Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 9
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 B 9 „ÞAÐ er að sjálfsögðu mjög svekkj- andi að fara ekki heim með bikar en við lögðum okkur 100% fram og getum borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Við ætluðum að halda sóknarleik okkar skynsamlegum og lögðum upp með það að keyra hraðaupphlaup á þær því að þær eru seinar til baka. En á sama tíma ætluðum við að gæta okkar á því að missa ekkiboltann fyrir framan þær því að styrkleiki þeirra liggur í hraðaupphlaupunum. Það gekk ágætlega framan af en undir lok fyrri hálfleiks kom smá hik á okkur og við misstum einbeitinguna sem við höfðum haldið mjög vel fram að því. Þær voru alltaf skrefinu á und- an okkur í seinni hálfleiknum og við náðum ekki að halda almennilega í við þær. Við reyndum að berja frá okkur það almenna viðhorf sem var fyrir leikinn, að þær ættu sigurinn vísan. Við komum sömu leið og þær í þennan bikarúrslitaleik og við átt- um jafna möguleika á sigri. En það verður ekki af ÍBV tekið að þær er með hörkulið, þær hafa haft mikla yfirburði í deildinni í vetur og í þessum leik voru þær betri en við. En við eigum möguleika á að svara fyrir okkur á miðvikudag þegar við mætum þeim í deildinni í Hafnar- firði og ég vona að við fáum jafn- mikinn stuðning í þeim leik eins og við fengum í leiknum í dag,“ sagði Ragnheiður Guðmundsdóttir, fyrir- liði Hauka. „Erfitt að sitja á bekknum“ „Ég verð að viðurkenna það að ég var dálítið stressuð og eiginlega meira stressuð fyrir þennan leik heldur en marga þá leiki sem ég hef tekið þátt í sjálf. Það er rosalega erfitt að sitja á rassinum á bekkn- um og geta ekki gert neitt. En ég er ótrúlega stolt af stelpunum í dag og mér fannst þetta fínn leikur. Fyrir- fram var ÍBV með sigurstranglegra lið og hefur staðið sig betur í vetur en bikarleikir eru alltaf öðruvísi og mér finnst stelpurnar eiga hrós skilið fyrir góðan leik,“ sagði Harpa Melsted, fyrrverandi fyrir- liði Hauka, sem er barnshafandi. Mér fannst þetta einn besti bik-arleikur sem ég hef séð í fleiri, fleiri ár og hann hafði ekki þennan leiðinda- stimpil á sér sem svo margir bikarleikir hafa haft, að liðin liggja í vörn. Bæði liðin spiluðu á fullri ferð. Mér fannst við spila góða vörn en það er bara þannig að á móti þessu liði þá kemst maður ekki oft í vörn, þær eru rosa- lega agressífar. Ég óttaðist það ekki að liðið mitt myndi springa þrátt fyrir þennan mikla hraða sem var í leiknum, það er ekki venjan. Það sem mig vantaði voru nokkur grömm af reynslu. Það hljómar e.t.v. eins og einhver klisja en það komu nokkur augnablik í leiknum þar sem við þurftum að gera þeim aðeins erf- iðara fyrir, setja aðeins meiri pressu á þær, en það tókst ekki. Þær náðu of snemma að komast inn í leikinn og líða vel.“ Þurfum ekki að vera með höfuðið niðrí bringu Hvaða áhrif hafði það að missa Kristinu markvörð af velli? „Maður verður bara að setja næsta mann inn á. Bryndís var dálít- ið lengi í gang en hún varði mjög vel þegar það fór að líða á leikinn. Hún er ein efnilegasta handknattleiks- kona landsins og efnilegasti mark- vörðurinn sem við eigum. Við þurf- um ekki að fara heim með höfuðuð niðri í bringu, þetta voru ekki 10–15 mörk. En markmiðið er alltaf að vinna þessa leiki og maður er alveg ferlega svekktur, ef ég á að segja þér alveg eins og er,“ sagði Ragnar. Söknuðum reynslunnar frá Hörpu Melsted „Þetta var mjög erfiður leikur en við gerðum okkar besta, sem því miður dugði okkur ekki til sigurs hér í dag. Við söknuðum þess mjög að hafa ekki Hörpu Melsted með okkur í dag og alla þá reynslu sem hún hefur yfir að ráða. Handboltinn hefur breyst mikið á síðustu árum, nú byggist allt upp á hraðaupp- hlaupum og við reyndum að beita þeim í dag og að stöðva þau hjá Eyjaliðinu. Það er alltaf erfitt að tapa en ég held að við getum glaðst yfir því að hafa leikið góðan hand- knattleik og sýnt hvað kvennahand- knattleikur getur verið skemmtileg- ur,“ sagði Sandra Anulyte, leik- maður Hauka. Morgunblaðið/Þorkell Bikarmeistarar ÍBV hafa verið hreint óstöðvandi að undanförnu. ÍBV varð Íslandsmeistari á síðustu leiktíð og er komið í 8-liða úrslit í Áskorendakeppni Evrópu. Ragnar Hermannsson, þjálfari Haukaliðsins, eftir leikinn gegn ÍBV Vantaði nokk- ur grömm af reynslu „VIÐ tókum ekkert mark á spám fyrir leikinn sem sögðu að ÍBV væri líklegra til að sigra í þessum leik. Við vorum bara að hugsa um okk- ur sjálf og þó að við höfum tapað illa fyrir þeim úti í Eyjum fyrir ára- mót þá truflaði það okkur ekki neitt. Við fórum í þennan leik með fullu sjálfstrausti. Við vissum hvað við þurftum að gera og við gerð- um það í 52 mínútur, en þessar 8 mínútur sem eftir standa voru dýr- ar og skildu liðin að þegar upp var staðið,“ sagði Ragnar Hermanns- son, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið, eftir ósigurinn gegn Íslands- meisturum ÍBV í Laugardalshöll á laugardaginn. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar „Við getum borið höf- uðið hátt“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.