Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 C 11
● Og Vodafone og Bessastaða-
hreppur hafa skrifað undir samning
um að Og Vodafone taki við allri
símaþjónustu hreppsins. Þá hefur
„sveitarfélagið“ Latibær samið við
Og Vodafone um að taka við allri
símaþjónustu Latabæjar, að því er
segir í fréttatilkynningu. Þá hefur Og
Vodafone gert samninga við Morg-
unblaðið, Osta- og smjörsöluna og
Rekstrarfélag Kringlunnar um að
taka við allri símaþjónustu félag-
anna.
Nýir viðskiptavinir
Og Vodafone
Í DAG
Kynning Íslenskrar erfðagrein-
ingar á Biocentury Future Leaders
ráðstefnunni verður send beint út á
Netinu í dag kl. 18.50. Á ráðstefn-
unni munu forsvarsmenn deCODE
kynna fyrirtækið og ræða um nýlega
áfanga í starfsemi þess.
Útsendingin er aðgengileg á
heimasíðunni www.decode.is og
þurfa þeir sem vilja hlusta á fundinn
að skrá sig á Netinu nokkru áður en
hann hefst.
Á NÆSTUNNI
Aðalfundur Sláturfélags Suður-
lands verður haldinn á morgun 2.
apríl kl. 14 í félagsheimilinu að Þing-
borg, Hraungerðishreppi.
Aðalfundur Hampiðjunnar verður
haldinn á morgun 2. apríl kl. 16 í
fundarsal félagsins, Bíldshöfða 9.
Aðalfundur Stáltaks verður hald-
inn miðvikudaginn 7.apríl í mötuneyti
Slippstöðvarinnar á Naustatanga 1,
Akureyri og hefst kl. 14.
Aðalfundur Granda verður haldinn
miðvikudaginn 7. apríl í matsal fé-
lagsins í Norðurgarði og hefst hann
kl. 17.
STUTTDAGBÓK
● ÍSLENDINGAR greiddu um 387
milljarða íslenskra króna með Visa-
kortum á síðasta ári, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Visa Europe. Þar
segir einnig að færslurnar séu 70%
af öllum greiðslum sem fóru í gegn-
um rafræna posa á árinu.
Handhafar Visa í Evrópu notuðu
kort sín til greiðslu á vörum og þjón-
ustu fyrir samtals 72.500 milljarða
króna á síðasta ári. Um er að ræða
samkvæmt fréttinni, 11% aukningu
miðað við árið 2002. Greiðslur Evr-
ópubúa með Visa-kortum í netvið-
skiptum jukust um 100% á síðasta
ári og námu 1.108 milljónum ís-
lenskra króna.
Borguðu 387 milljarða
með Visa
● SKEMMTIGARÐAR Djurs Sommer-
land í Danmörku hafa fest kaup á
verslunarkerfi frá Landsteinum
Streng og Ciber, samstarfsaðila fyr-
irtækisins í Danmörku. Um er að
ræða kerfi, byggt á Microsoft Navi-
sion og Infostore, sem stuðlar að því
að auka gæði þjónustu og stytta bið-
raðir, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu. Jón Heiðar Pálsson, sölustjóri
fyrirtækisins, segir að meðal mögu-
legra viðbóta og aðlagana kerfisins
sé að viðskiptamenn geti pantað og
greitt fyrir mat og drykki í gegnum
þráðlausar handtölvur, sem starfs-
fólk þeytist með á milli staða, og losni
þannig við að standa í biðröðum.
Skemmtigarðar kaupa
kerfi frá Landsteinum
◆