Vísir - 15.04.1981, Blaðsíða 35

Vísir - 15.04.1981, Blaðsíða 35
35 Miövikudagur 15. aprfl 1981 Robin Stevens. Breskl miðillinn Robin Stevens í heimsðkn hér Þekktur breskur miöill, Robin Stevens, kemur hingaö til lands i dag.og mun halda skyggnilýs- ingarfundi á vegum Sálarranns- sóknarfélags íslands. Robin Stev ens var hér fyrir ári siöan ásamt Coral Polge og héldu þau sam- eiginlega fundi þar sem Coral teiknaði myndir af framliðnu fólk á glæru og Robin lýsti þessu fóiki og atriðum eða aðstæðum úr lffi þess, þar til einhver i salnum gaf sig fram sem kannaöist við þaö. Myndir og frásagnir af þessum fundum birtust I VIsi i fyrra ásamt viðtölum við miölana. 1 þetta skipti er Robin Stevens hér á vegum alheimssamtaka spiritista og erfyrirhugaö aö taka eitthvaö af fundunum upp á videotape. Á skyggnilýsingafund- unum mun fólk fá númer við inn- ganginn. Miðillinn mun siðan draga úr númerum og gera grein fyrir þeim sem er með samstætt númer og þeim sem vilja komast i samband við hann. Fundir þessir verða haldnir i félagsheimili Seltjarnarness dag- ana 16., 20. og 21. april kl. 20.30. Miðar eru seldir á skrifstofu Sálarrannsóknafélags Islands, Garðastræti 8. vísnt Þegar barnið er BITBEIN Stjörnubió: Kramer vs. Kramer Leikstjóri: Robert Bent- on Höfundur handrits: Ro- bert Benton eftir sögu Avery Corman. Kvikmyndatökumaður: Nestor Almendros Höfundur tónlistar: Henry Pudcell Aða lleikarar: Dustin Hoffmari/ Meryl Streep og Justin Henry. Bandarísk/ árgerð 1979. livað, hvar...? Umpáskana sýnir Háskólabió myndina Hurricane.t myndinni býggja gamalkunnir persónu- ' leikar (saklausa stúlkan, innfæddi pilturinn, drykkfelldi presturinn, vinalegi læknirinn, vondi faðirinn og vonlausi biðillinn) eyju i Suður-Kyrra- hafi. ...AÓ Hkindum 'sýnir Laugarásbió Punktur punktur komma strik enn um páska- hátiðina en næsta mynd á dag- skrá mun vera The Island, sem Steven Spielberg leikstýrir, en flestirkánnast við ógnarvinsæla mynd hans Jaws. The Island fjallar eins og Jaws um baráttu við óvætti. Að þessu sinni eru þær ekki i formi hákarls heldur trylltra manna sem leynst hafa fyrir umheiminum á afskekktri eyju, en leggja nú til atlögu... Páskamynd Tónabiós verður The Wilderness Family en myndin segir frá fjölskyldu sem fær nög af stórborgarllfinu og fiyst út i guösgræna náttúruna. Þetta er mynd sem hæfir jafnt börnum sem fullorðnum.... Regnboginn sýnir um þessar mundir þrjár áhugaverðar myndir. Fyrst ber að nefna kúbönsku myndina Lúciu. Hún er margverðlaunuð og fjallar um stööu kvenna á mismunandi timum og þátt þeirra i baráttu fyrir betra samfélagi. Ahuga- menn um kvikmyndalist ættu sist að láta hana framhjá sér fara. t öörum smásal -i Regnboganum er svo Fílamaðurinn, mynd sem segir frá örlögum hryllilega fatlaðs manns og mun kvikmynd þessi seint ofmetin. t stærsta salnum gefur aö lita Times Square, allþokkalega mynd sem ætluö er ungingum. .. Borgarbióið sýnir grinmyndina Smokey and the Judge.Hún fjallar um þrjár stulkur sem lenda i fangelsi, diskói, spilltum dómara og bilaeltingaleik... Andi geimferða og visinda- skáldsagna er allsráðandi i mynd Austurbæjarbiós, Helför 200«, en þar er Kirk Dougias helsta skrautfjöörin meðal leikaranna..... Nýja bió sýnir um páskaná laufiétta skylimingamynd, Manninn með stálgrimuna, en i henni leika hinar útlitsgóðu leikkonur Syivia Kristel og Ursula Andr- ess aðai kvenhlutverkin. Gamia bió sýnir hrollvekjuna ófreskjuna. Jdhanna Kramer (Meryi Streep) bregöur á leik með syni sinum (Justin Henry). framsetningu Roberts Bentons á þvf vandamáli sem skapast þegar foreldrar deila um forræði barns. Faöirinn er aðal- persóna myndarinnar, en móðirin hverfur af tjaldinu. mestan hluta hennar. Raunveruiegum ástæbum fyrir brotthlaupi Jóhönnu Kramer af heimilinu eru litil skil gerö og helst látið i það skina að vinkona hafi spanaö hana upp i skilnaðinn. A meðan Jóhanna er að rifa sig upp úr andlegri eymd stendur Ted Kramer sig með eindæmum vel í uppeldinu og tekur stöðugum framförum i morgunverðartilbúningi. Þrátt fyrir að Benton dragi taum karlmannsins i Kramer vs. Kramer er myndin allrar athygli verð fyrir góðan leik þeirra Dustins Hoffmans, Meryl Streep og Justins Henrys. Eins ur réttilega vakin athygli á þvi að oft eiga fleiri en tveir aðild að skilnaðarmáli, og réttur barns- ins er ef til vill sist minni, en þeirra sem um það bitast.SKJ. Sólveig K Jónsdóttir skrifar Fyrir ári hlóðust Óskars- verðl aunin á kvikmyndina Kramer vs. Kramer. Myndin var valin besta mynd ársins, Dustin Hoffman besti karl- leiikarinn, Meryl Streep besta leikkona i aukahlutverki, Ro- bertBenton bestileikstjórinn og reyndarfékk hann einnig Óskar fyrir handritið að myndinni. Myndin á viðurkenningu skilda, einkanlega eru leikararnir vel að sinum styttum komnir. Myndin fjallar um atburði sem nú á timum endurtaka sig i sifellu. Ung húsmóðir slitur sig frá einangrun og leiðindum húsverka og dauðvona hjónabands. Hún er uppgefin á þvi að vera aðeins „dóttir ein- hvers, eiginkona einhvers eöa móðir einhvers.” Eiginmaður- inn hefur um fátt annaö hugsaö en að vinn sig upp i faginu, en hlýtur aö taka við uppeldi af- kvæmis þeirra hjóna, þegar konan er farin aö heiman. Eftir skilnaðinn taka hjónin svo aö deila um yfirráðarétt yfir barn- inu. Umfjöllunarefni Kramer vs. Kramer vakti gifurlega almennan áhuga strax og sýningar myndarinnar hófust Mörgum var málið skilt, en ekki hafa þó allir getað sætt sig við Niðurtalning á launalítlum stúlkuni Timinn upplýsir i gær, að 14% ófagiærðra verkamanna hafi yfir þrettán þúsund á mánuði eða sem svarar 1.3 milijónum g.kr. Á sama tima fær stúlka, sem vinnur viö afgreiðslu i búö frá 9-6 rúmar fjögur þúsund krónur og getur tæplega lifað af þvi nema með tilstyrk aðstand- enda. Þvottakonur reka sig á það i hálfopinberum fyrirtækj- um, að menn sem hætta vinnu á venjulegum tima aö deginum koma um sjöleytiö til að fikta i stimpilklukkunni. Sjálfar eru þvottakonurnar tæplega i hópi hinna yfirborguöu I þjóðfélag- inu. Rúmlega 80% verkamanna hafa yfir átta þúsund á mánuði, segir Timinn. Þau eru orðin ófá skiptin, sem barist hefur veriö fyrir bættum kjörum láglaunafólks. Maöur veit ekki hver ósköp hefur veriö talaö um leiðréttingar til handa þvi fólki. Verkamenn hafa ekki verið undan skildir. Og nú eru kaupskerðingarákvæöi i gangi og niöurtalningar. Stjórnar- herrar hælast um af þvi að þeir hafi stjórn á hlutunum og hér riki jafnvægi og réttlæti I launa- málum. Gott ef svo væri. En ætli afgreiðslustúlka í búð, kannski með barn á framfæri, hafi uppi stór orð um jafnvægi og réttlæti með sinar fjögur hundruö þús- und krónur i kaup á mánuði. Ætli þvottakonum blöskri ekki að verða vitni að þvi, þegar hópar skrifstofufólks koma aftur á vinnustaö klukkan sjö til að fikta I stimpilklukkum. Ætli við séum ekki orðin um það bil eins snarvitlaus og við getum orðið. Með kaupskerðingu og niður- talningu var vist ætlunin að við hertum ólina eitthvaö. Á pappirnum horfir málið einmitt þannig við. En staöreyndir málsins hvfla einhvers staðar innan um hávaxtastefnuna, vegna þess að annaö tveggja verða húseigendur, sem byggt hafa með dýrum lánum, að fara á höfuðið eða pina fyrirtækið, þar sem þeir vinna til að greiða mikið hærri laun en þau, sem samið er um hverju sinni. Þetta heita yfirborganir, bónusar eða hvað menn vilja kalla fyrir- bærið. Þessi þrýstingur I launa- kerfinu á sér sem sagt sínar or- sakir. Það er rembst við hverju sinni að semja um einhverja óverulega kauphækkun, vegna þess að hún er sögö valda verð- bólgu. Allt verður óljósara og umræðuminna, þegar opinber fyrirtæki og háifopinber hækka þjónustu sina upp úr öllu valdi. Þar er kominn sá kostnaöar- auki, óskýrður, sem ekki náðist samkomulag um i almennum kjaraumræðum viö launafólk. Þess eru jafnvel dæmi aö stór fyrirtæki kaupi bila undir starfsmenn og reki þá sem eigin bfla. Friöindin eru auðvitað tal- in til tekjuauka fyrir starfs- menn, en þær munu ómældar kröfurnar, sem sömu fyrirtæki gera til veröhækkana, m.a. vegna óhóflegs bilakostnaðar. Þannig er þessu öllu snúið fram og aftur um hundamó, mest vegna þess að hér viöurkennir stjórnarfariö ekki staðreyndir, heldur kennir mönnum að bralla utan við kerfið með öllum tiltækum ráðum. En óbreytt standa kjör þess fólks, sem minnst má sin á vinnumarkaði, einkum ungar stúlkur við afgreiðslu I búðum, og þær sem vinna að hreingern- ingum. Að visu er sá galli á hreingerningunni, að reynt er að gera mánaðarvinnu með mánaðarlaunum úr svona tveggja tima starfi á dag. Þetta fólk er mikiö notað i kjara- samningum, vegna þess að kauptölur þess eru hæfar til um- ræöu. Þar eru menn komnir meö raunverulega láglauna- hópa og þarna er það, — með fjögur þúsund krónum á mánuði — sem veröbólgan vermir rætur sinar. A meðan þessu þrefi fer fram munu ófaglæröir verka- menn hiklaust stefna I tvær milljónir g.króna á mánuði án þess að spyrja nokkurn nema þann, sem þarf á vinnu þeirra að halda. Þá geta þeir kannski framfleytt fjölskyldu sinni og greitt af vaxtaaukalánunum. Og á meðan sitja stjórnvöld og láta sig drcyma um niöur- talningar og kaupbindingar. Þau ráðast á garöinn, þar sem hann er lægstur og rigbinda og niöurtelja fátækar ungar stúlk- ur, sem eru aö byria lifiö meö afgreiðslu I búö. Svarthöfði

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.