Vísir - 06.07.1981, Side 6

Vísir - 06.07.1981, Side 6
VÍSIR Máiiudagur >G. júli> 1981. Slríðsástand í Reykjavík vegna laugardagsopnunarinnar: j „Ég loka ekki fyrr en hanú- j Iárnin veröa sett á mig” I allar hellur. Lögreglunni er sigað á mann án þess að nokkur tilkynning hafi borist frá ábyrgum eða óábyrgum aðila,” sagði Árni. ,,Hef opið hvað sem tautar og raular” Úti á Granda hafði lögreglan lokað hjá Seglagerðinni Ægi. Þórir Barðdal sagði að verslun- in hefði reynt að hafa opið, en það hefði ekki þýtt, þvi að um leið og viðskiptavinir hefðu stig- ið fæti inn fyrir þröskuldinn hefði lögreglan verið mætt og visað þeim frá. Harkan virtist þó mest i Þing- holtunum. Þar voru lögreglu- þjónar á verði við nokkrar verslanir, en eigendur þeirra höfðu staðfastlega neitað að verða við tilmælum hennar. „Ég ætla að hafa opið, hvað sem tautar og raular og eigi að vera lokað verður að vera hér lögregluvörður. Hér hefur verið opið á laugardögum i 20 ár og ég ætla mér ekki að láta einhverja gullkálfa i Kaupmannasamtök- unum segja mér að loka upp úr þurru”, sagði Haraldur Haraldsson, kaupmaður i Freyjubúðinni. ,,Hef opið uns handjárnin birtast” í sama streng tók Heiðar Vil- hjálmsson i versluninni Þing- holti við Grundarstig. „Lögreglan hefur komið hér tvisvar og ég sagði þeim að þeir gætu jú verið hér en ég myndi halda áfram að sinna minum viðskiptavinum til klukkan tólf. Ég verð hér uns þeir taka mig og handjárna,” sagði Heiðar. Sama afstaða kom fram i máli Eymundar Jóhannssonar i Finnsbúð við Bergstaðastræti. „Lögreglan hefur verið hér i þrjár helgar i röð, en við erum ákveðin i að loka ekki fyrr en i fulla hnefana. Raunar er fólkið mikið til hætt að koma á þessum tima, en við gefumst ekki upp„” - segir einn kaupmannanna ■ I I k. „Heyrðu, hvert ert þú að fara? Engin lausn hefur enn fundist á deilu kaupmanna i mörgum verslur.um i Reykjavik og Kaupmannasamtakanna um laugardagslokun verslana. Ljóst er að aukin harka færist i deiluna með hverjum deginum oghálfgert striðsástand varaði i miðborginni siðastliðinn laugardagsmorgun þegar blaðamenn Visis óku um bæinn og fylgdust með samskiptum kaupmanna, sem höfðu verslan- ir sinar opnar, og lögreglu- manna, sem þræddu á milli ■ þeirra og skipuðu þeim að loka. J ,,Bullandi,,traffik” i morgun Við göngugötuna i miðbænum I var opið i bókaverslun Sigfúsar ■ Eymundssonar, en þar höfðu félagar úr Verslunarmanna- | félagi Reykjavikur mætt viku áður og lokað. Þeir létu hins- vegar ekki sjá sig á laugar- | daginn og gengu viðskiptin þvi greiðlegafyrir sig. „Við höfum einungis fremsta hluta verslunarinnar opinn, en aðrir hlutar hennar eru lokaðir af. Hér versla nær aðeins erlendir ferðamenn á þessum tima, til dæmis er mikið keypt af kortum og þess háttar. Þetta er þjónusta, sem alls ekki má falla niður. Auk þess teljum við okkur falla undir ákvæði i kjarasamningunum, þar sem minjagripaverslunum og fleiri búðum er leyft að hafa opið á þessum tima,” sagði verslunar- stjórinn hjá Eymundsson. Frá miðbænum lá leið okkar vestur i bæ. Verslun Árna Einarssonar á horni Tómasar- haga og Dunhaga var opin, en þar hafði lögreglan komið viku áður og látið loka. Hún hafði aft- ur á móti ekki komið um morg- uninn. „Þaö hefur verið bullandi traffik hér i allan morgun eins og raunar alltaf i þau 20 ár, sem þessi verslun hefur haft opið á laugardagsmorgnum. Annars er þessi framkoma fyrir neðan Haraldur Haraldsson, kaupmaður i Freyjubúðinni, neitaði ákveðið að loka og þvi var settur lögregluvörður fyrir framan verslun hans og var öllum viðskiptavinum vísaö frá. „Ég ætla bara aðkaupa kaffiogeina kók.” „Nei, þú mátt ekki versla við þessa búð. Þú verður að fara annað.” sagði Eyvindur. Þannig er ljóst af þessari stuttu ferð um miðbæ Reykjavikur að aukin harka er að færast i deiluna um laugar- dagsopnunina og virðist hvor- ugur aðilinn ætla að gefa sig. — TT. - Heimingur bíianna komsl í mark Hótelralliö á Húsavfk var haldið nyrðra á laugardaginn var og gekk á ýmsu eins og við mátti búast. Rallið hófu 24 bilar, en aðeins helmingur þeirra komst i mark. Leiöin var þvi æði erfiö og torsótt en keppnin tókst þó i alla staði mjög vel. Það voru helst tvær sérleiðir i öxarfirði, sem reyndust ökuþór- unum erfiðar. Meðal annars var Ómar lét sig ekki muna um að prila upp á skyggni anddyrisins á Hótel Húsavik I sigurvimunni og flytja stutta tölu eins og honum er einum lagið. (Visismyndir: GS- Akureyri). komið að þeim Jóni Bragasyni og Bjarna Haraldssyni þar sem þeir sátu á þaki bfls sins úti i miðri á og var þaö endirinn á þeirri öku- ferð. A næstu sérleið endastakkst Escortinn hans Hafsteins Hauks- sonar út i móa og mun billinn vera nær ónýtur. Það voru þeir Jón og Ómar Ragnarssynir sem börðust hat- rammri baráttu við bræðurna Gunnlaug og Ragnar Bjarnasyni, um fyrsta sætið. Svo fór að lokum að þeir ömar og Jón sigruðu á Renaultnum sinum og fengu þeir 4 refsiminútur. Gunnlaugur og Ragnar urðu i öðru sæti á Ford Escort með 5.22 refsiminútur. I þriðja sæti urðu Eggert Svein- björnsson og Magnús Jónasson á Mazda RX7 með 6.23 refsiminút- ur. Þess má geta að ein kona tók þátt i Húsavikurrallinu, en það er engin önnur en Marianna Friðjónsdóttir. Hún komst i mark en hafnaði i 11. sæti. Hún lét það ekki aftra sér frá þvi aö ganga i það heilaga i gær og sá heppni er einnig nafnkunnur rallkappi, Birgir Bragason. — TT. Sigurvegararnir Ómar og Jón Ragnarssynir við Renaultinn sinn að rallinu loknu. HötelralliP á Húsavik: Omar og Jón slgruðu Bandarikjafarar komu saman I félagsheimili skáksambandsins og þar hlýddu þeir m.a. á sovéska stórmeistarann Alexei Suetin. Eftir erindiö tefldi hann fjöltefli viö islensku ungmennin og tapaði fjórum skákum. 22 ungir skákmenn til Bandariktanna: Keppa viö úrvalsiið jafnaldra sinna Siðdegis i dag munu 22 ungir og efnilegir skákmenn halda utan til Bandarikjanna þar sem þeir munudveija í vikutima við æfing- ar og keppni. Það er Skáksam- band islands og Taflfélag Reykjavikur, sem standa fyrir þessari för, i samvinnu viö bandariska skákmanninn John Collins, sem er islenskum skákunnendum að góðu kunnur, og heimsótt hefur island meö nemendum úr skákskóla sinum. íslensku krakkarnir, sem eru á aldrinum 11 til 17 ára munu m.a. etja kappi við jafnaldra sina bandarisku og mæta hálfgerðu unglingaiandsliði Sáms frænda, sem Collins hefur valið, bæði úr skákskóla sinum, sem er viðkunnur, og einnig úr öðrum fylkjum Bandarikjanna. Meðal annarra i islenska hópnum verða þeir Elvar Guðmundsson og Karl Þorsteins, en þeir koma til móts við hópinn i kvöld eftir að hafa keppt á World-open skákmótinu i New York-fylki undanfarna daga. A laugardag kom hópurinn saman til skrafs og ráðagerða og á þeim fundi fiutti sovéski stór- meistarinn Alexei Suetin tölu yfir Bandarikjaförunum. Að fundin- um loknum tefldi hann fjöltefli við 17 af þeim og bar það til tiðinda að hann beið lægri hlut i fjórum skákum. Er það til marks um styrkleika krakkanna, sem verða á faraldsfæti vestra. — TT.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.