Morgunblaðið - 01.03.2004, Side 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 B 3
Útsalan heldur áfram
10- 40% afsláttur af fótboltaskóm. Nike - Adidas - Mitre
Ármúla 36, 108 Reykjavík,
sími 588 1560.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Umgjörð leikja í Stykkishólmi hefur verið til mikils sóma í vetur og þessar ungu stúlkur hafa séð
um að skemmta áhorfendum þegar leikmenn liðsins taka sér örlitla hvíld frá erli leiksins.
TIGER Woods tryggði sér í gær-
kvöldi heimsmeistaratitilinn í holu-
keppni í golfi þegar hann lagði Dav-
is Love III í úrslitaleik 3–2, en þeir
léku 34 holur. Woods var handhafi
titilsins og náði því að verja hann.
Leikur Woods og Love var spenn-
andi. Love vann fyrstu holuna og
hafði undirtökin á fyrri hring þó svo
að Woods næði að jafna stöku sinn-
um. Mest var forysta Love tvær hol-
ur, bæði eftir tíundu holu og eins
eftir þá sautjánu. Á síðari hringnum
var það Woods sem hafði betur,
jafnaði á 20. holunni og komst síðan
yfir á þeirri 25 og vann tvær næstu
holur einnig þannig að hann átti 3
holur eftir 27 fyrstu holurnar.
Næstu sjö holur féllu þannig að
kapparnir gátu hætt leik eftir 16.
holuna því þá átti Woods enn þrjár
holur og aðeins tvær eftir og því
vonlaust fyrir Love að jafna metin.
Woods heimsmeistari
í holukeppni
Reuters
Tiger Woods hélt
heimsmeistaratitlinum.
Leikurinn var merkilegur fyrirþær sakir að áhorfendamet var
slegið en aldrei fleiri hafa fylgst
með kappleik í handknattleik.
19.154 áhorfendur voru í Kiel
Arena-höllinni.
„Þrátt fyrir allan þennan fjölda
var ekki svo mikil stemning. Áhorf-
endur eru svo langt frá vellinum og
svo hitt að margir þeirra sem voru
á leiknum voru ekki á bandi annars
hvors liðsins heldur voru þetta al-
mennir handboltaáhugamenn,“
sagði Sigfús.
Sigfús sagðist hafa fengið úr litlu
að moða á línunni enda hafi liðið
ekki oft stillt upp í hefðbundinn
sóknarleik. „Það var mikill hraði í
leiknum og obbinn af mörkum okk-
ar komu eftir hraðar sóknir. Við
náðum ekki að spila okkar besta
leik en sigruðum engu að síður og
kræktum í dýrmæt stig. Það var
okkar happ að Yoon var óskynsam-
ur að skjóta í þessu færi en hann
ætlaði greinilega að vera hetja
sinna manna.“
Annað kvöld tekur Magdeburg á
móti Flensburg í sannkölluðum
toppslag og má með sanni segja að
þetta sé einn af úrslitaleikjum
mótsins. Þetta verður fyrsti leik-
urinn af þremur sem þessi lið eigast
við á skömmum tíma en þau dróg-
ust saman í undanúrslitum Meist-
aradeildarinnar. „Við verðum bara
að vinna Flensburg ef við ætlum
okkur að vinna deildina. Við eigum
erfiða útileiki eftir við Kiel, Essen
og Lemgo og því verðum við að
vinna Flensburg á þriðjudaginn,“
sagði Sigfús.
SIGFÚS Sigurðsson var hetja liðs
Magdeburg þegar það lagði Gumm-
ersbach, 34:33, frammi fyrir 19.154
áhorfendum, sem er met á hand-
boltaleik í heiminum, í Köln Arena
höllinni á laugardagskvöld. Sigfús
skoraði sigurmark Magdeburg á
lokasekúndu leiksins en það var
hans eina mark í leiknum. Pólverj-
inn Gregorz Tkaczyk og Christian
Schöne skoruðu 7 mörk hvor fyrir
Magdeburg og Joel Aabati 6 en hjá
Gummersbach var s-kóreski risinn
Kyung-Shin Yoon í aðalhlutverki en
hann skoraði 15 mörk, en þess ber
þó að geta að skotnýting hans var
ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Magdeburg er í þriðja sæti deild-
arinnar með 35 stig. Flensburg er í
toppsætinu með 38 stig og Lemgo
er í öðru með 36 stig en lærisveinar
Alfreðs Gíslasonar eiga leik til góða
á toppliðin tvö.
Jalisky Garcia skoraði 7 mörk og
var markahæstur í liði Göppingen
sem tapaði fyrir meisturum Lemgo
á útivelli, 29:23. Daniel Stephan
skoraði flest mörk meistaranna, sex
talsins. Göppingen er í mikilli fall-
baráttu en liðið er í þriðja neðsta
sæti.
Einar Örn Jónsson skoraði 3
mörk, þar af eitt úr vítakasti, en
Rúnar Sigtryggsson komst ekki á
blað þegar lið þeirra, Wallau Mass-
enheim, beið lægri hlut fyrir Ham-
burg á heimavelli, 25:23. Wallau er í
10. sætinu og siglir lygnan sjó í
deildinni.
Gylfi Gylfason skoraði 2 mörk
fyrr Wilhelmshavener í jafntefli
liðsins, 25:25, gegn Eisenach.
Gunnar Berg Viktorsson skoraði
9 mörk fyrir Wetzlar, þar af þrjú úr
vítakasti, og Róbert Sighvatsson 6
þegar lið þeira steinlá á heimavelli
fyrir Kiel, 41:29.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði
3 mörk fyrir Grosswallstadt sem
vann góðan útisigur á Nordhorn,
28:26.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
4 mörk fyrir Essen í jafnteflisleik
gegn Minden á útivelli, 24:24. Essen
hefur valdið vonbrigðum og er að-
eins í sjöunda sæti deildarinnar.
Danski landsliðsmaðurinn Lars
Christiansen skoraði 9 mörk fyrir
Flensburg sem vann auðveldan sig-
ur á Stralsunder, 29:21. Flensburg
er í efsta sæti en sækir Magdeburg
heim annað kvöld í einum af úrslita-
leikjum mótsins.
Sigfús kom
Magdeburg
til bjargar
„Sætt að skora
sigurmarkið“
„ÞETTA var rosalega sætt og það var ekki leiðinlegt að skora sig-
urmarkið,“ sagði Sigfús Sigurðsson við Morgunblaðið í gær en
hann tryggði Magdeburg sigurinn á Gummersbach með marki á
lokasekúndu leiksins. Skot Kóreumannsins Kyung-Shin Yoon sjö
sekúndum fyrir leikslok lenti í höndum markvarðar Magdeburg eftir
að vörn liðsins hafi hálfvarið skotið og Sigfús var fljótur að átta sig.
Hann brunaði upp, fékk knöttinn og skoraði sigurmarkið rétt áður
en leiktíminn var úti.
Sigfús Sigurðsson