Vísir - 06.07.1981, Page 8
8
Mánudagur 6. júli 1981.
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprent h.f.
Ritstjori: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Sæmundur Guövinsson. Aöstoóarfréttastjóri: kjartan Stefánsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen-
drup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna
Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena
Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir.
Blaðamaöurá Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig-
mundur Ö. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurösson, Gunnar V. Andrés-
son. útlitsteiknun: Magnús Ólafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvöröur: Eiríkur
Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Ritstjórn: Siöumúla 14, simi 86611, 7 línur.
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611.
Áskrif targjald kr. 80 á mánuöi innanlands og verð i lausasölu
5 krónur eintakið.
Vísir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14.
verndum náttúru landsins
Nú er sá árstími sem erlendir
ferðamenn eru hér hvað flestir
og ferðir íslendinga um eigið
land að ná hámarki, enda má
segja að hver sem vettlingi geti
valdið bregði sér í styttri eða
lengri ferðir í sumarleyfum.
Vísir hefur áður hvatt lands-
menn til að kynnast landi sínu
betur og þeim töfrum sem
náttúra þess býr yfir og því
óþarfi að fara fleiri orðum þar
um. Hins vegar er full ástæða til
að minna enn á nauðsyn þess að
ganga vel um viðkvæma náttúru
óbyggðanna.
I viðtali við Helgarblað Vísis
segir Árni Reynisson, fyrr-
verandi f ramkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs meðal
annars, að það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær vatnið f Land-
mannalaugum verði orðið heilsu-
spillandi vegna mengunar og að
gróður eigi þar í vök að verjast.
Sömu sögu sé að segja f rá Herðu-
breiðarlindum, þar séu gróður-
skemmdir orðnar miklar.
Full ástæða er til að gefa
þessum orðum Árna gaum, enda
koma þau heim og saman við
upplýsingar annarra sem best
þekkja til í þessum efnum. Verði
ekki gripið til aðgerða nú þegar
er hætta á að skemmdir verði
slíkar að þær verði seint eða
aldrei bættar. Slíkt má ekki
henda og verður að grípa til
ráðstafana strax til verndunar
viðkvæmum stöðum. Þar á
Náttúruverndarráð að hafa for-
ystu f samvinnu við þá aðila er
annast móttöku ferðamanna og
flutning á þeim um landið.
Svo illa vill hins vegar til, að
skilningur stjórnvalda á mik-
ilvægi Náttúruverndarráðs og
starfa þess virðist takmarkaður.
Verkefnum ráðsins fjölgar stöð-
ugt, en á sama tima er dregið úr
fjárframlögum til að halda
starfseminni gangandi. Árni
Reynisson segir í fyrrnefndu
viðtali, að yfirvöld séu hægt og
sígandi að ganga af stofnuninni
dauðri með þessum hætti. Von-
andi munu þær umræður sem nú
eiga sér stað um náttúruvernd
verða til þess að opna augu
þeirra sem yfir fjármálunum
ráða fyrir því, að það kostar fé
að gæta þeirra fjársjóða sem
viðkvæm náttúra landsins er.
Erlendum ferðamönnum hefur
verið kennt um hve vinsælir
áningarstaðir í óbyggðum eru
orðnir illa leiknir. Eflaust eru
margir útlendingar sem hingað
koma ekki nægilega upplýstir um
með hve mikil varkárni þarf að
fara um landið svo gróður-
skemmdir hljótist ekki af, en
hlutur okkar íslendinga er engu
betri nema siður sé. óbyggða-
farar birta ófagrar lýsingar á
skemmdarstarf i manna sem aka
afImiklum torfærubílum sínum
yfir hvað sem fyrir verður. Hóp-
drykkja (slendinga á stöðum eins
og Þórsmörk með tilheyrandi
spellvirkjum er ömurleg
staðreynd sem talar sínu máli.
Stórauka þarf fræðslu um
náttúruvernd og herða allt eftir-
litum leiðog ferðamönnum verði
beint á fleiri staði en nú er gert.
Strax þarf að hamla gegn sívax-
andi umsvifum erlendra ferða-
skrifstofa sem fara með stóra
hópa vítt og breytt um landið, án
nokkurs eftirlits af okkar hálfu.
Sumir þessara aðila flytja með
sér vistir til landsins og eiga ekki
önnur viðskipti hér en olíukaup á
bílana sem þeir koma með og
ferðast á. ótal dæmi eru um að í
þessum hópferðum séu náttúru-
verndarsjónarmið lítils metin á
meðan þeir aðilar íslenskir, sem
annast óbyggðaferðir, eru yfir-
leitt kunnir af öðru en að traðka
niður gróðurinn. í þessu tilfelli
virðist nóg að gera þá kröfu, að
þeim lögum sé framfylgt sem í
gildieru.
Með bættu vegakerfi munu
ferðalög íslendinga um eigið
land stóraukast í framtíðinni og
sömuleiðis er óhætt að reikna
með að erlendum ferðamönnum
fjölgi verulega á næstu árum.
Það er því ekki eftir neinu að
bíða hvað varðar eflingu
náttúruverndar, svo ekki hljótist
af meira tjón en þegar er orðið.
Með bættri skipulagningu stafar
okkur engin hætta af auknum
ferðalögum um landið.
iíiý kýnsióð
Þcgar Alþýðubandalagið und-
irbjó sig undir kosningabaráttu
snemmaárs 1978 meö kröfugerð
um „samningana í gildi’’ og
bauð mönnum að kjósa gegn
„kaupránsfiokkunum ”, var
verkalýðsforysta Alþýðubanda-
lagsins látin efna til útfiutnings-
banns. Til að hvetja sína menn
tildáöa og efla áræöi Guömund-
ar J. var ritstjórapenna Þjóð-
viljans stýrtaf miklum eldmóði.
Þáverandi ritstjóri Þjóðviljans
var Svavar Gestsson núverandi
ráðherra og formaður verka-
lýösflokksins. i leiðara blaðsins
á þessum tfma mátti lesa
mergjaðar setningar á borð við
þessa: „Alþingi götunnar þarf
að sýna hrokagikkjum valdsins
við Austurvöll, hver það er, sem
ræöur úrslitum um allt efna-
hagslff þessa þjóðfélags.” Ahrif
Alþýðubandalagsins I forystu
verkalýðshreyfingarinnar voru
notuð til hins ftrasta gegn rfkis-
stjórn, sem leyfði sér aö leggja
fram lög á Alþingi um skeröingu
vfsitölubóta.
Alþýðubandalagið
fær lyklavöldin
Einhelzta ástæða þess, að Al-
þýðubandalagið var leitt til
válda í ndverandi rikisstjórn
var sú, aö með þeim hætti væri
hægt aö tryggja hlýðni og undir-
gefni Alþýöubandalagsforyst-
unnar í verkalýöshreyfingunni.
Ýmsirtelja nefnilega, aö ekki sé
hægt að stjórna landinu án þátt-
töku kommiínista, ef tryggja á
vinnufriðinn. A þessari trii örl-
aði strax eftir kosningar hjá
mörgum þ.á.m. sumum sjálf-
stæöismönnum og það var þessi
þjóðsaga, sem færði Alþýðu-
bandalaginu lyklavöldin að fs-
lenska þjóðarbúinu. Af þessari
trú stafar lýðræðinu mikil
hætta, þviað hér er verið að við-
urkenna misbeitingu valds
þeirra manna, sem sjaldnast
eru kjörnir i kosningum, en hafa
hreiðrað um sig á ritstjórnar-
skrifstofu Þjóðviljans og i for-
ystusVeit verkalýöshreyfingar-
innar. A sama hátt er verið að
rýra gildi lýðræðislegra kosn-
inga til Alþingis. — Þegar vant-
ar upp á pólitiskan styrk Al-
þýðubandalagsins á Alþingi er
krafturinn sóttur i verkafalls-
rétt verkalýðshreyfingarinnar,
neöanmóls
„Ástæðan fyrir því að
Alþýðubandalagið lætur
ekki skerast i odda nú í
varnarmálum og á öðrum
sviðum, þar sem þeir
hafa sérstöðu, er einfald-
lega sú, að nýir foringjar
hafa tekið upp nýjar að-
ferðir — ný vinnubrögð."
Friðrik Sophusson alþm.
lýsir vinnubrögðunum í
þessari grein.
- ní vinnuDPöflD
Forystumenn Alþýðubandalagsins vinna að þvl aö koma sér fyrir í kerfinu til aö eftirleikurinn
veröi auöveldari.
sem knýr fram pólitískar
ákvarðanir i félagsmálapökk-
um.
Nú vinnubrögð
Astæöan fyrir því, að Alþýöu-
bandalagið lætur ekki skerast i
odda nú i varnarmálum og á
öðrum sviðum, þar sem þeir
hafa sérstöðu, er einfaldlega sú,
að nýir foringjar hafa tekiö upp
nýjar aðferðir — ný vinnubrögð.
Uppgjör innan rikisstjórnarinn-
ar, hentarekki á þessari stundu,
þvi aö forysta Alþýðubanda-
lagsins ætlar sér fyrst að
treysta völd sfn i kerfinu og
styrkja þannig stöðu sina t.d.
með stöðuveitingum. Að þvi
loknu veröur eftirleikurinn auð-
veldari. Þessum viðhorfum er
óspart veifaö innan flokksins til
að sætta göngumóöa flokks-
menn viö stjórnarsamstarfið.
Dagskipanir Svavars og Ólafs
Ragnars eru: Gangið oftar,
gangið lengra —, en gangið i
nafni friðar og réttlætis, — en
gangið samt ekki að stjórnar-
samstarfinu dauðu — fyrr en
betur stendur á.
Aö undanförnu hefur ekki bor-
ið mikið á skrifum eins og þeim,
sem vitnaö er til i upphafi þessa
greinarkorns, þrátt fyrir bráða-
birgðalög um visitöluskerðingu
launa. Nú er verkalýðurinn ekki
eggjaöur til átaka. Nú nefnir
málgagn þjöðfrelsis ekki Al-
Jxngi götunnar. Nú stunda
framámenn verkalýðshreyfing-
arinnar hins vegar sólböð viö
Svartahaf og félagsmálaráð-
herrann situr við simann til að
þurfa ekki að óhreinka sig við
lausn læknadeilunnar. Nú þarf
tíma til að koma sér fyrir i ke.rf-
inu. Og þegar stöður eru veittar
gegn vilja eigenda fyrirtækj-
anna minnist Þjóðviljinn að
sjálfsögðu ekki á „hrokagikki
valdsins” við Arnarhvol.
Nýja kynslóðin
kann sitt fag
Nýja kynslóöin i forystu Al-
þýðubandalagsins telur þessa
stundina heppilegt að setja upp
krataandlitíö og sýnast ábyrg á
meðan hún festir sig i sessi i
stjórnkerfinu. Aöferðimar eru
aö sönnu nýjar. — En hver trúir
þvi aö markmiðinhafi breyt*ír
Meö nýjum aöferðum * abná
betri árangri en þeil geröu Ein-
ar og Lúðvík Nýja kynslóðin i
AlþýðuKaiidalagsforystunni
kann sitt fag - og treystir á
„frjálslyndi” samstarfsmanna
úr öörum flokkum.
F riörik Sophusson
alþingismaöur