Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað og vinnustofa, kl. 9 jóga, kl. 13 postulíns- málun. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9 leikfimi, kl. 9.30 dans, kl. 9.45 boccia, kl. 13– 16.30 smíðar, kl. 20.30 línudans. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 10– 11.30 sund, kl. 14–15 dans, kl. 15 boccia. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9 bað, kl. 10 samverustund, kl. 14 fé- lagsvist. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin og vefnaður, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opin vinnu- stofa 9–16.30, leikfimi kl. 10–11, verslunarferð í Bónus kl. 12.40, bóka- bíllinn á staðnum kl. 14.15–15. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Hlað- hömrum. Kl. 13–16 föndur, spil og bók- band, kl. 16–17 leikfimi og jóga. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Leir kl. 10, kínversk leikfimi kl. 12, málun kl. 13, tréskurð- ur kl. 13.30, lokað í Garðabergi eftir há- degi. Heimsókn í Ís- lenska erfðagreiningu verður föstud. 5. mars. Rúta fer frá Kirkjuhvoli kl. 16.15 og frá Garða- bergi kl. 16.30. Skrán- ingarblöð liggja frammi á báðum stöðum. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9, frjáls prjónastund, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, saumur og billjard kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Skák kl. 13, alkort spil- að kl. 13.30. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. glerlist, kl. 10 létt ganga, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13 boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 10–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postulín, kl. 9.05 og kl. 9.55 leik- fimi, kl. 10.50 róleg leik- fimi, kl. 14 ganga, kl. 14.45 boccia, kl. 19 brids. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.05 og 9.55 leik- fimi, kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinnu- stofan opin, kl. 13 brids- kennsla. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín og gler, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist, kl. 15 línudans. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–10 boccia, kl. 9–16.30 handavinna, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13.30 helgistund. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun miðvikud. Gaman saman Miðgarði kl. 14. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 12 skinnasaumur, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulín, kl. 10.15–11.45 enska, 13– 16 spilað og bútasaum- ur. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 glerskurður, kl. 10 leikfimi, kl. 13 hand- mennt og postulín, kl. 14 félagsvist. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13– 16 keramik, taumálun, föndur, kl. 15 bókabíll- inn. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Félag eldri borgara í Gjábakka. Brids kl. 19. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði kl. 20, svar- að í s. 552 6644 á fund- artíma. Sjálfsbjörg, Hátúni 12. Kl. 20 skák. Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheim- erssjúkra og annarra minnissjúkra: Fræðslu- fundur í kvöld kl. 20 á Grund. Meðal annars fjallar prófessor Dagný Kristjánsdóttir um: „Mæður og dætur, þeg- ar á reynir“. Kvenfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík heldur fund fimmtu- daginn 4. mars í safn- aðarheimilinu Lauf- ásvegi 13 kl. 20. Gestir fundarins verða konur úr Kvenfélagi Bústaða- sóknar. Í dag er þriðjudagur 2. mars, 62. dagur ársins 2004. Orð dagsins: Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði. (Ok. 15, 1.)     Davíð Oddsson for-sætisráðherra fjallaði um eignarhald á fjölmiðlum í gestapistli á vefritinu Tíkinni um liðna helgi. Davíð sagði fjölmiðlamarkaðinn lúta sérstökum lögmálum.     Það er til að myndaekki nóg að gæta þess að samkeppni ríki á milli fjölmiðla og að al- menningur geti nýtt sér þá á hagstæðu verði. Ekki skiptir minna máli að fjölmiðlarnir séu fjöl- breyttir og að mismun- andi skoðanir eigi greið- an aðgang að þeim. Síðast en ekki síst er mikilvægt að fjölmiðl- arnir sinni eftirlits- hlutverki sínu, bæði með stjórnmálamönnunum og viðskiptalífinu,“ skrifar Davíð.     Á viðskiptaþingi ný-verið gerði ég ræki- lega grein fyrir þessum sjónarmiðum mínum. Einnig ræddi ég þar samhengi frjálsra óháðra fjölmiðla annars vegar og eftirlits með markaðsráðandi fyr- irtækjum hins vegar. Ég er þeirrar skoðunar að mikilvægi þessa þáttar í starfsemi fjölmiðla hafi aukist mjög að und- anförnu. Þær miklu sviptingar sem hafa orð- ið í íslensku viðskiptalífi kalla mjög á að fjöl- miðlar sinni skyldum sínum af kostgæfni. Rétt er að nefna að þessi ósk um aðhald fjölmiðla á ekkert skylt við kröfur um að fjölmiðlar leggi viðskiptalífið í einelti. Íslensk fyrirtæki hafa náð gríðarlegum ár- angri á undanförnum árum þjóðinni allri til mikilla hagsbóta. Fjöldi vel menntaðra og hæfra einstaklinga hefur kom- ið til og full ástæða til að gleðjast yfir þessari þróun mála. En jafn- framt er nú til mikils að vinna, að tryggja að um- gjörð atvinnulífsins þró- ist með skikkanlegum og skynsömum hætti. Umgjörðin verður að vera í góðri sátt við al- menning. Að öðrum kosti verður ekki hægt að ná fram pólitískum stuðningi við það frjáls- ræði sem hefur ríkt í efnahagsmálum þjóð- arinnar. Frjálsræðið hefur á undanförnum árum skilað þjóðinni kaupmáttaraukningu sem nemur tugum pró- senta. Og það er mikils að vænta í þeim efnum ef vel er haldið á spil- unum.“     Því miður hefur til-koma fyrirtækja- málgagna að und- anförnu grafið undan trúverðugleika íslensks viðskiptalífs. Það þarf til dæmis engan sér- stakan speking til að sjá hversu óheppilegt það er að viðskipta- samsteypa með umtals- verð ítök í íslensku við- skiptalífi er eigandi fjölmiðla. Hvað þá að fjölmiðlar í eigu hennar skuli vera í lykilstöðu á fjölmiðlamarkaði.“ STAKSTEINAR Eignarhald á fjölmiðlum Víkverji skrifar... Svínasúpan, nýi íslenski gaman-þátturinn á Stöð 2, er misheppn- aður, að mati Víkverja. Skýringin er einföld: Hann er ekki nægilega fynd- inn. Víkverji er mikill áhugamaður um vandað spé, ekki síst þætti af þessu tagi, sem hverfast að mestu um örsögur með absúrd ívafi. Samt stendur hann sig að því að horfa á heilu þættina af Svínasúpunni án þess að hlæja. Honum stekkur varla bros. Því miður. Víkverji hefur séð flesta þættina sem sýndir hafa verið til þessa, enda hefur hann verið dyggilega til þess hvattur af börnunum og ungling- unum á heimilinu, en man aðeins einu sinni eftir því að hafa hlegið. Það var að atriði á róluvelli, þar sem saman komu tveir feður með börn sín og annað barnið leit út eins og gamall maður. Aumingja faðirinn gerði sér enga grein fyrir þessu fyrr en honum var bent á það. Það var kostulegt at- riði. x x x Að öðru leyti hefur Víkverji í bestafalli brosað út í annað að atrið- unum. Oftast hristir hann þó bara höfuðið. En hvað er að? Vandinn er tvíþætt- ur, að áliti Víkverja. Í fyrsta lagi er handritið ekki nægilega gott. Sög- urnar eru einfaldlega ekki nógu fyndnar. Í annan stað eru leikararnir of einhæfir. Þeir eru iðulega í sama karakter. Það gengur ekki til lengd- ar. Að vísu eiga leikkonurnar tvær það til að skipta um svip en það dugar bara ekki til. Víkverji kann í sjálfu sér ágætlega við karlana, Sveppi og Auddi eru prýðilegir dagskrárgerð- armenn í sjónvarpi. En kannski eru þeir ekki á réttri hillu í þessum þætti? x x x Svo er það annað. Víkverja sýnistað hörðustu aðdáendur Svínasúp- unnar séu börn og unglingar, líklega á bilinu 6 til 20 ára. Það skaut því skökku við sl. föstudag, þegar þátt- urinn var stranglega bannaður börn- um. Raunar trúði Víkverji ekki sínum eigin eyrum þegar tveir yngstu fjöl- skyldumeðlimirnir fluttu honum þessi tíðindi. En viti menn, Stöðvar 2 merkið var blóðrautt á skjánum. Hlaust af þessu mikil sorg á heimili Víkverja, enda eru menn þar lög- hlýðnir og börnin láta sig ekki dreyma um að horfa á bannað efni í sjónvarpi. Víkverji hefur brotið heil- ann um þetta síðan og kemst ekki að annarri niðurstöðu en að það hljóti að vera óskynsamlegt að úthýsa dygg- ustu áhorfendunum. Vonandi er þetta bara tilfallandi og þátturinn öllum leyfður næsta föstu- dag, því þó Víkverji hafi takmarkað yndi af Svínasúpunni vilja börnin ekki missa af henni. Þá er nú betra að klippa út ósæmileg atriði en valda blessuðum börnunum vonbrigðum. Morgunblaðið/Jim Smart Svínasúpan: Heldur bragðlítil fyrir smekk Víkverja. Ástand í heimahjúkrun ÉG vil mótmæla því ástandi sem hefur skapast í málum heimahjúkrunar. Ég vil skora á stjórnvöld og þriggja manna nefnd að leysa deiluna um heima- hjúkrun. Einnig vil ég skora á aðra að láta í sér heyra og sýna samstöðu í þessu máli. Ómar. Snertir siðferð- iskennd mína MIG undirritaða langar að koma á framfæri skoðun minni á dómi Hæstaréttar gagvart 60 ára manni sem hafði beitt barnabarn sitt og fleiri stúlkur kynferðis- legu ofbeldi. Það er með ólíkindum að Hæstiréttur skuli milda dóminn. Svona menn á að loka inni til margra ára eða koma þeim fyrir á hæli fyr- ir sína líka. Þetta eru sjúkir menn og búnir að eyði- leggja líf þessara stúlkna til æviloka. Þetta snertir siðferðis- kennd mína, og er mér al- gjörlega óskiljanlegt, lögin eru til en eru aldrei notuð til fullnustu, vegna sönnun- arbyrði. En getur einhver sagt mér hvernig er hægt að sanna svona að fullu? Ég trúi því að svona hlutir séu ekki búnir til. Svona dómar eru einfaldlega til þess að gefa svona mönnum leyfi til að halda áfram að sinna sín- um ógeðslegu „áhugamál- um“ því þeir fá hvort sem er svo stutta dóma. Einnig gefur þetta fórnarlömbum kynferðisofbeldis röng skilaboð – það sé hvort sem er ekkert gert og þau lifa í sífelldum ótta við gerendur. Þeir eru hvort eð er búnir að eyðileggja líf þeirra. Það á að dæma þessa menn líkt og um morð væri að ræða, því þeir eru búnir að drepa fórnarlömb sín andlega. Hulda Pétursdóttir. Dýrahald Terta er týnd ÞETTA er hún Terta, en hún týndist frá heimili sínu, Laufengi 9, 112 Reykjavík, hinn 9. apríl 2003. Hennar er sárt saknað af öllum í fjölskyldunni. Hún er eyrnamerkt en vegna rugl- ings í kerfinu er númer hennar 2126 en maður les 6212R. Hún er með nokkur sérkenni, t.d. vegna að- gerðar sem hún fór í á fæti. Hún gæti hafa breyst eitt- hvað þann tíma sem hún er búin að vera í burtu. Allar upplýsingar eru meira en vel þegnar í símum 846 6075 og 587 5609. Helga Guðfinns. Hvolpur í óskilum UM hádegisbilið sunnu- daginn 29. febrúar fannst lítill nokkurra vikna hvolp- ur við Öskjuhlíð. Upplýs- ingar í síma 868 5503 eða 562 7007. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 brúnaþunga, 8 ásýnd, 9 sól, 10 spil, 11 fugl, 13 málgefin, 15 karlfugl, 18 sanka saman, 21 endir, 22 kompa, 23 eldstæði, 24 hömlulaust LÓÐRÉTT 2 fen, 3 fingurs, 4 fiskar, 5 kjafturinn, 6 knippi, 7 erta, 12 kropp, 14 þjóta, 15 poka, 16 menga, 17 háværan gleðskap, 18 fiskur, 19 ærslahlátur, 20 beitu. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 Hekla, 4 fölur, 7 munni, 8 öldum, 9 nál, 11 arra, 13 barn, 14 lofar, 15 þoka, 17 álit, 20 hró, 22 kopar, 23 kýtir, 24 tíran, 25 tólin. Lóðrétt: 1 hemja, 2 kænir, 3 alin, 4 fjöl, 5 lydda, 6 rúm- an, 10 álfur, 12 ala, 13 brá, 15 þykkt, 16 kópur, 18 lítil, 19 tæran, 20 hrun, 21 ókát. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.