Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 25

Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 25
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld risu menn úr sætum og klöppuðu Ís- lenska dansflokknum óspart lof í lófa. Yfirskrift sýningarinnar er Lúna en það var jafnframt heiti fyrra dansverks kvöldsins sem er eftir Láru Stefánsdóttur. Láru þarf vart að kynna en hún er einn af af- kastameiri danshöfundum landsins. Verk hennar samanstendur af fjór- tán dönsurum. Viðfangsefnið er lífs- valsinn sjálfur; ástin, þráin, vonin, baráttan og gleðin undir björtu tunglskini. Tónlistin, Cyrano er eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Hún var flutt af Rússíbönunum en er upphaf- lega samin fyrir leikrit um Cyrano de Bergerac. Tungl í fyllingu blasti við áhorfendum uppsviðs og hljóm- sveitin hafði komið sér fyrir aftar- lega á sviðinu. Verkinu er skipt eftir tónlistinni í stutta samtengda kafla. Kvendansarar í ljósum kjólum í anda rómantíska tímans og karldansarar birtust á sviðinu. Þau mynduðu hringlaga form undir tunglskininu sem síðar leystist upp. Dansari sem túlka mátti sem eins konar príma- donnu hópsins dansaði sóló og söng angurvært. Karlmenn tókust á. Kona dansaði tregafullt sóló og karl- dansari lagði sig fram við að lesa í óræða hegðun kvenna sem oft hreyfðu sig skoplega í ætt við hænur og aðrar hópsálir. Ungir og nýir meðlimir dansflokksins voru í for- grunni verksins. Þeir nutu sín vel á sviðinu. Angurvær söngur Nadiu Banine í lok verksins var eftirminni- legur. Kaflinn var stuttur og sam- anstóð af söng Nadiu með innkomu annarra dansara. Kaflinn dróst sam- an með söngnum eitt augnablik og leiddi út í næsta atriði. Þetta stutta atriði þjónaði vel sínum tilgangi og var fallegt og hnitmiðað. Hlutverk Nadiu var notað sparlega. Þegar hún birtist á sviðinu beindist öll athyglin að henni. Innkoma hennar dró úr hraðanum í verkinu og beindi athygli áhorfenda á aðra braut. Guðmundur Helgason vakti kátínu meðal áhorf- enda í hlutverki karlmannsins sem reynir að lesa í hegðun kvennanna og dansararnir, ásamt nýliðum flokksins fóru vel með hlutskipti sitt. Gleði þeirra og öryggi var eftirtekt- arverð. Valgerður Rúnarsdóttir og Steve Lorenz sem hlotið hafa sýn- ingarreynslu með dansflokknum vöktu athygli. Þeim fer ört fram og öll tjáning þeirra var með miklum ágætum. Rómantískir, léttir og fal- legir búningarnir voru andstæða við hreyfingarnar í verkinu sem voru stórar og grófar. Höfundur notaði gólfið mikið til að veltast um á. And- stæða hreyfinganna við íhaldssama búningana fór vel saman. Sviðið varð líflegra en ella með tilkomu Rússí- bananna. Þó hafði lifandi tónlistar- flutningurinn ekkert úrslitavald fyr- ir góða útkomu dansverksins. Tónlistin, sem var leiðandi afl í verk- inu lagði línurnar um framvinduna. Kaflaskiptingin í tónlistinni og það hve tónlistin var dansandi hafði mik- ið að segja um vel heppnaðan heild- arsvipinn. Dansverkið var fullt af gleði, gáska og léttleika og ákaflega vel dansað. Dansgerðin var hnitmið- uð og ólíkum hreyfingunum þjappað saman þannig að heildrænt útlit náð- ist í dansgerðinni. Þetta var vel lukk- að dansverk sem ánægjulegt var að upplifa. Þrá mannfólksins Verk belgíska danshöfundarins Stijn Celis var seinna verk á dag- skrá. Í því fjallar höfundur um þrá mannfólksins eftir einhverju betra í lífinu. Hvort það sem það sækist eft- ir uppfylli þrána er áhorfendum látið eftir að dæma um. Tónlistin er úr frægum rómantískum ballett, Chop- iniana síðar Les Sylphides við tónlist eftir Frederick Chopin. Upphaflegu dansgerðina við Chopiniana samdi ekki minni maður en Mikhail Fokine brautryðjandi klassíska ballettsins á síðustu öld. Á sviðinu lágu trédrumb- ar á víð og dreif. Dansari í óklæðileg- um slopp með svart þröngt höfuðfat og yfirvararskegg arkaði inn á sviðið með hreyfingum í ætt við Chaplin. Aulalegt yfirbragðið var allsráðandi og brátt bættust fleiri þöngulhausar í hópinn. Þeir öpuðu upp hver eftir öðrum vitleysu og eins konar vinnu- ferli og líktust æ meir hópdýrum sem herma hvert eftir öðru hugsun- arlaust. Loks tók einn úr hópnum sig til og gerðist frumlegur og ekki leið á löngu þar til nýtt eftiröpunarferli með tilheyrandi hópþrýsingi ekki ólíkt því fyrra var hafið. Ferlinu mætti líkja við tískuna og hvernig mannfólkið eltist við hana, hugsun- arlaust. Hreyfingarnar sem mynda dansgerð Celis eru óneitanlega nauðalíkar dansgerð Svíans Mats Ek, fyrrum stjórnanda Cullberg- ballettsins í Stokkhólmi. Skopleg og leikræn túlkunin er einnig náskyld því sem eftir fyrrnefndan höfund liggur. Það var furðulegt að sjá verk Celis svo líkt er það verkum Mats Ek. Það er óhætt að segja að höfund- urinn er undir miklum áhrifum frá starfsbróður sínum í Svíþjóð. Engu að síður var verkið bráðskemmtilegt áhorfs. Dansararnir fóru létt með dansgerðina sem er með eindæmum athyglisverð og eingöngu mjög tæknilega færir dansarar ráða við. Katrín Á. Johnson fór á kostum í túlkun sinni og hafði dansgerðina al- gerlega á sínu valdi svo unun var á að horfa. Seinni hluti verksins endar í langri senu þar sem óspart er gert grín að klassíska ballettinum og þá ballettverkinu Chopiniana. Grínið var á mörkum þess að keyra úr hófi fram og verða að fíflalátum. Engu að síður má klassíski ballett síðustu ald- ar vel við þessu gríni. Hann má við því vegna þess að hann býður upp á það. Sannleikurinn er engu að síður sá að þrátt fyrir allt stendur listform hans enn fyrir sínu. Það er óhætt að segja að áhorf- endur hafi komið glaðir út af þessari sýningu. Hún er þess virði að sjá. Næsta sýning er fimmtudaginn 4. mars. Sálarinnar næring – lífsins elexír! Lilja Ívarsdóttir Morgunblaðið/Þorkell „Það er óhætt að segja að áhorfendur hafi komið glaðir út af þessari sýn- ingu. Hún er þess virði að sjá,“ segir Lilja Ívarsdóttir í umsögn sinni. LISTDANS Íslenski dansflokkurinn LÚNA Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir. Tón- list: Hjálmar H. Ragnarsson. Sviðsmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir. Lýs- ing: Kári Gíslason. Flytjendur tónlistar: Rússíbanar: Guðni Franzon, Jón Skuggi, Kristinn H. Árnason, Matthías M.D. Hem- stock, Tatu Kantomaa. Aðstoðarmaður danshöfundar: Ingo Diehl. Dansarar: Að- alheiður Halldórsdóttir, Guðmundur Helgason, Hannes Þór Egilsson/ Guðmundur Elías Knudsen, Hjördís Örn- ólfsdóttir, Katrín Ingvadóttir, Katrín Á. Johnson, María Lovísa Ámundadóttir, Nadia Katrín Banine, Peter Anderson, Saga Sigurðardóttir, Steve Lorenz, Tanja Marín Friðjónsdóttir, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir. Æfing í Paradís Danshöfundur: Stijn Celis. Tónlist: Frederick Chopin. Útsetning: Roy Dougl- as. Sviðsmynd og búningar: Stijn Celis. Lýsing: Kári Gíslason. Aðstoðarmaður danshöfundar: Ingo Diehl. Dansarar: Guð- mundur Helgason, Guðmundur Elías Knudsen, Katrín Ingvadóttir, Katrín Á. Johnson, Nadia Katrín Banine, Peter And- erson, Steve Lorenz, Valgerður Rúnars- dóttir. Borgarleikhúsið. Föstudagurinn 27. febr- úar 2004. LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 25 Súrefnisvörur Karin Herzog Náðu toppformi með Silhouette fyrir sumarið Silhouette er framleitt til að virka á þau svæði líkamans sem eru mest útsett fyrir fitu og uppsöfnun á fituvef, svo sem mjöðmun, rass- kinnum, lærum og á kviðnum. Silhouette inniheldur 4% súrefni sem gefur öflugt nudd og nær- ingu til að losa um fitu og úr- gangsefni innan frá, viðheldur heilbrigðri, teygjanlegri og fallegri húð. Gefur öfluga rakagjöf sem endist allan daginn. Vinnur á sliti undan og eftir meðgöngu og einnig eftir megrun. ...fegurð og ferskleiki... Kynningar í Lyf og heilsu: Þriðjudaginn 2. mars Melhaga Miðvikudaginn 3. mars Firði Fimmtudaginn 4. mars Mjódd Föstudaginn 5. mars Kringlu 20% kynningarafsláttur af Súrefnisvörum Karin Herzog w w w .k a ri n h e rz o g .c h Villibirta nefnist sakamálasaga eftir sænska rithöfundinn Lizu Marklund í þýðingu Önnu Ingólfsdóttur. Bókin heitir Prime time á frummálinu. Þrjár bækur eftir Lizu Marklund hafa áð- ur komið út á ís- lensku hjá Máli og menningu: Sprengivargurinn, Stúdíó sex og Paradís. Bæk- urnar eru allar sjálfstæðar sögur en rauði þráðurinn er líf blaðakonunnar Anniku Bengtzon. Villibirta fjallar um frægðarljómann og hversu dýrkeyptur hann er, samkeppni fjölmiðlafyr- irtækja og innherjaviðskipti. Sjón- varpsstjarna er myrt og eru sam- starfsmenn hennar grunaðir, m.a. vinkona blaðamannsins Anniku Bengtzon. Annika dregst inn í valda- togstreitu á fjölmiðlamarkaðinum. Síðan er spurningin um hvernig geng- ur að njóta sín í vinnunni og viðhalda fögru fjölskyldulífi. Liza Marklund hefur fengið fjölda verðlauna og viðurkennigna. Bækur hennar hafa nú selst í yfir 5 milljón eintökum í 115 löndum á 26 tungu- málum. Villibirta var ein vinsælasta skáldsaga heims árið 2002 skv. bandaríska nettímaritinu Publishing Trends, og trónar gjarnan efst á sölu- listum bókabúða víða um heim. Ný- lega kom út fimmta bókin um Anniku, Úlfurinn rauði (Den röda vargen) og hefur hún einnig tekið sér sess á fyrr- nefndum heimslista. Áformað er að gefa hana út á íslensku í haust. Sjötta og síðasta bókin í röðinni kem- ur út í Svíþjóð nú í vor. Colin Nutley hefur kvikmyndað tvær sögur hennar, Sprengivarginn og Paradís. Útgefandi er nýtt bókaforlag, ARI út- gáfa. Bókin er 360 bls., prentuð í Odda hf. Pétur Baldvinsson, teiknari, hannaði útlit og Diljá Þórhallsdóttir auglýsingahönnuður annaðist um- brot. Verð: 1.790 kr. Sakamálasaga Norræna húsið kl. 12:05 Valur Ingimundarson sagnfræðingur heldur erindi í fyrirlestraröð Sagn- fræðingafélags Íslands, „Hvað er (um)heimur?“ Erindið nefnist „Nýju stríðin“. Aðgangur er ókeyp- is. Í erindinu verður fjallað um eðli stríðsrekstrar eftir að kalda stríð- inu lauk. Sjónum verður beint að kenningu Mary Kaldor um „nýju stríðin“ og „einkavæðingu“ hern- aðar, en einnig að hlutverki banda- rískra hátækni- eða „sýning- arstríða“ og verndar- og hernámssvæða á vegum al- þjóðastofnana og vestrænna ríkja. Valur Ingimundarson er dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands. Jón forseti kl. 21 Skálda- spírukvöld. Davíð Á. Stefánsson, Ófeigur Sigurðsson, Fríða Bonnie Andersen, Hörður Gunnarson og Kristín Ómarsdóttir lesa ljóð. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Slagverk á háskólatónleikum Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu á morgun, miðvikudag, leika slagverksleikararnir Frank Aarnink og Steef van Oosterhout verk eftir Ton de Leeuw og Astor Piazzolla. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30. Aðgangseyrir er 500 kr. en ókeypis er fyrir handhafa stúdenta- skírteina. Ton de Leeuw (1926–1996) var eitt af fremstu tónskáldum Hollands. Hann var mikill áhuga- og fræðimað- ur um austræna tónlist og menningu sem hafði áhrif á mörg verk hans. Meðal nemenda hans voru Gunnar Reynir Sveinssson, Jónas og Haukur Tómassynir og Snorri Sigfús Birg- isson. Ton de Leeuw kom til Íslands á UNM-hátíðina 1982 þar sem nokkur verk eftir hann voru flutt. Astor Piazzolla (1921–1992) samdi þriggja kafla tangósvítu fyrir gít- ardúó 1984. Bandaríkjamaðurinn Kevin Super umritaði verkið fyrir ásláttarhljómborð. Á þessum tón- leikum verður annar kaflinn leikinn. KARLAKÓRINN Fóstbræður efnir til árlegra vortónleika sinna í Langholts- kirkju í kvöld og annað kvöld kl. 20 og á laugardag kl. 16. Á tónleikunum mun kórinn m.a. flytja lög eftir Jón Ásgeirsson, fyrrver- andi söngstjóra kórs- ins, í tilefni af 75 ára afmæli hans nýverið. Vegna vænt- anlegrar utanferðar kórsins til Péturs- borgar í Rússlandi í júní mun kórinn flytja hluta verksins Öedi- pus Rex eftir Stravinskíj, sem hann mun flytja ytra ásamt fílharm- óníuhljómsveit borg- arinnar og fimm ein- söngvurum frá fjórum þjóðlöndum, þar af tveimur ís- lenskum. Elín Ósk Ósk- arsdóttir er annar þeirra einsöngvara en hún mun einnig koma fram á vortón- leikunum. Aðrir einsöngvarar á þessum tónleikum eru Stefán Helgi Stefánsson og Smári Sigurðsson. Stjórnandi Fóstbræðra er Árni Harðarson. Árlegir vortón- leikar Fóstbræðra Jón Ásgeirsson Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.