Vísir - 19.05.1981, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 19. mai 1981
vtsnt
5
Sendu diplðmðlum
sprengjur I póstl
MíKil sprengju-
hræðsla í New York
í gær eftir hólanir
ofstækra og
falskar viðvaranir
Heimatilbúnar sprengjur fund-
ust i skrifstofum sendinefnda
Bandarikjanna og Honduras hjá
Sameinuðu þjóðunum i New York
i gær . Hefur öryggisviðbúnaður
verið stórlega efldur i aðalstöðv-
um Sameinuðu þjóðanna, enda
hafa drifið að sprengjuhótanir,
sem ofstækir þjóðernissinnar
Puerto Ricana eru taldir standa
að.
Lögreglan segir, að sprengjurn
ar hafi að likindum verið sendar
i pósti og af sama öfgahópnum,
sem skildi þrjár sprengjur eftir i
afgreiðslu Pan Am á Kennedy-
flugvelli á laugardaginn. Ein
sprengjan úti á flugvelli sprakk
og varð einum starfsmanni að
bana.
Hefur lögreglunni borist yfir-
lýsing frá félagsskap, sem kallar
sig „andspyrnuhreyfinguna” á
Páiínná
batavegl
Heilsu Jóhannesar Páls
páfa hefur fleygt fram dag-
lega og var hann i gær fluttur
af gjörgæsludeild sjúkrahúss-
ins og yfir á venjulega eins
manns stofu.
Það bar upp á afmælisdag
hans i gær, en þá var páfinn 61
árs.
Hann sat uppi i stóli i gær i
hálfa klukkustund og hlýddi á
messu, og fær i dag heimsókn,
en þar verður á ferðinni sá
fyrsti af fimm erlendum lækn-
um, sem læknar páfa hafa
kvatt til sér til ráðuneytis.
Puerto Rico, og er þar hótað að
sprengja diplómata frá Hond-
uras, Bandarikjunum, Guat-
emala og Argentinu vegna stuðn-
ings þessara rikja við stjórn E1
Salvador.
Alls vissu menn um 47
sprengjuhótanir eða viðvaranir i
New York i gær og urðu þær til
þess að þúsundir Nýju Jórvik-
inga voru látnir vikja úr skrif-
stofubyggingum i öryggisskyni,
meðan leitað var að földum vitis-
vélum.U hrið var lokað aðalmið-
stöð strætisvagna borgarinnar,
eftir viðvörun um, að þar væru
faldar þrjár sprengjur. Lögregl-
an fann þá ekki annað en þrjár
tómar ferðatöskur inni á kvenn-
asalerni.
En sprengjurnar, sem fundust
á skrifstofunum hjá sendinefnd-
um Honduras og Bandarikjanna,
voru hinsvegar engin imyndun.
Þær hefðu hver og ein getað vald-
ið dauða.
Hringt var á nokkrar ritstjórn-
arskrifstofur i New York og
maður, sem talaði með spænsk-
um hreim, sagði, að sprengjurnar
væru jafnframt til þess að mót-
mæla fangelsun tiu forsprakka
FALN, sem eru hryðjuverkasam-
tök Puerto Ricana. Þau samtök
eru talin eiga sök á 120
sprengjutilræðum á siðustu sjö
árum, sem kostað hafa fimm
manns lifið. — Sprengjurnar, sem
fundust i gær og á laugardag, eru
raunar með sama eða svipuðu
handbragði og sprengjur, sem
FALN notaði.
Niu þessara tiu dæmdu FALN-
manna hófu i gær hungurverkfall
til þess að mótmæla þvi, að sá ti-
undi þeirra var fluttur á milli
fangelsa og til fangelsis, sem
yfirvöld hafa ekki látið uppi,
hvert er. Var það gert til þess að
vernda fangann sjálfan, þvi að
hann hefur tekið upp samvinnu
við lögregluyfirvöld.
Giscard kveður I dag
Valery Giscard D’Estaing, frá-
farandi Frakklandsforseti, mun
flytja útvarpsræðu i dag, en það
verður siðasta ávarp hans til
frönsku þjóðarinnar úr forseta-
höllinni, áður en hann vikur úr
henni fyrir Francois Mitterrand,
hinum nýkjörna forseta, á
fimmtudaginn.
Giscard mun kveðja siðar i dag
starfsfólk forsetahallarinnar og
ymsa ráöherra sina. A morgun
mun hann stýra siðasta rikisráðs-
fundi sinum og hlýða á skýrslu
Raymond Barre, forsætisráð-
herra, um ástandið i efnahags-
málum þjóðarinnar.
Við þvi er búist, að Mitterrand
tilnefni menn i ráðherraembætti
strax á fyrsta eða öðrum degi sin-
um i forsetastóli. Eru ýmsar get-
gátur uppi um, hverjir verði til
kallaðir.
Lögregluþjónn hjá Sameinuðu þjóðunum leitar aö sprengjum inni I fundarsal öryggisráðsins, en dipló-
matar S.þ. eru ekki óvanir þvi, aö öflugur öryggisviðbúnaður sé hafður um skrifstofur þeirra og fundar-
sali samtakanna.
Thatcher rak flota-
málaráöherrasinn
Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra Breta, hefur vikið Keith
Speed, flotamálaráðherra, úr
rikisstjórn sinni, eftir að hann
hafði gagnrýnt stefnu stjórnar-
innar i framlögum til varnar-
mála.
I ræðu, sem Speed hélt i kjör-
dæmi sinu, varaði hann við þvi,
að það striddi gegn hagsmunum
Bretlands að láta flotann sitja á
hakanum og með þvi væri um leið
hundsaðar staðreyndir i öryggis-
málum Breta sem NATO-rikis.
Honum var vikið úr stjórninni i
gærkvöldi, en i dag eiga að hefj-
ast umræður i breska þinginu um
varnarmálin.
Undanfarna daga hafa breskir
fjölmiðlar fjallað um afleiðingar
sparnaðar i varnarmálum fyrir
flotann. I þeim vangaveltum hef-
ur þvi verið spáð, að flotinn muni
missa helminginn af freigátum
sinum og tundurspillum, og að
vikingasveitirnar, sem eru úr-
valssveitir landgönguliða, verði
leystar upp.
Blaðið „Daily Telegraph’’ spáði
þvi i gær, að Thatcher lumaði á
áætlunum um að skera niður
framlög til flotans um upphæðir,
sem samsvöruðu 8 milljörðum
dollara á næstu tiu árum.
ftalir vílja fóstureyð-
ingar. en ekki tiðmlulausar
Kjósendur á Italiu hafa hafnað
tilraun kirkjunnar manna til þess
að herða ákvæöi fóstureyðingar-
laga svo, að jafngilt hefði banni
við fóstureyðingum. — Dugðu
Þinglð greiðlr
atkvæðl um nvja
stjórn Falldins
ekki einu sinni til bænstafir páf-
ans.
35 milljónir Itala gengu til
þjóðaratkvæðis á sunnudag og i
gær um þessar tillögur og greiddu
68% atkvæði á móti. Um leið
sýndu þó kjósendur, að þeim
hugnaðist ekki heldur róttækni á
hinn bóginn, þvi að 89,5% var á
móti tillögu róttæka flokksins um,
að konur gætu fengið fóstureyð-
ingu eftir pöntun.
Sænska þingið mun i dag ganga
til atkvæðagreiðslu um nýja
tveggja flokka minnihlutastjórn,
sem Thorbjörn Fálldin, forsætis-
ráðherra og leiðtogi Miðflokksins,
hefur myndað. Þykir vist, að hin
nýja stjórn verði samþykkt.
Þingforseti lagði til i gær, að
Falldin myndaði með aðstoð
Frjálslynda flokksins nýja stjórn
i stað þriggja flokka samsteypu-
stjórnar Miöflokks, Frjálslyndra
og Hægri flokksins, sem sprakk
fyrr i þessum mánuði vegna
ágreinings um skattlaga-
breytingar.
Að sænskum stjórnskrárlögum
getur forsætisráðherra myndað
minnihlutastjórn, nema ef meiri-
hluti þingheims (349 fulltrúar)
standi gegn þvi.
Hægri flokkurinn, sem sagði sig
úr samsteypustjórn Félldins, hef-
ur heitið þvi að sitja hjá i at-
kvæðagreiðslu um vantraust á
stjórnina. Vitað er, að sósial-
demókratar og kommúnistar
muni kappkosta að fe'la tillögu
þingforseta um stjórnarmyndun
Falldins, en þá vantar eitt at-
kvæði upp á meirihluta.
Thorbjörn Fálldin, forsætisráð- ^
herra Svia, freistar þess að W
mynda minnihlutastjórn.