yfir David James, landsliðs- markvörð Englendinga, en þeir eiga væntanlega eftir að mætast aftur á Manchester Stadium vellinum í júní þegar Íslendingar mæta Englend- ingum í æfingaleik. City-menn voru miklu betri og þótti sigur Lundúna- liðsins hálfgert rán. „Claudio kom til mín eftir leikinn og sagði: Þið lékuð frábærlega en við illa. Þið töpuðuð en við unnum og svona getur fótboltinn verið brjál- æðislegur,“ sagði Kevin Keegan, stjóri City, en hans menn réðu lög- um og lofum á vellinum stóran hluta leiksins. „Þetta var besti leikur okkar á tímabilinu og grátlegt að við skyld- um tapa honum. Við sköpuðum okk- ur fullt af færum en heppnin var ekki á okkar bandi frekar en oft áður í vetur,“ sagði Keegan ennfremur. „Það sat greinilega þreyta í mín- um mönnum eftir Evrópuleikinn við Stuttgart. Við lékum ekki vel en leikmenn mínir börðust hins vegar hetjulega og sýndu mikinn sigur- vilja,“ sagði Ranieri en Chelsea hef- ur ekki tapað útileik á móti Man- chester City í 13 ár. Arsenal færist nær meistaratitlinum ARSENAL steig stórt skref í átt að enska meistaratitlinum með 2:1 sigri á Charlton á sama tíma og meistararar Manchester United náðu aðeins jafntefli gegn Fulham. Eiður Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea sigurinn á Manchester City en þegar 11 umferðum er ólok- ið í deildinni hefur Arsenal níu stiga forskot á Chelsea og United. Reuters Eiður Smári Guðjohnsen fagnar sigurmarki sínu gegn City ásamt Wayne Bridge og Crespo. BARNSLEY, lið Guðjóns Þórðarsonar, beið sinn versta ósigur í deildarkeppni á Englandi frá upphafi þeg- ar liðið steinlá, 6:1, fyrir Grimsby í ensku 2. deildinni. Ekkert hefur gengið upp hjá lærisveinum Guðjóns á nýju ári. Liðið var um tíma í toppsæti deildarinnar en eft- ir ósigurinn gegn Grimsby er Barnsley komið niður í 9. sæti deildarinnar, 18 stigum á eftir toppliði Plymouth. Guðjón var eins og gefur að skilja ekki ánægður með leik liðsins og þá einkum og sér í lagi varnarmeikinn. Leikmenn Barnsley fá tækifæri annað kvöld til að hysja upp um sig en Barnsl- ey tekur þá á móti Pet- erbrough. Barnsley steinlá í Grimsby EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði tólfta mark sitt á leiktíðinni þegar hann tryggði Chelsea sigurinn á Manchester City á Manchester Stadium á laugardaginn. Eiður Smári skipti við Jimmy Floyd Hass- elbaink um miðjan síðari hálfleik og átta mínútum fyrir leikslok skoraði hann markið sem réði úrslitum. Eið- ur fékk laglega sendingu frá bak- verðinum Wayne Bridge inn fyrir vörn Manchester City og skoraði með því að vippa knettinum laglega yfir enska landsliðsmarkvörðinn David James sem kom út á móti Eiði. Eiður Smári og James eiga vænt- anlega eftir að mætast aftur á þess- um sama velli í júní þegar íslenska landsliðið mætir Englendingum á æfingamóti í Manchester og vonandi leikur þá Eiður saman leikinn. Af mörkunum tólf sem Eiður hef- ur skorað á leiktíðinni eru 6 í úrvals- deildinni, 2 í bikarkeppninni, 2 í deildabikarkeppninni og 2 í meist- aradeildinni. Eiður er annar marka- hæsti leikmaður Chelsea á leiktíð- inni með 12 mörk en Jimmy Floyd Hasselbaink er markahæstur með 13. Frank Lampard og Adrian Mutu koma næstir með 10 mörk. Tólfta mark Eiðs Smára Eiður Smári vippar knettinum yfir James. ■ Úrslit/B10 ■ Staðan/B10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.