Vísir - 18.07.1981, Qupperneq 17

Vísir - 18.07.1981, Qupperneq 17
17 Stjórn Kjarvalsstaða hefur ákveöið að breyta nafni hússins þar sem áður hétu gangar. Framvegis ber að kalla það svæði forsali. Þetta kann að hljóma undarlega en reyndin er þó sú að öllu smekklegra er að sýna listavcrk i forsölum heldur en á göngum, sem hefur ofurlit- inn litilsvirðingarblæ og mótar jafnvei afstöðu gestanna til iistamannsins. Gangarnir hafa raunar verið prýðilegir sýn- ingarstaðir, bæði hvað varðar gildi sýningargripa og umhverf- ið sjálft. Og sem sagt, framveg- is verða sýningar í forsöl- unum en ekki á göngunum. Og svona i iokin er full ástæða til að benda á listiönaöarsýninguna, sem nú fyiiir hálfa Kjarvals- staði með mikilli sæmd... Einstæð — sjálfstæð Orð eru til alls fyrst eins og Kjarvalsstaðastjórnin viður- kenndi og þá dettur mér annað i hug! Hvers vegna i ósköpunum kalla einstæöir foreldrar sig ekki sjálfstæöa foreldra? Vist standa þeir einir, en þeir standa lika sjálfir að framfærslu og uppeldi barnanna sinna og flest- ir þeirra eru stoltir af þvi sjálf- stæði. Einstæður tengist ein- stæðingur, einstæöingsskapur og er eiginlega vorkunnarvert ástand. En sjálfstæö móðir er stolt móöir — ekki satt? Ms ?rá sýningunni, sem nú stendur fir á Kjarvalsstöðum. Laugardagur 18. júli 1981 '1 Nú er kjöirid aö Þau verða ekki í vandræðum með þvottinn, Gréta og Þorleifur. Við höfum skýrt frá því að þau fengu for- láta þurrkara fyrir gjafverð (1800 kr.) — Og nú erum við líka búin að fá Electrolux-þvottavél, sem er eins og ný fyrir aðeins 5000 kr.", sagði Gréta harðánægð með kaupin. — Þorleifur var auðvitað búinn að kynna sér hvað þessar vélar kosta nýjar : „Rétt tæpar 11.000 krónur. Þessi þvottavél er ekki tveggja ára og óþekkjanleg frá nýrri." Nú þegar aðeins vika er til giftingardagsins hafa þau Gréta og Þorleif ur eytt alls 9.000 krónum af 20.000 krónunum, sem þau fengu i brúðargjöf frá Vísi til að kaupa til f ramtiðarheimilis sins í gegnum smáauglýs- ingar Vísis fyrir giftingardaginn 25. júlí. Hvaö kaupa þau fyrir -m -m * afganginn af peningunum? I.1.UUU KT. Eins og við höfum skýrt f rá hafa þau þegar keypt: Þvottavél (5.000 kr.), þurrkara (1800 kr.), saumavél (1500) kr.) og fimm bambusgluggatjöld, straubretti og fatahengi úr bambus (700 kr.) — Fyrir þessar 9.000 krónur hafa þau fengið hluti, sem kosta nýir úr versl- un rúmar 21.000 krónur. — Allir eru þessir hlutir sem nýir að sjá og sumir hafa meira að segja aldrei verið notaðir. — Gréta og Þorleif ur eru kröf uhörð og vanda vel valið til framtiðarheimilis síns. En tapa ekki þeir, sem selja svona ódýrt? Hreint ekki. Hlutur, sem ekki er not fyrir er einskis virði nema hann sé seldur eða geymdur til seinna brúks. Hann þvælist aðeins fyrir meðan tímans tönn vinnur á honum. Þessi kynningarleikur er til þess gerður að sýna, hversu auðvelt er að gera góð viðskipti gegnum smá- auglýsingar Vísis. Því ekki taka þátt í leiknum, — hjálpa Grétu og Þorleifi og hafa sjálfur gagn af. — Ennþá eru þau á f ullri ferð við að kaupa í íbúðina sína. Og svo eru auðvitað allir hinir. Þú þaxft aðeins að lyfta tólinu og hringja í smáauglysingasíma Vísis 86611

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.