Vísir - 25.07.1981, Side 16

Vísir - 25.07.1981, Side 16
lil í'íí 16 Laugardagur 25. jiílí 1981 JJT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIP Úr afmælisdaqabókinni W&l, fcZTUIZ £V~K\ /T8 LA& V/^> v AM/ / líKÍfTA 4 KA £y$rug. Ai'VA//- Hámark Brúðkaup rikiserfingjans i Bretlandi stendur fyrir dyrum. Þaö hefur varla farið fram hjá neinum. Minjagripabransinn i erföalöndum prinsins lætur ekki svo gott mál fara fram hjá sér og allt siðan trúlofun Karls og Diönu var opinberuð hafa hinir makalausustu hlutir ruöst inn á markaðinn. A ferö i London fyrir skemmstu, fór ég ekki var- hluta af þessu, sá minjagripur sást ekki sem ekki hafði nafn eða myndir skötuhjúanna ein- hvers staðar á yfirborði sinu. Það eina sem ég heföi getað hugsað mér að kaupa var aldeil- is stórkostleg maskina til aö festa innan á bilhurð: pappalikneski af parinu sem mátti trekkja upp svo að þau sýndust veifa vegfarendum. Ég hefði getað skipt um andlit og skellt ráöherrum, jafnvel for- seta i aftursætiö á bíldruslunni minni. Þetta var þó a.m.k. fynd- ið en fokdýrt leikfang, og ég lét það ekki eftir mér. Allt annað var skelfing frumleikasnautt drasl. Einkunn fyrir smekk- leysi. Enskt timarit sem ég var aö fletta er greinilega sömu skoð- unar, þvi þaö telur upp það al- gengast á markaðnum og gefur þvi einkunn fyrir smekkleysi, einkunnin 10 er hæsta stig, þ.e. mesta „Kitschið.” Viskustykki, veggteppi, könnur og bolir fá lægstu einkunn. Hæstu einkunn fær Bibliustandur, sem kostar eitt pund og fimmtiu: Tvær krossviðarplötur negidar sam- an meö mynd af brúðhjónunum væntanlegu og plastlfking af bókinni helgu. „ótrúlegt” hróp- ar timaritið og gefur standinum heila tíu i einkunn. Einn annar minjagripur um daginn stóra fær lika tiu: Lykla- kippa og naglakippur saman á keöju meö — auðvitaö — mynd smekkleysunnar? af Karli og Diönu. „Ég sé i anda þennan dæmigeröa, velhirta japanska bisnissmann klippa á sér táneglurnar með næsta kon- ungi Bretaveldis og drottningu hans” segir timaritið glottandi og gefur hugmyndinni ágætis- einkunn fyrir smekkleysuna. A ég annars aö þora að upp- lýsa að ofan af eldhúshillunni heima hjá mér brosa þau bæöi saman framan i mig, af tedós, sem vinur minn færði heimilinu til minningar um dvöl i höfuð- borg Bretaveldis nýlega? Og hún á eftir að vera þar um aldur og ævi, kinnroðalaust. Ms „Heyannir byrja” Þessa dagana eru hundadag- ar i algleymi. Þeir Guðbrandur biskup og Arngrimur lærði nefndu júll maðkamánuð *en þetta er nafn á u.þ.b. sex vikna skeiði sem venjulega er talið heitasti timi sumarsins” segir Arni Björnsson ifeók daganna' Nafnið hundadagar mun sótt til Forngrikkja, sem settu sumar- hitana i samband viö hunda- stjörnuna Sirius sem um þetta leyti tók að sjást á morgun- himninum. Seinna kom fram sú alþýöuskýring „aö hundaæði og aörar pestir gripu hvað helst um sig á þessum tima ársins.” Hérlendis skýröi alþýðan nafnið hundadagar á þann hátt að um þetta leyti bitu hundar helst gras. Onnur var sú, að höfrungar, sem einnig nefnast hundfiskar, yröu oft svo feitir um hundadaga, að fitan rynni fyrir augu þeirra, svo þeir villt- ust á land. En nú tengjast hundadagar nafni Jörundar, sem tók sér konungsnafn á tslandi þ. 25. júni 1809 en hrakt- ist frá völdum 27. ágúst sama ár. Vikan sem nú er að liða hafði það annars sér til ágætis að hafa i fórum sinum bæði messu Mariu Magdalenu og Margrétar og að auki voru i vikunni „auka- nætur” en á þeim kann ég enga skýringu — og liklega orðið of seint að benda fólki á svo ágætt fyrirbæri nú. t dag er messa Jakobs, á morgun er Skálholts- hátiö og miðsumar og „heyann- ir byrja” segir i almanakinu. Þess væri óskandi, að svo yröi raunin á. Ms Kristján Daviösson, listmálari. Afmælisbarniö okkar að þessu sinni er Kristján Daviösson, listmálari, en hann á afmæli þ. 28. júli.: „Fólk fætt þennan dag hefur sterka göfuga skapgerð. Það er bjartsýnt og fært um aö yfir- buga hvaða erfiöleika, sem á vegi þess verða, sakir hins óvanalega viljastyrks sins. Það er m jög öfundað af öðrum og oft afflutt og misskilið. Það er mjög elskt að heimilum sinum og leggur metnaö sinn i aö gera þau sem veglegust.” ! UT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — UT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — UT UM HVI

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.