Vísir - 25.07.1981, Side 12

Vísir - 25.07.1981, Side 12
VfSIR Laugardagur 25. júH 1981 JANIS PETER TOSH „Ég sem tónlist til þess aö gera fólk meövitaö”, segir Peter Tosh og lætur hjá liöa aö skilgreina þaö nánar. Þaö er enda ef til vill óþarfi þvi i lögum sinum lætur hann sitthvaö fjúka um menn og málefni, sem rennir stoöum undir þessa „meövitund”. Hann er dá- litill bardagamaöur hann Peter Tosh, hvetur á stund- um til þess aö fólk spyrni kröftuglega viö fótum og oröin „jöfnuöur” og „réttlæti” koma gjarnan fyrir i textum hans. Enginn skyldi þóhaldg,sist af öllu konur — að hann berjist fyrir jöfnuði kynjanna á milli þvi ófagrar eru sumar lýsingar hans á stööu konunnar svona frá sjónarmiöum okkar Islendinga, sem búum viö þaö að i annaö hvert sinn sem kvenmanni er hafnað i opinbera stööu þá er klagaö i jafnréttisráö. Nei. Þaö er baráttan fyrir jöfnuði hvitra og svartra (karla) sem fær Peter Tosh til þess að taka sér þessi þvældu orð i munn. Peter talar einlægt mikið um samvinnu og bræöralag og trúlega væri hann mikill kaupfélagsmaður hefði hann fæðst i i'slensku dalverpi Hann fæddist á hinn bóginn á eyjunni Jamaiku fyrir röskum þrjátiu árum eða svo og stóö fyrir stofnun hljómsveitarinnar Wailers ásamt Bunny (Living- ston) Wailer og Bob heitnum Marley uppúr 1960. Sú hljómsveit geröi Jamaika-garðinn frægan svo um munaöi og óvist hvort reggae-tónlist stæöi i jafn mikl- um blóma heföu þessir þrir kónar ekki krukkað sig saman. Tosh mun, að þvi er annálar herma, hafa byrjaö aö fikta viö hljóðfærj þriggja ára gamall, um svipaö leyti mun hann hafa rekið upp nokkur gól, sem slöari tima spekingar hfa flokkað undir söng. Af hljóö- færum sem sveinninn ungi hafði mest dálæti á má nefna gitar, pianó, munnhörpu og svo ýmiss konar slagverk. Wailers varð strax forkunnar vel tekiö á heima- slóðum. Fyrsta lagið þeirra „Simmer Down” small i eyjaskeggja og lög eins og „Put It On”, „Soul Rebel” og „Small Axe” fylgdu fast á eftir uns þar kom að reggae-tónlistin barst yfir til hins vestræna heims. Tosh er maöur sérlundaður. Hann telur að maður- inn með ljáinn muni ekki koma i sitt hús þó Bob Marley hafi orðið að láta i minni pokann. „Nei, ég mun ekki deyja”, segir hann. „Dauðinn og ég munum ekki sameinast, aldrei. Sjáðu til, dauðinn er oröinn svo venjulegur aö fo'lk trúir þvi að þaö muni deyja”. „En er það nú ekki það sem yfirleit gerist?” er spurt. „Fólkdeyr, en ekki allir sem búa þessa jörö er tólk, þú skilur. Hér eru englar sem lifa og dauðinn gerir þeim ekki mein”. „Og þú ert engill?” „Auövitaö, þvi aðeins englar komast i gegnum þaö sem ég hef gengið i gegnum”. Hér ýjar Tosh að þeim atburöum er óvinafjöldi baröi hann hrottalega á sið- asta ári og lögreglan gekk i lið meö þeim. Tosh ber þeim illa söguna og segir að á ennum þeirra boröa- klæddu hafi verið merki dauöans! Kappinn er lika heldur illa farinn i andliti eins og sést á myndinni hér að ofan. Þessir atburöir breyttu talsvert viðhorfum hans til lifsins. „Nú syng ég ekki um annað en ást- ina”, segir hann. Gunnar Salvarsson skrifar. Linx — Intuition/ Chrysalis CHR 1332 David Grant og Skecth (Pet- er Martin) sem eru mennirnir á bak viö Linx-nafnið, hafa verið fastagestir á fóninum minum i hartnær þrjá mánuði. Tóniist þeirra kallast fönk á fagmáli, en þetta er svona in- dæl fingerð tónlist sem á viö hvenær sem er, — og i þvi felst styrkur hennar. Grant og Sketch slá heldur ekki feilnótu á þessari plötu, hvert og eitt einasta lag er pottþétt. Slikt er einsdæmi að kalla. Þeir fétag- arnir tveir eru fæddir i vestur- indiska eyjaklasanum, en uppaldir i Lundúnum, — og það þarf vart að taka fram að hörundslitur þeirra er i dekkra lagi. Þrjú lög af þess- ari plötu hafa vcrið gefin út á smáskifum, gengi þeirra hef- ur verið allgott, einkum lag- anna „You’re Lying" og „Int- ution" og „Throw Away The Key" er nýlega komið út og virðist ætla að standa hinum citthvað að baki. Fáar jafn- góðar plötur hafa komið frá nýliðum, til hainingju Grant og Sketch. Moody Blues — Long Distance Voyager/ VThreshold 6399 142 Þessi gamalkunna breska hljómsveit hefur heldur betur komiö á óvart, á timum nýrra strauma i popptóniist, hver hefði þá getað imyndað sér að Bandarikjamenn tækju gamla breska poppjálka og settu á toppinn? En þetta hefur nú gerst með þessa piötu, hún telst söluhæsta platan i Bandarikjunum i dag. Moody Blues hefur verið starfandi frá árinu 1964, á siðustu árum hafa þó verið áhöld um það hvenær hljómsveitin hefur vcrið með lifi og hvenær ekki, þvi sólóplötur hafa komið frá liðsmönnum hennar, — og ein- hverntima var sungið yfir gröf Moody Blues. Tónlistin á þess- ari nýju plötu er ákaflega syipuð og áður frá hennar hendi, silkimjúk lög með silki- mjúkri áferð, sem á stundum minnir á ofskreytt jólatré. Hayward verður þó að teljast einkar lunkinn lagasmiður, hann semur ágætustu lög þessarar plötu „Gemini Dream" og „The Voice”. En var ELO fyririnyndin? „Núna fannst mér vera rétti timinn til þess að leita uppsprettunnar á nýjan leik,” sagði Janis Ian þegar hún hóf að vinna að gerð plötu sinnar, Restless Eyes sem nýkomin er á markaðinn. Uppsprettan er auðvit- að þjóðlagatónlistin, þar sem hljóðfæraleikurinn skiptir ef til vill ekki höfuðmáli heldur lagið og ljóðið, fögur saga ellegar sorgleg, sem gripur hlustandann og skilur hann ekki við sig. Samt er þetta ekki svona einfalt. Merking orðsins „þjóðlagatónlist” er svo mjög á reiki, einsog raunar obbinn af hugtökum i tónlist. Og Janis Ian hefur ekki gert plötu sem er stórlega frábrugðin siðustu plötum hennar, sterki persónulegi stillinn er svo yfirgnæf- andi að þér finnst þú einlægt vera að hitta gamlan vin þegar ný plata kemur frá hennar hendi. Mörgum okkar er eflaust þannig farið að við öfund- um poppstjörnuna af frægð hennar og þeirri athygli sem hún verðuraðnjótandi, aukinheldur öfundum við hana af „frelsinu” sem fæst keypt fyrir peninga, en skuggahliðarnar gleymast. Janis Ian hefur bæði séð ljósu og dökku hliðar lifsins og ef til vill í rikara mæli en flestir aðrir. Kornung höndlaði hún heimsfrægðina með öllum þeim látum og umstangi sem þvi fylgir. Hún kunni ekki með hana að fara, lenti utan vegar einsog bill án bilstjóra, en komst þó að lokum á beinu brautina aftur. Þriggja ára gömul er Janis sögð hafa byrjað að leika á pianó og ellefu ára kunni hún flest aigengustu gitargripin. Hún byrjaði lika snemma að yrkja bæði lög og ljóð, leika sjálf undir á gitar eða pianó og syngja sérkennilega texta sina, einkar fullorðinslega. Árið 1967 féll sprengjan. Hún söng þá eigið lag og ljóð inná plötu, „Society's Child", þá sextán vetra, — og heimurinn vildi gleypa þessa ungu stúlku. Sjónvarp, útvarp og blöð létu hana ekki i friði, Life timaritið gerði sér mikinn mat úr henni og kallaði hana mót- mælasöngkonu. Hörmulegt ár fylgdu á eftir plötur hennar fengu hrottalega dóma i blöðum og tveimur árum siðar virtist ferill hennar frekar vera á enda kominn en rétt að hefjast. „Þegar ég var sautján ára, sagði ég skilið við allt”, segir Janis. „Ég gleypti i mig goðsögnina um einmana vitskerta listamanninn, — og reyndi að lifa mig inni hlutverkið. Auövitað brást mér boga- listin eins og öðrum sem ætla þessa leið”. Hún kveðst hafa lent i „skrýtnum félagsskap og eiturlyfjum” og verið á leiðinni i dauðann undir þvi yfirskyni að dauð- inn tæki þá til sin unga, sem miklum hæfileikum væri gæddir. Þessi ár eru nú i huga Ian sem alger eyða”. Arið 1971 settist hún að i Los Angelos og rétti úr kútnum, brúaði bilið á milli uppvaxandi mótmæla- söngvara og þroskaðs listamanns. Tveimur árum siðar kom út platan „Between The Lines” og lagið „At Seventeen” sem fleygðu á land tveimur Grammy-verðlaunum. Tónlist Janis Ian fylgir ekki tískubylgjum, hún semur ekki lög fyrir vinsældalista. Hún málar ein- göngu hrífandi tónlist með frjórri hugsun.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.