Vísir - 25.07.1981, Blaðsíða 23
Laugardagur 25. júli 1981
VISIR
23
Þaö virtist ljóst hvað hafði
gerst. Buick strákanna hlaut að
hafa bilað, Sam hefur boðist til að
hjálpa og þeir skutu hann, tóku
bilinn hans traustataki og flýttu
sér á brott. Vitniö að morðinu,
Doris, varð að deyja lika. En
hvers vegna höfðu þeir myrt
Sam?
Þær rannsóknir og leit lögregl-
unnar, sem hér hefur verið skýrt
frá, gerðist á þremur dögum.
Nótt var lögð við dag, öll tækni
nýtt og vel skipulagt samstarf var
á milli lögreglunnar i Cheyenne
við nálægar borgir. Hún hafði litið
til að rekja sporin eftir i byrjun —
krumpaður miði með tima hjá
tannlækni var allt og sumt.
Það var vegalögreglumaður,
sem kom auga á hvitan Chevrolet
Impala aka i suðurátt á hrað-
brautinni US 1-15. Vegalögreglan
hafði heyrt lýst eftir bifreiðinni og
hann lét þegar vita af henni. Sið-
an fylgdi hann henni eftir, án þess
þó að vekja athygli ökumannsins
eða hinna tveggja, sem voru i
bilnum. Hann vissi sem var, að
saklaust fólk getur farið illa út úr
eltingaleikjum á hraðbraut, slikt
væri of hættulegt. Honum barst
liðsauki. Kollegar hans lokuðu
brautinni nokkuðsunnar og þegar
Chevrolettinn kom þar að, biðu
hans fjórir lögreglubilar. öku-
maðurinn reyndist vera Robin
Sands, með honum i bilnum voru
þeir Roady og Dean. Þeir sýndu
enga mótspyrnu, heldur létu
handjárna sig umyrðalaust. Sið-
an var þeim ekið á stöðina i Chey-
enne i sitt hvorum bilnum.
Hún er i ræsi
Þar voru þeir yfirheyrðir og
sögðu söguna eins og hún var.
Þeir voru allir hættir i skóla og
unnu við hitt og þetta. Siðast
þegar þeir fengu útborgað,
ákváðu þeir að leggja i púkk og
fara að heiman. Þeir höfðu bilinn
frá föður bræðranna, byssurnar
áttu þeir sjálfir, þeir höfðu stoliö
einni en safnað saman fyrir hin-
um. Billinn þeirra bilaði skammt
fyrir utan Cheyenne og þá
skemmtu þeir sér við þá tilhugs-
un að ef einhver kæmi og byðist til
að hjálpa þeim, þá myndu þeir
skjóta hann. Þessi leikur virtist
spennandi og þeir ákváðu að
setja þrjá bréfsnepla i húfu, á ein-
um stóð stórt X. Sá sem dregur
X-miðann á að kjóta — þaö var
leikurinn.
Þegar Sam, kunnur i sinum
heimabæ fyrir vingjarnleika sinn,
sá þessa þrjá stráklinga standa
við greinilega bilaðan bilinn,
stöðvaði hann og kom til þeirra.
Bauðst til að kikja á vélina. Hann
haföi ekki fyrr opnað húddiö en
Robin, sem hafði dregið miöann
meö stóra X, skaut hann i bakið.
— Og Doris, spurði lögreglufor-
inginn. Hvað um hana? „Hún sat i
Blazernum og glápti á okkur, við
skutum hana. Svo kom hundurinn
og réðist að okkur svo við skutum
hann lika. Og svo hinn”. Dreng-
irnir buðust til að sýna lögregl-
unni hvar þeir höfðu látið lik
Doris. Eftir moröin, skrúfuðu
þeir númerin af Buicknum og
keyröu burt á Blazer hjónanna.
Lik Doris var enn i framsætinu
hjá bilstjóranum. Eftir um
klukkustundar akstur stoppuðu
þeir, Dean fór út úr bilnum og
opnaði hurðina, likiö valt niður á
götuna. Þeir hjálpuðust allir við
að koma þvi inn I stórt ræsisrör.
Kassinn með ýlfrandi hvolpunum
fór inn i ræsiö lika.
Lögreglan fann ræsið, lik Doris
og hvolpana. Þeir voru enn á lifi
en illa farnir af hungri og kulda.
1 réttarhöldunum sem fylgdu,
lýstu bræðurnir Robin og Roady
sig seka aö morði og hlutdeild i
morði. Reynt var að verja Dean á
þeirri forsendu að hann væri and-
lega vanheill, en það fékkst ekki
staðfest. Þá lýsti hann sig einnig
sekan. Kviðdómurinn sat hljóður
undir hrollvekjandi lýsingum
bræöranna á þvi hvernig þeir
drógu um hver ætti að myröa
þann fyrsta sem birtist og
hvernig þeir skutu hjónin og
hundana. Enginn efaðist um að
þeir höföu gert þetta með köldu
blóði. Robin, Roady og Dean
fengu allir lifstiðarfangelsi, sem
þeir afplána i Rikisfangelsi
Wyoming.
Þýtt
Tíl hamingju
með daginn!
Nú er runninn upp hinn stóri dagur í líf i Grétu og Þorleifs, sjálf ur gif t-
ingardagurinn. Upp úr klukkan 15 í dag í Bústaðakirkju, mun séra ólaf-
ur Skúlason líta einarðlega á þau Grétu og Þorleif og spyrja: „Vilt þú,
Þorleifur Valdimar Stefánsson, ganga að eiga konuna Grétu Garðars-
dóttur, sem stendur þér við hlið...?"
Við vitum fyrir víst að þau fá margar góðar brúðargjafir, sem þau
munu meta mikils, en við erum samt ánægðastir með, hvað þeim hef ur
tekist að gera mikið úr brúðargjöfinni frá okkur.
Grétu og Þorleif i tókst að meira en tvöfalda brúðargjöf ina frá Vísi.
Við gáfum þeim 20.000 kr. til að kaupa til búsins í gegnum smáauglýs-
ingar Vísis. Fyrir þessa peninga hafa þau fengið hluti, sem á búðarverði
mundu kosta um 45.000 kr. Flestir þessarra hluta eru sem nýir að sjá og
sumir hafa meira að segja aldrei verið notaðir.
Þegar Gréta og Þorleif ur koma heim í kvöld bíða þeirra allir þeir hlut-
ir, sem þau haf a keypt í þessum kyningarleik Vísis: Hornsóf i, þvottavél,
þurrkari, saumavél, segulbandstæki, fimm bambusgluggatjöld, strau-
bretti og fatahengi úr bambus.
Auðvitað gátu Gréta og Þorleifur fengið miklu fleiri hluti fyrir pen-
ingana, en þau voru kröfuhörð og vandlát. Allir þessir hlutir munu því
eflaust fylgja þeim um langa framtíð. En þann dag, sem þau vilja
breýta til, þá vita þau, hvert þau eiga að leita. Þau vita að dag hvern lesa
mörg þúsund manns smáauglýsingar Vísis.