Vísir - 18.07.1981, Page 23

Vísir - 18.07.1981, Page 23
Laugardagur 18. júll 1981 23 VÍSIR Þeir lögðu i hann um kl. 10 að kvöldi dags. Þeir hlupu að girö- ingunni, klifruðu upp staurana og hlupu sem fætur toguöu sið- asta spölinn. Engin jarö- sprengja, ekkert byssuskot, ekkert rafmagn. Austur Þjóð- verjarnir vissu ekkert um flótt- ann fyrr en þegar fór aö birta aö degi, þá sáu þeir sporin i jarð- veginum. Flugmaður I vestur-þýskri eftirlitsþyrlu skemmti sér við að horfa á verðina austan megin hlaupa sitt á hvað eins og maura þegar þeir voru aö lagfæra þetta gat á varnarveggnum. En stundum ótrúlega óheppnir En slik heppni er ekki alltaf fyrir hendi. Arinu fyrr, 1978, reyndu tveir strákar að komast vestur, þeir Frank og Ralf, báðir 16 ára. Þeir þekktu gamlan landamæravörð sem sagði þeim frá svæði, þar sem óhætt virtist aö freista flóttans. Landamæravöröurinn vissi ekki, aö siðan hann fór þaðan, hafði verið komið fyrir SM70 svo tugum skipti til aö tryggja varn- irnar. Strákarnir lögöu land undir fót, þeir gengu eins nótt i norður og komu á staðinn undir morgun. Þarna var aðeins ein girðing, aðalgirðingin. Frank fór yfir, ekkert gerðist, fyrir undraverða heppni nægði hreyf- ingin á virnum ekki til að virkja neitt. Hann kom niður hinum megin, hljóp yfir auða svæðiö yfir á vestur-þýska grund og sneri sér við til að fylgjast með félaga sinum. Rolf komst aldrei alla leið. Stálflisar SM70 tvistruðust og hann hékk hjálparvana og hróp- andi i netinu. Frank stóð og horfði á hann, innan tveggja minútna var kominn hópur austur-þýskra landamæravarða á staðinn og þeir stóðu og virtu drenginn fyrir sér án þess að hreyfa legg né lið. Siöan fóru þeir. Vestur-þýskir hermenn komu og fluttu Frank á brott, nokkrir urðu eftir til að fylgjast með afdrifum Ralfs. Hann féll niður úr girðingunni og lá i 2 og hálfan tima i sárum sinum, þá komu nokkrir verðir i jeppabil, drösluöu honum upp i og óku á brott með hann. Samkvæmt heimildum sem tókst að fá frá Austur Þjóðverjum, lést hann skömmu siðar á sjúkrahúsi. Lagalegu hliðarnar. Flótti þessara tveggja drengja kom af stað viðkvæmu deilumáli milli stjórnvalda i Bonn og Berlin. Faðir Franks, krafðist þess að sonurinn, sem enn var undir lögaldri, yrði framseldur. Faðirinn er með- limur i austur-þýska sósialista- flokknum og hafði enga hug- mynd um fyrirætlanir sonar síns. Dómstólar hafa enn ekki komist að neinni niöurstöðu um máliö og virðast raunar ekkert vera að flýta sér við það. Komu fljúgandi Flestar flóttatilraunir eru ævintýri likar.. A flóttanum reynir ekki aöeins á kjark, og heppni, það reynir oft á hugkvæmni og frumleika. Einn flótti, þar sem þetta allt fór saman, er fólkinu á svæöunum næst og vestan landamæranna, minnisstæður. Þegar þrir menn komu fljúg- andi á höktandi, landgræöslu- vél. Þremenningarnir hétu Wei- land, Brommer og Pfutzen- reuter. Weiland er flugmaður að mennt og hafði fyrir atvinnu að dreifa áburði úr flugvél. Brommer hafði þegar setið inni i 22 mánuði fyrir misheppnaða flóttatilraun. Pfutzenreuter var læknir i þorpinu þar sem þeir áttu heima. Þeir komu „yfir” i júni 1979. Weiland lagði upp i það sem haldiö var að væri reglubundiö landgræðsluflug, en hann lenti nokkrum minútum siöar á gömlum og ónotuðum herflug- velli, losaði sig viö áburðinn og lagði af stað til Wundersleben, á annan gamlan herflugvöll. Þar biðu hinir tveir. Þeir skriðu inn i eldsneytishólf vélarinnar, sem annars er fullt af áburði, og vélin skreiö i loftiö. Hún var of M • A aðeins 2 órum hefur Helgarpósturinn brotið ísinn ó flestum sviðum íslenskror bloðomennsku ! lengi. Einn flóttamaður hafði verið 48 klst. i sjónum áöur en sænska ferjan Peter Pan bjargaði honum. En öðru hverju rekur bólgin og afskræmd lik á strendur Vestur-Þýskalands og þaö er sjaldnast vafa undirorpið I hvaðan þau koma. Bónuskerfi Landamæraverðir Aust- ur-Þýskalands eru vel launaðir, og fyrir aö skjótaflóttamann eða koma á annan hátt fyrir undan- komu, frá þeir verðlaun. Þeir fá aukafridaga, orður og peninga- laun. En sleppi einhver i gegn um varnirnar, er yfirmanni svæöisins refsaðþunglega. Aður fyrr kom fyrir aö landamæra- veröirnir sjálfir strykju úr vist- inni, en það gerðist nú æ sjaldn- ar. Þaö er stefna stjórnvalda i Vestur-Þýskalandiaðsegja sem minnst um flóttafólkið sem leitar þangað. Kemur þar tvennt til. Móttökuhátiðir myndu veikja möguleika hinna, sem kunna að vera á leiðinni og svo er hitt, að fingert stjórn- málasamband Vestur- og Austur-Þýskalands þolir þaö varla. Samningar eru til um ýmsar undanþágur til handa ibúum Austur-Þýskalands, og þær undanþágur eru árangur samningaviöræðna um árabil. Slikar viðræður eru nær alltaf i gangi og litið þarf út af að bregða til að árangur fyrri ára sé máður út. Meðal undanþága sem um ræöir, er leyfi fyrir elli- lifeyrisþega Austur-Þýskalands til að gerast útflytjendur. Þeir eiga þá kost á að eyða ellinni meðal fjölskyldu og gamalla vina. t einstaka tilfellum er hægt að heimta fjölskyldu- meðlim úr austri gegn greiðsl- um til austur-þýsku stjórnar- innar. En um vopnahlé er ekki aö ræöa á þessu landssvæði og þega siðasta 28 milljón króna milan er fullgerð, verður varla nokkur undankomuleið eftir. Ms þýddi og samdi. 1. Sjalf landamærin vörðuð. 2. Frekari landamæramerking. 3. Merki Vestur-Þýska sambandslýðveldis- ins, svart-rautt-gult. 4. öll umferð er bönnuð á þessu svæði. 5. Tvöföld gaddavirsgirðing. Jafnan jarð- sprengjur á milli 6. Virnet — tvöföld giröing jarðsprengjur oft á inilii. Girðingin er um 2.4 m há. 7. Ein- föld virgirðing, oft sett sjálfvirkum skotfærum Hæð: 3.2 m. 8. Gryfja. 9. Sex m breitt bannsvæöi, einatt ný-plægt. 10. Vegur fyrir eftirlitsbifreiðar. 11. Varöturn byggður úr viði. 12. Steyptur varöturn. 13. Skot- birgi. 14. Ljóskastarar. 15. Fjarskiptalinur landamæragæslunnar. 16. Lögregluhundur. 17. Uinferðar- eftirlit. 18. Steyptur veggur umhverfis nálægt þorp. 19. Ysta girðingin, með viðvörunarkerfi. þung og ætlaði varla aö hafa það en Weiland tókst að halda henni hóstandi ofan jarðar. Þeir rétt skriðu yfir landamærin og voru þá I innan við 100 m hæð. Wei- land segist aldrei gleyma furðu- lostnum svip landamæravarð- anna þegar þeir gláptu á hikstandi vélina rétt fyrir ofan kollana á sér. Þeir voru of undr- andi til að muna eftir að skjóta. Flugvélin komst rúman kiló- metra inn i Vestur-Þýskaland, þá lenti Weiland henni á ný- slegnu túni. Flugvélin var siðar send aftur til heimahúsanna. Að synda burt. Þótt margar hættur steðji aö ef landleiðin óg flugleiðin er farin, er þó sú þriöja hættumest, sjóleiðin. Noröurströnd landsins liggur að Noröursjó, og þar sigla frjáls skip um höfin. Austur-Þjóðverjar hafa fyrir löngu hreinsaö þessa strönd af öllum smáskipum og bátum, sem annars mætti stela og stinga af á. Eina leiðin er að synda, sumir negla saman ein- hverja bátsmynd og komast furðulangt. En Norðursjórinn er kaldur og viðsjárverður og óteljandi sögur segja frá afdrif- um flóttafólksins. Leitarbátar austur-þýsku lögreglunnar eru einatt á feröinni og gripa suma, aðrir einfaldlega krókna og drukkna. Arið 1977 drukknaði maöur eftir að hafa komið sér, konu og barni út i bauju. Aöeins tvo komust á baujuna og maðurinn hékk i kaöli þangað til að hann króknaði og hvarf i hafið. Vestur-þýskur fiskibátur, bjargaði konunni og barninu. Sumir haldast þó við furðu-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.