Vísir - 18.07.1981, Side 35
Laugardagur 18. júll 1981
.V.4 V,' <
VtSIR
„Þetta er vandræðamál og
samgöngumálaráðuneytiö hefur
orðið að hafa afskipti af þvi,”
sagði Steingrimur Ilermannsson,
þegar Visir spurði hann um
ástæður þess að ráðuneytið breyt-
ir urskurði Siglingamálastofnun-
ar um skilin milli skemmti- og
fiskibáta, eins og Visir hefur
skýrt frá.
Steingrimur sagði að fram-
leiddir væru plastbátar, sem not-
aðir eru til handfæraveiða og eru
raunar mjög likir skemmtibát-
um. Siglingamálastofnun hafi
hinsvegar engar ákveðnar út-
géfnar reglur um þetta, þær séu
þó i undirbúningi og muni Hjálm-
ar R. Bárðarson gera tillögur um
þær.
,,Ég verð að segja að mér finnst
þetta ákaflega vandræðalegt hjá
Siglingamálastofnun, þegar einn
maður þar er að mæla með bát
sem fiskibát og annar á móti.''
sagði ráðherrann.
Hann sagði einnig að menn
hefðu, að tillögu stofnunarinnar,
sett 145ha. dieselvélar i báta, ,,og
ég hef ekki trú á að menn geri það
ætli þeir að nota þá i sport."
Steingrimur var spurður um,
eftir hverju ráðuneytið fari, þeg-
ar það breytir úrskurði Siglinga-
málastofnunar. Hann svaraði að
viðkomandi aðili væri beðinn um
sönnun þess að hann noti bátinn
sem fiskibát, t.d. með nótum fyrir
innlögðum fiski og öðrum gögn-
um, sem sýndu að báturinn væri
fyrst og fremst notaður til veiöa.
Siglingamálastofnun er siðan
beðin um álit á hvort þetta geti
staðist og svarið hefur alltaf verið
að það gæti verið rétt, að þvi er
ráðherrann sagði. „Það heíur
aldrei verið breytt neinum úr-
skurði, nema það þætti sannað að
þetta væri atvinnutæki," sagði
Steingrímur Hermannsson. — SV
Kannski hefur verið bræia fyrir utan, daginn sem Visismenn voru á ferðinni I Sandgerði fyrir stuttu. Að
minnsta kostilá fjöldibáta inni og siglutrjáaskógurinn var þéttur. (Vlsismynd Þó.G.)
Samdráltur í bifreiða-
kaupum landsmanna
Löggæsla I Reykjavlk um heigina:
Obreytt eins og
um aðrar belgar”
- segir Blarki Eliasson ytirlögregluDJónn
Bifreiöakaup landsmanna hafa
dregist nokkuð saman á fyrri
helmingi þessa árs miðað við
sama tima i fyrra. Munar það
rúmum sex hundruð bifreiðum.
I fyrra á timabilinu janúar til
júni, keyptu landsmenn 5752 bif-
reiðar, er þá átt við bæði notaðar
og nýjar, en i ár 5147. Hlutfalliö
milli bensinknúinna bifreiða og
dieselknúinna var i fyrra 5433 af
þeim fyrrtöldu, en 319 af þeim
siðartöldu. 1 ár eru þaöhins vegar
4806 bensinknúnar og 341 diesel-
knúinna.
—KÞ
Sementsverksmiðjan:
Fékk 14% hækkun
„Löggæslan er óbreytt eins og
aðrar helgar” sagöi Bjarki Elias-
son yfirlögregluþjónn aöspurður
um það hvernig löggæslu væri
háttað nú um helgina. „Viö höfum
dregið flr gæslunni á virkum dög-
um, en aukum hana þegar þörfin
er mest”.
Eins og kunnugt er hefur lög-
gæsla i Reykjavik verið meö
minnsta móti siðan fyrir siöustu
helgi vegna þess að samkomulag
hefur ekki náöst milli fjármála-
og dómsmálaráðuneytisins ann-
ars vegar og Lögreglufélagsins
hins vegar um það hvernig beri
að leysa vöntun á löggæslu sem
myndast vegna laga um lág-
markshvildartima lögreglu-
manna.
„í miðri viku er breytingin lit-
il” sagði Hrafn Marinósson lög-
reglúþjónn i samtali við Visi, en
hann er I samninganefnd Lög-
reglufélagsins. „Enn er hálf
gæsla a virkum dögum en hún er
það litil að við teljum þaö engan
veginn viðunandi, sjálfra okkar
vegna og öryggis borgaranna”.
Að sögn Hrafns hafa ráðuneyt-
in ekki viljað ræða viö Lögreglu-
félagið sérstaklega sem starfshóp
heldur viljað eingöngu ræða viö
BSRB i heild um reglugeröina um
lágmarkshvildartima.
Visis hafði samband við Harald
Stefánsson hjá BSRB og spurðist
fyrir um það hvernig umræður
við ráöuneytin gengju?
„Þetta mál hefur ekkert veriö
rætt i vikunni, vegna sumarleyfa,
en það verður fundur á mánudag-
inn hjá Samstarfsnefnd sem hef-
ur haft þetta mál með höndum, og
þá veröur reglugerðin um hvild-
artima tekinn fyrir. En ég efast
um að sérstaklega verði rætt um
ástandið hjá lögreglunni vegna
hvildartimalaganna” sagði Har-
aldur.
— HPH.
Sementsverksmiðju rlkisins
hefur verið veitt heimild til 14
prósent hækkunar á sementi, en
verksmiðjan haföi farið fram á 29
prósent hækkun.
Verksmiðjan hefur átt i miklum
fjárhagserfiðleikum undanfariö
og hafa bankar verið tregir til að
lána nema rekstrargrundvöllur
veröi tryggður. Rikissjóður hljóp
þó undir bagga meö láni upp á
nokkrar milljónir i vor, en það
dugði skammt. Einnig fékkst þá
19 prósent hækkun á veröi sem-
ents, en sótt hafði verið um 30
prósent hækkun. _ Kþ
Vísisbíó
„Tossabekkurinn” hcitir kvik-
myndin sem Visisbörnum verður
sýnd i Regnboganum klukkan 1 á
sunnudaginn. Myndin er i lit og
meö Islenskum texta.
Nýr Tomma-borgari á Laugavegi
Tómas Tómasson eigandi
Tomma-hamborgara hefur opn-
að nýjan hamborgarastað, að
Laugavegi 26 i Verslanahöllinni.
Allt er þar með sama sniöi og I
Tomma-borgurum á Grensás-
vegi en staðurinn er iviö minni.
1 tilefni af þvi að búið er að
selja yfir 110.000 Tomma-ham-
borgara og einnig vegna opnun-
ar nýja staðarins ákvað Tommi
að gefa Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra myndsegulbands-
tæki. Videomiðstöðin Laugavegi
27 gaf svo ársnotkun af mynd-
seguibandsspólum, eina spólu á
dag.Siðan mun 1% af veltu fyr-
irtækisins renna til Styrktarfé-
lags vangefna og Blindravinafé-
lagsins. — HPH
Tomma-hamborgarar hafa opnað nýjan stað á Laugaveginum og I
þvi tilefni var öllum gefnir ókeypis hamborgarar i gær en staðurinn
opnar formlega á mánudaginn. Visism. Friðþjófur
„Engu breytt
- nema sannaö sé að bálarnir séu
atvinnuiæki”. segír steingrimur
Hermannsson
akið friáJs umEvrópu!
Vegna hagstæðra samninga við bilaleigu i Hollandi getum
við boðið sérstakt kynningarverð sem gildir til 14. ágúst.
Aðeins fá sæti til ráðstöfunar á þessu ótrúlega lága kynn-
ingarverði.
Flugferðir og bill með ótakmarkaðri akstursnotkun i heila
viku, allt fyrir aðeins kr. 2.239.-
Það opnar ótal hagstæða ferðamöguleika.
ISCARGO
Austurstræti 3
Simar 12125 — 10542