Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 19
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3
110 Reykjavík
Sími: 591 9000
www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
8.000kr.
Bókaðu fyrir 15. mars ogtryggðu þér 8.000 kr. afsláttí valdar brottfarir.
afsláttur ef þú bókar strax.
Beint vik
ulegt
leiguflug
Þúsundir Íslendinga hafa heimsótt þennan heillandi
áfangastað til að njóta sólar og alls hins besta er finna
má á eftirsóknarverðum sumarleyfisstöðum suður Evrópu.
Gylltar vogskornar strendur Algarve eiga fáa sína líka
hvað snertir náttúrufegurð og eru samanlagt 270 km að
lengd. Ánægðir farþegar Terra Nova skipta þúsundum.
Vinsælasti áfangastaður Terra Nova
Frá kr. 43.890
M.v. 2 í studio á Cantinho do Mar, 26. maí
- vikuferð með 8.000 kr. afslætti.
Frá kr. 36.195
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára á Cantinho do Mar,
26. maí - vikuferð með 8.000 kr. afslætti.
Portúgal
Algarve
KA-MENN hafa ástæðu til að brosa
breitt þessa dagana eftir að hand-
knattleikslið félagsins í meistara-
og 2. flokki urðu bikarmeistarar
um helgina. Í báðum tilfellum voru
það Framarar sem urðu að lúta í
gras fyrir KA-mönnum, sem höfðu
mikla yfirburði í báðum leikjunum.
Sjö handknattleiksmenn KA urðu
tvöfaldir meistarar, á laugardag
með meistaraflokki og á sunnudag
með 2. flokki. Þetta eru þeir Arnór
Atlason, Einar Logi Friðjónsson,
Ingólfur Axelsson, Árni Björn Þór-
arinsson, Magnús Stefánsson,
Andri Snær Stefánsson og mark-
vörðurinn Stefán Guðnason. Einnig
tóku þeir Jóhannes Bjarnason,
þjálfari meistaraflokks, og Reynir
Stefánsson, þjálfari 2. flokks og að-
stoðarþjálfari meistaraflokks, þátt
í báðum leikjunum.
Vissum að við værum sterkari
Ingólfur Axelsson, fyrirliði 2.
flokks, sagði að fyrir leikinn á
sunnudag hefðu liðin mæst þrívegis
í vetur, KA unnið tvo leiki og jafn-
tefli í einum leik. „Við vissum að
við værum mun sterkari en þeir og
þetta var því í raun búið áður en
við mættum til leiks. Eftir að stað-
an var 2:2 tókum við leikinn í okkar
hendur, komumst í 10:4 og unnum
svo öruggan sigur. Það var búið að
ákveða það fyrir tímabilið að vinna
bikarinn í báðum þessum flokkum
og þetta er toppurinn. Þetta var
líka eini titillinn í yngri flokkunum
sem við áttum eftir að vinna.“
Það mæddi mikið á þeim Arnóri
og Einari Loga um helgina, enda
leika þeir stórt hlutverk í báðum í
flokkum. Arnór skoraði 13 mörk í
meistaraflokksleiknum en Ingólfur
sagði að hann hefði verið heldur
rólegri daginn eftir og skoraði þá
aðeins fjögur mörk. „Aðrir voru
mjög hressir og það var ekki hægt
að sjá að við hefðum verið að halda
upp á bikarsigurinn daginn áður.“
Reynir þjálfari sagði að menn
væru í skýjunum eftir þessa frá-
bæru helgi. „Þetta er virkilega
gaman og ekki síst fyrir þá stráka
sem eru að fara að leika erlendis
[Arnór Atlason og Einar Loga Frið-
jónsson]. Þá er þetta líka ein-
staklega ánægjulegt fyrir mig sem
fyrrverandi Framara.“ Reynir, sem
flutti til Akureryrar árið 1998, er
uppalinn Framari og lék með yngri
flokkum félagsins. Hann þjálfaði
einnig yngri flokka félagsins í 12–
13 ár og þjálfaði m.a. nokkra
þeirra sem spiluðu með meist-
araflokki félagsins gegn KA á laug-
ardag.
Allir leikmenn KA komu norður
eftir sigurinn á laugardag til að
fagna með sínu fólki en daginn eft-
ir fóru leikmenn 2. flokks og þjálf-
ararnir suður aftur í hinn bikars-
laginn. Þeir þurftu svo að keyra
norður eftir leik og voru komnir til
bæjarins á fimmta tímanum í fyrri-
nótt.
Framundan er lokabaráttan á Ís-
landsmótinu í handknattleik og þar
ætla KA-menn sér stóra hluti í báð-
um flokkum. „Við höfum sett stefn-
una á að vinna tvöfalt, við eigum
titil að verja í 2. flokki og titlil að
krækja í í meistaraflokki,“ sagði
Reynir þjálfari.
Sjö leikmenn og þjálfarar KA tvöfaldir bikarmeistarar í handbolta
Stefnan sett á tvöfaldan
sigur á Íslandsmótinu
Morgunblaðið/Kristján
Tvöfaldir bikarmeistarar: Glaðbeittir KA-menn með sigurlaun helgarinnar, fremri röð frá vinstri, Stefán Guðna-
son, Árni Björn Þórarinsson, Einar Logi Friðjónsson og Arnór Atlason. Aftari röð frá vinstri, Reynir Stefánsson,
Magnús Stefánsson, Andri Snær Stefánsson, Ingólfur Axelsson og Jóhannes Bjarnason.
Lögfræðitorg | Ágúst Þór Árnason
flytur í dag fyrirlestur á Lög-
fræðitorgi Háskólans á Akureyri.
Fyrirlesturinn ber heitið Stjórnar-
skrá: Stjórnmál eða
lögfræði, og hefst kl.
16.30 í stofu 24 í
Þingvallastræti 23.
„Nú þegar sextíu
ár eru liðin frá stofn-
un lýðveldisins hef-
ur enn ekki tekist að endurskoða
stjórnarskrána með þeim hætti sem
lofað var í aðdraganda lýðveldisstofn-
unarinnar,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu. „Í erindi sínu á Lögfræðitorgi
ætlar Ágúst Þór Árnason að fjalla um
þá hugmyndafræði sem liggur að
baki því að ríki byggi stjórnskipan
sína á sérstökum lagabálk sem vana-
lega er saminn og samþykktur með
vandaðri hætti en önnur lög og kall-
aður er stjórnarskrá upp á íslensku.“
Mat í leikskólastarfi | Kristín
Dýrfjörð, lektor við kennaradeild
Háskólans á Akureyri, flytur erindi
á fræðslufundi á vegum Skólaþróun-
arsviðs deildarinnar í dag, þriðju-
daginn 2. mars, í Þingvallastræti 23.
Hann nefnist: Ytra mat í leikskóla-
starfi. Í fyrirlestrinum fjallar Krist-
ín um hluta af MA-rannsókn sinni
við HÍ á viðhorfum hagsmunaaðila
leikskólans til ytra mats mennta-
málaráðuneytisins. Fræðslufund-
urinn hefst kl. 16.15 í stofu 16.
Brotist inn | Brotist var inn í
Blómahúsið við Hafnarstræti á laug-
ardagsmorgun og við það fór þjófa-
varnarkerfið í gang. Öryggisvörður
frá Securitas og lögreglan komu á
staðinn skömmu síðar en þjófurninn
var þá á bak og burt. Ekki var að sjá
að hann hefði tekið annað en nokkr-
ar flöskur af Víking léttbjór, segir í
yfirliti lögreglu um helstu verkefni.
Þá kemur einnig fram að tvær
minniháttar líkamsárásir hafi komið
til kasta lögreglunnar og eitt fíkni-
efnamál.
Þetta er ágætt starf fyrir þásem það hentar, en vissu-lega hentar það ekki öll-um. Mér hefur alltaf líkað
vel,“ sagði Hreinn Tómasson sem
bauð starfsfélögum sínum í Slökkvi-
liði Akureyrar upp á veglegar veit-
ingar í tilefni af því að 30 eru eru um
þessar mundir liðin frá því hann hóf
að ganga vaktir hjá slökkviliðinu.
Gamlir félagar, m.a. þeir sem voru
með honum á fyrstu vaktinni fyrir
þremur áratugum, þeir Gunnlaugur
Búi Sveinsson og Víkingur Björns-
son, drukku síðdegiskaffi með
Hreini á stöðinni í gær. Erling Þór
Júlínusson afhenti Hreini af þessu
tilefni dagbókarfærslu sem gerð var
að lokinni fyrstu vaktinni, en í þá
daga tíðkaðist að menn handskrif-
uðu nöfn sín á þar til gert skjal að
lokinni vakt.
„Það var grenjandi stórhríð fyrsta
daginn minn hjá liðinu,“ sagði
Hreinn, en hann hóf störf 27. febrúar
árið 1974. „Við fórum m.a. í sjúkra-
flutning fram að Ytri-Tjörnum í
Eyjafjarðarsveit,“ sagði Hreinn þeg-
ar hann var inntur eftir því hvort
eitthvað hefði borið til tíðinda á
fyrstu vaktinni. Þeir böðluðust tveir
fram í fjörð, hann og Víkingur á aft-
urhjóladrifnum bíl, „það gekk ágæt-
lega, Víkingur er svo góður bíl-
stjóri,“ sagði hann. „Við sluppum í
það minnsta klakklaust báðar leiðir.“
Áður starfaði Hreinn í 8 ár í Áhalda-
húsi bæjarins, „Marri réð ekkert við
hann,“ sagði Gunnlaugur Búi og
glotti um leið og hann stakk upp í sig
vænum bita af rjómatertu. Vísaði
þar til Hilmars Gíslasonar sem um
áratugaskeið var bæjarverkstjóri á
Akureyri. „Þess vegna var hann
sendur til okkar.“ Allir eiga fé-
lagarnir að baki langt starf við
Slökkvilið Akureyrar, Gunnlaugur
Búi var þar í 50 ár og Víkingur var
þar næstum jafnlengi, en Hreinn er
enn að. „Jú, þeir eru nokkrir,“ sagði
hann spurður um helstu eldsvoða
sem hann hefur barist við ásamt fé-
lögum sínum. Nefndi m.a. mikinn
bruna á Gullbrekku í Eyjafjarð-
arsveit, Vör, Sjallanum og í Breka.
Mér hefur alltaf líkað vel
Morgunblaðið/Kristján
Gamlir samstarfsmenn: Hreinn Tómasson slökkviliðsmaður fyrir miðju
með þeim Víkingi Björnssyni t.v. og Gunnlaugi Búa Sveinssyni.
Þrjátíu ár eru um þessar mundir frá því Hreinn Tóm-
asson fór að ganga vaktir hjá Slökkviliði Akureyrar
Óhöpp í umferðinni | Sex umferð-
aróhöpp urðu í umdæmi lögreglunn-
ar á Akureyri um helgina. Engin slys
á fólki urðu í þeim óhöppum en nokk-
urt eignatjón. Lögreglan hafði af-
skipti af fjölda ökumanna fyrir ýmis
umferðarlagabrot. Sex voru m.a.
kærðir fyrir of hraðan akstur, átta
fyrir að vera ekki með bílbelti, þrír
fyrir að vera með of marga farþega.