Vísir - 06.07.1981, Síða 15

Vísir - 06.07.1981, Síða 15
Mánudagur 6. júli 1981 15 Geysilegt úrval — lægsta verð myndalistar HUSGACNA BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK HUSGOGN HOLLIN SÍMAR: 91-81199-81410 íallt undir einu þaki þú verslar í w- húsgagnadcild „ tcppadeild byggingavorudeild ^ raf deild þú færö allt á einn og sama kaupsamninginn/ skuldabréf og þú borgar allt niður i 20% SEM ÚTBORGUN, og eftirstöðvarnar færðu lánaðar allt að 9 MÁNUÐUM. Nú er að hrökkva eða stökkva, óvist er hvað þetta tilboð stendur lengi tokkur getur snúist hugur hvenær sem er). Þegar þú hefur reitt af hendi útborgunina og ritað nafn þitt undir KA UPSA MNINGINN, - kemur þú auðvitað við i MATVÖRUMARKAÐNUM og birgir þig upp af ódýrum og góöum vörum. OPIÐ: Allar deildir eru opnar til kl. 22 f immtudaga og Matvörumarkaðurinn opinn til kl. 22 föstudaga en aðrar deildir til kl. 19 Jón Loftsson hf. LOKAÐ LAUGARDAGA. Hringbraut 121 Simi 10600 Barnahúsgögn kr. 500 út og kr. 500 á mánuði víslr Reynslan hefur sýnt það að það er ekki sfður við hæfi kvenna að vera prestar” sagði Þórður örn Sigurðsson, „og prestkonum fjölgar örugglega i framtíðinni. Sr. Valdimar Hreiðarsson. ..,,Ég get ekki verið án Presta- stefnunnar.” .011 erfilt lyrir ungan prest aö hefja störf úti á landí” „Staða prestastéttarinnar hefur breyst” sagði sr. Valdi- mar Hreiðarsson prestur á Reykhólum í Austur-Barða- strandasýslu. „Það er ekki eins afgerandi munur á prestum og almenningi og var. Samfara þvl tel ég að mun mcira sé leitað til presta með veraldleg efni en áð- ur fyrr. Þetta er ánægjuleg þró- un. Mér býðst þá tækifæri til að sinna hluta af þeim störfum sem ég hef verið kallaður til”. En nii situr þií i litlu sveitar- prestakalli. Hvernig er það fyrir ungan prest að hefja störf Uti á landi? „Það er mjög erfitt, en jafn- framt ánægjulegt. Oft þarf að hefja störf með þvi að koma af stað ýmiskonar starfssemi, svo sem kirkjukórum, sem hefur legiðniðri. Ogi þvi eru oft erfið- leikarnir fólgnir. I stærri prestaköllum i fjölmenninu er þetta sjálfvirk „smurmaskina” sem bara gengur og gengur. Nýiítskrifaðir guðfræðingar eru mjög illa undirþað biinir að takast á við preststörf, en hins- vegar vel bUnir fræðilega. Það má skrifa þetta á reikning guð- fræðideildar Háskólans” sagði Valdimar. Hver er þýðing Prestastefn- unnar fyrir þig? „Ég tel m ig ekki geta verið án hennar. Hér hitti ég kollega mina, við skiptumst á skoðun- um og ræðum málin” sagði sr. Valdimar Hreiðarsson. M Sr. Gunnar Björnsson. ...Svakalega finnst honum ég vera sætur.” Algjðrl æði að vera prestur „Æðislegt, algjört æði” sagði sr. Gunnar Björnsson prestur i Bolungarvik þegar blaðamaður spurði hann að þvi hvernig það væri að vera prestur. Um leið hnippti hann i dr. Björn Björns- son og hvislaði: „Tungutak dagsins”. „t samskiptum við fólk er best að vera sem óprestlegast- ur” sagði sr. Gunnar. Leitar fólk mikið til presta með vandamál sin? „Já, það hefur mikið sam- band viö okkur og reynir að flækja okkur I allskonar við- fangsefni”. Þegar þetta langt á viðtalið var liðið hafði Emil ljósmyndari verið að munda myndavélina i grið og erg og sr. Gunnar sagði „Svakalega finnst honum ég vera sætur.” Við blaðamann: „Ég er alltaf svona léttur þegar ég er nýbúinn að spila, eins og nUna áðan”. Asamt preststörfum leikur sr. Gunnar mikið á selló og æfir stift. „Ég tek æfingarnar æðislega alvarlega, æfi tvo tima á hverj- um degi. Það er mjög brýnt að fella engan dag Ur. Ef það gerist finn ég muninn strax. Falli tveir dagar Ur finnur konan það og öskrar Ur eldhúsinu: Hvað er þetta maður, er þér að fara aft- ur. NU, ef það falla hins vegar þrir dagar Ur kem ég næst að hljóðfærinu sem gestur”. Geturðu ekki hugsað þér ann- að starf? „Nei, preststarfið er mitt óskastarf, ásamt sellóleik. Það kemst ekkert annaö fyrir” sagöi sr. Gunnar Björnsson. Sr. Dalla Þórðardóttir. ...,,Ég finn mig strax sem ein Ur hópn- um.” fV' .Prestsem- bættið er alltai sérstakt” „Ég finn mig strax sem ein Ur hópnum’’ sagði sr. Dalla Þórðardóttir, nýskipaður prest- ur á Bíldudal. „Prestembættið er alltaf sér- stakt og á að vera það. Það er ekkert slæmt við það.” Hvað ræður þvi að fólk leitar til presta með vandamál sin? „Embættið, tel ég, en jafn- framt persónuleiki prestsins” sagði Dalla. Sr. Ingólfur Ástmarsson. ...Ég er Guði þakklátur... Ungir prestar eru ákaflega áhugasamir” Eins og alkunna er lætur Hr. Sigurbjörn Einarsson biskup yfir tslandi af störfum I haust. Jafnframt honum hætta þrir aldraðir prestar störfum og blaðamaður náði tali af einum þeirra, sr. Ingólfi Astmarssyni, presti f Mosfellsprestakalli i Grímsnesi. Sr. Ingölfur hefur verið prestur I 39 ár, þar af átta ár sem biskupsritari. Hann var spurður að þvl hvaö honum væri efst I huga á þessum tlmamót- um. „Þakklæti. Þakklæti til Guðs að hafa gefið mér tækifæri til að vera sóknarprestur svo lengi. Starf prestsins er og verður alltaf sérstætt. Það á ekki sinn h'ka, þvi öll prestverk eru hátið- legar athafnir. Mér hefur alltaf fundist skimin og fermingar- undirbiiningurinn vera yndis- legustu athafnimar. Nokkur orð um unga presta? „Mér finnst ungir prestar vera ákaflega áhugasamir og vakandi. I þeim hópi eigum við bráð-efnilega menn bæði vel ménntaða guðfræðinga og áhugasama starfskrafta” sagði sr. Ingólfur Ástmarsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.