Vísir - 25.07.1981, Blaðsíða 36

Vísir - 25.07.1981, Blaðsíða 36
 síminn er86611 ■ I í ■ i I ■ 1 I i I veörið her ■ 09 har i i Akureyri skýjaö 18, Bergen þrumur 16, Helsinki þrumur 18, Kaupmannahöfn hálfskýjaö 18, Osló léttskýjaö 19, Reykjavík skýjaö 16, Stokkhólmur hálf- skýjaö 20, Þórshöfn skýjaö 11, Aþena heiörikt 28, Feneyjar þrumur 19, Nuuk skýjaö 10, London skýjaö 14, Luxembourg skýjaö 13, Róm heiðrikt 25. t I fl 8 Loki í seglr Hvaö skyldi veröa sagt um || heimsmeistaraeinvfgiö i skák i m sovéskum sagnfræöiritum (f seinna meir? Sjálfsagt lftiö h Veöurspá dagsins i i ■ Gert er ráö fyrir fremur hægri suölægri eöa suö-vestlægri átt. A sunnan- og vestanveröu land- inu veröur skýjaö og viöa súld eöa rigning, en noröaustanlands léttskýjaö. Hlýtt veröur i veöri um allt land, en þó sérstaklega i sólinni noröaustanlands. Norskur bankaræningi: Teklnn höndum meö íslenskt vegabrél Norski bankaræninginn, William Knudsen, var hand- tekinn i Aþenu í Grikklandi siðastliðinn miövikudag, þar sem hann var á ferð meö stoliö islenskt vegabréf. Knudsen framdi stærsta bankarán sem sögur fara af i Noregi. Hann strauk úr fangelsissjúkrahúsi fyrir um hálfu ári siöan. íslenskur feröamaöur á Spáni glataöi vegabréfi þvi sem fannst i fórum Knudsen en talið er aö Knudsen hafi keypt þaö á svört- um markaöi á Spáni. Knudsen er 26 ára gamall en á sér litrikan feril aö baki og er hann einn eftirlýstasti afbrota- maður i Noregi. Hann var að- eins tvitugur að aldri þegar hann rændi um 103 milljónum norskra króna úr banka. Þetta rán er mesta bankarán sem framiö hefur verið i Noregi. 1 nóvember 1979 var hann enn á ferðinni og rændi um 100 þúsund norskum krónum úr banka. 1 þvi ráni skaut hann á mann úr haglabyssu og særði hann. Varð aö taka aöra höndina af manninum en hann situr enn uppi með 80 högl i skrokknum. Knudsen var handtekinn fyrir um ári siöan. Hann geröi sér upp veikindi i fangelsinu og var fluttur á sjúkrahús þaöan sem hann strauk fyrir 5—6 mán- uðum. Interpol hefur verið á hælum hans siöan þar til griska lögreglan handtók hann. —KS/JEG,Osló mmmsam ■ Vinnuskóla Kópavogs var slitiö meö pomp og pragt i gær er kveikt var I 32 bálköstum i Fifuhvamms- landi. Krakkarnir höföu undanfarna viku veriö aö laga til á svæöinu og uppistaöan i báiköstunum voru gamlir skreiöarhjallar sem nú hafa lokiö hlutverki sfnu. — Visism. EÞS iscargo: Stendur til aö kaupa Boeing 727 í haust ,,Það stendur til aö kaupa eða leigja Boeing 727 100 með haust- inu,” sagði Guðni Þórðarson, i samtali við Visi, en félagið at- hugar nú tilboð og kaupleiðir á slikri þotu, sem ætlað er að sinna áætlunarfluginu milli Reykjav- ikur og Amsterdam, bæði sem farþega- og vöruflutningavél. Iscargo hefur hingað til haft Electra skrúfuþotu i vöruflutn- ingaflugi til Rotterdam og er fyrirhugað að selja hana. Þá mun vera að renna út leigusamningur á Boeing 737 200, sem Iscargo hefur leigt af Transavia, en hún hefur verið notuð i sumar i far- þegafluginu til Amsterdam. „Það er ætlunin, að þessi nýja vél verði komin i gagniö i októ- ber og stefnt er að tveimur ferðum i viku til Amsterdam i vetur, blandað farþega- og vöru- flutningaflug, en vél af þessari stærð tekur um 60 manns i sæti auk 10 tonna af vörum. Okkur hefur borist tilboð um skipti á skrúfuþotunni og vél af 727 100 gerð og er ekki óliklegt að við tökum þvi boði,” sagði Guðni Þóröarson. —KÞ Elnvigið fært fram: í trausti pess aö mál- efni Kortsnojs leysist FIDE gefur eftir 5% af verðlaunafénu „Ég hef fengið yfirlýsingu frá Sovétmönnum og gögn frá þeim um aö málefni fjölskyldu Korts- nojs leysist og i trausti þessa hef ég fært einvigið fram” sagði Friðrik Olafsson forseti Alþjóða skáksambandsins i samtali við Visi i gærkvöldi. Friðrik vildi ekki fara út i það efnislega hvaö i yfirlýsingum Sovétmanna fælist en sagði að þær fælu að sinu mati i sér full- komlega réttlætingu á þessari ákvörðun hans. Einvigið hefur i orði kveðnu verið fært fram til 19. september en þá verður mótið sett eins og Sovétmenn höfðu óskað en fyrsta skákin verður ekki tefld fyrr en 1. október vegna óska einvigishaldaranna á Italiu. Þeir töldu sig ekki geta fært ein- vigiö framar. Friörik Ólafsson sagði að engin dagsetning lægi fyrirum brottfarardag fjölskyldu Kortsnjos frá Sovétrikjunum enda væri það ekki það sem máli skipti heldur hitt að þau fengju að fara. „ttalarnir höfðu lagt i mikinn undirbúning sem miöaðist allur við dagsetningu 19. október. Það hefur þvi nokkurn kostnaðarauka i för með sér fyrir þá að færa það fram. Ég hef þvi lagt til að FIDE gefi eftir þá upphæð sem það á að fá af verðlaunafénu en sú upphæð nemur 5% af þvi og ég vænti þess að það verði samþykkt” sagði Friðrik. „Það er vissulega mikill léttir að þetta mál skuli vera leyst. Það kemur i veg fyrir deilur og væringar á þinginu” sagði Friðrik Ólafsson. —ÓM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.