Vísir - 15.04.1981, Page 20

Vísir - 15.04.1981, Page 20
20 VÍSIR Miðvikudagur 15. april 1981 Leikritið gerir miklar kröfur til leikaranna svo þeir nái að lýsa innri hugarórum persónanna” sa ICflirtfAir Inilrct ini*i n rt nlr 1.1 .... X Z A . _í * ■ ■ .. .... * I nógu var að snúast því æfing var að hefjast hjá Leikfélagi Vestmannaeyja á 106. verkefni félagsins, leikritinu Fyrsta öngstræti til hægri. En það verður frumsýnt í Eyjum á 2. f páskum kl. 20.30. Sigurgeir Scheving leikstjóri, og Unnur Guðjónsdóttir ræddu staðsetningu og ýmislegt sem þeim fannst að mætti betur fara. Síðan snéri Unnur sér að blaðamanni Vfsis og Ijósmyndara og sagði: „Alveg er það furðulegt að alltaf þegar viðsetjum upp verk þá virðist aldrei vera meira af þorski en einmitt þegar við ætlum að fara að sýna. Ég held bara að þeir í stöðvunum ættu að fara að gera út á leikfélagift það væri kannski til þess að alltaf væri nóg af þorski fyrir frystihúsin". starfsmanns i Tngu'BC11 ,C,KSlJO“ °8 eKK' er 30 Sja anna0 en pa0 haf' Þegar ‘ekis‘ Þótt enn sé ekki komiö að frumsýn- Aðbiinaður Leikfélagsins er mjög góður. Salurinn tekur um 170 manns i sæti og er m jög vist- legur. Undir sviðinu eru biln- ingsklefar og kaffistofa, þar sem bestu rjómapönnukökur bæjarins voru bornar fram i hléi milli æfinga. En það fór eins með rjómapönnukökurnar og hléið, að mjög fljótlega var við þærlokiö og æfing hófst að nýju. Formaður Leikfélagsins Auö- berg Óli Valtýsson hefur starfað fyrir það siðan 1951, þá sem sviðsmaður en sem sýningar- stjóri siðustu lOárin.Sagði hann að bæjarsjóður styrkti starf- semi leikfélagsins verulega, tii dæmis hefði félagið leikhúsið svo til endurgjaldslaust en að- staðan þar er ein sú besta, sem áhugamannaleikfélag hér á landi býr við. Hann sagöi einnig að Vestmannaeyingar væru mjög velviljaðir leikhúsinu. „Það er ekki að tómum kofan- um komið ef eitthvað vantar af ieikmunum, enda höfum við aldrei þurft að kaupa leikmuni. Ég vona að þeir sýni nú áhuga sinn i verki og komi til að sjá þetta góða leikrit”, sagði Óli. Leikritið Fyrsta öngstræti til hægri er eftir Orn Bjarnason, sem á ættir sinar að rekja til Eyja, og er sonarsonur Bjarna Eyjólfssonar safnahúsinu. „óheflaður raunveru- leikinn á ferð". t rjómapönnukökuhléinu milli atriða, náðist að króa Sigurgeir leikstjóra af en hann hefur i mörg ár verið ein helsta drif- fjöður hjá Leikfélaginu, leikið mörg stórhlutverk og stjórnað leikritum. Sigurgeir sagði að þetta verk væri mjög krefjándi verkefni og marga strengi þyrfti að stilla svo allt hljómaði rétt i lokin. „Verkið fjallar um þjóðfélagsleg vandamál, sem alls staðar eiga sér stað i þjóð- félaginu, drykkju og lyfja- notkun”, sagði Sigurgeir. Aðal- hlutverkin eru leikin af Hörpu Kolbeinsdóttir sem lekur Mariu og Eddu Aðalsteinsdóttur sem leikur Onnu, en þær vinkonur leika forfallna drykkjusjúkl- inga. Leikurinn snýst um þessar persónur, þó sérstaklega Mariu og eru hugrenningar hennar um æskuna felldar inn i leikritið, og þau atvik er áttu sinn þátt i að vandamál hennar hrönnuöust Hörpu, Guðrún Kolbe>nsdóttir. „Ég er sannfærður um að þetta leikrit á erindi til alls al- mennings, enda óheflaður raun- veruleikinn á ferð. Leikritið gerir miklar kröfur til leikar- anna svo þeir nái að lýsa innri hugarórum persónanna. Við höfum þvf æft sleitulaust I 7 vikur, svo til daglega. Þetta er mjög samstilltur hópur og ég vona að bæjarbúar fjölmenni á leiksýningarnar, þvi til þess er leikurinn gerður”, sagði Sigur- geir. „ Frábærar móttökur". Harpa Kolbeinsdóttir leikur Mariu, aðal sögupersónuna. „Ég hef leikið i einu hlutverki áður, Aumingja Hönnu, þannig að það er mjög gaman að takast á við svona stórt hlutverk”, sagði Harpa. — Nú sýnduð þið Aumingja Hönnu I Kópavogi, hvernig var að leika fyrir áhorfendur seih þú þekktir ekki? „Það var alveg dýrlegt að leika i Kópavogi og sjá alla þessa Vestmannaeyinga sem komu langan veg að til þess að sjá okkur leika. Þetta er alveg eins og að vera hér heima, undirtektirnar hjá þeim voru frábærar sem varð svo til þess að þegar við komum aftur heim, jókst aðsókn til muna. Nú kallaði Sigurgeir leik- stjóri, svo ekki var lengur til setunnar boðið. Edda Aðal- steinsdóttir leikur önnu. Hún hefur leikið fyrir leikfélagið i mörg ár. „Ég held að Anna sé eitt erfiðasta hlutverk sem ég hef fengist við. Anna er svo for- fallinn sjúklingur að erfitt er að setja sigí spor hennar, þar sem ég þekki enga manneskju sem svo langt er leidd. En ég reyni, og við höfum æft vel, svo þetta verður örugglega allt i sóman- um”, sagði Edda og var rokin upp á sviðið. Aðrir leikendur eru: Móðir: Jóhanna Jónsdóttir, faðir: Hall- dór Óskarsson, sonur: Hrafn Karlsson, Pétur: Róbert Vil- hjálmsson, lögreglur: Halldór Óskarsson og Sæfinna Sigur- geirsdóttir, starfsstúlka á geð- deild: Sæfinna og hjúkrunar- konu á geðdeild leikur Unnur Guðjónsdóttir, sem birtist nú i enn einu gervinu og enn blossar frá henni krafturinn, og fjörið. Unnur hefur nú skemmt Vest- mannaeyingum i 31 ár, leikstýrt og leikið jafnhliða. Tveir rónar eru leiknir af Sigurgeir leik- stjðra og Runólfi Gislasyni. Auðberg Óli Valtýsson er sýn- ingarstjóri, Ingvar Björnsson frá Þjóðleikhúsinu hefur sett upp lýsinguna, en hann sá ein- mitt um lýsingu við frumsýn- ingu verksins á Akureyri 1979. Ljósameistari er Hjálmar Brynjólfsson. Magnús Magnús- son, Auðberg Óli og Hjálmar sjá um leikmyndagerð, sem er mjög vönduð en leikmynd er eftir Sigurjón Jóhannesson. Hvislari er Heiða Hilmars- dóttir. Sýningar eftir frumsýningu eru þriðjudaginn 21. april og á sumardaginn fyrsta 23. april. Ásm.FR. Vm m töjj Ljósmyndir: Guðmundur Si gfússon. upp. Mariu yngri, leikur systir ,,» Texti: Ásmund- ur Friðriksson. U\\ö \w á J irums'i w. jf’yrsta öngstrætitilhægn • ínn vaski hópur leikara l Hinn Milli atriða var ýmislegt gert til dundurs, eins og þessi mynd ber meö sér, og ekki var þá alvörunni fyrir Tværsem villst hafa af leiö á tali viöeina sem veit sfnu viti. aö fara.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.