Vísir - 25.07.1981, Page 8

Vísir - 25.07.1981, Page 8
8 Laugardagur 25. júli 1981 VlSIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoóarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- drup, Arni Sigfússon, Friða Astvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaðurá Akureyri: Gísli Sigurgeirsson. iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig- mundur ö. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés- son. Utlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur Jónsson. Auglýsíngastjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Áskrif targ jald kr. 80 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 5 krónur eintakið. Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. MUNADUR NUTIMANS Þess verður vart að (slending- ar eru í sumarfríi þessa dagana. Skrifstofur og fyrirtæki eru víða lokuð, á opinberum skrifstofum er engan mann að finna og ein- hvernveginn virðist þjóðarskútan vera rétt á hálfri ferð. Sjónvarp- ið er lokað og það er jaf nvel lokað fyrir alla umræðu manna á meðal. Menn leggjast í dvala. Oþarf i er að kvarta undan þessu. Langur vetur og kalt veður hrjáir okkur ærið nóg. Við þurf um á því að halda að hvílast og létta okkur upp þegar sólin er hæst á lofti. Islendingar ferðast í vaxandi mæli til annarra landa. Ferða- skrifstofur og flugfélög hafa unnið lofsvert starf í skipulagn- ingu slíkra ferða og opnað augu landans fyrir nýjum og skemmti- legum áningarstöðum, hvort heldur f sólarlöndum eða á sögu- frægum slóðum. Fyrir fjöldann allan af fólki, sem áður hefur ekki lagt land undir fót, ýmist vegna vankunnáttu í tungumál- um , lítilla efna eða hræðslu við ókunnar slóðir hefur nýr heimur opnast. Tilveran verður ánægju- legri, sjóndeildarhringurinn víkkar og forvitni er svalað. Annað hef ur einnig gerst í kjöl- far ferðalaga til útlanda. For- dómar gagnvart því sem útlent er víkja, vanmáttarkenndin hverfur og einhvernveginn breytast mannasiðir til hins betra. Það má ekki skilja þessi ummæli svo að íslendingar hafi ekki verið húsum hæfir, en auð- vitað þroskar það hvern mann að komast út fyrir landsteinana og kynnast líferni og umgengnis- venjum annarra þjóða. l'sland er einangrað land í land- fræðilegum skilningi og það er dýrt að ferðast héðan. Af þeim sökum þóttu ferðalög utan mun- aður til skamms tíma. Það var aðeins á færi hinna efnuðu, broddborgara og ríkisbubba. Nú er öldin önnur og er það vel. Enda þótt við sækjum tilbreyt- ingu, fróðleik og endurnæringu í heimsóknir til annarra landa, þá segir enginn að fsland standist ekki samanburð við hvaða land sem er. Meðan önnur lönd bjóða upp á sól og sumarhita, þá höf um við tært loft. Ef við hrífumst af grænum skógum og stórbrotnum byggingum annars staðar, þá eigum viðóbrotna náttúru og sér- stætt landslag. Og ef okkur þykir mikið til mannfjöldans og fjöl- breytileikans koma í öðrum lönd- um, þá erum við laus við þéttbýli og félagsleg vandamál milljón- anna. Meðan óeirðir og hermdar- verk, mannrán og glæpir herja aðrar þjóðir, þá getur hver mað- ur gengið um óhultur og frjáls hér á landi. útlendir ferðamenn undrast og dást að friðsemd og öryggi, sem þeir verða varir við á íslandi. Hvar í heiminum gæti forsætisráðherra gengið einn og óvarinn til vinnu sinnar að morgni? Hvar annars staðar er mögulegt að aka heim að dyrum þjóðhöfðingjans, án þess á leið manns sé her lögreglu og öryggisvarða? Margur útlendingurinn vill gefa mikið fyrir slíkt frelsi og f rið. Það er til lítils að brjótast áfram til efna, njóta skemmtana eða búa við sól og sumaryl, ef ekki er þorandi út fyrir hússins dyr, vegna ræningja eða skemmdarverkamanna. Hér á landi lifum við manneskjulegu líf i, laus við ótta, sátt við náung- ann. Það er munaður nútímans. íslendingar geta margt lært af öðrum þjóðum. Við erum ekki einir í heiminum og það er engin minnkun í því að temja sér góða siði af öðrum. En ferðalög til út- landa leiða okkur fyrir sjónir, umfram allt, hversu dýrmætt það hlutskipti er að eiga sér heimili og átthaga á íslandi. Heima er best, svo framarlega sem við kunnum að meta það sem lífið og búsetan á íslandi hefur upp á að bjóða. Sumarfríin eru hvíld, upplyft- ing og tilbreyting. En þau eiga ,einnig að vera til að safna þreki til nýrra verka, tími til að staldra við og minna á, að íslenskt sam- félag með öllum sínum hvers- dagsleika og vinnustriti er sam- félag sem gott er að tilheyra. ..Dagblöðin finna kvenna- listanum það mest til for- áttu, að hann hafi enga stefnuskrá.” ,,Það eru mannúðarkröf- urnar, sem alls staðar liggja konunum ríkast á hjarta. Og þó að konur hafi auðvitað sinar ákveðnu skoðanir á öðrum málum verða þær kröfur þó fyrst um sinn þeirra aðaláhugamál.” (19. júni, mai 1922) ,,Það eru áhugamál vor kvenna, aö bætt verði og byggð upp ný og réttlát lög- gjöf i öllum þeim málum, sem nefnd eru social mál — vér getum kallað þau vel- ferðarmál. — Vér eigum margs konar þekkingu og reynslu, er karlmenn skort- ir, en eru nauðsynleg á þess- um sviðum.” (19. júni, april 1922) „Sérmál kvenna” ýmis konar munu prýöa stefnu- skrá hins nýja framboðshóps og undir það verða flokkuð ýmis félagsleg baráttumál, svo sem dagvistunar- og skólamál, einnig menningar. og skipulagsmál.” (Visir, júli 1981) 1 grein á bls. 4 og 5 i þessu blaði er gripið niður i sögu kvenna i stjórnmálum og baráttunnar fyrir kosninga- og kjörgengisrétti. 1 lok greinar- innar er varpað fram þeirri spurningu hvort konur hafi breyst. Hafa konur breyst sam- hliöa þeim breytingum sem orð- ið hafa á réttarstöðu þeirra? Hefur meðvitund þeirra um kúgun vaxið, hafa þær nýtt sér réttindi sin, hefur áhugi þeirra á þjóðfélagsmálum aukist og þá um leið þátttaka þeirra i þeim málum? Ef dæma má af tölum einum saman, viröist sem litil breyting hafi orðið á áhrifaleysi kvenna við stjórnvölinn. Hvað veldur? Kvennalisti já eda nei? Á laugardegi Magdalena Schram skrif- Nú ris upp hreyfing kvenna og skipuleggur sérstakan kvenna- lista til framboös i bæjarstjórn- arkosningum á Akureyri. Svip- uö hreyfing mun uppi i Reykja- vik og jafnvel viðar. „Vegna þess hve konur eiga erfitt upp- dráttar innan flokkanna, veröa þær að bjóða fram sérstak- lega”. „Konur verða að standa saman.” „Það þarf að virkja konur.” „Það er vonlaust aö fá nokkru framgengt eins og málin standa nú.” „Viö munum vinna að „manneskjulegum málefn- um, svo sem skipulags og menningarmálum, dagvistun- armálum”. „reynsluheimur kvenna má ekki missa sin i stjórnmálum.” Á þessa leið hljóma forsendur kvennalist- anna. Þetta er þaö sama og kon- ur sögðu áriö 1922. Enn er þaö tekið sem vist, aö konur séu öðru visu, ekki bara sumar kon- ur öðru visi en sumir karlar, heldur allar. Þær eiga sameig- inlegan reynsluheim, sameigin- lega menningu, sameiginleg ■ m markmiö. Þess vegna hljóti þær að standa saman. Ég neita þvi ekki aö konur eigi margt sameiginlegt. Við eigum sameiginlega reynslu af kúgun og niðurlægingu. Ég er þvi lika sammála að allt of fáum konum er sú sameign ljós. Frá minum bæjardyrum séö er það höfuð- markmið kvennahreyfingarinn- ar nú eins og áður, aö gera grein fyrir þvi i hverju þessi sameign er fólgin. Fyrr veröur engu af- létt. Ekki heldur óvirkni kvenna i félagsmálum. Frá þessum sömu bæjardyrum séð, er annað markmið kvennahreyfingar aö gera endanlega út af við öll fyr- irmæli um hlutverk, ekki aöeins kvenna, heldur karla lika. Að losa einstaklinginn úr settum viöjum samfélagsins. Margt er svo sinnið sem skinniö. Orð að sönnu, ekki aðeins um karla, heldur konur lika. Markmiðið er aö hverj fái aö iða i sinu skinni eftir eigin sinni. Þess vegna kemur þaö mér á óvart, að kvennréttindakonur skuli nú setja konum svo þröng- an ramma, sem þær gera meö hugmyndum sinum um kvenna- framboð. Allar þær tuggur, sem karlmenn hafa um aldaráðir talið okkur trú um að ætti við konur einar eru nú orðnar að forsendum kvennalista. Sú sjálfsmynd, sem margar okkar hafa verið að leita að (m.a. i skrifum og útgáfum bók- menntafræðings úr okkar eigin röðum) á nú að vikja endanlega fyrir mynd af konunni, sem hluta af heild — með einn flokk áhugamála, nefnum þau „ýmis félagsmál” „social mál”, hvort heldur sem viö viljum. Allt vegna þess hve hlutur kvenna er litill i áhrifastöðum þjóðfélags- ins. Kann ekki að vera að karl- veldið sé afleiöing þátttöku- skorts kvenna fremur en orsök þess? Nema hvort tveggja sé. Er ekki nær að taka höndum saman við þá einstaklinga, hvort sem það eru konur eða karlar, sem eru reiðubúnir til að halda áfram við að grafa undan gömlum, hefðbundnum úreltum hugmyndum um stööu konunn- ar. Hefðbundin hugmynd nr. 1: Konur eru heild, ekki einstak- lingar. Og til að þrengja dæmið: væri ekki nær aö uppræta sekt- artilfinningu mæðra, gagnvart manni og börnum ef þær vikja sér af heimilinu lengur en eitt augnablik. Hvers virði er dag- vistun sakbitinni mömmu? Og væri ekki nær að halda áfram að reyna að koma konum og körl- um i skilning um hvers vegna nektarmyndir af konum upp á punt eru niöurlægjandi. A þess- um sviðum eru konur enn þá heild — ekki einstaklingar. Þar er verk að vinna. Kvennafram- boðbreyta þar engu og lagasetn- ingar um jafnrétti hafa þar litlu breytt. Þess vegna hafa konur ekki breyst. Þótt öll bæjarstjórn höfuðborgarinnar verði skipuð konum, þótt allt Alþingi veröi skipaö konum, er verkiö aðeins hálfunniö heima hjá okkur, ef konur halda áfram að þjást af sakbiti og skilja ekki eigin ni&- urlægingu. MS

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.