Tíminn - 22.11.1969, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.11.1969, Blaðsíða 3
LAUfiAKDACTTR 32. mðveniber 1969. IrTMrNN 3 BANDARISKIR HERMENN SAKAÐIR UM FJÖLDAMORD / ÞORPI í S- VIETHAM EJ—Reykjavflí, föstudag. -Á Hetmsblöðin rita mjög í dag um ásakanir þær, sem fram hafa komið þess efnis, að banda rískir hermenn hafi myrt hundr uð óbreyttra víetnamskra borg ara — aðallega konur og böm — í smáþorpi einu í Quang Nagi-hcraði í Suður-Víetnam. Gera blöðin, svo sem The Tim es í London, mikið úr þessu máli og telja nauðsynlegt að ítarleg könnun fari fram á því, hvort bandarískir hermenn hafi virkilega framið þá óhugnan- legu stríðsglæpi sem þeir eru sakaðir um. ic Quang Nagi-héraðið nær frá svampmýrunum meðfram Suður-Kínahafi í austri, og upp að frumskógasvæðunum við fjallgarðinn Anmamite í vsetri. Er þetta eitt fátækasta héraðið í landinu, allar aðstæð ur mjög erfiðar og íbúamir því haiðir og þrautseigir. Á þessu svæði átti Viet- minh mikinn stuðning í styrjöld inni gegn Frökkum og Þjóð- frelisfylkingin hefur einnig fengið af þessu svæði fleiri her menn en flestum öðrum héruð um landsins. Samt sem áður telur Saigon-stjórnin, að hún ráði yfir um 90% af um 700 þúsund íbúum héraðsins. tAt Upplýsingamar um fjöldamorðin hafa vakið geysi lega athygli víða um heim, og mikla reiði víða — ekki sízt í Bandaríkjunum, þar sem margir hafa verið háværir f kröfum sínum um ítarlega rann sókn málsins. Það voru þrír horflokkar úr 11. la n digön guiiðssveiti nni und ir stjórn Emest Medina, kap- teins, sem héldu inn í Mai Lai þorpið í Quanig Nagi-héraði í Suður-Víetnam 16. marz í fyrra og framikvæmdiu fjölda- morð þau, sem nú loksins — 20 mánuðum síðar — hafa bor izt til eyrna allmennings. Liðsforiniginn Wiiliam L. Calley, 26 ára, var foringi eins herfiokksins. Hann hiefur verið ákærður fyrir morð á 109 ó- breyttum víetnömskum borgur um. Undirfordngi í sama her- flokki, Daivid Mitehell liðþjálfi, 29 ára, hefur verið ákærður um morðtilraun. Fjórir aðrir menn, þ.á.m. Medina sjálfur, eru til rann- sóknar vegna miálsins. Einn maður úr þcssum þrem ur herfloikkum, Michael Bern hardt liðþjálfi, hefur lýst því sem gerðist — og það sama hafa tveir aðrir bandarískir her menn gert. „Þetta var ailt gert með svo köldu blóði. Þetta var hreint og klárt morð oig ég stóð þarna og horfði á“, segir Bernhardt. Hann kvaðst hafa tafizt að- eins, þegar herflokkarnir fóru inn í þorpið, og var því á eftir hinum hermönnunum, sem voru undir beinni stjórn Calleys liðs foringja og herflokks hans. Þeg ar hann kom inn í þorpið, blasti hörmuleg sjón við honum: „Söfnuðu fólki saman í hópa og skutu það" — Þeir fmenn Calleys liðs- foringja) skutu þarna í allar áttir. En enginn skothríð kom á móti þeim — það sá ég strax. Ég hélt því, að við værum að sækja inn í þorpið. Ég gdkk inn að þorpinu og sá þá þessa menn gera furðu lega hluti. Þeir höguðu sér á þrennan hátt. 1) þeir báru eid að byngjum og kofum og biðu þar til fiólkið kom út úr þeim og skutu það þá. 2) þeir fóru inn í byrgin og skutu á ailt sem þar var og 3) beir söfnuðu fólki saman í hópa og skutu það niður. Þegar ég gekk inn í þorpið sá ég ihrúgur af fólki um allt þorpið . . . alls staðar. Ég sá þá skjóta M79 (sprenigjuvarpa) inn 1 hóp fólks, sem var enn á lífi. En þeir notúðu annars aöaltega vél byssur. Þeir skutu konur og börn alveg eins og alla aðra. Okkur var ekki sýnd nein andspyrna, og ég sá aðeins þrjú vopn, sem fundizt höfðu. Eng inn féll eða slasaðist hjé okkur. Þetta var eins og í hverju öðru víetnömsiku þorpi — gamlir menn, konur og börn. Satt að segja þá man ég ekki til þess að hafa séð einn einasta mann á herskyldualdri í þorpinu, hivorki lifandi eða dauðan“. Bernhardt kvaðst ekki vita nákvaamlega hversu margir þorpsbúa voru drepnir þennan daginn, en sagði að óopinber talning líka hefði verið um 300. Han bætti ’yvi við, að hann hefði síðar heyrt aðrar tölur — allí frá 170 upp í rúmlega 700. Hann kvaðst he'ldur ekki vita hversu marga Calley liðs foringi drap sjálfur, en „ég veit að hann drap heilan hedl ing af fólki.‘ íhúar þarna í nágrenninu hafa sagt blaðamönnum, að 567 þorpsbúar hafi látið lffið í þessum aðgerðum bandarísku hermannanna. „Alveg eins og nazistarnir" Annað vitni er óbreyttur hermaður, Michael Terry. Þeir gengu beint í gegnum þorpið og skutu hvern sem þeir sáu. &vo virðist sem eng inn hafi sagt neitt — þeir iófcu bara til við að draga fiólk út og skjóta það.“ Á einum stað, sagði hann, röðuðu þeir 20—30 mönnum upp á skurðarbarmi og skutu þá. — Þeir höfðu þá í einurn hópi við skurðinn — alveg eins og nazistarnir . . einn yfirmað ur fyrirskipaða ungum her- manni að skjóta hópinn niður með vólbyssu, en hann gat það ekki. Hann fileyigði vélbyssunni niður og yfiimaðurin tók hana upp sjáffur . . . Ég man ekki eftir að hafia séð karlmenn í skurðinum, þetta voru yfirieitt konur og böm.“ Síðar þegar Terry var ásamt félögum sínum í herflokknum áð fá sér að borða rétt hjá skurðinum, tók hann eftir því „að sumir þeirra önduðu enn — þeir voru illa særðir. Þeir áttu ekki að fá neina læknisaðstoð, svo við skutum þá, skutum sennilega fimm þeirra . . .“ 3—4 ára drengur „fylltur af byssukúlum" Annar hermaður seigist muna eftir litlum dreng, 3ja eða Framhald á bis 10. Nokkrir sluppu úr fjöldamorðunum í Mai Lai, einkum með því að liggja sem dauðir innan um líkin. Einn þeirra er pilturinn á myndinni, sem í dag er 14 ára, en hann missti tvo fingur í skotárás. W" SERSTOK ^ FÁGUNARMEÐFERÐ r ALLTAF JAFN Á ÁFERÐARFALLECTl nrOGNA EKKT NE HRUKKAST, LAUS VIÐ is^SLITGLJÁA^ FLOSIÐ MJUKT OG ^ FJAÐURMAGNABy NÍÐSTERK, MEÐ ^ . LIMDUM BOTNlJ GLUGGATJOLD f Alullargluggatjöldin frá Últímu hafa hlotið i sérstaka fágunarmeðferð, umfram önnur gluggatjöld, hérlendis. Það er m. a. þess vegna að þau halda sér sérlega vel, eru sem ný eftir hreinsun-alltaf jafn-áferðarfalleg. i GÓLFTEPPI AKLÆÐI Hjá Últímu fáið þér gólfteppi úr alull (verð: kr. 690 m2) og einnig teppi úr nælon-evlan (verð: kr. 590 m2). Báðar gerðir eru með límdum botni, svo að teppin eru sterk og endingargóð. Alullaráklæðin frá Últímu togna hvorki né hrukkast. Þessu veldur fjað- urmögnun ullarinnar. Engin hætta á að pokar eða fellingar myndist í sætum húsgagnanna. Jc Þau krumpast ekki, togna ekki, bælast ekki. ★ Á þau kemur ekki slitgljái. Jc Það er auðvelt að hreinsa þau. Jc Þau endast vel. Zlltima Jc Þau fást í f jölbreyttu úrvali gerða og lita. Jc Athugið kosti þess að geta, á einum stað, samræmt liti á gluggatjöldum, áklæðum og gólfteppum. KJÖRGARÐI SlMI 22206

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.