Vísir - 25.05.1981, Síða 22
I V* * |r;f1
TJ'I
I *»*
*;%■» * •;/ x V • %'
22
rasœ
Mánudagur 25. maí 1981
Spandan Ballet
Steinar gefa út erlendar plötur:
Hefur í för meö sér
verölækkun
verulega
Fyrir skömmu gerðu Steinar
hf. einkasamning við hljomplötu-
útgáfuna Chrysalis og fölur þessi
samningur meðal annars i sér öll
réttindi til framleiðslu Chrysalis
hljómplatna á Islandi. Nú hafa
Steinar gefið Ut fyrstu fjórar plöt-
urnar á Chrysalis merkinu hér á
landi.
Þetta eru plöturnar Auto-
american með bandarisku hljóm-
sveitinni Blondie, Crimes of
Passion með bandarisku söng-
konunni Pat Benatar og Vienna
með bresku hljómsveitinni Ultra-
vox. Fyrir skömmu var platan
Journeys to Glory með bresku
hljomsveitinni Spandan Ballet
gefin út hér á landi.
Þessar plötur hafa allar verið
fáanlegar hér á landi af og til og
þá kostað 189.-krónur, en það er
mjög algengt verð á innfluttum
erlendum plötum Nú þegar þess-
ar plötur eru að öllu leyti fram-
leiddar hér heima — þ.e. platan
er pressuð i Alfa og umslögin eru
prentuð i Prisma i Hafnarfirði —
lækkar verðið til muna og kostar
hvert eintak þessara platna að-
eins 138,- krónur. Samsvarandi
kassettur eru einnig framleiddar
hérá landi og er verð þeirra einn-
ig 138.- krónur.
Eins og nærri má geta þá
munar verulega um þessa verð-
lækkun og er það liklega eins-
dæmif landi.þar sem verðbólgan
á ársgrundvelli er um 50% að
hægt sé að kaupa hljómplötur á
sama verði nú og þær kostuðu
fyrir ári siðan. Bein verðlækkun
er 27% á þessum plötum og
munar um minna.
Debbie Harry, söngkona hljóm- Pat Benatar.
sveitarinnar Blondie.
Ultravox.
Meiri ost, meiri ost, hann er ómissandi.segir Sigurður Demetz við
Ragnar Borg, varakonsúl ttaliu.
Italskir dagar á Rán:
Ekki bara
ostur og pasta
Ostur og pasta dettur ábyggi-
lega fleirum i hug en mér. þegar
minnst er á italskan mat, enda
hvort tveggja mjög dæmigert.
En þeir borða vist fleira á
Italiu ef marka má þær krásir
sem boðnar eru á itölsku dögun-
um á veitingahúsinu Rán þessa
dagana og blm. fékk að kynnast
nýlega, ásamt fleiri boösgest-
um.
Þegar við mættum á staðinn
stóð Ómar veitingamaður
Hallsson og tók á móti gestun-
um, enþvegnir og stroknir þjón-
ar með rauða mittislinda buðu
fordrykk. Hvergi sást bóla á
Sigurði Demetz Franssyni,
söngkennara, sem stendur yfir
pottunum i Rán meðan á itölsku
vikunni stendur. Innan tiðar
birtist hann þó með friðu föru-
neyti, bauð gott kvöld, á itölsku
að sjálfsögðu.og færir kvenfólk-
inu rauða rós. Siðan tók hann til
viðaöútlista matseðil kvöldsins
fyrir viðstöddum með tilheyr-
andi tiiburðum
Matseðillinn samanstóð af
„aðeinssex réttum.þará meðal
næfurþunnum skinku- og salami
sneiöum með sýrðri gúrku, kjöt-
seyði með einhvers konar fyllt-
um pastabögglum og Lasagne
með ekta parmesan osti. Kálfa-
snitsel, ættað frá Sikiley með
steiktu blómkáli og blönduðu
salati frá Hveragerði fylgdi á
eftir. Og rúsinan i pylsuend-
anum var léttur, italskur is. AUt
var þetta frábærlega gott og
skolaðist vel niður með itölsku
rauðvinu.
Sigurður tók lagið við gitar-
undirleik meðan borðað var,
en annars lék orgelleikari húss-
ins þægilega dinnertónlist fyrir
gestina.
—JB
„O sole mio”— syngur Sigurður
og Páli Eyjólfsson leikur undir á
gitar.
Bona sera, signorita. Rut Ragnarsdóttír, kona Ömars veitinga-
manns. fékk að sjálfsögðu rauða rós líka.