Vísir - 25.07.1981, Blaðsíða 13
Laugardagur 25. jiill 1981
VISIR
13
Jersy Kosinski:
FRAM í SVIÐSLJÓSIÐ.
Björn Jónsson islenskaði.
Almenna bókafélagið
1981.
Þessi stutta skáldsaga sem
heitir á ensku Being there kom
ilt i Bandarikjunum 1971 og
vakti ekki mikla athygli þá, en
við nánari skoðun dró hún menn
að sér og krafðist nánari lestr-
ar. Þannig eru skáldsögur þessa
ævintýralega höfundar, sem óx
úr grasi á vergangi austan
tjalds en komst vestur með hug-
vitsamlegum brögðum og hóf
þar fjölbreytilega lifsreisu.
Fyrstu skáldsöguna The Paint-
ed Bird ritaði hann um flökku-
dreng austan tjalds á striðsár-
unum og studdist þar við eigin
lifsreynslu. Þann söguvettvang
þekktu margir eystra en fáir
vestra, og sagan varð lesendum
þvi ýmist kunnugleg samsvörun
eða forvitnileg sýn i annan
heim.
Kozinski er pólskur að ætt og
lifði af miklar hrakningar og
áföll á barnsárum. Hann hefur
hlotið margvíslegan bók-
menntasóma og verðlaun fyrir
bækur sinar. Hann ritar oftast
stuttar sögur, styðst við atvik úr
eigin lifsreynslu eða fréttum af
atburðum og reynir að skyggn-
ast til persónanna að baki.
Styrkur hans er atferlislýsing
sem speglar sárarástand, upp-
lausn eða tilfinningarek. Þessu
marki er sagan um Sjans —
Jerzy Kosinski, höfundur bókarinnar Fram i sviðsljósið. Eftir þeirri bók var gerð eftirminnileg kvik-
mynd þar sem Peter Seilers lék eitt sitt siðasta hlutverk.
A furduvegum
Fram i sviðsljósið — brennd.
Hún er háðbeisk lýsing á for-
ystuvalinu i nútima samfélagi,
slembilukkunni, og afkáralegri
framvindu sem verður spor-
braut. En hann hugar þó fyrst
og fremst að rótum slikra
ávaxta, skyggnist i einkalif
fólksins, sem er og verður samt
við sig og fer sina eðlisleið undir
grasverðinum. Hann bregður
ljósi á furðuvegi framans,
hvernig innhverft fálæti og van-
mætti i samskiptum verður i
augum hinna úthverfu tákn og
vitni um styrk og vitsmuni, svo
að nafnlaus skuggabaldurinn
dregst fram i sviðsljósið nauð-
ugur viljugur. ósjálfrátt hlýtur
manni að koma i hug að Kos-
inski hafi með nokkrum hætti
sjálfan sig i huga, þótt sviðið og
viðburðarásin sé ekki leið hans.
Þótt innviðir sögunnar um
sjónvarpsglugga heimsins —
séu með nokkrum hráviðssvip,
sálarfræðin ekki ávallt rökvis-
leg og sagan drepist alloft á
dreif skýtur alltaf upp skýrum
myndum og skotum beint i
mark og þá gefst jafnan sýn til
kunnuglegra heimsatvika — eða
leiksýninga — en ætiö að tjalda-
baki. Lesandinn er aldrei á
neinni sporbraut og er stundum
ráðvilltur, oftast staddur á ein-
Andrés
Kristjánsson
skrifar
Sjans — munk nútlmans við
hverjum krossgötum og veit
ógjarnan hvert leiðsögumaður-
inn bendir næst. Það er eins og
söguþráðurinn sé á villugötum
timum saman, en áður en varir
er komið að leiöarsteini, sem
lesandinn þekkir, en blasir þó
við frá nýju sjónarhorni. Aö
lestri loknum er maður hálfráö-
villtur, jafnvel óánægður með
leiðsögn höfundarins, manni
finnst hann hafa brugöist, verið
hirðulaus og duttlungafullur,
jafnvel leiðinlegur. En það er
samt undarlega margt sem eltir
mann út úr bókinni og heldur
áfram að vera áleitið ihugunar-
efni.
Ég held að þýðing þessarar
bókar sé býsna góð og komi
andrúmi sögunnar furðu vel til
skila. Þó er sagan vandþýdd og
viðkvæm.
Höfundarkynningin i bókarlok
er góður fylginautur sögunnar
og gerir ýmislegt i henni hug-
tækara þeim sem ekki kann skil
á lifsferli mannsins sem skrifar.
Andrés Kristjánsson.
Sumorskór í úrvali
Teg: l
Litur: rautt leður á korksóla
Stærðir: 36—41
Verðkr.: 245.-
Teg: 2
Litir: svart og brúnt leður
skinnfóðraðir
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 295.-
Teg: 3
Litur: svart og brúnt leður
skinnfóðraðir
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 240.-
Teg: 4
Litur: ijósdrapp Nubuk
m/hrágúmmisóla
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 290.-
Forvitin
raud
Forvitinn rauð, 2. tbl. 1981 hefur
komið út. Timaritið er 24 siður og
efnismikið. Meðal stærri greina
má nefna ræðu Hildar Jónsdóttur
um Timabundin forréttindi og
sagt er frá fundi Rauðsokka-
hreýfingarinnar og KvenréW-
indafélagsins um það mál, þá er
greinaflokkur um kynlif og er það
aðalviðfangsefni Forvitinnar
rauðrar i timaritinu, sagt er frá
Hite skýrslunni um kynlif
kvenna. Margt margt fleira er i
ritinu, bæði þýtt og frumsamið.
1 leiðara segir svo m.a.: „Alls
staðar blasir við áhrifaleysi
kvenna, hvort sem um er að ræða
bæjar- eða sveitastjórnir fram-
kvæmda- eða löggjafarvald, svo
ekki sé minnst á launþegahreyf-
ingarnar, þar sem karlveldið
trónar sem hani á haug. Valda-
leysið viðheldur kúguninni en tii
þess að konur fái völd til að
breyta samfélaginu, þurfa þær að
hafa aðstæður til þátttöku i
kvennabaráttunni. hvar sem hún
fer fram! ’ og litlu siðar: „Baráttu
sem byrjar á okkur sjálfum og
okkar aðstæðum, fyrst þarf að
skilja og skilgreina svo hægt sé að
ráðast á meinið, skilgreina frá
rótum. Kannski hefur starf okkar
einkennst of af frösum, hrópum
og köllum og við höfum vanrækt
að rannsaka og leiða baráttuna i
nógu ákveðinn farveg”.
titgefandi Forvitin rauð er
Rauðsokkahreyfingin og að blað-
inu vinnur blaðhópur. Timaritið
fæst i bókaverslunum og sölu-
turnum.
Teg: 5
Litur: Ijósbrúnt leður
m/hrágúmmisóla
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 290.-
Teg: 6
Litur: Ijósdrapp Nubuk
m/hrágúmmisóla
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 290.-
*
Teg: 7
Litir: rautt og blátt leður
Stærðir: 36—41
Verð kr.: 260.-
Teg: 10
Litir Ijósdrapp lcður
m/gúmmisóla
Stærðir: 41—45
Verð kr.: 250.-
Teg: 11
Litur: Ijósbrúnt leður
m/gúmmisóla
Stærðir: 41—45
Verð kr.: 250.-
Teg: 12
Litur: blátt/drapp leður
vinrautt/drapp leður
skinnfóðraðir
Stærðir: 41—45
Verð kr. 250.-
Teg: 14
Litur: ljósbrúnt leður
Stærðir: 41—45
Verð kr.: 250.-
Teg: 15
Litir: Ijósdrapp og hvitt leður
skinnfóðraðir á
léttum Vibrain sóla
Stærðir: 41—45
Verð kr.: 250.-
Póstsendum
Skóbúðin Snorrabraut 38
Simi 14190
Verslunin Lipurtá
Hafnargötu 58 - Keflavík
Ms