Vísir - 18.07.1981, Qupperneq 15
,,Ég hef trú á þvi, að hér á
Húsavik verði hægt að byggja upp
stönduga ferðamannaþjónustu,
þvi aliar aðstæður bjóða upp á
slikt. Hér i bænum er margt að
sjá og skoða og héðan er þægilegt
að heimsækja ýmis náttúruundur
i Þyngeyjarsýslum i dagsferðum.
Ég get nefnt Asbyrgi, Jökuisar-
gijúfur, Hijóðakletta, Dettifoss,
Mývatnssveit og Goðafoss, svo
dæmi séu tekin”, sagði ólafur
Skúiason, hótelstjóri á Húsavik,
þegar Visir heimsótti Hótel Húsa-
vik á dögunum. ólafur tók við
rekstri hótelsins 1979, en starf
hans hefur lengst af verið tengt
ferðamannaþjónustu. t 12 ár var
hann til að mynda bryti á gamla
góða Gulifossi.
,,Ég sá geysilega mikið eftir
Gullfossi þegar hann var seldur,
að mig minnir til Arabalanda.
Stuttu siðar brann hann og sökk.
Fáum annað skip
,,Ég tel að grundvöllur sé fyrir
útgerö á sliku skipi frá íslandi.
Fólk er farið að þreytast á fluginu
og það eru margir sem vildu
heldur minni hraða, en njóta þess
i stað þæginda og öryggis um borð
i vistlegu skip. Ég geri mér fylli-
lega grein fyrir þvi, að það yröi
ekki grundvöllur fyrir þvi að sigla
skipinu héðan yfir vetrarmán-
uöina. Það bil mætti hins vegar
brúa með þvi að hafa skipið I
ferðum milli hafna i suðlægari
löndum þann tima. Farþegarnir
gætu eftir sem áður verið
islenskir, þvi þeir gætu einfald-
lega farið i leiguflugi til móts við
skipiö. Þetta var draumur okkar
á gamla Gullfossi, sem þvi miöur
varö aldrei að veruleika”, sagði
Ólafur. Ólafur er fæddur og upp-
alinn i Reykjavik, var meira að
segja Vesturbæingur og þar að
auki KR-ingur. Nú styður hann
Völsunga, en hvað kom honum til
aö fara norður?
Glæsilegt hótel
„Hótelrekstur og ferðamanna-
þjónusta hefur alltaf verið mitt
uppáhald. Það freistaði min þvi,
þegar stjórnunarstarf við glæsi-
legt hótel var i boði og ég sló til.
Ég sé heldur ekki eftir þvi, þar
sem ég kann vel við mig á Húsa-
vik og ég kann sérstaklega vel við
þá heimamenn, sem ég hef
kynnst”.
Hótel Húsavik býöur 34 2ja
manna herbergi, auk þess sem
hótelið hefur upp á herbergi i
einkahúsum að hlaupa, þegar að-
sóknin er sem mest yfir sumarið.
Þá eru einnig svefnpokapláss i
barnaskólanum. Yfir sumar-
timann er hótelið nær fullbókað
hverja einustu nótt en nýtingin á
vorin og haustin ræðst af ráð-
stefnuhaldi. Þrátt fyrir það er
nýtingin yfir árið ekki nema rétt
rúm 30%. Reksturinn gerir þvi
ekki betur en að standa undir sér,
þannig að vextir og afborganir af
lánum hafa lent á eigendum. Þeir
eru að stærstum hluta Húsavikur-
bær, Kaupfélag Þingeyinga og
Flugleiðir. Ýmislegt er i deigl-
unni til að ná betri nýtingu á
hótelinu yfir vetrarmánuðina, að
sögn ólafs, en ekkert er enn full-
mótað.
„Flugleiðir eru með herferð I
gangi til að auka feröalög íslend-
inga innanlands meö svonefndum
„reisupassa”. Serstök áhersla er
lögð á Húsavlk i þessari herferð,
en það tekur sinn tima að vinna
þetta upp. Þá hefur Ferðaskrif-
stofa rikisins boðið upp á hring-
ferð i sumar fyrir Islendinga i
júli. Það er ánægjulegt aö full-
bókað skuli vera i þá ferð og mér
er kunnugt um að önnur er i
bigerð. Ef til vill eru Islendingar
að komast upp á lagið með aö
ferðast með áætlunarbilum, þar
sem þeir þurfa ekki að hafa
áhyggjur af neinu.
Þá hafa heimamenn gert ýmis-
legt til að laöa fólk að. Hér eru
tveir bátar tilbúnir að fara meö
ferðamenn á fengsæl ýsumið með
sjóstangir og einnig verður hér
hestaleiga i sumar. Þá er hér
mjög góð aðstaða til skiðaiðk-
unnar, þegar snjór er, og þaö þarf
ekki að fara nema rétt út fyrir
hóteldyrnar til aö spenna á sig
skfðin, þvi brekkurnar eru hér
nánast við húsvegginn”, sagöi
Ólafur.
Þegar Visir var á ferð á Húsa-
vik, þá var þar dumbungsveður
meö sudda og kulda. Ólafur var
aö lokum spurður hvort það hefði
engin áhrif á aðsóknina?
„Þetta lagast, þvi hér er veður-
sæld. Það er bara sunnanlands-
Óiafur i gestamóttökunniásamt Auöi Gunnarsdóttur og Asu Otterstedt.
veður rétt eins og er”, sagði
Ólafur Skúlason og glotti.
A matstofu hótelsins. er boðið
upp á svokallaðan „sumarmat-
seðil”, sem gerir stórum
fjölskyldum mögulegt að njóta
rikulegrar máltiöar. GS/Akureyr
Guörún ólafsdóttir, eiginkona ólafs hótelstjóra, var aö snyrta til við
aðaldyr hótelsins.
Hvar gerir
kaup en í
»5 dyra »4 gira
þurrkur framan og aftan #Klul
bremsuroginnsdgo.fi. •Diskal
cc vél 83 ha sa •Rafmagnskæliv
kerfi •Halogen-þokuljós — b
stæöari
u
agnsrúðusprautur og
ós fyrir han
jjafnari •!$
gott loftræsti-
^?M.öfuðpúöar
• Rúlluöryggisbelti.
« V , v-. # V » #/ FÍATEINKAUMBOÐA ISLANOI
Sýningarbilf-á smðnuth — DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
komið, skoðið og geríð góð kaup 11 *™*»*<»*.*<>™<*l«m™.
cvvv\ason’
S -v 12 ár
_v\a fe°öa
,,Þad er
sunnanlandsveður
rétt eins og er”