Vísir - 17.09.1981, Blaðsíða 1
Svlptingar í Otvarpsráði vegna meintra trúnaðarbrota fréttamanna:
VAR SPÓLU STOLKI A
FRETTastofu útvarps?
Allsnarpar umræður
hafa orðið á fundum út-
varpsráðs að undanförnu
og bókanir gengið á vixl
um gagnrýni ýmissa full-
trúa þar á meint trúnaðar-
brot starfsmanna á
Fréttastofu hljóðvarps.
Máliö kviknaöi út frá tilvitnun
Vilmundar Gylfasonar i samtal
Gunnars E. Kvaran fréttamanns'
viö Kjartan Jóhannsson, formann
Alþýöuflokksins, en þetta viðtal
var aldrei birt og að áliti Kjartans
var þarna um trúnaðarsamtal aö
ræða.
Ýmis gögn hafa verið lögö fram
um mál þetta, meðal annars
skýrsla fréttamannsins þar sem
hann telur, aö hugsanlega geti
veriö um þjófnað á persónulegum
gögnum hans á fréttastofunni aö
ræöa. Gengurhann þar út frá full-
yrðingum Vilmundar fyrr i sum-
ar, aö hann hafi undir höndum
segulbandsspólu meö upptöku á
umræddu samtali. Ekkert hefur
veriö upplýst um, hvernig upp-
lýsingar þessar bárust út.
,.Það hefur ekkert verið sann-
að, hvort einhverju var stolið eða
ekki og Vilmundur Gylfason hef-
ur aldrei staðfest við mig, aö
hann hafi nokkurn tima haft um-
rædda spólu undir höndum”,
sagði Hörður Vilhjálmsson, sett-
ur útvarpsstjóri, i samtali við
Visi.
Hefur það komiö fram, hvern-
ig Vilmundur komst yfir spól-
una?
„Nei, og ég reikna ekki meö aö
nánar verði farið út i það, en þó
hefur hann staðfest við mig, að
upplýsingar þessar séu ekki
komnar frá fréttastofunni.”
— Kanntu þá einhverjar skýr-
ingar á þvi, hvernig hann fékk að-
gang að oröréttum ummælum
Kjartans?
„Það eru fjölmargir möguleik-
ar opnir. Þegar tveir menn tala
saman i sima, má hlusta samtal
þeirra beggja vegna linunnar,
ekki bara fréttastofu-megin.”
Hörður bætti við, að hann teldi
Gunnar ekki hafa brotið trúnað á
Kjartani, þó hann hefði spilaö
umrædda upptöku af samtali
þeirra fyrir samstarfsmenn sina,
þar sem hann hefði sagt Kjartani
fyrirfram, að það yrði gert.
Markús örn Antonsson, fulltrúi
i útvarpsráði, hefur óskað eftir
þvi, að athugasemdirGunnarsum
mögulegan þjófnað verði kannað-
ar nánar og fleiri atriði úr skýrslu
hans.
„Ég held, að Markús hafi mis-
skilið þessa skýrslu, þvi að málið
liggi fullkomlega hreint fyrir”,
sagöi Hörður.
Markús kvaðst, i samtali við
Visi, una þessum ummælum
Harðar illa og skora á hann að
birta greinargerð Gunnars i
heild, þar sem þar kæmu fram
ýmsar athyglisverðar staðhæf-
ingar, til dæmis um aðild Vil-
mundar að máli þessu.
A fundi starfsmannafélaga út-
varps og sjónvarps i gærkvöldi
var gerð ályktun, þar sem mót-
mælt er harölega siendurtekinni
gagnrýni útvarpsráösmanna og
annarra á störf fréttamanna út-
varps, þar sem hún sé hvorki
byggðámálefnalegum grundvelli
né fullnægjandi rökum, og flokk-
ist þvi undir hreinan atvinnuróg.
—JB
m-
Guðmundur Steinsson lengst til vinstri hefur sent knöttinn I netiö hjá frsku bikarmeisturunum
Dundalk i Evrópukeppninni á Laugardalsvellinum I gærkvöldi. Fram sigraði I leiknum 2:1 og er það
fyrsti sigur hjá Islensku liði á heimavelli f Evrópukeppni i knattspyrnu slöan Akranes vann Omonia frá
Kýpur 4:0árið 1975. t kvöld verður annar Evrópuleikur á Laugardaisvellinum, nýbakaðir islandsmeist-
arar Vikings leika þá við eitt besta knattspyrnulið Frakklands, Bordeaux. Sjá nánar iþróttir á bls 6 og
7... klp/VIsismynd Friðþjófur.
SEMENTIÐ GIRT AF
EKKI FANGARNIR
- seuir Heigl Gunnarsson tangelsisstlóri á Lltla-Hrauni
„Þeir hjá Sementsverksmiðju
rikisins eru búnir að girða i kring
hjá sér uppá Artúnshöfða og sú
girðing er algerlega mannheld.
Hvaöa þörf er á þvi á meðan við
höfum svolélega? Reyndin er sú,
að hluti af okkar starfsemi er ut-
an girðingarinnar. Við þurfum
þvi nauösynlega girðingu, en
stjórnvöld virðast ekki hafa neinn
skilning þar á.”
Svo segir Helgi Gunnarsson
forstjóri vinnuhælisins að Litla-
Hrauni meðal annars i samtali
við VIsi.
- Athafnasvæði Litla-Hrauns ut-
anhúss, hefur um nokkurt skeið
valdið töluverðum áhyggjum,
bæði starfsmönnum fangelsisins
og Ibúum Eyrarbakka, en
fangelsið er nánast við húsvegg
grunnskólans þar i þorpinu. Litið
hefur verið hirt um að stækka at-
hafnasvæöið utan húss á sama
tima og byggt er við fangelsiö
sjálft. Er nú svo komið aö fang-
arnir þurfa aðsækja eitt og annað
utan girðingar. Þar er til dæmis
hluti vinnuaöstöðu þeirra, svo og
Iþróttavöllurinn, en hann er alveg
við þjóðveginn. Samt hafa ekki
nema tveir fangar strokið þaðan,
það sem af er árinu.
Sjá nánar viðtal við
Helga og ibúa Eyrar-
bakka á blaðsiðu 14 og
15. —KÞ
tþróttavöllur fanganna er rétt við þjóðveginn er liggur framhjá Litla
Hrauni. (Visism.EÞS)