Vísir - 25.07.1981, Page 26
26
Laugardagur 25. júll 1981
vtsm
Stjörnubíó: Slunginn bilasali (Used
Cars)
Leikstjóri: Robert Zemickis.
Höfundur handrits: Robert Zemickis og
Bob Gale.
Kvikmyndatökumaöur: Donaid M.
Morgan.
Tónlist: Patrick Williams.
Aðalleikarar: Kurt Russel, Jack Ward-
en, Gerrit Graham, Frank McRae og De-
borah Harmon.
Bandarísk, árgerð 1980.
Hver
hlær í
betri
bíl?
Rudy Russo (Kurt Russet) selur skrjóAana meöbros á vör
Flest öllum Vesturlandabúum
þætti óvitlaust aö kalla
tuttugustu öldina öld bilsins.
Bíleigendur njóta hvers konar
forréttinda fram yfir þá sem
kiósa önnur farartæki en einka-
bilinn og bilaviöskipti hafa
ævinlega þótt einkar blómleg. í
Ameriku er bilasalan öll i anda
frjálsrar samkeppni og i kvik-
myndinni „Slungircn bilasali” er
óspart gert grin aö baráttuaö-
feröum bilasalanna.
Jack Warden leikur bræöurna
Roy L. Fuchs og Luke Fuchs, en
þeir lifa báöir af sölu bifreiöa.
Samkeppnin milli þeirra er
harla óvægin og Roy tekst að
lokum að sálga Luke. Rudy
Russo (Kurt Russel) starfs-
maöur Lukes er hins vegar ekki
á þvi að láta Roy komast yfir
bilasölu bróðurins á mjög auð-
veldan hátt, heldur beitir öllum
brögðum sem sjónvarpsauglýs-
ingar og aörar misvandaöar
söluaðferöir hafa uppá ab bjóöa.
Russo er enginn miölungs-
maður þegar sölumennskan er
annars vegar. Luke segir
skömmu fyrir andlátiö að svo
svikulan og útsmoginn sölu-
mann hafi hann aldrei haft i
þjónustu sinni og maðurinn sé
þvi liklegur til frama á vigvöll-
um stjórnmálanna.
Bilaeltingaleikir, árekstrar og
sprengingar i bifreiöum eru að
verða æriö hversdagslegir viö-
buröir i kvikmyndum. Slikir
atburðir eru lika aukaatriöi i
„Slunginn bilasali” þar sem
gamansöm ádeila á siöleysiö i
verslun og viðskiptum situr i
fyrirrúmi. Kærur, auglýsinga-
svik, leigumorðingjar og mútu-
þægir embættismenn eru á
hverju strái og viöskiptamenn
jafnt sem samkeppnisaöilar fá
aö kenna á prettum bilasalanna.
Carter fyrrum forseti og
óbreyttir kaupendur bifreiöa fá
sinn skammt af háöi og alls
staöar trónir sjónvarpiö sem
hinn eini sanni fjölmiðill.
I „Slunginn bilasali” hafa
þeir Robert Zemickis og Bob
Gale hellt gömlu vini á nýja
belgi og beitt viö þaö aöferð sem
er ansans ári skemmtileg.
Myndin er ætluð öllum aldurs-
hópum en þó einkum miöuö við
hláturþarfir fullorðinna.
—SKJ
hvad, hvar...?
■
....Regnboginn sýnir kvikmynd
Fassbinders, Lili Marleen, en
myndin er sannast sagna hiö
ágætasta listaverk. Amerikanar
sýndu myndinni ákaflega litinn
skilning þegar hún var frum-
sýnd vestra nú á dögunum, eða
svo var aö skilja á gagnrýnanda
Time. tslendingar hafa hins
vegar tekið þessu þýska nýmeti
feginsamlega........Myndin
Cruising hefur veriö flutt úr
Hafnarbió i Regnbogann en i
henni er sett fram ærið reifara-
leg mynd af samfélagi kynvill-
inga i ameriskri stórborg...
Apocalypse Now I Tónabiói
hefur hlotiö næsta einróma lof
hvar sem myndin hefur verið
sýnd, og raunar á hún mestan
partinn af þvi lofi skiliö. Myndin
er oft og tíöum stórfengleg á að
horfa og sem frásögn af Viet
Nam striöinu er hún eftirtektar-
verð.......Darraöardans I
Laugarásbiói má meö sanni
kalla kvikmynd Walters
Matthau þvi þessi mikli grinisti
ber myndina algerlega uppi.
Matthau leikur spæjara sem
lendir upp á kant viö yfirmenn
sina hjá CIA og fer aö átökum
Roger Daltrey
loknum með sigurorð af
hólmi....Nýja Bíósýnir mynd-
ina Lokaátökin Fyrirboöinn III.
Myndin er beint framhald af^
Omen I og Damien-Omen II.'
Einhverjir hljóta að hafa áhuga
á imynduðum heimsóknum
Fjandans til jarðar, ella hefðu
ekki veriö geröar svo margar
myndir um Damien litla sem
haldinn er illum anda, vex úr
grasi og vill að lokum næla i for-
setaembætti...Kanadamaður-
inn David Cronenberg þykir
snjall I gerð hryllingsmynda en
mynd hans Skyggnarer einmitt
til sýnis i Gamla Biói. Myndin
snýst um eflingu hugarorku og
eyðingarmátt hennar. Sannköll-
uö hugvisindamynd.... McVicar
i Háskólabiói segir frá
harðsviruöum glæpamanni en
Roger Daltrey söngvari The
Who fer með hlutverk hans.
Liösmenn The Who standa að
framleiöslu myndarinnar en
þaö framtak þeirra hefur ekki
mælst illa fyrir hjá gagnrýn-
endum....
Messa, samkoma, söngur og ræöur veröa I Skálholti á Skálholtshátiö-
inni 1981.
Skálholts-
hátídin 1981
Haldin 26. júli
Hin árlega Skálholtshátið verð-
ur i Skálholti á morgun, sunnu-
daginn 26. júli. Messa veröur um
morguninn og munu biskup Is-
lands, herra Sigurbjörn Einars-
son og séra Guðmundur Óli Ólafs-
son þjóna fyrir altari. Dr. Henrik
Frehen, biskup predikar og meö-
hjálpari er Björn Erlendsson.
Skálholtskórinn syngur en for-
söngvari er Bragi Erlendsson.
Trompetleikarar meö söng kórs-
ins eru Jón Sigurösson og Lárus
Sveinsson. Organleikari er Hauk-
ur Guölaugsson og söngstjóri
Glúmur Gylfason. Róbert A.
Ottóson raddsetti og hljómsetti
alla þætti messunnar.
Klukkan 16.30 verður samkoma
i kirkjunni og munu kórar og
organistar úr Árnes- og vestur-
hluta Skaftafellsprófastsdæmis
flytja sálmalög i tilefni þúsund
ára afmælis upphafs kristniboðs á
tslandi, fyrri hluta efnisskrárinn-
ar. Siöan mun séra Eirikur J. Ei-
riksson, prófastur halda ræðu.
bá tekur við siöari hluti efnis-
skrár kóra og organista. Þá er
ritningarlestur og bæn, séra
Heimir Steinsson, rektor.
Samkomunni siödegis i kirkj-
unni lýkur meö almennum söng.
Ingiberg Magnússon hefur haft
opna um nokkurt skeiö myndlist-
arsýningu i Bókasafninu á Akra-
nesi. Hann sýnir þar 33 grafik-
myndir og er þetta sjötta einka-
sýning hans en hann hefur tekið
þátt i fjölda samsýninga hérlend-
is og erlendis. Sýning Ingibergs
er opin virka daga á opnunartima
safnsins en klukkan 14-20 nú um
helgina sem er siöasta sýningar-
helgi. Sýningin stendur til mán-
aöamóta.
t dag opnar Guömundur Björg-
vinsson myndlistarsýningu I
Djúpinu. Sýningin opnar klukk-
an 13.30.
Á Mokkaer sýning á verkum ital-
ansiLicato.
t Norræna húsinu er sýning á
verkum Jóns Stefánssonar og
stendur hún yfir I allt sumar.
Einnig er i Norræna húsinu yfir-
litssýning á verkum Þorvaldar
Skúlasonar og er þaö sumarsýn-
ing hússins.
Nú stendur yfir sýning á ljós-
myndum af leikmunum Alþýðu-
leikhússins siðast liöin ár. Sýn-
ingin er i Torfunni.
Galleri Langbrók sýnir verk
safnsins og er þetta sumarsýning.
Sumarsýning K jarvalstaöa:
Leirlist.gler, textill, silfur, gull og
sýning á verkum meistarans
sjálfs.
Magnús Þórarinsson sýnir verk
sin I Nýja Galleríinu Laugavegi
12. Galleriiö er opiö frá klukkan
14-18 alla virka daga.
Kirkjumunir: Sigrún Jónsdóttir
er meö batiklistaverk.
1 Listasafni tslandser litil sýning
á verkum Jóns Stefánssonar og
einnig eru sýnd verk i eigu safns-
ins. t anddyri er sýning á grafik-
gjöf frá dönskum listamönnum.
,,t kvöld klukkan 20 veröa tveir
listamenn með uppákomu i Ný-
listarsafninu Vatnsstig 3b. Þaö
eru danski listamaöurinn Jens
Tordsen og Sviinn Nette Arre. Að
sögn ólafs Lárussonar forsvars-
manns Nýlistasafnsins er allt á
huldu meö þaö hvernig uppákoma
þetta er, aö þvi kemst fólk ef þaö
mætir I Nýlistasafniö klukkan 20 i
kvöld.
LICHT \ *s
NIGHTS í I m
■d FRIKIRKJU- M
y; 1 VEDUR II
Lt
Sýningar á hinum sivinsælu Light
Nightseru aö Frikirkjuvegi 11 á
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöldum og
hefjast sýningarnar klukkan 21.
Efnið i Light Nights er allt is-
lenskt, en flutt á ensku að undan-
skildum þjóölagatextum og
kveönum lausavisum. Meöal ann-
ars má nefna: þjóðsögur af
huldufólki, tröllum og draugum,
gamlar gamanfrásagnir og einn-
ig er lesiið úr Egilssögu. Allt talað
efni er flutt af Kristinu G.
Magnúsdóttur leikkonu.
Ýmsar sumarsýningar standa yfir viösvegar um landið.