Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6. B.i. 16 ára.
H A L L E B E R R Y
Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi -
þetta endar með ósköpum! Frábær skemmtun!
Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA!
Fleiri börn...meiri vandræði!
Frábær gamanmynd
frá höfundi Meet the Parents
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Allir þurfa félagsskap
Sýnd kl. 8 og 10.20.
SV MBL
kl. 8.
Yfir 94.000 gestir
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslenskum texta
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Þau eiga 12 börn og mamman er fjarverandi - þetta
endar með ósköpum! Frábær skemmtun!
Vinsælasta fjölskyldumynd ársins í USA!
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Fleiri börn...meiri vandræði!
11 Óskarsverðlaun
þar á meðal besta myndin,
besti leikstjóri og besta handrit
Besta
frumsamda
handrit
ELLEFU tilnefningar. Ellefu sigrar.
Fullt hús. Denise Robert, framleið-
andi bestu erlendu kvikmyndarinnar,
kanadísku myndarinnar Innrás barb-
aranna (Les Invasions barbares) eftir
Denys Arcand átti kollgátuna er hún
sagði í þakkarræðu sinni: „Eins gott
að Hilmir snýr heim var ekki gjald-
geng í þennan flokk!“
Eftir að hafa verið sniðgengin tvö
síðustu árin, að margra mati, rúllaði
Hringadróttinssaga Óskarnum upp
svo um munaði og jafnaði met Ben
Húr frá 1959 og Titanic 1997 sem
einnig hlutu ellefu Óskara.
„Staðfest hefur verið að það eru
engir eftir á Nýja-Sjálandi til að
þakka,“ sagði kynnir kvöldsins Billy
Crystal en stærsti hluti hins mikla
fjölda er vann að gerð Hringadrótt-
inssögu-þríleiksins eru landar leik-
stjórans Peters Jacksons.
Samanlagt hefur Hringadrótt-
inssögu-þríleikurinn nú hlotið 23 ósk-
arsverðlaun en hinar fengu 6 verð-
laun hver. Engin kvikmyndaröð
hefur hlotið eins mörg óskars-
verðlaun í sögunni. Auk þess að taka
haug „smærri“ verðlauna var Hilmir
snýr heim valin besta myndin og Pet-
er Jackson besti leikstjórinn en hann
hafði orðið af þeim verðlaunum tvö
síðustu ár. Auk þess hlaut myndin
verðlaun fyrir besta handrit byggt á
öðru verki, tónlist, lag (sungið af
Annie Lennox), klippingu, förðun,
búninga, leikmynd, sjónrænar brellur
og hljóðblöndun.
Yfirburðir myndarinnar voru með
eindæmum og þær myndir sem næst-
flesta Óskara hlutu voru Meistari og
sjóliðsforingi og Mystic River með
tvenn verðlaun hvor.
Það var yfir höfuð fátt sem kom á
óvart á hátíðinni í ár, öllu hafði verið
spáð. Sean Penn og Charlize Theron
fengu sinn Óskar fyrir aðalhlutverk,
Reneé Zellweger og Tim Robbins
fyrir aukahlutverk. Leitin að Nemó
besta teiknimyndin og Sofia Coppola
fékk sinn fyrsta Óskar, fyrir besta
frumsamda handritið að Glötuð þýð-
ing (Lost in Translation). Leikstjór-
inn Blake Edwards var heiðraður
fyrir æviframlag sitt og þeirra sér-
staklega minnst stjarnanna stóru
sem féllu frá á liðnu ári Katherine
Hepburn, Bob Hope og Gregory
Peck.
Gestir í Kodak-leikhúsinu horfðu
hikandi í kringum sig en stóðu svo
upp einn sem allir og hylltu Sean
Penn er hann gekk upp á svið til að
taka við sínum fyrsta Óskar. Hafði
þrisvar verið tilnefndur áður. Penn er
frægur fyrir annað en að liggja á
skoðunum sínum og í annars fremur
hefðbundinni þakkarræðu stóðst
hann ekki mátið að senda Bush for-
seta og stríðsbröltinu í Írak eina
lúmska pillu: „Ef það er eitt sem við
leikarar vitum – fyrir utan að það eru
engin útrýmingarvopn – er að það er
enginn bestur í leik.“
Annar vinningshafi sem gagnrýndi
hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í
Írak var Errol Morris, höfundur
bestu heimildarmyndarinnar í fullri
lengd Stríðsþokunnar (The Fog of
War.) Myndin fjallar um Robert
McNamara fyrrum varnarmálaráð-
herra Bandríkjanna og sagði Morris
að draga mætti mikilvægan lærdóm
af henni: „Fyrir 40 árum duttu
Bandaríkin ofan í kanínuholu í Víet-
nam og milljónir létust – ég óttast að
við séum á leiðinni ofan í aðra slíka
holu nú.“
Fleiri voru sprengjurnar ekki á
Óskarnum í ár en þessar litlu hurðar-
sprengjur Penns og Morris. Theron
sagðist hafa lofað sér að gráta ekki,
gerði það þó samt og lýsti kokhraust
yfir að allir landar sínir í Suður-
Afríku væru að horfa og hvetja sig til
dáða. Þannig lét hver sigurvegari af
öðrum móðann mása, bunaði út úr
sér nöfnum uns viðvörunartónar
hússveitarinnar glumdu úr gryfju.
Það var því viðeigandi er þeir grín-
istar Will Ferrell og Jack Black
kynntu áður óheyrðan texta við um-
rætt viðvörunarlag „You’re Boring!“,
texta um að þeir sem flytji langar
ræður séu drepleiðinlegir og eigi að
drulla sér af sviðinu.
Þannig var hún yfir það heila með
daufara móti 76. óskarsverðlaunahá-
tíðin sem fram fór í Kodak-leikhúsinu
í Los Angeles á sunnudagskvöldið og
mætti nefna hana „þakkagjörðarhá-
tíðina miklu“ því sjaldan eða aldrei
hefur vinningshöfum verið eins mikið
í mun að þakka hinum og þessum
stuðninginn. Hver af öðrum þökkuðu
þeir mömmu, pabba, afa, ömmu,
börnunum, samstarfsfólkinu, um-
boðsmanninum, hárgreiðslumeist-
aranum og meira að segja lögfræð-
ingnum!
Kynnirinn Billy Crystal var bjart-
vættur sem fyrr, bráðfyndið upphafs-
atriði og hnyttin tilsvör héldu áhorf-
endum austan hafs vakandi. Lauk
hann líka þakkagjörðarhátíðinni
miklu á viðeigandi hátt -með því að
þakka öllum sínum í Long Island.
Allt gekk út á Hringinn eina á 76. óskarsverðlaunahátíðinni
Hilmir sneri
heim með
ellefu styttur
Reuters
Peter Jackson fær faðmlag frá eiginkonu sinni og meðframleiðanda, Fran
Walsh og Philippa Boyens, en saman fengu þau Óskar fyrir besta handrit.
AP
Höfundur Bleika Pardus-mynd-
anna, Blake Edwards, fékk heið-
ursóskar og sló á létta strengi með
Sellers vorra daga, Jim Carrey.
AP
Bestu leikararnir samankomnir baksviðs með stytturnar fjórar: Reneé
Zellweger, Sean Penn, Tim Robbins og Charlize Theron.
Jafnaði met Ben Hur og Titanic
, $
!
- . ).
.
'
*++ 5 *++) 2,6
*+,* 7,$
$,+ *+- 8
*+-) 29$',$#:;+
*++, 29$#
9$<,,
*++ 8+$7,9$29$7
*+ 4+:$$2+$#,,
*+ &$29$7, +,
*+, $4$'
*+) =-,>
*+- 8
9
*+- :
29$",$+ $,9$? 4
,$
$
:$@$9:$9
))$
$+$+:,
A$:$$9;$A :
$:$
,
$9 $9
+,
$.//B
"
./. !"
#$
0*
(*
% &
(
'
./. )*
1()'(
.
+
,
- '
2
'
./ 3.4 skarpi@mbl.is