Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
NORSK stjórnvöld hafa ákveðið að kvóti
Norðmanna úr norsk-íslenska síldarstofn-
inum verði 470.250 tonn á þessu ári. Það er í
samræmi við það hlutfall sem Norðmönn-
um var ætlað að veiða samkvæmt sam-
komulagi strandríkja við Norður-Atlants-
haf frá árinu 1996 um veiðar úr stofninum.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra segir að ekki sé búið að ákveða hvern-
ig staðið verði að úthlutun til íslenskra
skipa. Ekki hafi fengist opinber staðfesting
frá Norðmönnum á þessari úthlutun.
Heildarkvótinn í norsk-íslensku síldinni
verður á þessu ári 825 þúsund tonn, sem er
nokkur aukning frá síðasta ári. Líklegt má
teljast að aðrar þjóðir fylgi fordæmi Norð-
manna og haldi sig við samkomulagið frá
árinu 1996. Þannig yrði heildarkvóti Íslend-
inga á árinu 128.205 tonn eða um 25 þúsund
tonnum meiri en í fyrra.
Veiðar í uppnámi frá 2002
Veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum
hafa verið í uppnámi frá árinu 2002 þegar
Norðmenn settu fram kröfur um aukna
hlutdeild í veiðunum. Samkvæmt sam-
komulaginu frá árinu 1996 skiptist árlegur
kvóti í norsk-íslensku síldinni þannig á milli
ríkjanna að Norðmenn fá 57%, Ísland
15,54%, Rússland 13,62%, Evrópusam-
bandið 8,38% og Færeyjar 5,46%.
Norðmenn hafa sl. tvö ár gert kröfu um
það að hlutur þeirra hækki úr 57% í 70%, en
hlutur annarra ríkja minnki.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Norsk-íslenska síldin
Kvóti Íslands
gæti aukist um
25.000 tonn
Norðmenn/13
Pharmaco á
athugunarlista
HLUTABRÉF Pharmaco hafa verið sett á
athugunarlista Kauphallar Íslands. Kaup-
höllin varaði við því í tilkynningu fyrir opn-
un markaðar í gær að veruleg hætta væri á
að ójafnræði gæti skapast eða hefði skapast
meðal fjárfesta í tengslum við viðræður
Pharmaco við þriðja aðila um kaup á fyr-
irtæki. Á föstudag var lokað fyrir viðskipti
með Pharmaco vegna mikillar hækkunar á
gengi án sýnilegrar ástæðu.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphall-
arinnar, segir Kauphöllina hafa hvatt
Pharmaco til að gefa frekari upplýsingar
um þær viðræður sem fyrirtækið eigi í.
Hann segir að óvissa ríki vegna upplýsinga
sem virðist vera verðmótandi en almennir
fjárfestar hafi ekki aðgang að.
Að sögn Páls Gunnars Pálssonar, for-
stjóra Fjármálaeftirlitsins, hefur málið ver-
ið tekið til skoðunar þar eins og gert sé við
aðstæður sem þessar.
Halldór Kristmannsson, forstöðumaður
innri og ytri samskipta Pharmaco, segir að
viðræðurnar séu á frumstigi og birting
frekari upplýsinga að svo stöddu gæti haft
skaðleg áhrif á gang þeirra. Hann segir að
það að fyrirtækið sé á athugunarlista sé
ekki merki um að neitt neikvætt hafi átt sér
stað, heldur aðeins merking til að vekja at-
hygli fjárfesta á að líklegt sé að frétta sé að
vænta sem geti haft áhrif á verð bréfanna.
Gengi bréfa Pharmaco lækkaði um 6,6% í
gær og er nú 45.
Veruleg hætta/12
HESTAR eru kynjaskepnur og misjafnir að
skapgerð, en víst er að margir hestar eru
gæddir skopskyni og er oft stutt í glottið á
þeim. Þá er oft talað um hrossahlátur þegar
menn hlæja hátt og með látum. Sigurður Sig-
mundsson, fréttaritari Morgunblaðsins á
Flúðum og hestaljósmyndari, hefur afar gott
lag á hestum og umgengst þá mjög mikið.
Sigurður brá á leik með vinum sínum á dög-
unum og gantaðist við þá og var ekki laust
við að hann vekti mikla kátínu með ærslum
sínum.
Morgunblaðið/RAX
Hrossahlátur á Flúðum
HÁSKÓLINN í Reykjavík stefnir að því að hefja
kennslu í verkfræði haustið 2005. Guðfinna
Bjarnadóttir, rektor skólans, segir að undirbún-
ingur sé það langt á veg kominn að kennslan
gæti hafist næsta haust, en að afstaða mennta-
málaráðuneytisins liggi ekki enn fyrir. Námskrá
er tilbúin í grófum dráttum og segir Guðfinna að
hægt yrði að taka um 50 nemendur á fyrsta ári.
Alls gæti deildin orðið um 300 manna deild.
Nemendur myndu útskrifast með BS-próf í
verkfræði.
Þá er einnig í skoðun að hefja kennslu í
kennslufræðum við skólann, en Guðfinna segir
að mikið sé þrýst á skólann að gera það.
Háskólaráð HR samþykkti árið 2001 að stofna
verkfræðideild og var þá hafist handa við skipu-
lagningu námsins. Guðfinna segir ástæðu þess
að skólinn vilji hefja kennslu í verkfræði vera að
ekki sé annað hægt en gefa íslenska skólakerfinu
falleinkunn hvað varðar tækni- og verkfræði-
nám. „Þar skipum við okkur á bekk með þeim
þjóðum sem hvað minnst leggja áherslu á þessa
menntun í heimi. Ef litið er á hversu margir há-
skólastúdentar útskrifast úr verkfræði- og
tæknigreinum þá er það ekki nema lítill hluti,
u.þ.b. 6–7% af heildarfjölda þeirra sem útskrif-
ast,“ segir hún. Á Norðurlöndunum er hlutfallið
á bilinu 20–30%.
Of lítil áhersla á tæknimenntun
Verkfræði er í dag kennd við Háskóla Íslands,
en Guðfinna segist vel telja svigrúm fyrir HR að
koma þar inn. „Við gætum alveg byrjað í haust ef
okkur væri leyft, en það þarf bara að semja við
ráðuneytið,“ segir Guðfinna. Hún segir að ekki
sé búið að ráða kennara sérstaklega til starfa við
deildina, en bætir við að við tölvunarfræðideild
skólans séu þó nokkrir verkfræðingar að störf-
um. Guðfinna telur að of lítil áhersla hafi verið
lögð á tækni- og verkfræðimenntun hér á landi,
en of mikil áhersla á hug- og félagsvísindi. „Við
höfum lagt hér mikla áherslu á nýsköpun og upp-
byggingu atvinnulífsins og að stúdentar sem
héðan eru útskrifaðir kunni til verka við að búa
til störf og fyrirtæki,“ segir Guðfinna og bætir
við að þá komi verkfræðiþekking vel að notum.
Vilja bjóða nám í kennslufræðum
Þá er á teikniborðinu að taka upp nám í
kennslufræðum. Háskólaráð hefur ekki afgreitt
umfjöllun um slíka deild, en Guðfinna segir að
stjórnendur HR séu stanslaust hvattir til þess að
hefja nám fyrir kennaraefni. „Það er tvennt sem
ég hef á þessu stigi mikinn áhuga á að gera. Það
er annars vegar að mennta raungreinakennara,
taka vel menntað raungreinafólk og bæta
kennslufræðinni ofan á þá kunnáttu. Hins vegar
er spennandi að kenna alls konar kennslufræði-
lega nálgun og kennslutækni sem við vitum að
virkar en hefur ekkert verið kynnt hérna heima
svo ég viti til,“ segir Guðfinna og bætir við að há-
skólaráði verði sýndar þessar hugmyndir á
næstunni.
Háskólinn í Reykjavík vill bjóða nám í verkfræði og kennslufræði
Stefnt að því að hefja
kennslu í verkfræði 2005
KÁRI Stefáns-
son, forstjóri Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, hefur
keypt 15% eign-
arhlut í Norður-
ljósum, sem reka
m.a. Stöð 2 og
Bylgjuna.
Eftir kaupin
er Kári næststærsti hluthafi fé-
lagsins en Baugur Group er
stærsti eignaraðilinn og á rúm
28%. Skv. upplýsingum Sigurðar
G. Guðjónssonar, forstjóra Norð-
urljósa, keypti Kári allt óselt
hlutafé félagsins eða 10,8%, auk
hluta af Baugi Group og fleiri að-
ilum í hluthafahópnum en við þau
viðskipti lækkaði eignarhlutur
Baugs úr 30% í rúm 28%.
„Það er alltaf gott að fá nýja
hluthafa. Eignaraðildin er orðin
dreifðari,“ sagði Sigurður í gær.
Ekki er gefið upp hvert er
kaupverð hlutarins eða gengi í
viðskiptunum að sögn Skarphéð-
ins Bergs Steinarssonar stjórnar-
formanns en hann segir nafnverð
hlutafjár félagsins nema rúmum
þremur milljörðum kr. Við hluta-
fjáraukningu félagsins hefur verið
gert ráð fyrir að einn milljarður
komi inn í félagið í peningum og
kaupir Kári hlut af því að sögn
Skarphéðins.
Kári Stefánsson kaupir
15% í Norðurljósum
Kári Stefánsson
♦♦♦
HITI í febrúar mældist yfir með-
allagi í Reykjavík og var hann 23.
mánuðurinn í röð þar sem hiti
mælist fyrir ofan meðallag sam-
kvæmt upplýsingum frá Veður-
stofu Íslands. Að sögn Trausta
Jónssonar veðurfræðings mældist
hiti í nýliðnum febrúar þó eilítið
lægri en í fyrra, var 0,9 gráður nú
en 2 gráður í fyrra. Meðalhiti í
Reykjavík í febrúar er 0,4 gráður.
Að sögn Trausta settu nokkrir
mjög kaldir dagar fyrri hluta
mánaðarins strik í reikninginn.
Yfir meðallagi
í 23 mánuði
Hiti í Reykjavík