Vísir - 18.07.1981, Qupperneq 16

Vísir - 18.07.1981, Qupperneq 16
VÍSIR Laugardagur 18. júll 1981 Frændur eru frændum verstir * m m Þrír fornleifafræöingar hafa nýlega fundiö hálfrar milljón ára gamlan orrustuvöll i Kenya í Afrfku, sem viöist færa sönnur á aö forfeöur okk- ar hafi ekki verið nein rolynd- isdýr heldur hitt þó heldur bet- ur. Fornleifafræöingarnir eru allir bandarfskar konur, Dr. Pat Shipmann og nemendur hennar, Wendy og Karen. A orrustuvellinum lágu stein- verkfæri svo þúsundum skipti meðal beinaleyfa um 90 risa- apa. Fornir handhafar verk- færanna virðast hafa stein- drepið frændur sina apana i orðsins fyllstu merkingu. Morðingjarnir eru taldir vera áar Neandertal-mannsins og okkar þar með líka. Rannsóknir gefa i skyn, aö áarnir hafi farið á vel skipu- lagðar frænda-veiöar, aö þeir hafinotaö fatnaö af einhverju frumstæöu tagi, að þeir hafi reist ser skjólshús, aö þeir hafi kunnaö aö kveikja eld og aö þeir hafi að öllum lfkindum Út um hvippinn og hvappinn... rotað frændur sfna með eins og hálfklló þungum hnullung- um. Til þessa hefur veriöálitiö — og vonaö —aö Homo erectus, uppre'tti maðurinn, hafi aðeins veitt antilopur, svln og jafnvel fíla ser til matar. En aö hann hafi llka drepið náskylda ættr ingja, óraði vfst engum fyrir. Hvort hann drap þá vegna kjötsins eöa vegna trúar- bragöa sinna þora fræðingar ekkert um aö segja, „en hann var alla vega hræðilega mannlegur” segir dr. Ship- men yfirmaður rannsóknanna í Afriku. undarleqir menn. |i |i iiiiiini n M Karvel og.... Fyrir einhverja handvömm féll Afmælisdagabókin niður i siöasta blaöi. Helgarblaö VIsis svlkur þó ekki slna lesendur og þvi bætum viö betur og höfum þau tvö, afmælisbörnin. Fyrstan ber aö telja Karvel Pálmason, þingmann flokksins, sem unglingurinn I ritstjóra- stólnum hjá Alþýöublaöinu veit ekki hvort er jafnaöarmanna- flokkur eöa Alþýöuflokkur enda ekki nema von. En Karvel átti sem sagt afmæli þ. 13. júli. „Einkunnir dagsins i dag er mikil skarpskyggni, sérstæöur hæfileiki til skjótrar og ná- kvæmrar ihugunar á öllu, sem fyrir ber og tilhneiging til aö taka snöggar og hiklausar ákvaröanir. Þú er mjög elskur aö erföalögum (skyldi þetta ekki vera prentvilla?) og lestri góöra bóka. Astvinum þinum ertu mjög trúr og hollur.” ....Sigurður Afmælisbarn þessarar viku heitir Siguröur Helgason og mun vera forstjóri Flugleiöa: Hann á afmæli þ. 20. júli og þaö sem meira er, hann veröur sex- tugur þá: ,,Þú er kappsamur og met- oröagjarn, gefur þig af alhug og fjálgleikaöhverju, sem þú sinn- ir og átt mjög létt meö aö sam- lagast breyttu umhverfi og kringumstæöum. Dómgreind þín er góö og kjarkurinn óbil- andi. Oröugleikar og óheppni gera aöeins aö hvetja þig til nýrra dáöa. Þú leggur sérstak- an metnaö i aö eignast sem feg- urst og skrautlegast heimili.” Úr afmælis- dagabókinni Góöar fréttir fyrir suma A mánudaginn er Þorláks- messa á sumri, sem var lög- leidd áriö 1237 I minningu þess aö þann dag áriö 1198 voru upp tekin og lögö I skrln bein Þorláks biskups Þórhallssonar hins helga I Skálholti. Páfinn I Róm viöurkenndi Þorlák þó aldrei sem dýrling enda skorti meömæli erkibiskups I Niöarósi og aöeins hin veraldlega stofn- un, Alþingi á Þingvöllum lýsti Þorlák helgan mann. A þvi haföi páfi einkarctt og vildu þvi ekki allir viöurkenna helgdóm biskupsins. Þ.á m. var bróöir Björn, norskur kórsbróöir hing- aö kominn. Honum varö enda á oröi, þegar honum var fyrir- skipað aö messa sérlega á dýrlingsdegi Þorláks: „Undarlegir menn eruö þér tslendingar, þvi aö þér kalliö þá marga heilaga menn, sem hér hafa vaxiö upp hjá yöur og I öör- um löndum vita menn öngar skynjar á.” Og haröneitaöi aö syngja messuna. Skipti þaö engum togum aö Björn bróöir veiktist og fékk ekki heilsu aftur fyrr en hann haföi lofaö yfirbót og iöran og prédikaöi hann fagurlega af Þorláki biskupi. Á Þorláksmessu á sumri var ávallt fjölmenni I Skálholti og margt um dýröir. Helgihaldiö var vitanlega afnumiö viö siöa- breytinguna en átti sér alþýö- legan fylgifisk lengi vel, nefni- lega aö smalafólkiö sem gætt haföi búsmalans fram aö Þorláksmessu mátti vera sjálf- rátt þennan dag og fékk aö eiga málsmjólkina undan bestu kúnni og fleira góöæti. Fóru smalar þá rlöandi um sveitir, höföu átveislur og eflaust aörar veislur líka. Enda var þeim bannaö að vera aö þessu áöur en yfir lauk og var þaö Oddur bis- kup Einarsson, sem haföi for- göngu fyrir þvi banni. Langur timí leiö uns banninu var ger- samlega framfylgt og smala- búsreiðar lögöustekki af fyrr en á 19. öld. Enn má fara á hátíð í Skálholti En svo viö höldum okkur enn viö Skálholt, þá er alls ekki úr vegi aö geta þess I leiöinni, aö enn má halda þar hátlöir og aö gera sér góöan dagamun er aö fara austur þangaö á fina tón- leika. Sumartónleikarnir hefj- ast um þessa helgi og er spilað I kirkjunni bæöi í dag og á morg- un. Þeir fara veglega af staö meö þvi aö frumflytja verk eftir þrjú islensk tónskáld, þá Jónas Tómasson, Atla Heimi Sveins- son og Jón Þórarinsson. Þaö eru brautryöjendur og forsvars- menn Sumartónleikanna, sem flytja okkur tónlistina, þær Helga Ingólfsdóttir og Manuela Wiesler. Með þessum hætti heldur Skálhoit áfram aö vera bæði segulpunktur og lyftistöng I menningunni. ug Ritsegulband/ ný tegund | ritvéla þróuð af Japön- ; um. Þeir sem mikiö þurfa aö nota ritvélar kannast allir viö þau óþægindi sem þeim fylgja, t.d. hávaöa. Vilji maöur ljúka viö aö vélrita eitthvaö seint á kvöldin veldur það oft truflun á svefni annarra og þetta er þeim mun bagalegra sem margir eru hættir aö geta skrifað neitt nema á ritvél. Þá eru flestar rit- vélar svo þungar i vöfum aö eritt er aö taka þær meö I feröa- lög þegar einmitt væri gott aö hafa þær viö höndina. Nú er aö koma á markaöinn lausn á þessu og fleiri vanda- málum sem fylgja ritvélum. Er hún nýtt tæki sem Japanir hafa gefiö nafniö „typecorder” sem þýöa mætti á islensku sem rit- segulband. Er þaö japanska risafyrirtækiö Sony sem þróaöi þetta tæki og er aö hefja fram- leiöslu á þvi. Ritsegulband þetta vegur ekki nema um þrjú ensk pund eða tæplega eitt og hálft kg. Þaö er meö lyklaborö eins og venjuleg ritvél en þaö sem ritaö er sést i mjóum glugga fyrir ofan boröiö eins og á vasatölvum. 1 staö þess aö prenta strax út hiö segulritaöa efni tekur tækiö þaö upp á örsegulsnældu (örlitla kasettu). A eina slika snældu er hægt aö taka upp sem svarar 120 vélrituöum blaöslöum. Aö sjálf- sögðu er hægt að ieiörétta allan segulritaöan texta aö vild. Til aö fá pappirseintak af textanum er ritsegulbandiö tengt viö lltinn prentara sem prentar slöan viö- Ritsegulbandiö góöa — samanburður á stærö miöaö viö venjulegan kúlupenna. komandi texta. Einnig blöur þetta upp á þann möguleika aö senda textann meö þar til geröu hjálpartæki I gegnum slma. Ýmsa aöra möguleika býöur þetta nýja tæki upp á sem hér veröa ekki taldir. Þá er þaö ekki verra aö þaö má einnig nota rit- segulbandstækiö sem venjuleg- an hljóörita og tala inn á þaö. Þaö er dæmigert fyrir starfs- aöferöir japanskra stórfyrir- tækja hvernig ritsegulbandiö varö til. Einn af upphaflegum stofnendum Sonyfyrirtækisins, Akio Morita, haföi veriö aö spjaila viö hollenskan blaöa- mann I hádegismat i klúbbi er- lendra blaöamanna i Tókio. Kvartaöi blaöamaöurinn yfir erfiöleikum þess aö geta ekki haft meö sér feröauppsetning- arvél sem hægt væri aö tengja viö telex og nota á annan hátt. Þegar Morita kom heim til sin haföi hann samband viö við- komandi deildir í Sony og þaö var ákveöiö aö stefna aö þvi aö þróa og framleiöa ritsegul- bandstæki. Eftir 18 mánaöa vinnu var búiö aö finnu upp og framleiða ritsegulbandiö. Er vonandi að þess veröi ekki langt að biða aö ritsegulbönd verði fáanleg á viöráöanlegu veröi. Eitt er vlst aö undirritaö- ur hefur i hyggju aö kaupa sér eitt tæki þegar þaö veröur. R.B.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.