Morgunblaðið - 01.03.2004, Qupperneq 11
ÚRSLIT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 B 11
Grindvíkingar unnu öruggan sigurá ÍR-ingum, 69:88, í Seljaskóla í
gærkvöldi. Gestirnir skoruðu fyrstu
tíu stigin og um mið-
bik fyrsta leikhluta
var staðan 3:18 og
dagsljóst hvernig
leikurinn myndi
þróast. Í hálfleik var staðan 35:51.
Grindavík er enn í öðru sæti deild-
arinnar, tveim stigum á eftir Snæfelli
fyrir síðustu umferðina. Páll Axel Vil-
bergsson, fyrirliði Grindavíkur, átti
stórleik, skoraði 40 stig – þar af átta
þriggja stiga körfur – og helsta
skemmtunin var að fylgjast með til-
þrifum hans. Jackie Rogers kom
næstur með 16 stig.
„Við byrjuðum mjög vel, náðum
strax tíu stiga forystu og hleyptum
þeim aldrei inn í leikinn. ÍR-ingar
hafa að engu að keppa og því var
spilamennska þeirra kannski skilj-
anleg, þeir voru alltaf á eftir og sig-
urinn aldrei í hættu. Palli hitti vel,
naut góðs af því að hinir leikmenn-
irnir voru að mata hann,“ sagði Frið-
rik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grinda-
víkur.
ÍR-liðið átti vægast sagt slæman
dag og voru þeir á köflum jafn daufir
og stigataflan í Seljaskóla en hún
virkaði ekki í síðari hálfleik. Liðið
hafði fyrir leikinn engu að keppa að,
getur hvorki fallið né komist í úrslita-
keppnina og gæti það skýrt áhuga-
leysi leikmanna. Eggert Maríuson,
þjálfari liðsins, var ekki sáttur í leiks-
lok.
„Við vorum ömurlegir og þetta var
leiðinlegasti leikur okkar í vetur. Við
byrjuðum mjög illa, ekkert gekk upp
og áhugaleysið var algjört. Ég kem
ekki höndum yfir þetta – hörmung.
Ég ætla bara að vona að við ljúkum
tímabilinu með sæmd og látum þetta
ekki endurtaka sig,“ sagði Eggert.
Langþráður sigur Hamars
Hamar skellti sér upp að hlið KRmeð 20 stig, er liðið lagði þá síð-
arnefndu 78:75 í jöfnum og æsispenn-
andi leik í Hvera-
gerði í gærkvöldi.
Jafnt var á með lið-
unum nánast allan
leikinn, en þó höfðu
heimamenn jafnan frumkvæðið.
Hamar hafði fyrir leikinn í gær tapað
fjórum leikjum í röð en KR-ingar töp-
uðu nú sínum fimmta leik í röð.
„Þetta var langþráður sigur en fyr-
ir kvöldið vorum við búnir að tapa
nokkrum leikjum í röð og sjálfs-
traustið því kannski ekki upp á marga
fiska en vonandi batnaði það við
þetta. Nú stefnum við bara á úrslita-
keppnina og við ætlum auðvitað að
láta taka til okkar þar. Ég var ánægð-
ur með baráttuna í mönnum í kvöld
og nú fórum við að vinna saman og
það er kannski breyting frá því í síð-
ustu leikjum,“ sagði Pétur Ingvars-
son, þjálfari Hamars, en hann var á
skýrslu þar sem Chris Dade gat ekki
verið með sökum veikinda. Pétur kom
þó ekkert við sögu inni á vellinum en
stjórnaði með harðri hendi frá bekkn-
um.
Barátta Hamarsmanna í upphafi
leiks virtist koma gestunum í opna
skjöldu og virtist sem nokkuð ráða-
og öryggisleysi væri í leik KR framan
af. Hamar náði mest 10 stiga forystu í
byrjun en KR-ingar fóru svo að sýna
klærnar og komust yfir, 50:52 þegar
um 4 mínútur voru eftir af þriðja leik-
hluta. Hamar gaf þó ekkert eftir og
náði aftur forystunni. Aftur jafnaði
KR í fjórða leikhluta, 64:64, þegar um
5 mínútur voru eftir af leiknum, en
lengra komust þeir ekki.
Vörn Hamars var ágæt og velflest-
ir lausir boltar lentu þeirra megin,
auk þess sem skotin duttu ofan í á
mikilvægum augnablikum. Greinilegt
var að KR saknaði Murray í sókninni,
en sóknarleikurinn háði gestunum
nokkuð.
„Þetta var hinn ekta KR-Hamar
leikur en ég er óánægður með að við
börðumst ekki úti á vellinum. Ég
bjóst svo sem ekki við að Elvin Mims
myndi breyta miklu þar sem hann
lenti í morgun en ég bjóst heldur ekki
við þessu hugarfari. Við spiluðum
leikinn nákvæmlega eins og Hamar
vildi og öll 50/50 fráköst lentu þeirra
megin. Elvin átti ekki að spila í kvöld
en mig vantar leik til að koma honum
inn í okkar leik fyrir úrslitakeppnina.
Baráttan um sætin er engin og
Murray verður með í næsta leik, okk-
ur vantaði hann í kvöld enda er hann
okkar aðalstigaskorari. Það er samt
sem áður ljós framundan sem við er-
um að horfa á. Undirbúningur liðsins
er búinn að vera mjög góður og æf-
ingar hafa verið góðar. Mig grunar
samt að menn hafi horft eitthvað
lengra í kvöld en á þennan leik,“ sagði
Ingi Steinþórsson, þjálfari KR, eftir
leikinn.
Hjá heimamönnum var það Lárus
Jónsson sem var besti maður liðsins
með 19 stig og 9 stoðsendingar. Mar-
vin Valdimarsson sýndi úr hverju
hann er gerður og átti góðan dag með
15 stig og spilaði vel í vörn. Lavell
Owens var einnig góður og sýndi að
þar er góður leikmaður á ferðinni.
Velflestir leikmenn Hamars komu við
sögu í leiknum og sýndu mikla bar-
áttu.
Hjá KR var það Baldur Ólafsson
sem fór fyrir sínum mönnum í vörn og
sókn, með 19 stig og 6 fráköst. Skarp-
héðinn Ingason virtist einnig kunna
vel við sig á sínum gamla heimavelli,
skoraði 16 stig. Þá var Ólafur Már
Ægisson með 12 stig, allt úr þriggja
stiga skotum. Gaman verður að sjá til
Elvin Mims þegar hann kemst inn í
leik KR en hann var þó nokkuð
stirður, enda ekki furða þar sem hann
lenti á landinu fyrr um morguninn.
Tindastóll hafði betur
Breiðablik var engin hindrun fyrirTindastól þegar liðin mættust í
Smáranum í gærkvöldi. Gestirnir
voru reyndar lengi í
gang og um tíma leit
út fyrir að Breiða-
bliki tækist að ná í
sjaldséð stig. Það
varð þó ekki og Tindastóll vann með
15 stiga mun, 74:89.
Leikurinn fór nokkuð fjörlega af
stað. Ljóst var að heimamenn ætluðu
sér ekki að láta fjarveru Pálma Freys
Sigurgeirssonar hafa áhrif á sig, en
hann meiddist illa í leik gegn KFÍ í
vikunni er hann sleit liðband í hné og
verður ekki meira með Blikunum á
leiktíðinni. Breiðablik hafði forystuna
lengst af leiks og höfðu yfir 39:32 í
leikhléi og náðu mest 15 stiga forskoti
55:40 í þriðja leikhluta. Þá var eins og
leikmenn Tindastóls vöknuðu af
værum blundi, skoruðu 14 stig í röð
og sneru leiknum smám saman sér í
vil. Tindastóll hafði síðan öll völd í
fjórða og síðasta leikhluta þar sem
heimamenn sáu aldrei til sólar og
máttu sætta sig við tap, 74:89.
„Þetta var leikur sem við vildum og
ætluðum að vinna. Liðin eru að reyna
að raða sér í stöðu fyrir úrslitakeppn-
ina og þetta var leikur sem við urðum
að vinna. Að sama skapi var eins og
við værum ekki komnir hingað til að
sækja sigur í fyrri hálfleiknum. Við
sýndum síðan mjög góðan karakter í
síðari hluta þriðja leikhluta og loksins
small þetta saman, en það er helvíti
hart að það þurfi þrjá leikhluta til að
liðið fari að spila körfubolta,“ sagði
Kári Maríasson, þjálfari Tindastóls,
og var sáttur við sigurinn en ekki
nógu sáttur við leik sinna manna.
Nick Boyd, leikmaður Tindastóls,
var langbesti leikmaður vallarins og
skoraði nánast að vild. Hjá Breiða-
bliki bar mest á Kyle Williams, jafn-
vel þó hann hafi meiðst lítillega í
þriðja leikhluta og léki aðeins á öðr-
um fæti það sem eftir lifði leiks.
Miklir yfirburðir í Njarðvík
Njarðvík sigraði daufa Ísfirðingamjög auðveldlega, 125:81, eftir
að hafa verið 64:42 yfir í leikhléi.
Leikurinn fór
hratt af stað og allt
virtist stefna í hörku-
leik. Hann var jafn á
nær öllum tölum í
fyrsta leikhluta, en Njarðvíkingar
tóku þá til þess ráðs að breyta yfir í
pressuvörn um allan völl og gafst það
mjög vel.
Ísfirðingar áttu í miklum vanda við
að koma boltanum upp völlinn og þeg-
ar það tókst var mikill tími búinn á
skotklukkunni og þeir náðu því ekki
að setja upp sóknina eins og þeir
vildu.
Njarðvíkingar náðu fljótt þægi-
legri forystu og staðan í leikhléi 64:42.
Í seinni hálfleik voru heimamenn
ekkert á því að gefa eftir og Ísfirð-
ingar ekki líklegir til afreka. Sigurinn
var í raun aldrei í hættu og spurn-
ingin aðeins hversu stór sigurinn
yrði.
Bestu menn Njarðvíkur voru Páll
Kristinsson og Brandon Woudstra.
Hjá gestunum var það Troy Wiley
sem mest bar á.
„Þetta var í raun aldrei í hættu. Við
lögðum leikinn þannig upp að spila
pressuvörn um allan völl og keyra vel
á þá. Það gekk bara mjög vel og von-
andi er þett komið hjá okkur núna, en
við erum búnir að tapa allt of mörgum
leikjum í vetur. Við verðum að búa
okkur vel undir leikinn við Tindastól á
fimmtudaginn því sá leikur ræður úr-
slitum um heimaleikjaréttinn í úr-
slitakeppninni,“ sagði Páll Kristins-
son, besti leikmaður Njarðvíkinga í
gær.
Páll Axel með 40 stig
Morgunblaðið/Golli
Páll Axel Vilbergsson var atkvæðamikill með Grindvíkingum í
gær, gerði 40 stig af 88 stigum liðsins gegn ÍR.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Andri
Karl
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Stigamót BSÍ
Það var kínverski leikmaðurinn Shi Zhi
Song sem sigraði í einliðaleik karla á stiga-
móti Badmintonsambands Íslands, sem
haldið var á Flúðum í gær, sunnudaginn 29.
febrúar. Til úrslita lék hann á móti Helga
Jóhannessyni, TBR, og lauk leiknum 15-8
og 15-4. Í undanúrslitum sigraði Kínverjinn
Njörð Lúðvíksson, TBR, 15-8 og 15-9 en
Helgi sigraði Magnús Inga Helgason í
hörkuleik 15-4, 14-17 og 15-5.
Í einliðaleik kvenna sigraði Tinna Helga-
dóttir, TBR, Halldóru Jóhannsdóttur,
TBR, 11-0 og 11-4
Í tvíliðaleik karla sigraði gamla brýnið
Broddi Kristjánsson ásamt Helga Jóhann-
essyni – þá Njörð og Magnús Inga, 15-8 og
15-7
Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Halldóra og
Tinna þær Vigdísi Ásgeirsdóttur og Þor-
björgu Kristinsdóttur, allar úr TBR, 15-10
og 15-9.
Í tvenndarleik sigruðu systkinin Magnús
Ingi og Tinna Helgabörn í hörku úrslita-
leik, þau Orra Örn Árnason og Vigdísi Ás-
geirsdóttur, 15-7, 13-15 og 15-14.
Í einliðaleik karla, A-flokki, sigraði
Reynir Guðmundsson, UMFH, Bjarka
Stefánsson TBR, 15-11 og 15-10.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Keflavík: Keflavík - Þór Þ.....................19.15
1. deild kvenna:
Kennaraháskólinn: ÍS - Keflavík .........19.15
Í KVÖLD
Heimsbikarkeppnin
Kranjska Gora, Slóveníu:
Stórsvig karla:
Bode Miller, Bandar...........................2.13,01
Alberto Schieppati, Ítalíu ..................2.13,26
Fredrik Nyberg, Svíþjóð ...................2.13,61
Alexander Ploner, Ítalíu ....................2.13,61
Freddy Rech, Frakklandi..................2.13,75
Christoph Gruber, Austurríki...........2.13,91
Stephan Görgl, Austurríki.................2.13,99
Svig karla:
Truls Ove Karlsen, Noregi ................1.42,72
Tom Stiansen, Noregi ........................1.42,80
Mario Matt, Austurríki ......................1.42,99
Akira Sasaki, Japan ...........................1.43,04
Andreas Schönfelder, Austurríki .....1.43,29
Drago Grubelink, Slóveníu................1.43,35
Kalle Palander, Finnlandi ................1.43,35
Levi, Finnlandi. Laugardagur:
Svig kvenna:
Tanja Poutiainen, Finnlandi .............1.49,12
Elisabeth Görgl, Austurríki ..............1.49,30
Maria Riesch, Þýskalandi..................1.49,45
Anja Person, Svíþjóð..........................1.49,50
Kristina Koznick, Bandaríkjunum ...1.50,60
Martina Ertl, Þýskalandi ..................1.50,87
Sarka Zahrobska, Tékklandi.............1.50,87
Sunnudagur:
Svig kvenna:
Maria Riesch, Þýskalandi..................1.43,75
Elisabeth Görgl, Austurríki ..............1.44,07
Martina Ertl, Þýskalandi ..................1.44,71
Kristina Koznick, Bandaríkjunum ...1.44,74
Monika Bergmann, Þýskalandi ........1.45,28
Tanja Poutiainen, Finnlandi .............1.45,61
Groningen – Waalwijk ..............................1:2
Utrecht – Ajax ...........................................1:0
Volendam – Den Haag..............................0:2
Willem II – Feyenoord .............................0:3
Nijmegen – Heerenveen ..........................1:2
PSV Eindhoven – Roda ............................1:2
Roosendaal – Breda ..................................1:1
Twente – Alkmaar.....................................4:1
Zwolle – Vitesse.........................................1:1
Staðan:
Ajax 23 18 1 4 52:23 55
PSV Eindhoven 23 15 4 4 59:21 49
Alkmaar 23 13 3 7 44:26 42
Feyenoord 23 12 6 5 43:31 42
Heerenveen 23 12 4 7 34:28 40
Roda 23 10 7 6 39:26 37
Twente 23 11 2 10 42:36 35
Willem II 23 9 7 7 33:34 34
Breda 23 8 7 8 37:34 31
Roosendaal 23 8 7 8 26:29 31
Waalwijk 23 8 6 9 32:28 30
Utrecht 23 8 6 9 28:31 30
Groningen 23 7 6 10 29:35 27
Nijmegen 23 8 1 14 28:37 25
Den Haag 23 6 5 12 21:43 23
Vitesse 23 2 10 11 26:39 16
Volendam 23 4 4 15 20:59 16
Zwolle 23 2 6 15 14:47 12
Belgía
Cercle Brugge – Mons ..............................0:1
Westerlo – Lokeren ..................................7:3
Genk – Lierse ............................................2:0
Gent – Germinal B.....................................1:1
La Louviere – Standard Liège ................3:2
St-Truiden – Charleroi .............................1:2
Beveren - Club Brügge............................ 1:3
Staðan:
Anderlecht 23 19 3 1 57:19 60
Standard Liège 24 13 7 4 50:23 46
Club Brugge 24 14 4 6 51:25 46
Moeskroen 23 11 10 2 47:29 43
Genk 24 12 6 6 45:30 42
Westerlo 24 11 8 5 37:28 41
Germinal B. 23 8 8 7 22:25 32
St-Truiden 24 8 7 9 28:35 31
La Louviere 23 6 11 6 34:34 29
Beveren 24 9 2 13 34:41 29
Gent 24 5 11 8 23:28 26
Mons 24 5 9 10 23:32 24
Cercle Brugge 24 5 9 10 20:42 24
Lierse 24 4 11 9 22:32 23
Charleroi 24 5 7 12 23:32 22
Lokeren 24 5 7 12 29:42 22
Heusden-Zolder 23 4 6 13 22:41 18
Antwerpen 23 4 4 15 17:46 16
Frakkland
Nantes - Strassburg..................................1:1
Gungamp - Metz.................................frestað
Le Mans - Rennes .....................................2:2
Lens - Lyon................................................1:1
Montpellier - Lille .....................................0:2
Toulouse - Mónakó....................................1:1
Ajaccio - Bordeaux ....................................1:0
Nice - Marseille .........................................0:0
Sochaux - Bastia ........................................2:1
Auxerre - PSG ...........................................1:1
Staðan:
Mónakó 26 16 7 3 44:18 55
Lyon 26 15 6 5 44:20 51
París SG 26 14 8 4 37:19 50
Sochaux 26 14 6 6 39:28 48
Auxerre 26 14 4 8 43:21 46
Marseille 26 13 4 9 33:26 43
Nantes 26 11 6 9 29:23 39
Nice 26 9 12 5 27:22 39
Bordeaux 26 10 7 9 26:27 37
Lens 26 11 4 11 23:37 37
Lille 26 9 6 11 28:29 33
Rennes 26 8 8 10 33:29 32
Strasbourg 26 8 7 11 37:37 31
Bastia 26 7 8 11 26:35 29
Ajaccio 26 8 5 13 24:37 29
Guingamp 25 8 2 15 21:38 26
Metz 25 6 6 13 17:27 24
Toulouse 26 5 7 14 19:34 22
Montpellier 26 6 4 16 29:52 22
Le Mans 26 4 9 13 20:40 21
Bikarglíma Íslands
Karlar:
Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK, 4
Stefán Geirsson, HSK, 3
Arngeir Friðriksson, HSÞ, 2
Snær Seljan Þóroddsson, UÍA, 1
Jón Smári Eyþórsson, HSÞ, 0
Konur:
Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ, 3
Svana H. Jóhannsdóttir, GFD, 2,5
Eva Lind Lýðsdóttir, GFD, 0,5
Unglingar:
Ólafur Gunnarsson, UÍA, 3,5
Magnús Þorri Jónsson, HSÞ, 3
Jón Ólafur Eiðsson, UÍA, 2,5
Þórður Guðmundsson, UÍA, 1
Atli Már Sigmarsson, UÍA, 0
Piltar 13-16 ára:
Þór Kárason, HSÞ, 6
Pétur Þórir Gunnarsson, HSÞ, 5
Sindri Freyr Jónsson, UÍA, 3,5
Kjartan Bragi Valgeirsson, UÍA, 3
Stefán Ingi Björnsson, UÍA, 2,5
Magnús Karl Ásmundsson, UÍA, 1
Ævar Valgeirsson, UÍA, 0
Meyjar 13–16 ára:
Elisabeth Patriarca, HSK, 6
Ragnheiður Jara Rúnarsdóttir, UÍA, 5
Gerður Rún Rúnarsdóttir, UÍA, 3
Guðný Sigfúsdóttir, UÍA, 3
Hjördís Helga Þóroddsdóttir, UÍA, 2,5
Ólöf Sara Garðarsdóttir, HSK, 1,5
Gréta María Dagbjartsdóttir, UÍA, 0
Bikarmót í frjálsum æfingum
Liðakeppni karla:
Gerpla .................................................174,000
Ármann...............................................172,420
Liðakeppni kvenna:
Grótta ...................................................93.495
Gerpla ...................................................93,240
Einstaklingskeppni:
Karlar, eldri:
Rúnar Alexandersson, Gerplu ...........50,170
Viktor Kristmannsson, Gerplu ..........46,890
Jónas Valgeirsson, Ármanni ..............44,990
Karlar, yngri:
Bjarki Ásgeirsson, Ármanni ..............40,620
Teitur P. Reynisson, Ármanni ...........38,270
Ólafur H. Gunnarsson, Gerplu...........33,480
Konur, eldri:
Inga Rós Gunnarsdóttir, Gerplu........32,195
Sif Pálsdóttir, Gróttu ..........................31,800
Hera Jóhannesdóttir, Gróttu .............30,770
Konur, yngri:
Kristjana S. Ólafsdóttir, Gerplu ........30,975
Harpa S. Hauksdóttir, Gróttu............30,925
Karitas H. Davíðsdóttir, Gerplu ........29,370