Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 41
STÆRÐFRÆÐIKEPPNI fyrir
grunnskólanemendur fór fram 18.
febrúar og var haldin í samstarfi
við Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði.
Stærðfræðikeppnin var haldin í
þremur stigum, keppni fyrir 8., 9.
og 10. bekk. Til leiks komu 52
nemendur úr Austurbæjarskóla, 47
úr Hagaskóla, 26 úr Hlíðaskóla, 14
úr Landakotsskóla og 42 úr Val-
húsaskóla eða alls 181 nemandi, í
fyrra voru 152 nemendur í keppn-
inni og 67 nemendur árið þar á
undan. Nemendur í 10 efstu sæt-
unum á hverju stigi fá viðurkenn-
ingarskjal frá skólanum. Þrír efstu
fengu peningaverðlaun frá Spari-
sjóði Reykjavíkur og eru 1. verð-
laun 20.000 kr., 2. verðlaun 15.000
kr. og 3. verðlaun 10.000 kr.
Sigurvegari í 8. bekk með 98
stig af 100 mögulegum var Arn-
björg Soffía Árnadóttir, Haga-
skóla, í öðru sæti var Árni Freyr
Gunnarsson, Valhúsaskóla, og í 3.
sæti Baldur Björnsson, Landakots-
skóla.
Sigurvegari í 9. bekk með 80
stig af 100 mögulegum var Hlín
Önnudóttir, Hagaskóla, í öðru sæti
David Frigge, Landakotsskóla, og
í 3. sæti Hafsteinn Gunnar Hauks-
son, Hagaskóla.
Sigurvegari í 10. bekk með 77
stig af 100 mögulegum er Pétur
Orri Ragnarsson, Valhúsaskóla, í
öðru sæti Rósa Björk Þórólfs-
dóttir, Hlíðaskóla, í 3.–4. sæti voru
Elvar Karl Bjarkason, Hagaskóla,
og Árni Heiðar Geirsson, Hlíða-
skóla.
Morgunblaðið/Þorkell
181 keppti í stærðfræði-
keppni grunnskólanemenda
Fræðslufundur Foreldrafélags
barna með ADHD verður haldinn
í dag, þriðjudaginn 2. mars, kl. 20
í Safnaðarheimili Háteigskirkju,
gengið inn frá bílastæðinu. Fyr-
irlesari er Sólveig Ásgrímsdóttir,
sálfræðingur og forstöðumaður
Stuðla. Fjallað verður um uppeldi
unglinga með ADHD og hvað er
til ráða?
ADHD stendur fyrir Athygl-
isbrestur með eða án ofvirkni.
Foreldrafélag barna með ADHD,
áður Foreldrafélag misþroska
barna.
Svölurnar funda Svölurnar, félag
fyrrverandi og núverandi flug-
freyja, verða með félagsfund í
dag, þriðjudaginn 2. mars, kl. 20, í
Borgartúni 22, 3. hæð. Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir fjölskylduráð-
gjafi er gestur fundarins.
Fyrirlestur hjá Sagnfræðinga-
félagi Íslands í dag, þriðjudaginn
2. mars, kl. 12.05, í Norræna hús-
inu. Valur Ingimundarson, dósent
í sagnfræði við Háskóla Íslands,
flytur erindi í fyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags Íslands. Erindið
nefnist „Nýju stríðin“. Í erindinu
verður fjallað um eðli stríðsrekst-
urs eftir að kalda stríðinu lauk.
Í DAG
Fjalla um nýjungar í meðferð á
asthma Asthma- og ofnæm-
isfélagið og Félag asthma- og of-
næmislækna hafa stofnun Asthma-
og ofnæmisskóla. Skólinn verður
rekinn í röð fyrirlestra um þessa
sjúkdóma. Fyrsti fyrirlesturinn
verður á morgun, miðvikudaginn
3. mars, kl. 20.30 í húsi SÍBS í
Síðumúla 6 í Reykjavík. Á fyr-
irlestrinum mun Unnur Steina
Björnsdóttir, sérfræðingur í
asthma- og ofnæmissjúkdómum og
dósent við læknadeild Háskóla Ís-
lands, fjalla um nýjungar í með-
ferð á asthma.
Áhugahópur Gigtarfélags Ís-
lands fundar Á morgun, miðviku-
daginn 3. mars, kl. 19.30 verður
áhugahópur Gigtarfélags Íslands
um slitgigt með opið hús í hús-
næði félagsins í Ármúla 5, annarri
hæð.
Kolbrún Einarsdóttir, næring-
arráðgjafi á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi, ætlar að ræða um
mataræði og slitgigt og svara
spurningum.
Á MORGUN
Fræðsluerindi um sálfræðileg
sjónarmið og aðferðir við þung-
lyndi Á vegum Félags sérfræðinga
í klínískri sálfræði verða haldin
átta fræðsluerindi um sálfræðileg
sjónarmið og aðferðir við þung-
lyndi. Tvö erindi verða flutt hvert
fimmtudagskvöld í mars, kl. 20.15–
22 í Námunni, húsnæði Endur-
menntunar Háskóla Íslands, Dun-
haga 7. Aðgangseyrir er 500 kr.
Eftirfarandi klínískir sálfræðingar
halda erindi: 4. mars, Oddur Erl-
ingsson, 11. mars, Hörður Þorgils-
son og Álfheiður Steinþórsdóttir,
18. mars, Auður R. Gunnarsdóttir
og Ása Guðmundsdóttir, 25. mars,
Gunnar Hrafn Birgisson og Eirík-
ur Örn Arnarson.
Dagskráin er haldin með stuðningi
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins og verkefnis Landlækn-
isembættisins, Þjóð gegn þung-
lyndi.
Stjórnmálaskóli Samfylking-
arinnar verður haldinn dagana
4.–6. mars í Versölum við Hall-
veigarstíg 1. Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylking-
arinnar, setur skólann
fimmtudaginn 4. mars kl. 19. Er-
indi halda: Katrín Júlíusdóttir,
Björgvin G. Sigurðsson, Andrés
Jónsson og Helgi Hjörvar. Föstu-
daginn 5. mars hefst skólinn kl.
19. Erindi halda: Ágúst Einarsson,
Ágúst Ólafur Ágústsson og Krist-
rún Heimisdóttir. Laugardaginn 6.
mars hefst skólinn kl. 11.30. Er-
indi halda: Stefán Jón Hafstein,
Þórunn Sveinbjarnardóttir, Flosi
Eiríksson, Mörður Árnason og
Bryndís Hlöðversdóttir. Ráðhús
Reykjavíkur verður heimsótt í
boði Steinunnar V. Óskarsdóttur,
varaforseta borgarstjórnar. Þá
verður Alþingi einnig heimsótt en
þar kynnir Jóhanna Sigurðardóttir
lífið og starfið í Alþingi. Stjórn-
málskólanum lýkur með lokahófi
kl. 19 á laugardag. Skólastjóri er
Helgi Hjörvar.
Á NÆSTUNNI
ÁLYKTUN hefur borist frá fé-
lagsfundi í Dómarafélagi Íslands
sem haldinn var 23. febrúar sl. um
fjárhagsstöðu héraðsdómstólanna:
„Á undanförnum árum hafa
verkefni dómstólanna aukist, eink-
um vegna ört vaxandi málafjölda,
flóknari mála og nýrra lögskipaðra
verkefna. Á sama tíma hefur dóm-
endum í héraði fækkað úr 50 í 38,
þar sem stöður dómarafulltrúa
voru lagðar niður árið 1998, án
þess að gripið væri til fullnægjandi
ráðstafana til mótvægis.“
Þá segir að fjárveitingavaldinu
ætti að vera ljós sú skylda, að sjá
dómstólunum fyrir fullnægjandi
fjármagni til að standa undir eðli-
legri starfsemi í samræmi við nú-
tíma kröfur. „Hafa dómarar lagt
sig fram við að halda málsmeð-
ferðarhraða í horfinu, þrátt fyrir
að það hafi haft í för með sér
vinnu langt umfram það sem eðli-
legt getur talist.“
Einnig segir í ályktuninni að
dómarar telji afar brýnt að fjár-
veitingarvaldið leiðrétti nú þegar
fjárveitingar til héraðsdómstóla.
„Þá leggja dómarar áherslu á að
með lögum verði tryggt að fyr-
irkomulag fjárveitinga taki mið af
stöðu dómstóla sem eins þriggja
þátta ríkisvaldsins. Loks mælast
dómarar til þess að hraðað verði
breytingum á réttarfarslögum sem
leiða til aukinnar hagræðingar við
dómsstörf.
Dómarar lýsa fullum stuðningi
við dómstólaráð, sem sett var á
stofn til þess að undirstrika sjálf-
stæði dómsvaldsins. Lögð er
áhersla á að dómstólaráði verði
gert kleift að sinna hlutverki sínu
lögum samkvæmt.“
Brýnt að leiðrétta fjárveit-
ingar til héraðsdómstóla
Á AÐALFUNDI Félags eldri borg-
ara sem haldinn var sl. laugardag
var samþykkt ályktun þess efnis að
ellilífeyrir (grunnlífeyrir) hækki til
samræmis við þróun almennrar
launavísitölu og frítekjumark al-
mannatrygginga verði leiðrétt í
samræmi við launaþróun. Þá var
einnig samþykkt ályktun um að
felldur verði niður eignarskattur á
íbúðir sem eigendur búa í og að
fjölgað verði dvalar/hjúkrunarrým-
um samkvæmt samkomulagi sem
undirritað var árið 2002. Jafnframt
að auka valkost í búsetumálum fyr-
ir aldraða sem þurfa á umönnun að
halda.
Félagið samþykkti einnig ályktun
um að á vorþingi verði frumvarpið
um breytingar á lögum um málefni
aldraðra afgreitt og að þegar verði
gerðar breytingar á hlutverki fram-
kvæmdasjóðs aldraðra samkvæmt
samkomulaginu sem undirritað var
19. nóv. 2002.
Þá vill félagið að endurskoðuð
verði lög um málefni aldraðra með
það að markmiði að að flytja mál-
efni aldraðra frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu til fé-
lagsmálaráðuneytisins.
Raddir aldraðra
heyrist betur
Félagið vill að gert verði verulegt
átak í því að stytta bið eftir heyrn-
artækjum, gerviliða- og augnað-
gerðum og gerð er sú krafa að
ávallt verði fulltrúar eldri borgara í
nefndum og ráðum sem varða mál-
efni þeirra.
Einnig ályktaði fundurinn um að
hvetja ófaglært starfsfólk til að
sækja þau námskeið sem eru í boði
á vegum stéttarfélaga fyrir fólk
sem starfar við umönnun aldraðra.
Einnig að þeir útlendingar sem
ráðnir eru til starfa læri íslensku.
Þá telur félagið að raddir eldri
borgara heyrist of lítið þegar rætt
er um málefni þeirra í ljósvakamiðl-
um. Fundurinn hvetur stjórnendur
ljósvakamiðla, einkum RÚV, að
bæta úr þessu með því að stjórn-
endur dagskrárliða gæti jafnréttis í
þessu efni.
Ályktanir fundar Félags eldri borgara
Málefni aldraðra
verði flutt til félags-
málaráðuneytis
ÞAU mistök urðu við frágang kross-
gátunnar í Tímariti Morgunblaðsins
á sunnudaginn að skýring númer 24
féll niður. Hún á að vera: Líki huskar
konungur (8). Ennfremur átti skýr-
ing merkt 24 að vera númer 26.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
♦♦♦
UM helgina var tilkynnt
um 6 innbrot, 20 þjófn-
aði og 16 skemmdarverk
til lögreglunnar í
Reykjavík.
Þá var karlmaður handtekinn að-
faranótt laugardags eftir að hafa
ógnað fólki með afsagaðri tvíhleyptri
haglabyssu.
Um sexleytið á föstudagskvöldið
var tilkynnt um að reyk legði frá
þaki á húsi aldraðra við Þorragötu.
Þarna hafði kviknað eldur í pönnu á
eldavél. Nokkrar skemmdir urðu í
eldhúsi og flytja þurfti tvennt á
slysadeild til aðhlynningar.
Þegar vísa átti út gesti veitinga-
staðar í miðborginni á föstudags-
kvöldið brást hann illa við og réðst á
dyravörð, sparkaði í hann bæði í
andlit og kvið. Var maðurinn hand-
tekinn og færður í fangageymslu.
Ógnaði veislugestum
með haglabyssu
Um miðnætti á föstudagskvöldið
var tilkynnt um að maður hefði ógn-
að fólki með afsagaðri tvíhleyptri
haglabyssu í húsi í vesturbænum.
Maðurinn mun fyrst hafa kvartað við
nágranna undan hávaða og síðan til
að leggja enn frekari áherslu á orð
sín hafi hann hlaupið inn til sín, sótt
haglabyssuna og ógnað og hótað
fólki. Síðan fór hann með byssuna
inn til sín og fór síðan á brott í bifreið
ásamt nokkrum öðrum. Leitað var
að bifreiðinni sem fannst skömmu
síðar og var umræddur maður hand-
tekinn og færður í fangageymslu en
hann virtist í annarlegu ástandi.
Aðfaranótt laugardags var til-
kynnt um mann sem gerði sér að leik
að ganga yfir bíl sem stóð við Hverf-
isgötu. Urðu skemmdir bæði á vél-
arhlíf, þaki og vindskeið. Er lög-
reglumenn komu á staðinn var
maðurinn horfinn og fannst ekki
þrátt fyrir leit.
Skömmu fyrir hádegi á laugardag
valt bifreið á Sæbraut við Dugguvog.
Það mun hafa atvikast þannig að
tvær bifreiðar voru á leið vestur eftir
Sæbraut hvor á sinni akreininni er
þriðja bifreiðin fór á milli þeirra og
fram úr þeim. Við það missti annar
ökumaðurinn vald á bifreið sinni sem
valt. Ekki urðu alvarleg slys á fólki.
Veiktist hastarlega eftir
að hafa sopið á ólyfjan
Á laugardagskvöldið var maður
fluttur í sjúkrabifreið á slysadeild
eftir að hann hafði drukkið einhverja
ólyfjan. Maðurinn sem er vaktmaður
á sundstað í austurborginni hafði
tekið með sér að heiman flösku sem
hann hélt innihalda gosdrykk. Inni-
haldið mun hins vegar hafa verið
eitthvað annað og veiktist maðurinn
hastarlega eftir að hafa sopið á því.
Skömmu eftir hádegi á sunnudag
var tilkynnt um grunsamlegar
mannaferðir við hús í austurborg-
inni. Var maðurinn með verkfæra-
tösku og eftir að hafa reynt um
stund við útidyrnar tókst honum að
komast inn í húsið. Er lögreglumenn
komu á staðinn kom í ljós að þarna
var viðgerðarmaður á ferðinni.
Þarna brugðust hins vegar nágrann-
ar hárrétt við og gerðu lögreglu við-
vart, þegar þeir urðu þess varir að
einhver sem þeir könnuðust ekki við,
væri að fara inn í húsið.
Á sunndagskvöld urðu lög-
reglumenn varir við bifreið sem var
ekið á miklum hraða eftir Miklu-
braut. Tókst þeim að mæla hraða
bifreiðarinnar sem reyndist vera 165
km. Er ökumaðurinn varð lögregl-
unnar var, reyndi hann að stinga af
og hljóp úr bifreiðinni við Hæð-
argarð. Hann fannst skömmu síðar
og var færður á lögreglustöð þar
sem hann var sviptur ökuréttindum.
Skemmdarverk og
þjófnaðir meðal verkefna
Helstu verkefni lögreglunnar