Vísir - 18.07.1981, Blaðsíða 2
2
VISIR
• Láugardagur • 18! júlí 1981
a skotsponum |||
Stjórnad bak vid lás og slá?
Einkar frumleg deila hefur
komið upp á milli Gunnars Thor-
oddsen og húsafriðunarnefndar,
ef deilu skuli kalla. Þannig er mál
með vaxtavöxtum að Gunnar vill
fá tvöfalt gler í Stjórnarráðshúsið
þvi að þar mun kalt vera um vet-
umætur og erfitt að stjórna
óþjóðinni við slikar aðstæður. En
þeir i húsafriðunarnefnd kalla sko
ekki allt hana ömmu sina þvi að
þeir neita forsætisráðherranum
eindregið um hina frómu bón.
Astæða nefndarmanna ku vera sú
að Stjórnarráðshúsið er gamalt
og einstakt hús, ergo: þvi má
ekki breyta frá upprunalégri
mynd.Enþað þarf betri rök til að
slá hann Gunnar Thor út af laginu
þvi aö nú hefur hann breytt ósk-
um sinum til samræmis við við-
horf húsafriðunarnefndar.
Gunnar greip nefnilega rök-
semd friðunarmanna á lofti og
sagði sem svo að fyrst húsið ætti
að vera sem næst upprunalegri
mynd væri vist best að rifa rúð-
umar úr og koma tukthúsrimlun-
um fyrir á nýjan leik. Hvort eitt-
hvað hlýni þar innan dyra við þá
ráðstöfun skal ósagt látið en
óneitanlega er þetta mjög athygl-
isverð hugmynd enda væri það
eftir öðru að landi og þjóð væri
stjórnað á bak við lás og slá. En
spurningin er samt sem áður
þessi: munu æðstu embættis-
menn þjóðarinnar sitja á kom-
andi vetri með trefil og sultar-
dropa i nösum við störf sin? Ten-
ingunum hefur veriö kastað til
húsfriðunarnefndar.
Bubbi
utangarðs?
Nú hefur eitthvað slegist upp á
vinskapinn hjá þeim Utangarðs-
mönnum en þeir hættu eins og
kunnugt er i miðju kafi við hljóm-
leikaferð um Skandinaviu fyrr i
sumar. Ástæða óeiningarinnar i
bandinu er sögð vera sú að þeim
Pollock-bræðrum hafi verið i nöp
við það hve Bubbi Morthens spil-
aði sig mikið númer. Bræðurnir
koma sennilega til með að halda
áfram með Mennina utangarðs en
Bubbi hefur á prjónunum að
stofna nýja grúppu. Annars er
alls ekki loku fyrir það skotið að
Utangarðsunnendur fái að berja
goðin augum sameinuð einu sinni
enn þvi' að þeir koma jafnvel til
með að verða stórt númer á mikl-
um útihljómleikum sem fara ein-
hversstaðar fram um Verslunar-
mannahelgina...
Hvad segja
stjörnurnar?
Stjörnufróðir menn velta nú
talsvert vöngum vegna biskups-
kjix-s og það ekki að ósekju:
Sigurvegari fyrri kosningaum-
ferðar, sr. Ólafur Skúlason á
sama afmælisdag og forsætisráð-
herra landsins. Fari svo að sr.
Ólafur sigri i næstu umferð verða
þvi bæði veraldlegur og andlegur
yfirmaður þjóðarinnar fæddur þ.
29«desember. Hitt kemur stjörnu-
fræðingum alls ekki saman um
hvort hér sé um að ræða góð
tiðindi eða slæm.
En samkvæmt stjörnufræðum
ættu þeir dr. Gunnar og sr. Ólafur
að eiga ýmislegt sameiginlegt,
svo sem: „þolinmæði, hæfileika
og hagsýni. Þeir eru metorða-
gjarnir og ósveigjanlegir og jafn-
vel óvægnir en þó ávallt hrein-
skilnir. Og i aðra röndina dálitið
draumlyndir og elskir að listum.
Trygglyndi og vinfesti er þeim i
blóð borið” segja stjörnufræðing-
arnir.
Aö reka eöa
reka ekki
Það er hart i ári hjá blessuðum
KR-ingunum og öðrum vesturbæ-
ingum þessar vikurnar. Fótbolta-
stórveldið komið út á ystu nöf 1.
deildarinnar og sýnist aðeins
timaspursmálhvenær fallið kem-
ur. Og það hefur fleira breyst en
knattspyrnan við Kaplaskjólsveg
— a.m.k. virðist hugur manna i
innsta búri hafa snúist. 1 fyrra
ráku þeir þjálfarann, Magnús
Jónatansson og sögðu hann ekki
geta náð þvi besta út úr leik-
mönnunum. Þá voru KR-ingarnir
þó i einu toppsætanna i deildinni.
Nú verma þeir botninn undir
stjórn vestur-þýska þjálfarans
Manfred Stevens og segjast ekki
hafa „nógu góðan mannskap '. —
En á liðinu sjálfu hefur engin
breyting orðið, sömu leikmenn
sparka boltanum með Vesturbæj-
arveldinu og voru undir stjórn
Magnúsar, þegar hann var rek-
inn.
Vöxtur til
grundvallar
Nú bíta konur um land-
I iö allt í skjaIdarrendur
| skotra girndaraugum til
| valdastóla í héruöum og
I mun skammt að biða
* staðfestingar orðrómsins
I um kvennalista bæði
| norðan heiða og sunnan.
■ „Þeim skal ekki lengur liðast
1 að stjórna i trássi viö hagsmuni
I kvenna” hvæsti forgöngukraft-
■ ur kvennasambands ibúasam-
■ taka Glerárgötu I simann, þegar
| tiðindakraftur Visis innti hana
m eftir stefnuskrá listanna.
Samkvæmt upplýsingum for-
I göngukraftsins hefur ekki verið
■ endanlega gengiö frá stefnu-
I skránni og ekki vitaö hvenær
■ það veröur: „Viö Gunna vorum
. alveg búnar að ganga frá þessu,
I en þegar við lögðum þaö fyrir i
| morgunkaffinu i morgun hjá
! henni Jónu, þú kannast viö
I hana, hún er mamma hans
■ Bubba sem Þórdis var aö slá sér
[ upp meö á ballinu i Gjögri i
| haust og, já þá varö Jóna alveg
| snar, þvi henni finnst alls ekki
1 rétt að fara fram á niðurlagn-
| ingu gjalda á Tampax, hún seg-
■ ist aldrei nota þaö og sér alls
" ekki hvað þetta er þýöingar-
| mikið fyrir allar landskonur.
, Við getum auðvitað alls ekki
I gert aö þvi þótt aö hún noti ekki
I Tampax, ég meina þessir
. tappar eiga fyrir löngu aö vera
I skyldaðir, þeir segja jú I auglýs-.
L..........
ingunum að maður verði
frjálsari af að nota þá, en þetta
er nú auðvitaö alveg eftir henni
Jónu, hún er auðvitaö bara af-
brýðissöm fyrir Bubba hönd
siðan Gaggi stakk undan honum
og þau eru m.a.s. búin að trúlofa
sig, hann og Þórdis....”, sagði
forgöngukrafturinn. Auk þess
sagði hann:
„Það liggur að sjálfsögðu i
augum uppi að svona mál hljóta
að veröa númer eitt, tvö og þrjú
og það er einmitt ágætt að þú
hringdir þvi þaö er eins og
enginn skilji þetta. Forsenda
þess að konur bjóða fram sér-
stakan lista — fyrirgefðu get-
urðu sagt mér hvaö klukkan er?
Hálf tólf, guð! Ég er alveg i
drasli þvi eldhúsklukkan er
biluö og ég er alltaf að minna
hann Jón á að gera viö hana, en
þú veist hvernig þessir
karlmenn eru, koma engu i
verk. En ég verö aö drifa mig,
I FRÉTTA-
SKUGGANUM:
geturðu beðið á meðan ég set
upp kartöflurnar, hann Jón
verður alveg snar ef maturinn
er ekki til þegar hann kemur
heim úr vinnunni.”
Hlé.
„Fyrirgeföu, ég veit þú skilur
þetta, þú ert jú eins vaxin og ég
ekki satt! Við verðurn að standa
saman. Eins ogégvarað segja,
þá er forsenda listans sú að viö
erum jú allar eins, við fáum
brjóst á vissum aldri og við höf-
um blæðingar og allt það. Þetta
setur okkur auðvitað i allt aöra
aðstöðu en þá. Ég bara skil ekki
hvers vegna það skilja þetta
ekki allir.”
— En hvað um stjórnmála-
legan ágreining meðal kvenna,
Ad visu ekki
til Sviss, en...
Þær sögur hafa gengið af
Magnúsi Gunnarssyni forstjóra
Arnarflugs, að hann sé á leiðinni
til Alusuisse i góða stöðu — hvorki
meira né minna. Helgarblað Visis
leyfir sér að fullyrða að enginn
fótur er fyrir þeim sögum. Aftur á
móti er hitt alveg rétt, að Magnús
er að yfirgefa Arnarflug. Hann
mun hafa i huga að stofna ein-
hvers konar ráögjafaþjónustu
fyrir viðskiptalifið.
Hver kemur í staðinn?
Brottför Magnúsar frá Arnar-
flugi vekur aftur upp aðra
spurningu, m.fl. þá hver komi til
með að fylla skarð hans þar.
Böndin berast nú að Bergþóri
Konráðssyni, fyrrum hjá SIS en
nú aðstoðarframkvæmdastjóra
hjá Arnarflugi. Þvi embætti hefur
hann gegnt i rétta tvo mánuði og
sem sagt, sagan segir að hann
stefni i forstjórastólinn.
1
nú eru alls ekki allar konur
sammála um ja t.d. hvort
herinn á að vera eða fara?
„Ég get bara alls ekki skilið
hvers vegna það ætti að skipta
máli. Auk þess dettur okkur
ekki i hug að fara að stjórna
svoleiðis hlutum, það var ein-
mitt þetta sem Alla spurði um,
hún þú veist hún sagðist alls
ekki geta hugsað sér að fara að
vera i félagi meö Sullu þvi Sulla
vill að herinn fari, Sulla vill nú
að allir karlar fari en það er
annað mál. Ég meina, hvað
kemur það málinu við, eigum
við aö fara að skipta okkur að
svona löguðu. Mér finnst bara
við ættum að láta malbika i
kring um kaupfélagið, ég meina ■
þetta er alveg ferlegt eins og er.
Og svo þarf auðvitaö aö fella
niöur skatta af þvottavélum og
þurrkurum. Konur verða að
standa saman. Og um leið og við
erum búnar að ganga frá
þessari stefnuskrá þá geri ég
ráð fyrir að listinn verði settur
saman. Ég veit bara ekki hvað
ég á að gera við Jónu, hún þver-
neitar að vera með, en eins og
ég sagði, það er nú bara út af
Bubba. Nú heyri ég fótatakið
hans Jóns, ég verö að hlaupa.”
Ekki tókst að hafa upp á Jónu
til að fá hennar hlið á málinu,
enda er eiginmaður hennar ekki
i simaskránni. En ef marka má
orð forgöngukraftsins liggur
likamsvöxtur kvennanna til
grundvallar sameiginlegu
framboði þeirra. Blaöið reyndi
aö hafa upp á öörum félaga-
samtökum, sem leggja vöxt
meðlimanna til grundvallar, en
þau reyndust engin til utan
Samtaka fatlaðra. 1 leitinni hitti
tiðindamaður þó formann
múrarafélagsins og kvaöst hann
hafa þær fréttir að færa að
skipta ætti félaginu niöur i
deildir eftir háralit. En nær
varö ekki komist sambæri-
legum hagsmunasamtökum.